Morgunblaðið - 14.04.2009, Qupperneq 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 2009
ÍSLENSKA 21-árs landsliðið í handknattleik
er komið í úrslitakeppni heimsmeistaramóts-
ins, en keppni í 4. riðli undankeppninnar lauk á
páskadag. Ísland vann Bretland örugglega,
35:24, í Hollandi og síðan var HM-sæti Íslands
endanlega tryggt þegar Holland sigraði Ung-
verjaland, 37:31. Daginn áður hafði íslenska
liðið gert jafntefli við Ungverja, 33:33. Rúnar
Kárason varð markahæstur þá með 12 mörk.
Hollendingar fengu 5 stig og Íslendingar
fengu fjögur en Ungverjar sitja eftir með sárt
ennið með 3 stig og Bretar ráku lestina.
Mörk Íslands gegn Bretum skoruðu: Ólafur
Gústafsson 8, Þröstur Þráinsson 7, Rúnar
Kárason 7, Ólafur Bjarki Ragnarsson 6/1, Ant-
on Rúnarsson 4, Ásbjörn
Friðriksson 1, Orri Freyr
Gíslason 1 og Heiðar Þór
Aðalsteinsson 1.
Í markinu varði Birkir
Bragason 10 skot og Ingvar
Guðmundsson 7.
U19 ára landslið kvenna
burstaði Bosníu, 30:16, í
Bosníu í lokaleik sínum í
undankeppni EM og varð í
þriðja sæti í sínum riðli og kemst ekki áfram.
Serbía og Svartfjallaland fóru áfram. Ísland
tapaði fyrir Svartfjallalandi á laugardag, 22:19.
iben@mbl.is
Strákarnir komust áfram á HM
Rúnar Kárason
ARGENTÍNUMAÐURINN Angel
Cabrera fagnaði sigri á Mast-
ersmótinu í golfi á sunnudaginn en
úrslit réðust í þriggja manna bráða-
bana. Chad Campbell heltist úr
lestinni á fyrstu holu í bráðaban-
anum og Kenny Perry gerði síð-
an afdrifarík mistök á þeirri
næstu. Þetta er í fyrsta sinn sem
hinn 39 ára Cabrera fær græna sig-
urjakkann á Mastersmótinu en hann
sigraði á Opna bandaríska meist-
aramótinu fyrir tveimur árum. Ca-
brera, sem lék samtals á 12 höggum
undir pari, tileinkaði Spánverjanum
Seve Ballesteros sigurinn. „Í mín-
um huga er hann sá besti sem
hefur leikið golfíþrótt-
ina,“ sagði Cabrera.
Shingo Katamaya frá
Japan varð fjórði á - 10
og Phil Mickelson varð
fimmti á 9 höggum
undir pari. Tiger Wo-
ods lauk keppni á 8
höggum undir pari.
Cabrera tileinkaði Ballesteros sigurinn
Gleði Trevor Immelman,
sem sigraði á Masters-
mótinu 2008, klæddi Angel
Cabrera í græna jakkann.
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
„Við erum ennþá fullir sjálfstrausts
þrátt fyrir fyrri leikinn í Meistara-
deildinni. Ég vona að okkur takist að
skora þrjú mörk gegn Chelsea, en
við vitum að það verður mjög erfitt,“
sagði markamaskínan Fernando
Torres en hann skoraði gull af marki
á laugardaginn þegar hann kom Liv-
erpool í 1:0. Hann segir sigurinn á
Manchester United fyrr í vetur efla
liðið til dáða.
„Chelsea er með mjög sterkt lið en
við höfum sjálfstraust og förum í
þennan leik til að vinna. Við unnum
Manchester United 4:1 á Old Traf-
ford svo við vitum hvað við getum.
Ég held að Chelsea-menn muni spila
til að vinna í stað þess að verjast
bara, því ef þeir skora eitt eða tvö
mörk þá er þetta búið. Við vitum að
þetta verður erfitt en við skulum bíða
og sjá hvað gerist.“
Fyrirliðinn Steven Gerrard var
ekki í liði Liverpool á laugardaginn
vegna meiðsla en vonast er til að
hann verði klár í slaginn í kvöld. „Við
þurfum nauðsynlega á honum að
halda. Hann er lykilmaður og það
getur breytt öllu fyrir okkur ef hann
spilar og er upp á sitt besta,“ sagði
Rafael Benítez, stjóri Liverpool.
