Morgunblaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 2009
4 Bílar
Japan/U.S.A.
STÝRISENDAR,
SPINDILKÚLUR
OG FÓÐRINGAR
í jeppa í miklu úrvali
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
BDP 50/2000RS
Bónvél
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Heildarlína í þrifum
...fyrir allar gerðir af gólfefnum
Puzzi 8/1 C
Teppahreinsivél
BR 60/95 RS kefli
BD 60/95 RS diskur
Gólfþvottavélar
BR 45/40 C kefli
BD 45/40 C diskur
Teppahreinsivélar
AB 84
Þurrkblásari
Nýtt
Gólfþvottavéll l
Mbl.is/Bílar: Spurt
og svarað nr. 141
Eftir Leó M. Jónsson
leoemm@simnet.is
Hnökrar í rafknúnum
rúðuvindum
Hliðarrúður renna í lóðréttu
flókaklæddu falsi. Flókafölsin gegna
hlutverki stýringar og þéttingar og
eru þeirrar náttúru að þrútna ekki
við að blotna. Hins vegar geta þau
safnað í sig ryki þar til rúðan fer að
stinga við eða stöðvast í falsinu, oft-
ast á leið upp. Stöm rúðuföls má
liðka á auðveldan hátt þannig að
rúðuvindur vinni eins og nýjar. Rúð-
unni er rennt alla leið niður. Grönn-
um sívölum bursta (eða hálfri
þvottaklemmu) er rennt upp og nið-
ur fölsin um leið og þau eru ryksug-
uð eða blásin. Á bensínstöðvum fæst
sílikon á úðabrúsum (sama efni og
notað er á stirða rennilása á tjöld-
um). Sílikon-efninu er úðað í fölsin
og niður með rúðunni sem brátt
rennur liðlega upp og niður á ný.
Peruskipti og ökuljós
Oft er erfitt að komast að til að
losa og endurnýja perur í ökuljósum,
sérstaklega þeim megin sem raf-
geymirinn er. Stundum má sjá
starfsmenn bensínstöðva glíma við
þetta lítt öfundsverða verkefni.
Margur bíleigandinn hefur bölvað
hressilega við þessar tilraunir enda
munu vera brögð að því að perur
sitji ekki rétt í ljósunum. Öll ljósker
eru hönnuð þannig nú til dags að
stilling ökuljósa breytist ekki þótt
ljóskerið sé losað og fest aftur. Oft
er mun auðveldara og öruggara að
endurnýja framljósaperur með því
að losa ljóskerið og færa það framar.
Algengt er að ljóskeri sé fest með
þremur 6 mm boltum (10 mm lykill).
Gæta skal þess að taka ekki á gleri
perunnar heldur á perustykkinu.
Perurnar hitna mikið og fita í fingra-
fari getur eyðilagt þær.
Ískrandi þurrkublöð
Þótt ískri í þurrkublöðum og þau
þurrki illa er ekki þar með sagt að
þau séu ónýt. Ástæðan getur verið
tjara á vör blaðanna, tjara sem bind-
ur í sér fín sandkorn og önnur
óhreinindi. Auðvelt er að þrífa
þurrkublöð. Svissað er af þegar
þurrkuarmarnir eru í uppréttri
stöðu. Armarnir eru spenntir upp og
blöðin þrifin með tusku vættri með
kveikjarabensíni eða ísvara (spritti);
vör blaðanna núin þar til tjaran er
uppleyst. Þá er borið yngingarefni á
blöðin (Son of Gun, ArmorAll eða
sambærilegt efni). Stundum getur
ískrið verið vegna tjöru á rúðunni
sem þá er meðhöndluð á sama hátt
eða með sérstöku hreinsiefni fyrir
bílrúður.
Truflaðir mælar í Ford Focus
Spurt: Ford Focus Ambient 2003
er að stríða mér. Snúnings- og
hraðamælir detta stundum úr sam-
bandi í mislangan tíma, saman eða
hvor fyrir sig. Stundum er
hitamælirinn sem dauður. Vélarljós
í mælaborði á það til að lýsa ekki
þegar svissað er á. Stundum er allt
mælaborðið óvirkt. Þessar truflanir
hafa engin áhrif á gang vélarinnar.
Svo geta liðið mánuðir og allt er
með felldu. Þegar spurst er fyrir hjá
verkstæði umboðsins segjast þeir
ekki vita hvað þetta geti verið!
Svar: Af lýsingunni að dæma er or-
sökin viðnám í aðaltengi mæla-
borðsins eða snertitengjum prent-
rása. Stundum er mælaborðið ónýtt
og þarfnast endurnýjunar. Stund-
um má laga þetta með hreinsun
tengja og snertiflata prentrásanna
aftan á mælaborðinu. Auðvelt er að
taka mælaborðið úr. Aftan á því er
enginn hraðamælisbarki heldur
borðatengi sem auðvelt er að losa.
