Morgunblaðið - 16.03.2009, Page 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MARS 2009
GUÐJÓN Arnar Kristjánsson var
endurkjörinn formaður Frjálslynda
flokksins á landsþingi í Stykkis-
hólmi á laugardag. Guðjón hlaut 83
atkvæði af 100 greiddum og Magn-
ús Þór Hafsteinsson varaformaður
fékk 15 atkvæði. Ásgerður Jóna
Flosadóttir var kjörin varafor-
maður flokksins með 51 atkvæði.
Kolbrún Stefánsdóttir fékk 38 at-
kvæði og Viðar Guðjohnsen 11 at-
kvæði. Hanna Birna Jóhannsdóttir
var réttkjörin ritari flokksins og
formaður fjármálaráðs var kosinn
Helgi Helgason, fékk hann 13 at-
kvæðum meira en Sturla Jónsson.
Guðjón
endurkjörinn
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Ný stjórn Hanna Birna Jóhannsdóttir ritari, Guðjón A. Kristjánsson for-
maður og Ásgerður Jóna Flosadóttir, varaformaður Frjálslynda flokksins.
ALÞJÓÐA hafrannsóknaráðið
(ICES) hefur kynnt ráðgjöf sína um
stofngerð karfa. Djúpkarfi við land-
grunnshlíðar Grænlands, Íslands og
Færeyja og úthafskarfi í Grænlands-
hafi og nærliggjandi svæðum teljast
til sömu tegundar.
Djúpkarfinn við Ísland og í Græn-
landshafi skiptist í þrjá líffræðilega
aðgreinda stofna. Ráðgjafanefnd
ICES hefur nú lagt til að stjórnunar-
einingar í djúpkarfaveiðum verði
þrjár, en ekki tvær eins og til þessa.
Nýju svæðin verði Norðaustur-
Grænlandshaf, Suðvestur-Græn-
landshaf og svo veiðar í landgrunns-
hlíðum Íslands, m.a. Reykjanes-
hryggur. Vísindamenn Hafró hafa
lengi talið að núverandi stjórnunar-
einingar endurspegli ekki líffræðileg-
ar stofneiningar karfans. Hingað til
hefur stofnmat og veiðistjórnun mið-
ast annars vegar við veiðar í Græn-
landshafi og nærliggjandi hafsvæðum
og hins vegar veiðar í landgrunnshlíð-
um Grænlands, Íslands og Færeyja.
Fallist á sjónarmið
Íslendinga um karfann
Svæðaskiptingunni hefur verið breytt
ÁFRAM verður
tekið á móti öllum
nemendum 8., 9.
og 10. bekkjar í
grunnskóla
Reykjavíkur sem
skrá sig í Vinnu-
skóla Reykjavík-
ur en vinnutíminn
verður styttur.
Starfsáætlun
skólans var kynnt
í borgarráði nýverið. Búist er við
miklum fjölda í vinnuskólann í sum-
ar. Skólinn hefur verið vinsæll val-
kostur og næsta sumar standa ekki
eins mörg störf til boða í Reykjavík
og oft áður.
Veturinn 2008-2009 eru 4.500
nemendur skráðir í 8., 9. og 10. bekk
grunnskóla í Reykjavík sem er 200
færri en voru á seinasta ári. Búist er
við að um 80-90% þeirra skrái sig í
vinnuskólann eða að þau verði tæp-
lega 4.000 sem er umtalsvert meira
sumarið 2008, en þá voru nemendur
um 2.400. Öðrum starfsmönnum
skólans verður ekki fjölgað.
Guðrún Þórsdóttir skólastjóri
Vinnuskólans undirstrikar að vinna
nemenda er góð fjárfesting og for-
vörn. Skráning í Vinnuskólann fer
fram í apríl.
Allir með
í Vinnu-
skólanum
Vinna Vinna eflir
hug og hönd.
Tekið á móti umsókn-
um 8. til 10. bekkjar
DÖGG Pálsdóttir, frambjóðandi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
upplýsti það um helgina að hún hefði
greitt fyrir viðtöl á Útvarpi Sögu og
á sjónvarpsstöðinni ÍNN; um 53
þúsund krónur til Sögu og rúmar 74
þúsund til ÍNN. Í yfirlýsingu frá
Ingva Hrafni Jónssyni, sjónvarps-
stjóra ÍNN, segir að stöðin selji út-
sendingartíma á 60 þúsund krónur
hálftímann fyrir utan virð-
isaukaskatt. Innifalið í verðinu sé
klukkutíma upptaka í stúdíói og út-
sending á besta dagskrártíma. Við-
komandi ráði dagskrá, viðmæl-
endum eða spyrlum og fái í eigin
vasa allar tekjur af auglýsingum eða
kostun sem þeir selja.
Meðal slíkra þátta eru Leið til
léttara lífs, Suðurnesjamagasín,
maturinn og lífið, Skýjum ofar og
fjölmargir aðilar eru í viðræðum við
ÍNN um framleiðslu og útsendingu
á fjölbreyttu efni, sem áhorfendur
ÍNN fá að njóta í náinni framtíð. Öll-
um frambjóðendum í prófkjörum
hefur staðið þessi þjónusta til boða
og kom það ÍNN á óvart hve fáir
notfærðu sér þennan valkost í ljósi
þess hve ódýr hann er í samanburði
við aðrar auglýsingar.
Greiddi fyr-
ir viðtöl í
fjölmiðlum