Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Blaðsíða 19

Nýtt kvennablað - 01.04.1945, Blaðsíða 19
NÝTT KVENNABLAÐ 15 SamsÉarfsmeim Svanhvít Pétursdóttir 'PH hefur gert sitt til að auka ■L ®J| kaupendatölu blaðsins. — Hún er fœdd 21. desember frfee, f Jf| 1911 að Kollaleiru í Reyð- arfiröi. Foreldrar hennar eru Pétur Magnússon Jóns- sonar bónda að Iirolllaugs- stöðum í Hjaltastaðaþing- há, og Sigurbjörg Erlendsdóttir Sigurðssonar frá Skálum á Berufjarðarströnd, síðar hreppstjóra að Skriðu í Breiðdal. — Ólst hún upp með for- eldrum sínum til 18 ára aldurs, en fór þá til Reykjavíkur að læra matreiðslu og sauma, og dvaldi þar næstu árin. Giftist 29. júní 1935 stud. theol. Hólmgrími Jósefssyni frá Ormarslóni í Þistilfirði. Eru presthjónin nú búsett á Raufar- höfn, frá árinu 1942, áður að Skeggjastöðum í Norður- Múlasýslu. Börn þeirra hjóna eru fimm. Sigurbjörg og Halldóra (tvíb.), Jóhann, Hólm- fríður og Þuríður (tvíburar). Hefur frú Svanhvít þvi með sinn elskulega barnahóp, anna- og erilsamt heimili, en blaðið er henni því þakk- látara að bæta á sig aukastörfum því til fyrir- greiðslu. , Halla Eiríksdóttir hefur útvegað blaðinu kaupend- ur og sýnt því vinsemd frá byrjun. Hún er fædd aö wk jBBm Fossi á Síðu, V.-Skafta- (HB fellssýslu, 24. marz 1894, ^ \ I dóttir hjónanna Guðleifar ^ Helgadóttur og Eiríks Steingrímssonar, og er elzt af 11 systkinum. Ung fór hún til Reykjavíkur og lærði karlmannafatasaum á skreðaraverkstæði þar, ennfremur lærði hún vefnað og matreiðslu. Fór svo heim aftur og vann mest að saumaskap á vetrum, ýmist heima eða heiman, með þeim ágætum, að menn þar í sýslu, sem vanir voru að ganga í skreðarasaumuðum fötum, fengu hana til að sauma á sig. Seinna stóð hún fyrir heimili bræöra sinna, en kenndi samt að sauma í nokkrar vikur á hverjum vetri í 10 ár, á nám- skeiðum, sem kvenfélögin þar eyztra héldu, oft- ast á Fossi. Halla tók virkan þátt í félagsmálum í sinni sveit. Stofnaði kvenfélagið „Hvöt“ og var for- maður þess í 10 ár, eða þar til hún fluttist til Reykjavíkur haustið 1943. Ennfremur var hún ein af stofnendum stúkunnar „Klettafrú“, sem haldið hefur uppi menningarstarfsemi í sveit- inni og skemmtanalífi. ^amingja Lukku sinnar leita menn lífs um daga alla, en helmingurinn hefur enn hana fundið varla. L. Bl. Því nær engu sækjast menn eins eftir hér í heimi eins og hamingjunni. Menn þrá ham- ingjuna af heitu hjarta, og allir berjast við að höndla hana, þótt ólíkar leiðir fari. Margir barma sér yfir því, hvað hamingjan flýr þá miskunnarlaust, að þeir muni aldrei á ævi sinni geta höndlað hana. En hversu misjafn er ekki skilningur manna á hamingju Einn heldur, að hamingja sé innifalin í því, sem annar álítur óhamingju sína, einn hyggur að gæfan sé fólg- in í auði og velmegun, en annar heldur að aðeins völd og virðing geti veitt hana. Frægð og heiður finnst þeim þriðja hin mesta hamingja. En ekkert af þessu getur veitt mönnum sanna ham- ingju, enda þótt allt virðist stuðla til þess. Forsjónin mundi ekki hafa lagt þessa heitu löngun, þessa brennandi þrá í brjóst mannanna, ef hún hefði ekki líka gefið þeim möguleika til að verða hamingjunnar aðnjótandi. Það er van- hugsað, að láta sér um munn fara, eins og svo margir gera, að enga hamingju sé að finna í þessum heimi. Það er að syndga móti guði, sem gert hefur þann heim, sem vér lifum í, svo víðan og fagran. Sífelld kvörtun um svikna hamingju er merki um andlega örbirgð, andlegan vesal- dóm, með öðrum orðum: vöntun á dug og þreki til að vilja vera hamingjusamur. Sú hamingja, eða það, sem kallað er hamingja, sem fyrirhafn- arlaust frá vorri hálfu fellur oss í skaut, er ekki og getur ekki verið hin sanna, unaðssama, var- anlega hamingja. Menn verða að eiga hana hið innra, ávinna sér hana og leggja undir sig. Heim- ilishamingja t. d., er hún ekki sjálfsorka? Er hún ekki að meira eða minna leyti sniðin af oss sjálfum? Er hún ekki eitthvað, sem framar öllu öðru nálgast hina sönnu hamingjuhug- mynd? Stór vinningur í happdrætti eða mikill arfur, er fellur erfiðislaust í hlut vorn, megnar

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.