Morgunblaðið - 17.04.2009, Side 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 2009
KNATTSPYRNA
Deildabikar kv., Lengjubikar
A-DEILD:
KR – Breiðablik ........................................0:9
Berglind Björg Þorvaldsdóttir 9., 32., 56.,
Sara Björk Gunnarsdóttir 13., 48., 67., Hlín
Gunnlaugsdóttir 54., Fanndís Friðriksdótt-
ir 57., Sandra Sif Magnúsdóttir 88.
Staðan:
Breiðablik 5 3 2 0 20:5 11
Valur 4 2 2 0 10:5 8
Stjarnan 4 2 1 1 11:4 7
Þór/KA 4 2 1 1 7:5 7
KR 5 1 0 4 8:22 3
Afture/Fjöl. 4 0 0 4 2:17 0
C-DEILD, 1. riðill:
Þróttur R. – Selfoss...................................2:3
Staðan:
Selfoss 3 3 0 0 9:3 9
FH 2 2 0 0 8:1 6
Haukar 2 2 0 0 7:1 6
Þróttur R. 3 0 0 3 4:8 0
ÍA 2 0 0 2 0:6 0
Sindri 2 0 0 2 1:10 0
Deildabikar karla, Lengjubikar
B-DEILD, 3. riðill:
Berserkir – Hamar....................................1:4
Staðan:
KV 3 2 1 0 8:4 7
Hvöt 3 2 1 0 4:0 7
BÍ/Bolungarvík 4 1 2 1 5:5 5
Hamar 3 1 1 1 5:3 4
Berserkir 4 1 1 2 1:12 4
Reynir S. 3 0 0 3 2:7 0
UEFA-bikarinn
8-liða úrslit, seinni leikir:
Dynamo Kiev – París SG .........................3:0
Ismael Bangoura 4., Mickael Landreau
(sjálfsmark) 16., Ognjen Vukojevic 61.
Dynamo Kiev áfram, 3:0 samanlagt.
Manch.City – Hamburger SV .................2:1
Elano (víti) 17., Felipe Caicedo 50. – José
Paolo Guerrero 12., Luiz Adriano 90.
Hamburger áfram, 4:3 samanlagt.
Marseille – Shakhtar Donetsk ................1:2
Hatem Ben Arfa 42. – Fernandinho 30.,
Marseille áfram, 4:1 samanlagt.
Udinese – Werder Bremen......................3:3
Gökhan Inler 15., Fabio Quagliarella 30.,
38. – Diego 28., 60., 73.
Werder Bremen áfram, 6:4 samanlagt.
Svíþjóð
AIK – Malmö .............................................0:1
Helsingborg – Hammarby.......................1:0
Ólafur Ingi Skúlason hjá Helsingborg er
frá vegna meiðsla.
Örgryte – Örebro ......................................0:1
Trelleborg – GAIS....................................3:0
Eyjólfur Héðinsson kom inná sem vara-
maður á 73. mín., Guðjón Baldvinsson var á
varamannabekknum en kom ekki við sögu,
Guðmundur R. Gunnarsson kom inná á 56.
mín., Hallgrímur Jónasson er frá vegna
meiðsla. Þeir eru allir á mála hjá GAIS.
Elfsborg – Kalmar....................................1:1
Helgi Valur Daníelsson var í byrjunar-
liðinu hjá Elfsborg.
Staðan:
Helsingborg 3 3 0 0 6:1 9
Malmö FF 3 3 0 0 5:0 9
Brommapoj. 3 2 1 0 3:0 7
AIK 3 2 0 1 2:1 6
Trelleborg 3 1 2 0 4:1 5
Elfsborg 3 1 2 0 3:2 5
Gefle 3 1 2 0 3:2 5
Djurgården 3 1 1 1 1:6 4
Gautaborg 3 1 0 2 7:5 3
Häcken 3 1 0 2 4:4 3
GAIS 3 1 0 2 6:8 3
Örebro 3 1 0 2 1:5 3
Kalmar 3 0 2 1 2:3 2
Hammarby 3 0 1 2 2:4 1
Halmstad 3 0 1 2 1:3 1
Örgryte 3 0 0 3 1:6 0
SKÍÐI
Skíðalandsmótið á Akureyri
Sprettganga karla:
