Nýtt kvennablað - 01.01.1948, Qupperneq 13

Nýtt kvennablað - 01.01.1948, Qupperneq 13
Lífíl ferdasaga Ég lagði al' stað með áætlunarbílnum kl. () síðdegis austur á Þingvöll. Það var fremur fátt í bílnum, þess betur sá ég leiðina austur. Mér þykir Mosfellsdalurinn sérstaklega vinalegur. Er ég kom á leiðarenda var vel tekið á móti mér, alls staðar var hreinlegt og vel um gengið. Virtust mér margir fasta gestir vera á hótelinu, þeirra á meðal var frú héðan úr þorpinu og komum við okkur saman um að ganga út í góða veðrið. Við byrjuðum á því að skoða Lögberg, svo skoðuðum við öll búðastæðin, síðan fórum við upp í Almannagjá og gengum hana á enda. Það blasti við okkur fagur fjallahringurinn, enn fegurri fyrir það að síðustu geislar kvöldsólar- innar roðuðu efstu tindana. Full aðdáunar horfði é,g á þessa tign og fegurð, og í lotningu til höfundar lífs og ljóss. Við gengum svo niður að vatninu, sent var spegilslétt í kvöldkyrrðinni, en silfraðar gárur koniu ofur Iiægt að landi. Víkingaskipi'S. StærS 120X105 spor. ÁSTAVlSUR EFTIR ÞRJÁR SKÁLDKONUR. Þig eg trega manna mest mædd af táraflóði. Ó að við hefðum aldrei sézt elsku vinurinn góði. Vatnsenda-Rósa. Láttu brenna logann þinn lof mér enn að skoða ’ann. Horfa í enniseldinn þinn, ínn 1 kvennavoðann. Olöf SigurSardóttir. Þú varst horfinn, húmið svart luildi salarkynni. Aldrei framar alveg bjart er í stofu minni. Margrét Jónsdóttir. Ég var á Þingvöllum í 3 daga og sá alltaf eitt- iivað nýtt. Fór ég svo heirn til mín hress í huga með ljúfar minningar um ferðalagið. G. NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.