Morgunblaðið - 08.04.2009, Page 1
Þjálfari Handknattleiksþjálfarinn
Ágúst Jóhannsson fer til Noregs.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Levanger hefur ekki gengið sem
best á yfirstanandi leiktíð og er í 10.
sæti úrvalsdeildarinnar af 12 liðum.
Liðið er ekki öruggt um sæti í úr-
valsdeild á næsta keppnistímabilinu
því framundan eru tveir leikir við
HK Sola um keppnisrétt í úrvals-
deildinni. Telja má þó sennilegt að
Levanger eigi að leggja HK Sola og
halda sæti sínu því Sola-liðið varð í
þriðja sæti næstefstu deildar þar
sem keppni lauk fyrir skömmu. Lev-
anger varð í fimmta sæti í fyrra.
Stökkpallur til stærri liða
„Forráðamenn liðsins ætla að
styrkja liðið með þremur til fjórum
leikmönnum fyrir næstu leiktíð. Mér
líst vel á það sem menn hafa fram að
færa og hlakka til þess að takast á
við þetta verkefni sem framundan er
hjá félaginu,“ segir Ágúst sem hefur
verið í sambandi við forráðamenn
Levanger í rúma viku. Þeir báru
fyrst víur sínar í hann á síðasta ári en
þá varð ekki úr samningi.
Ágúst viðurkennir að með samn-
ingnum sé ákveðinn draumur að
rætast. „Mig hefur lengi langað til
þess að þjálfa utan lands og að geta
unnið við þjálfun í fullu starfi. Það
get ég með þessum samningi við
Levanger. Ég lít líka á þetta tæki-
færi sem stökkpall til stærri liða ef
mér tekst vel upp,“ segir Ágúst sem
hættir á næstu dögum sem þjálfari
karlaliðs Gróttu. Þar skilar Ágúst
góðu búi því nýverið tryggði Grótta
sér sæti í úrvalsdeild á næstu leiktíð.
Eftirsjá að Gróttu
„Sannarlega verður ákveðin eft-
irsjá að Gróttu og þeim góða hópi
leikmanna, stjórnarmanna og ann-
arra sem í kringum félagið eru. Þetta
tilboð frá Levanger var hins vegar
alltof spennandi til þess að afþakka
það. Ég geng stoltur frá mínu starfi
hjá Gróttunni. Við höfum náð okkar
markmiði um að komast upp í efstu
deild. Í liðinu eru góðir leikmenn
sem eiga spennandi keppnistímabil
framundan á næsta vetri. Þá vinnur
góður hópur í kringum liðið með
mikinn metnað sem mun fá góðan
þjálfara í minn stað,“ segir Ágúst Jó-
hannsson handknattleiksþjálfari.
Var ekki hægt að segja nei
„ÞETTA var einfaldlega of spennandi
tilboð til þess að hægt væri að neita
því,“ segir Ágúst Jóhannsson hand-
knattleiksþjálfari sem í gærkvöldi
skrifaði undir þriggja ára samning við
norska úrvalsdeildarliðið Levanger.
Hann tekur við þjálfun liðsins í sumar
og flyst þá til Levanger ásamt eig-
inkonu og þremur börnum. Levanger,
sem er eitt þekktasta kvennalið Nor-
egs, er frá samnendum bæ rétt fyrir
norðan Þrándheim.
Handknattleiksþjálfarinn Ágúst Jóhannsson samdi við norska úrvalsdeild-
arliðið Levanger til þriggja ára Hefur lengi dreymt um að helga sig þjálfun
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2009
íþróttir
Lofar marki Guðjón Baldvinsson er í harðri samkeppni um framherjastöðuna í liði GAIS í sænsku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu. GAIS burstaði grannaliðið Örgryte í fyrstu umferðinni. Guðjón lofar mörkum á næstunni. 4
Íþróttir
mbl.is
„Ég hef það fínt og á ekki von á því
að það verði eitthvert vandamál að
spila gegn KR á fimmtudaginn,“
sagði Helgi Jón-
as Guðfinnsson,
leikmaður körfu-
knattleiksliðs
Grindavíkur, í
gær. Hann fór
meiddur af leik-
velli í síðari hálf-
leik í öðrum úr-
slitaleik liðsins
gegn KR um Ís-
landsmeistaratit-
ilinn á mánudag-
inn. „Ég er tognaður í aftanverðu
læri en meiðslin ná alveg niður í há-
sinina og ég þarf því að kæla ansi
stórt svæði. Ég fer því alltaf í ísbað
í sundlauginni í Grindavík eftir æf-
ingar og leiki og það hefur hjálpað
mér mikið að ná bata. Ég er miklu
betri í dag en á mánudaginn og það
er jákvætt,“ sagði Helgi en hann
skoraði 12 stig í 100:88-sigri
Grindavíkur gegn KR á mánudag-
inn og er staðan jöfn, 1:1, fyrir
þriðja leikinn sem fram fer á morg-
un á heimavelli KR. seth@mbl.is
„Ég hef
það fínt“
Helgi Jónas
Guðfinnsson
Helgi Jónas Guð-
finnsson er á batavegi
ARON Einar Gunnarsson, lands-
liðsmaðurinn ungi, skoraði mark
Coventry þegar liðið gerði 1:1 jafn-
tefli við Crystal
Palace á útivelli í
ensku 1. deild-
inni í knatt-
spyrnu í gær-
kvöld.
Aron skoraði
markið með
skalla á 31. mín-
útu og kom sín-
um mönnum yfir.
Hann fékk einnig
fínt færi strax á
fyrstu mínútu leiksins á Selhurst
Park en skot hans var varið.
Þetta er fyrsta deildamark Arons
fyrir Coventry en hann hefur áður
skorað fyrir liðið í bikarkeppninni.
Heimamenn jöfnuðu svo metin á
71. mínútu og var þar að verki Kie-
ron Cadogan sem lék sinn fyrsta
leik í gær fyrir Palace.
Aron fékk tvö fín færi í síðari
hálfleik. Í því fyrra skaut hann yfir
af stuttu færi og í því síðara bjarg-
aði Lee Hills, varnarmaður Crystal
Palace, á marklínu.
Breska dagblaðið The Sun full-
yrðir að úrvalsdeildarliðið Fulham
hafi áhuga á að kaupa Aron frá
Coventry. Skoska liðið Celtic er
einnig sagt hafa áhuga á íslenska
landsliðsmanninum.
Aron óð í
færum og
skoraði eitt
Aron Einar
Gunnarsson
AP
Loftbardagi Darren Fletcher, Paul Scholes og Cristiano Ronaldo, leikmenn enska liðsins Manchester United, máttu sætta sig við 2:2 jafntefli gegn Porto
frá Portúgal á Old Trafford í Meistaradeild Evrópu í gær. Arsenal gerði 1:1 jafntefli í hinum leik gærkvöldsins í 8-liða úrslitum keppninnar. »2