1. Andri Steindórsson, Akureyri.
2. Sævar Birgisson, Ísafirði.
3. Brynjar Leó Kristinsson Akureyri.
Sprettganga kvenna:
1. Elsa Guðrún Jónsdóttir, Ólafsfirði.
2. Silja Rán Guðmundsdóttir, Ísafirði.
3. Rannveig Jónsdóttir, Ísafirði.
í dag og kvöld
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Selfossvöllur: Selfoss – Fram....................19
Stjörnuvöllur: Stjarnan – Njarðvík ......... 19
KR-völlur: KR – Leiknir R....................... 20
Gróttuvöllur: Grótta – Dalvík/Reynir ..... 18
Reykjaneshöll: ÍH/HV – Víðir............. 20.30
Akraneshöll: Skallagr. – Hvíti riddarinn 20
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Boginn: Þór/KA – Stjarnan ...................... 18
ÍR-völlur: ÍR – HK/Víkingur ................... 19
Kórinn: ÍBV – GRV.............................. 20.30
Ásvellir: FH – Haukar .............................. 19
HANDKNATTLEIKUR
Umspil karla, undanúrslit, fyrri leikir:
Mýrin: Stjarnan – ÍR ........................... 19.30
Selfoss: Selfoss – Afturelding ............. 19.30
SKÍÐI
Skíðalandsmótið á Akureyri:
Stórsvig kvenna/karla, fyrri ferð ............. 10
Stórsvig kvenna/karla, seinni ferð...... 13.30
10 km ganga pilta, frjáls aðferð................ 13
5 km ganga kvenna, frjáls aðferð........ 13.05
15 km ganga karla, frjáls aðferð ......... 13.45
Verðlaunaafhending á Ráðhústorgi.... 17.30
„VIÐ vanmetum að sjálfsögðu ekki ÍR-inga. Þeir
eru með ungt og sprækt lið sem við verðum að mæta
af fullum krafti,“ segir Patrekur Jóhannesson, þjálf-
ari karlaliðs Stjörnunnar í handknattleik sem hefur
keppni í umspili um sæti í N1-deild í kvöld. Þá fær
Stjarnan liðsmenn ÍR í heimsókn. Á sama tíma leiða
Selfoss og Afturelding saman hesta sína á Selfossi.
Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Liðin eigast
við að nýju í Austurbergi og að Varmá á sunnudag.
Komi til oddaleikja verða þeir háðir á fimmtudaginn
í næstu viku.
Sigurliðin úr þessum tveimur rimmum, sem mest
geta orðið þrjár, mætast í úrslitaleikjum um sæti í
N1-deild karla á næstu leiktíð. Þetta er nýtt keppn-
isfyrirkomulag en síðustu þrjú ár hafa tvö lið fallið
úr N1-deildinni og tvö færst upp úr 1. deild í stað-
inn. Óánægju hefur gætt með
það fyrirkomulag mótsins.
Selfoss varð í sjöunda sæti N1-
deildar í vetur og ÍR hafnaði í
fjórða sæti 1. deildar. Selfoss og
Afturelding voru í öðru og þriðja
sæti 1. deildar. „Mér líst nokkuð
vel á þetta keppnisfyrirkomulag.
Það var alveg ljóst að í átta liða
deild var of mikið að tvö lið féllu.
Nú fellur bara eitt og annað fer í
þetta umspil. Vissulega á eftir að
koma reynsla á þetta en fyrirfram þá líst mér nokk-
uð vel á þetta og reikna með að um spennandi við-
ureignir verði að ræða,“ segir Patrekur sem er stað-
ráðinn í halda sæti í N1-deildinni. iben@mbl.is
Stjörnumenn vanmeta ekki ÍR-inga
Patrekur
Jóhannesson
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,Ég held að Haukarnir hafi komið
værukærir til leiks í seinni hálfleik.
Við náðum hraðaupphlaupum sem við
náðum ekki í fyrri hálfleik og það var
ótrúleg breyting til batnaðar á leik
okkar í seinni hálfleik. Strákarnir
sýndu frábæran karakter. Þeir fengu
blóð á tennurnar og það hreinlega
small allt saman hjá okkur,“ sagði
Viggó Sigurðsson, þjálfari Fram, við
Morgunblaðið, en hann varð að gera
sér að góðu að fylgjast með leik
sinna manna af áhorfendapöllunum
þar sem hann var í banni.