Chelsea verður hins vegar án síns
fyrirliða, Johns Terry, í kvöld en
hann tekur út leikbann. Liðið er
engu að síður í kjörstöðu til að koma
sér í undanúrslit Meistaradeildar-
innar.
„Allir vita að Liverpool er stórlið
og þeir hafa nánast skorað fjögur
mörk í hverjum leik upp á síðkastið,
en við erum á heimavelli og höfum
verið öflugir,“ sagði Michael Ballack
sem skoraði fyrsta mark Chelsea á
laugardaginn í sigrinum á Bolton.
Chelsea komst þar í 4:0 en þrjú mörk
Bolton á 9 mínútna kafla urðu til þess
að lokakaflinn var æsispennandi en
fleiri urðu mörkin ekki.
Skoraði eftir 46 sekúndur
Maðurinn sem allir fótboltaáhuga-
menn voru að tala um eftir síðustu
helgi, hinn 17 ára Federico Macheda,
var hetja Man. Utd annan leikinn í
röð þegar hann skoraði sigurmarkið í
2:1 sigri á Sunderland eftir að hafa
verið inni á vellinum í 46 sekúndur.
Deila má um hvort kappinn hafi ætl-
að sér að skora en hafi svo verið
sýndi hann einstaklega gott viðbragð
við að breyta stefnu skots Michaels
Carrick og „stýra“ boltanum í blá-
hornið.
„Hann býr yfir einhverju alveg
einstöku. Einn leikmannanna sagði
að hann hefði í alvöru verið að reyna
að skora. Það er svona snörp hugsun
sem alvöru markaskorari þarf að
hafa,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri
United, borubrattur eftir sigurinn.
„Hann var alls kostar óhræddur,
kom sér strax inn í leikinn og átti
góðar 20 mínútur,“ bætti Ferguson
við, og Paul Scholes sem skoraði
fyrra mark United tók í sama streng.
„Það er frábært að hafa svona
strák á bekknum til að koma inná.
Hann virðist vera mikill markaskor-
ari og ég er viss um að strákarnir
munu halda honum við efnið.“
Liverpool fór aftur á flug
Blackburn gjörsigrað á Anfield Torres segir allt geta gerst á Brúnni í kvöld
Gerrard tæpur en Terry í leikbanni Macheda aftur bjargvættur United
Reuters
Markahrókur Fernando Torres fagnar mörkum sínum gegn Blackburn ásamt stuðningsmönnum Liverpool.
Í HNOTSKURN
»Federico Macheda tryggðiUnited öll þrjú stigin með
sigurmarki gegn Sunderland
líkt og hann gerði gegn Aston
Villa fyrir rúmri viku.
»Steven Gerrard á við nára-meiðsli að stríða og er
tæpur fyrir leikinn gegn
Chelsea í kvöld í Meistaradeild
Evrópu.
EFTIR „kjaftshöggið“ á Anfield fyrir
tæpri viku þegar liðið tapaði 3:1 fyrir
Chelsea í fyrri leik liðanna í Meist-
aradeild Evrópu, kom Liverpool sér
aftur í fluggírinn á laugardag og rúll-
aði yfir Blackburn í 32. umferð ensku
úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, 4:0,
og er liðið enn einu stigi á eftir Man.
Utd sem vann Sunderland 2:1. Á
sama tíma vann Chelsea nauman 4:3
sigur á Bolton og bjartsýnustu menn
sjá nú fyrir sér að rauði herinn eigi
möguleika á að snúa taflinu við á
Stamford Bridge í kvöld þegar seinni
leikur Chelsea og Liverpool fer fram.
Guðjón ValurSigurðsson
fagnaði góðum
útisigri með
Rhein-Neckar
Löwen á sínum
gamla heimavelli í
Köln þegar Löw-
en lagði þar Gum-
mersbach að velli
í spennuleik, 31:30, í þýsku 1. deild-
inni í handknattleik. Guðjón Valur
skoraði 6 mörk í leiknum, þar af 5 úr
vítaköstum. Róbert Gunnarsson
hafði hægt um sig og gerði aðeins eitt
mark fyrir Gummersbach.
Gylfi Gylfason skoraði sjö mörk,þar af tvö úr vítakasti, þegar lið
hans GWD Minden vann stórsigur á
Essen, 35:17, í þýsku 1. deildinni í
handknattleik. Ingimundur Ingi-
mundarson stóð vaktina í vörn Mind-
en-liðsins að vanda en blandaði sér
ekki mikið í sóknarleikinn.