Öll sjáanleg útfelling er þrifin með
Contact Cleaner (efni á úðabrúsa
sem fæst á næstu bensínstöð). Til
varnar gegn útfellingu eru snerti-
tengi smurð með sílikonfeiti, eftir
hreinsun, (Dielectric Compound)
sem fæst hjá N1, Stillingu, Poulsen
og víðar. Áður en mælaborðið er
sett aftur í er ráðlegt að leita uppi
jarðsambönd (svartar leiðslur), losa,
þrífa og smyrja þau með sílikonfeiti.
Athugið að bréf geta verið stytt. Eldri
spurningar og ítarlegri svör eru birt á
www.leoemm.com
Stirðar hliðarrúður, ískrandi þurrkur og fleira
Morgunblaðið/Kristinn
Ískrandi þurrkublöð Þótt ískri í þurrkublöðum og þau þurrki illa er ekki þar með sagt að þau séu ónýt.
Höfundur er vélatæknifræðingur
Stjörnuleikmaðurinn Andrey Arshavin hjá Arsenal á
ekki beinlínis upp á pallborðið hjá konum þessa dag-
ana. Þvert á allar staðreyndir um hið gagnstæða segir
hann konur ómögulega ökumenn.
Aðdróttanir hans og vantrú á kvenbílstjórum birtust
í viðtali við enska blaðið Daily Mail nýverið.
„Ég myndi aldrei taka konur í ökutíma. Það þarf að
byggja sérstaka vegi fyrir þær. Hvers vegna? Jú, mað-
ur getur aldrei reiknað út hvers sé að vænta af konu í
umferðinni. Sjáirðu einkennilega bílhegðun, beygjandi
til og frá og gerandi furðulega hluti, þá veistu það áður
en þú sérð ökumanninn, að þar er kona á ferð. Það er
alltaf kona,“ segir hann.
Arshavin kallaði yfir sig gremju og reiði með um-
mælunum. Talsmaður síðunnar Eve Cars, sem helguð
er kvenökumönnum, sakaði hann um þekkingarleysi.
„Við leggjum til að Andrey kanni málin ögn áður en
hann gefur svo stóryrtar yfirlýsingar.
Tölulega séð er drengilegra kynið miklu betri og
öruggari ökumenn en karlar. Konur eru ekki með jafn-
stórt sjálf og karlar, það fara engar sögur af þeim að
klessa splunkunýja ofurbíla er þær freista þess að
ganga í augu annarra,“ sagði hún.
Arshavin hefur verið sagður eiga pólitíska framtíð
fyrir sér í heimalandinu þegar fótboltaferli hans lýkur.
Miðað við samtalið og fyrri atvik þykir hann þó myndu
hafa gott af að taka námskeið í diplómatískri fram-
komu. Í einum af bókum sínum skrifar hann nefnilega:
„Ef ég fengi tækifæri til að leggja bann við því að kon-
ur aki bílum og afturkalla ökuréttindi þeirra, þá myndi
ég ekki hugsa mig um tvisvar.“ agas@mbl.is
Vill sérstaka vegi fyrir konur
Morgunblaðið/Kristinn
Vanþekking Ekki eru allir á því að kvenmenn eigi að
keyra þó kannanir sýni að konur séu öruggari bílstjórar.
SAMKEPPNIN
milli BMW og
Mercedes Benz
hefur lengi verið
hörð og virðist ekki
ætla að verða lát þar á.
BMW kynnti fyrir
skömmu til sög-
unnar nýja
reiðhjólalínu
og eru þau
farartæki lík-
lega þau
grænustu
sem bíla-
framleið-
endur geta
boðið upp á.
Þeir hjá
Mercedes
Benz verða
auðvitað að
svara fyrir sig
og því hefur
stjörnufram-
leiðandinn kynnt nýja reiðhjólalínu
sömuleiðis þó nálgunin sé aðeins
öðruvísi.
Á meðan BMW bauð upp á öflug
og hátæknileg fjallahjól býður
Mercedes Benz
upp á keppnis-
hjól með sí-
gildu hrúta-
stýri. Gripur-
inn er afar fal-
legur að sjá, fágað
útlitið og léttbyggt
hjólið er smíðað
úr bestu fáan-
legu efnum
enda kostar það
enga smápen-
inga, hvorki
meira né
minna en fimm
þúsund evrur.
Hjólið er að-
eins 6,9 kíló að
þyngd og verða
aðeins framleidd
hundrað eintök. Stór
hluti reiðhjólsins er úr
koltrefjaefni og býr það yfir
tuttugu gírum.
Restin af vörulínunni inniheldur
fjallahjól, líkamsræktarhjól og
barnahjól en jafnframt er hægt að
fá tilheyrandi fatnað fyrir þá sem
það vilja.
Græn samkeppni
Létt Reiðhjólið frá
Mercedes Benz nýtir
hátæknileg efni og er
aðeins 6,9 kílóa á þyngd.