Morgunblaðið - 14.04.2009, Page 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2009
Ragnar Sig-urðsson
landsliðsmaður í
knattspyrnu og
leikmaður
sænska úrvals-
deildarliðsins
IFK Gautaborg
er undir smá-
sjánni hjá ensku
úrvalsdeildarliðunum Blackburn og
Newcastle að því er fram kemur í
sænska blaðinu Aftonbladet í gær.
Fram kemur í blaðinu að for-
ráðamenn IFK Gautaborg hafi síð-
astliðið sumar hafnað tilboði frá
spænska liðinu Espanyol en það
hljóðaði upp á 15 milljónir sænskra
króna, jafnvirði 230 milljóna ís-
lenskra króna. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins er verðmiðinn á
Ragnari 25 milljónir sænskra
króna, um 390 milljónir íslenskra
króna.
Ragnar, sem er 22 ára, gerðisannkallað draumamark með
liði sínu á laugardag þegar hann
skoraði frá miðju vallarins í 6:0
sigri á Djurgården.
Eiður Smári Guðjohnsen lékfyrstu 62 mínúturnar þegar
Barcelona lagði Recreativo Huelva
að velli, 2:0, í spænsku 1. deildinni í
knattspyrnu á laugardag. Börsung-
ar fengu óskabyrjun þegar Andres
Iniesta skoraði eftir aðeins 45 sek-
úndur og í seinni hálfleik skoruðu
gestirnir sjálfsmark. Barcelona hef-
ur sex stiga forskot á Real Madrid
í efsta sæti spnsku 1. deildarinnar.
Emil Hall-freðsson
lék fyrstu 80
mínúturnar fyrir
Reggina þegar
liðið tapaði á
heimavelli fyrir
Udiense, 2:0, í
ítölsku A-
deildinni í knatt-
spyrnu. Emil og félagar léku tveim-
ur mönnum færri síðasta hálftím-
ann og það færðu liðsmenn Udiense
sér vel í nyt en þeir skoruðu tvö
mörk á lokamínútum leiksins. Fátt
virðist geta komið í veg fyrir að
Reggina falli en þegar sjö umferðir
eru eftir situr liðið eitt og yfirgefið
á botninum með 20 stig eftir 31
leik.
Sölvi Geir Ottesen lék allan leik-inn fyrir Sønderjyske þegar
liðið tapaði fyrir Randers FC í
dönsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær. Sölva Geir var sýnt
gula spjaldið á 90. mínútu.
Ólafur Örn Bjarnason skoraðibæði mörk Brann í 4:2 ósigri
þess fyrir Tromsö í norsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í gær. Ólaf-
ur skoraði bæði mörkin úr víta-
spyrnu. Brann hefur byrjað
afleitlega í norsku úrvalsdeildinni
og hefur aðeins unnið tvö stig í
fjórum leikjum.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Leikmenn Grindavíkur verða eflaust
lengi að ná sér eftir vonbrigði gær-
kvöldsins. Liðið fékk boltann þegar
um 23 sekúndur voru eftir af leikn-
um. Boltinn barst til Helga Jónasar
Guðfinnssonar þegar 14 sekúndur
voru eftir en hann ákvað að taka
ekki opið þriggja stiga skot. Helgi
sendi boltann á Arnar Frey Jónsson
sem lenti í vandræðum og að lokum
fékk Brenton Birmingham boltann
undir körfunni þegar um ein sek-
únda var eftir. Brenton tók hins
vegar ekki skot og reyndi að gefa á
félaga sinn Nick Bradford. Ótrúleg
niðurstaða. Ekkert skot á körfuna
og Íslandsmeistaratitill í húfi. Grind-
víkingar leyndu ekki vonbrigðum
sínum og er það skiljanlegt.
Magnaðir leikir
Úrslitarimma KR og Grindavíkur
verður lengi í minnum höfð. Grind-
víkingar fengu tvö tækifæri til þess
að tryggja sér Íslandsmeistaratit-
ilinn í annað sinn í sögu félagsins.
Fyrst á heimavelli sl. laugardag, en
þar náðu KR-ingar að jafna metin,
2:2.
KR lék eins og þeir sem valdið
höfðu fyrstu 35 mínútur leiksins í
gær en á síðustu fimm mínútum
fjórða leikhluta náði Grindavík að
koma sér inn í leikinn.