Viggó viðurkenndi að í stöðunni
17:11 í byrjun seinni hálfleiks hafi
hann haldið að úrslitin væru ráðin.
,,Það var rosalega erfitt að vera í
pöllunum en ég treysti Einari 100%.
Hann kann þetta og sagðist ekki tapa
á sínum gamla heimavelli. Mér leist
ekki á blikuna í byrjun seinni hálf-
leiks enda erfitt að ætla að snúa stöð-
unni við gegn jafnsterku liði og
Haukar eru með. En það varð ótrú-
legur viðsnúningur og ég verð að
hrósa strákunum en minni á að það
er bara hálfleikur í þessu einvígi,“
sagði Viggó.
Framarar mættu grimmir til leiks.
Þeir skoruðu þrjú fyrstu mörkin og
Haukar komust ekki á blað fyrr en
eftir fjórar mínútur þegar Einar Örn
Jónsson skoraði. En smátt og smátt
tóku Haukar völdin. Birkir Ívar gaf
tóninn með góðri markvörslu en ein-
hvern veginn fannst manni Hauk-
arnir vera á hálfri ferð þó svo þeir
næðu góðu forskoti undir lok hálf-
leiksins. Leikur Framara féll niður á
lágt plan seinni hluta hálfleiksins þar
sem leikmenn gerðu sig seka um afar
klaufaleg mistök.
Haukarnir skoruðu fyrsta markið í
seinni hálfleik og það skal viðurkenn-
ast af undirrituðum að hann átti ekki
von á öðru en öruggum Haukasigri
eins og leikurinn þróaðist á upphafs-
mínútum seinni hálfleiksins. Tvö
mörk Framara úr hraðaupphlaupum
varð hins vegar að ákveðnum vendi-
punkti í leiknum. Leikur Íslands-
meistaranna hrökk í algjöran baklás
og Framarar efldust með hverri mín-
útunni sem leið. Vörn Hauka var
sundurspiluð trekk í trekk og sókn-
arleikur liðsins varð einhæfur og bit-
laus. Eftir 10 mínútna leik höfðu
Framarar minnkað muninn í eitt
mark, 20:19, og Rúnar Kárason sá
um að koma Safamýrarliðinu í for-
ystu. Hann jafnaði metin í 22:22 eftir
14 mínútna leik og kom því yfir,
24:23, þegar rúmar 12 mínútur voru
til leiksloka. Eftir þetta litu Fram-
arar ekki til baka. Þeir unnu síðari
hálfleikinn með 9 mörkum og léku
meistarana svo sannarlega grátt.
Markvörðurinn ungi, Davíð Svans-
son, átti góða innkomu í liði Framara
og markvarsla hans vó þungt í því að
kveikja neistann sem varð að báli.
Rúnar Kárason lék vel fyrir liðið og
Magnús Stefánsson tók á sig rögg í
seinni hálfleik en Fram-liðið á hrós
skilið fyrir frábæran seinni hálfleik.
Haukarnir voru skotnir hressilega
niður á jörðina. Þeir náðu aldrei
virkilegum dampi í leik sínum og í
seinni hálfleik stóð ekki steinn yfir
steini. Andri Stefan komst einna best
frá leiknum.
Morgunblaðið/hag
Fastur fyrir Hornamaðurinn knái, Stefán Baldvin Stefánsson, komst ekki auðveldlega framhjá Gunnari Berg Viktorssyni.
FRÖMURUM tókst það sem engu liði
hefur tekist að gera undanfarna mán-
uði, það er að leggja Íslandsmeistara
Hauka að velli. Haukar, sem höfðu ekki
beðið ósigur síðan þeir lágu gegn FH-
ingum í byrjun nóvember eða í 14 leikj-
um í röð, máttu þola fjögurra marka
tap á heimavelli, 32:28, eftir að hafa
náð sex marka forskoti í byrjun seinni
hálfleiks.