AlexanderPetersson
var í leik-
mannahópi Flens-
burg í fyrsta sinn
frá því um miðjan
september sl.,
þegar liðið vann
stórsigur á
Magdeburg,
35:24, á heimavelli í þýsku 1. deildinni
í handknattleik á laugardaginn. Hann
kom ekki mikið við sögu í leiknum og
skoraði ekki mark.
Ólafur Stefánsson og félagar í Ciu-dad Real burstuðu lið Alcob-
endas, 37:22, í spænsku 1. deildinni í
handknattleik og styrktu enn stöðu
sína á toppnum. Ólafur skoraði 4
mörk í leiknum, eitt þeirra úr víta-
kasti,
Dwayne Wade skoraði 55 stig fyr-ir Miami Heat í 122:105 sigri
liðsins gegn New York Knicks í
NBA-deildinni aðfaranótt mánudags.
Wade náði ekki að bæta félagsmetið
sem er í eigu Glen Rice en hann skor-
aði 56 stig fyrir Miami Heat á sínum
tíma.
Cleveland Ca-valiers lék
sér að því að sigra
meistaralið Bost-
on Celtics í NBA-
deildinni á mánu-
dag. Lokatölur
107:76. LeBron
James skoraði 29
stig fyrir Cleve-
land en hann lék ekkert með í fjórða
og síðasta leikhlutanum.
Andrew Bynum lék með LA La-kers í 92:75 sigri liðsins gegn
Memphis. Miðherjinn hefur verið
meiddur á hné í vetur og eru það góð-
ar fréttir fyrir Lakers að hann geti
tekið þátt í úrslitakeppninni. Bynum
lék í 30 mínútur af alls 48 og skoraði
hann 16 stig, tók 7 fráköst og gaf 4
stoðsendingar.
Fólk sport@mbl.is
Þetta var fyrsti sigur Íslands á landsliði Ísraels
á heimsmeistaramóti. Emil Alengaard og Stefán
Hrafnsson komu Íslandi í 2:0 á fyrstu 12 mín-
útum leiksins, Stefán eftir sendingu frá Jónasi
Breka Magnússyni. Egill Þor-
móðsson skoraði, 3:0, í byrjun
annarrar lotu eftir undirbún-
ing Péturs Maack og Jóns B.
Gíslasonar. Ísrael minnkaði
muninn í 3:1 seint í lotunni.
Stefán var síðan aftur á
ferðinni þegar hann kom Ís-
landi í 4:1 á 7. mínútu í þriðju
og síðustu lotu. Ísraelsmenn
náðu að svara tvívegis en ís-
lenska liðið hélt út og innbyrti sigurinn þrátt
fyrir að Ísraelsmenn bættu manni í sóknina á
lokasprettinum og kölluðu markvörð sinn af
velli.
Stefán Hrafnsson skoraði tvö mörk í leiknum.
Hann var ánægður með leikinn og keppnina í
heild enda mórallinn og baráttan í liðinu góð.
„Ég er líka ánægður með allur mannskapurinn
fékk að spila þrátt fyrir að níu nýliðar væru í
hópnum og það skilaði sér í ferskari liði út allt
mótið,“ sagði Stefán að leik loknum í gær.
„Við spiluðum undir getu en unnum samt sem
er jákvætt. Mótið í heild var ágætt en gaman
hefði verið að vinna Kínverjana og ná í bronsið.
Besti leikurinn okkar var samt sem áður gegn
Serbum þrátt fyrir að við töpuðum honum 6:1.
Tölurnar gefa ekki rétta mynd af frammistöðu
okkar í þeim leik,“ sagði Gauti Þormóðsson, einn
landsliðsmanna Íslands. iben@mbl.is
Besti árangur Íslands á HM
Unnu Ísrael í fyrsta sinn Kemur til greina að HM verði hér á landi að ári
ÍSLENDINGAR sigruðu Ísraelsmenn, 4:3, í loka-
umferð 2. deildar heimsmeistaramótsins í íshokkí í
Novi Sad í Serbíu í gær. Ísland hafnaði þar með í
fjórða sæti A-riðils og í 7.-8. sæti af 12 liðum í 2.
deildinni í heild og heldur þar með sæti sínu í
henni. Ísland hefur aldrei áður hlotið jafn mörg stig
í 2. deildar keppni á HM. Mest hefur íslenska liðið
náð fjórum stigum, á HM fyrir ári. Ekki er loku fyrir
það skotið að Íshokkísamband Íslands sæki um að
fá að halda keppnina að ári.
Gauti Þormóðsson