Jón Arnór kveður KR með titli
„Ég man varla eftir titlinum sem
ég vann með KR hér síðast. Þessi
toppar allt sem ég hef gert á ferl-
inum,“ sagði Jón Arnór Stefánsson í
leikslok, en hann var útnefndur besti
leikmaður úrslitakeppninnar í leiks-
lok. Jón Arnór hefur á undanförnum
árum leikið sem atvinnumaður hjá
sterkum liðum í Evrópu og fyrir ári
lék hann lykilhlutverk í liði Lottom-
atica Roma á Ítalíu sem lék til úr-
slita um meistaratitilinn.
„Þessi úrslitakeppni er miklu mik-
ilvægari fyrir mig sem leikmann en
það sem ég upplifði í Róm. Hér eru
menn að gera allt með hjartanu. Af
heilindum. Ég fann ekki mikið fyrir
því á Ítalíu. Ég er að spila fyrir
framan fjölskylduna og mína vini og
þetta er alveg frábær tilfinning,“
sagði Jón Arnór, en hann býst ekki
við því að leika á ný á Íslandi á
næsta tímabili.
„Þetta verður ekki endurtekið að
ég held. Ég fer örugglega út aftur í
sumar og leik með erlendu liði á
næstu leiktíð. Það sama er að segja
um Kobba (Jakob Örn Sigurðarson).
Benni þjálfari er að hætta og kallar
eins og Fannar (Ólafsson) og Baldur
(Ólafsson) eru orðnir of gamlir í
þetta,“ sagði Jón og brosti til Fann-
ars sem stóð þar álengdar. „Ég get
alveg sagt það að íslenskur körfu-
bolti er ekkert grín. Ég hef góðan
samanburð við það sem er að gerast
í Evrópu og þessir úrslitaleikir hafa
verið gríðarlega erfiðir fyrir okkur
alla. Íslenskir körfuboltamenn eru
„drullugóðir“ og ég held að allir geti
verið stoltir af þessu,“ sagði Jón
Arnór Stefánsson.
Hver átti að taka
síðasta skotið?
Eins og áður segir fengu Grind-
víkingar tækifæri til þess að taka
síðasta skot leiksins og tryggja sér
sigur. Skotið kom aldrei á körfuna
og eru eflaust margir sem klóra sér
í höfðinu yfir þeirri niðurstöðu. Sá
sem þetta skrifar átti von á því að
Nick Bradford fengi það hlutverk að
taka síðasta skotið en hann virtist
ekkert of áhugasamur um að koma
sér í færi til þess. Þess í stað rann
sóknin út í sandinn og KR fagnaði
titlinum.
„Toppar allt sem ég
hef gert á ferlinum“
Morgunblaðið/Golli
Meistarar Fannar Ólafsson faðmar hér Jón Arnór Stefánsson í leikslok og það gerði einnig Jason Dourriseau.
KR-INGAR fögnuðu Íslandsmeist-
aratitlinum í körfuknattleik karla í 11.
sinn í sögu félagsins í gær eftir 84:83
sigur gegn Grindavík í oddaleik. Rúm-
lega 2.000 áhorfendur í troðfullri DHl-
höll KR-inga héldu niðri í sér andanum
í síðustu sókn leiksins þar sem
Grindavík gat tryggt sér sigur en loka-
skotið kom aldrei hjá þeim gulklæddu
og sigurhátíð KR-inga hófst í kjölfarið.
KR Íslandsmeistari í 11. sinn eftir 84:83 sigur gegn Grindavík Grindvíkingar
náðu ekki skoti í síðustu sókninni Miklar breytingar framundan hjá KR
nn fyrr en flautað
agði Guðjón Þórð-
nska 2. deildarliðsins
sér eitt mikilvægt
m, 1:1, á útivelli. By-
ewe á 89. mínútu og
pp fyrir Carlisle í
allan tímann með
segir í 19. sæti, nú
45 og fjögur neðstu
Brighton 39, Chel-
, en fjögur neðstu
ví að við myndum fá
útlitið væri á stund-
n í samtali við heima-
lofsorði á leikmenn
upp. Sú barátta
þeirra hafi skilað þeim einu
mikilvægu stigi. „Ef við leik-
um af sömu ákefð og ástríðu
í þeim leikjum sem eru eftir
af leiktíðinni og við gerðum í
síðari hálfleik að þessu sinni
þá hef ég engar áhyggjur af
stöðu okkar þegar upp verð-
ur staðið í vor,“ sagði Guð-
jón ennfremur og bætti því
við að hann hafi talið lið sitt
eiga rétt á vítaspyrnu í
leiknum. Því miður hafi dómarinn verið á öðru
máli þegar svo virtist sem hrint hafi verið á bak
Shauns Miller þegar hann skallaði boltann að
marki eftir fyrirgjöf. „Leikmenn mínir sætta
sig ekki við uppgjöf á meðan eitthvað er eftir af
leiktímanum,“ sagði Guðjón Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Crewe. iben@mbl.is
.: Leiknum er ekki lokið
autað hefur verið af
Guðjón
Þórðarson
ERLA Steina Arnardóttir var á skotskón-
um í gær þegar lið hennar Kristianstad
beið lægri hlut fyrir Djurgården, 3:2, í
sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Hún jafnaði metin, 1:1, um miðjan fyrri
hálfleik eftir hornspyrnu frá Hólmfríði
Magnúsdóttur en báðar voru þær í byrj-
unarliði Elísabetar Gunnarsdóttur þjálf-
ara líkt og Guðný Björk Óðinsdóttir.