Haukarnir skotnir
niður á jörðina
Frábær leikur Framara í seinni hálfleik á Ásvöllum
,,ÞETTA var bara hreint og klárt vanmat hjá okk-
ur. Menn ætluðu bara að byrja að hvíla sig fyrir
leik tvö þegar um 20 mínútur voru eftir. Það
gengur ekki og við fengum að kenna á því,“ sagði
Andri Stefan, leikmaður Hauka, við Morgunblaðið
eftir tap liðsins gegn Fram í gærkvöld. ,,Fram-
ararnir hreinlega keyrðu yfir okkur í seinni hálf-
leik og ég man hreinlega ekki eftir jafn lélegri
frammistöðu og við sýndum í seinni hálfleik. Við
vorum eins og byrjendur. Nú þurfum við að taka
til í hausnum á okkur fyrir leikinn á mánudaginn.
Ég er hrikalega vonsvikinn en trúi ekki öðru en
við rífum okkur upp. Við komust ekki neðar en
þetta,“ sagði Andri Stefan.
,,Við vorum pirraðir út í sjálfa okkur í leikhléinu
fyrir að spila illa og gera allt of mikið af mistök-
,,Hreint og klárt va
,,ÉG verð að viðurkenna að mér leist
ekkert á blikuna þegar við vorum
komnir sex mörkum undir í byrjun
seinni hálfleiksins. Sá vendipunktur
varð hins vegar að við héldum haus
og mættum mjög vel stemmdir til
seinni hálfleiksins,“ sagði Magnús
Stefánsson, skyttan hávaxna í liði
Framara sem tók sig saman í andlit-
inu eftir frekar dapran fyrri hálfleik
og átti virkilega góðan leik í þeim
seinni.
,,Við spiluðum hreint frábærlega
síðustu 25 mínúturnar. Vörnin small
saman og markvarslan og þegar
þessir hlutir eru í lagi er þetta allt
miklu auðveldara. Þetta er það lang-
besta sem við höfum sýnt í marga
mánuði og þá er ég tala um seinni
hálfleikinn. En við verðum að pasa
okkur á því að ofmetnast ekki við
þennan sigur. Þettta er bara hálfnað
en við stefnum að því að gera út um
einvígið á heimavelli á mánudag-
inn,“ sagði Magnús sem skoraði 6
mörk í fyrri hálfleik og var mjög
ógnandi í seinni hálfleik.
Það hefur verið mikið rætt um að
lið Fram sé karakterslaust. Þið hafið
væntanlega afskrifað þá kenningu
með þessari frammistöðu?
,,Það er mikill misskilningur að lið
okkar búi ekki yfir góðum karakter.
Við vitum vel hvað býr í liðinu og
þurfum ekki að sanna það fyrir ein-
um eða neinum. Þú vanmetur ekkert
lið þegar í úrslitakeppnina er komið.
Í henni eru fjögur bestu liðin. Við
njótum augnabliksins en verðum
komnir á tærnar fyrir mánudaginn
og við ætlum að slá Íslandsmeist-
arana út,“ sagði Akureyringurinn
sem brosti út að eyrum á Ásvöllum í
gærkvöld.
gummih@mbl.is
Ætlum að slá
út Íslands-
meistarana
28-32
Ásvöllum, undanúrslit Íslandsmóts
karla í handknattleik, fyrsti leikur,
fimmtudaginn 16. apríl 2009.
Gangur leiksins: 0:3, 2:3, 5:5, 8:9,
13:10, 16:11, 18:15, 20:19, 28:32.
Mörk Hauka: Andri Stefan 8,
Sigurbergur Sveinsson 5, Kári Kristján
Kristjánsson 5, Elías Már Halldórsson 4,
Einar Örn Jónsson 3, Freyr Brynjarsson
2, Gunnar Berg Viktorsson 1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 16
(þar af 6 til mótherja).
Mörk Fram: Rúnar Kárason 9/5,
Magnús Stefánsson 6, Jóhann Gunnar
Einarsson 4, Stefán B. Stefánsson 3,
Andri Berg Haraldsson 3, Haraldur
Þorvarðarson 3, Guðjón Finnur
Drengsson 2, Brjánn Bjarnason 2,
Jóhann Karl Reynisson 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Varin skot: Magnús Erlendsson 5 (þar
af 2 til mótherja), Davíð Svansson 13
(þar af 5 til mótherja).
Dómarar: Anton Pálsson og Hlynur
Leifsson.
Áhorfendur: Um 700.
HAUKAR-FRAM
STAÐAN ER 1:0 FYRIR FRAM