Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Blaðsíða 18

Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Blaðsíða 18
14 NÝTT KVENNABLAÐ INGIBJÖRG ÞORGEIRSDÓ TTIR: Skammir, dökkir skuggadagar skrefa yfir kalda jörð; vefur hríðin voðir hvítar, vefur þeim um frosinn svörð. Höndum tengdum hríð og myrkur hylja þína ásýnd, fold. Er himinninn blái horfinn draumur helju vigð hin dökka mold? Skuggar dökkir, skuggar svartir, skuggar heimsku og nautnaprjáls, œgiskuggar illsku og hroka, öfundar og hefndar báls reifa lífið rökkur hjúpi, rofar hvergi í Ijósa vök. Á hið fagra, á hið góða engin hér i heimi tök? En — látum ekki skugga skelfa, skammt ná þeirra heljar völd. Bak við skýin stöðug standa stjörnum ofin himin tjöld. Upphafslausa myrkur-móðu myrkur hvel ei sérstakt ól, en — bak við Ijósið, bak við lífið björt og eilíf vakir sól. sér fyrir því að taæta kjör annarra. Nú er meiri þörf en nokkru sinni fyrr, að konur taki virk- an þátt í stjórnmálum landsirrs, því margt þarf að lagfæra á þeim vettvangi. Á öðru tímabili ævinnar er starfsvið kon- unnar oftast innan lieimilisins, en á þriðja tímabili ævinnar, víkkar sjóndeildarhringur hennar, starfsvið hennar stækkar og hún fær meira tækifæri til að vinna að almennings heill. Þriðji þátturinn í ævi hennar getur orðið hinn fegursti og hamingjusamasti ef hún að- eins vill það sjálf. Skilningur hennar á lífinu hefur dýpkað, per- sónuleikur hennar hefir vaxið. Á þessu aldurs- skeiði, ef hún tekur því rétt, munu börn henn- ar og maður dá hana meir en nokkru sinni áður. Já, fimmtugasti afmælisdagurinn ætti að vera ánægjulegasti afmælisdagur konunnar. Sú mun klakans kalda hjúpi kasta frá og myrksins hramm, aftur dökka ylja moldu, undur lifsins kyssa fram. Þegar dýrðlegt vorsins veldi vakir allt frá strönd að tind, burt er skuggans blýgrá hula, birtist heimsins fagra mynd. Og mun ei likt í mannsins veröld með sín dökku skugga-þil, er hylja lífsins útsýn alla oft þar sér ei handa skil. En þeir rétt sem aðrir skuggar ekki standast Ijóssins mátt. Lífsins ásýnd, Ijósi merluð, loks þú birtast munt og átt! ,J£kki er allt sem sýnist,,' sjáið, sagði forðum skáldið hryggt. Ennþá söm þau orðin hljóma á hið sanna margt fær skyggt. Ennþá hylur bölsins blekking, byrgir andans fögru sýn. En — eitt er vist, að einhvern tíma opnast sjónin — mín, og þín. Ekki leizt honum þær djarfmannlegar. Tekið orðrétt úr dagdók Guðmundar ísleifssonar frá Stóru-Háeyri á Eyrarbakka, með leyfi dætra hans. 5. ágúst 1916: Kosið hlutbundnum kosningum, þjóðkjörnir þingmenn 6—12 ára. Þá kjörréttur kvenna jyrst notaður síðan landið byggðist. Margar voru þær í holum sínum, líkt og dýr, sem sneypt er inn með sveii (hundsað). Illt er að kenna göldum gelti og gömlum hundi að sitja. Ég vil skýra það með orðinu: Vaninn. * Svo segir Magnús prófessor Jónsson um gest okkar Ludvig Harboe: Hann lét ekki hvarfla að sér, að svara meingerðum með meingerð. Hann lét Ijúfmennsku mæta kulda, alvöru mæta dónaskap, glaðlyndi mæta illri að- búð. * Réttlætið upphefur fólkið, en syndin er þjóðanna skömm.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.