Kristianstad hefur því tapað öllum
þremur leikjum sínum til þessa í deildinni
en útlitið er öllu bjartara hjá Guðbjörgu
Gunnarsdóttur og Guðrúnu Sóleyju Gunn-
arsdóttur, sem átti góðan leik fyrir Djur-
gården í gær, en þær eru á toppi deild-
arinnar og var mark Ernu það fyrsta sem
Djurgården fær á sig á leiktíðinni.
Margrét Lára Viðarsdóttir mátti sætta
sig við að vera varamaður Linköping þeg-
ar liðið sótti Hammarby
heim en hún hefur ekki
verið í byrjunarliði liðs-
ins á leiktíðinni. Mar-
gréti var þó skipt inn á í
seinni hálfleiknum og
hún lagði upp þriðja
markið í 3:0 sigri.
Ólína G. Viðarsdóttir
og Edda Garðarsdóttir
voru í liði Örebro sem
tapaði 4:0 fyrir spútn-
ikliði Kopparbergs/Göteborg. Edda lék
allan leikinn á miðjunni en Ólína var á
vinstri kantinum.
Dóra Stefánsdóttir gat ekki leikið með
Malmö vegna meiðsla en það kom ekki að
sök því liðið vann sannkallaðan stórsigur
á Stattena, 7:0. sindris@mbl.is
Erla Steina varð fyrst til þess
að skora framhjá Guðbjörgu
Erla Steina
Arnardóttir
Grindavík – KR 83:94
Grindavík, úrvalsdeild karla, úrslit, fjórði
leikur, laugardaginn 11. apríl 2009.
Gangur leiksins: 2:2, 8:6, 10:10, 19:22,
26:30, 33:39, 44:47, 51:58, 64:65, 68:65,
70:73, 73:81, 83:94.
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson
18, Nick Bradford 14, Brenton Birming-
ham 14, Helgi Jónas Guðfinnsson 11, Páll
Kristinsson 9, Þorleifur Ólafsson 9, Arnar
Freyr Jónsson 8.
Fráköst: 19 í vörn – 5 í sókn.
Stig KR: Jason Dourisseau 27, Fannar
Ólafsson 20, Jón Arnór Stefánsson 18,
Helgi Magnússon 11, Jakob Örn Sigurð-
arson 9, Darri Hilmarsson 5, Brynjar Þór
Björnsson 4
Fráköst: 26 í vörn – 15 í sókn.
Villur: Grindavík 23 – KR 19.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Kristinn
Óskarsson.
Áhorfendur: Um 1.200.
KR – Grindavík 84:83
DHL-höllin, úrvalsdeild karla, úrslit, fimmti
leikur, mánudaginn 13. apríl 2009.
Gangur leiksins: 5:2, 15:8, 17:16, 24:20,
35:22, 42:31, 44:37, 50:44, 57:46, 60:50, 62:59,
68:66, 77:72, 79:73, 84:77, 84:83.
Stig KR : Jón Arnór Stefánsson 23, Jakob
Örn Sigurðarson 22, Jason Dourisseau 15,
Fannar Ólafsson 7, Helgi Már Magnússon 7,
Skarphéðinn Ingason 4, Pálmi Sigurgeirs-
son 3, Brynjar Þór Björnsson 2, Darri Hilm-
arsson 1.
Fráköst: 21 í vörn – 10 í sókn.
Stig Grindavíkur: Nick Bradford 33, Páll
Kristinsson 13, Brenton Birmingham 12,
Arnar Freyr Jónsson 9, Páll Axel Vilbergs-
son 6, Helgi Jónas Guðfinnsson 6, Þorleifur
Ólafsson 4.
Fráköst: 21 í vörn – 8 í sókn.
Villur: KR 23 – Grindavík 19.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Sigmund-
ur Már Herbertsson.
Áhorfendur: Um 2200.