Nýtt kvennablað - 01.01.1948, Page 14

Nýtt kvennablað - 01.01.1948, Page 14
Sprettið sundur gömlu kjólunum, sem þið eruð hættar að vera í, og saumið einn tízkukjól úr tveimur. MEMILA Þú ferlega fjalladrottning með feiknstafi mikla að eldi og ógnum römmum þú enn hefur lykla Þú frœgasta fjalladrottning, hve feiknaleg undur: Uppspretta þín er eldur, sem allt tœtir sundur. Hœttu nú Hekla gamla hamförum, trylltum og villtum, þó veitist þér veglegur hróður. Eitraðu ekki með ösku ungan og nývaxinn gróður. Stödd við Heklu 11. júní 1947. lórunn Halldórsdóttir. Frá minu sjónarmiði er „DalahT' góður feng- ur fyrir bókmenntir íslenzkra kvenna, svo ein- staklega látlaus sveitasaga, laus við allan áróður fyrir vissu málefni, en hefur þó sinn boðskap að flytja, alveg eins og mannlífið sjálft. Ég sam- gleðst af hug o,g hjarta iienni, hver sem hún er, sem bar elju og þrek til að koma þessu fari í höfn, með svona marga innanborðs, þar heldur hver sínum svip og sérkennum frá upphafi til enda. Slíkt gerist ekki fyrirhafnarlaust. Dalalij hefur komið mér til að tárast og hlægja á víxl —alein — eins og oft henti mig í „gamla daga“ við lestur kvæða og sagna. lngveldur Einarsdóttir. Ein af bókum þeim í Ritsafni kvenna, sem bókautgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar gefur út, er Heimilishandbókin eftir Jónínu Sigurðar- dóttur Líndal á Lækjamóti. Ekki er þessi bók hvatning fyrir konur til að halda heimili mannlausar. í fyrsta kafla bókar- innar, sem heitir Heimilið, segir höf.: „Reglu- legt heimili með starfsgleði og hamingju er ekki unnt að skapa af husfreyjunni einni eða mann- inum einum. Það verða að vera þau bæði.“ Und- irstaðan verður þá að vera hið gamla hjóna- band. En Heimilishandbókin getur áreiðanlega stutt og leiðbeint um allt ytra fyrirkomulag heimilis, bæði til sjávar og sveita. Unga hús- móðirin hefur sjálfsagt oft vaknað upp við vond- an draum, þegar daglegt líf heimtaði af henni hvað eina, og þegar vanþekking hennar hindraði hana í að gera vel, jafnvel þó hún yfirynni sjálfa sig til að reyna það. En nú eignast þessi unga kona sinn næstbezta vin í Heimilishandbókinni. Hann fræðir Iiana Ijúflega um allt, sem hún þarf að vita til að geta staðið með prýði í stöðu sinni. Hann leiðbeinir í hvítvetna: innanhúss- fyrirkomulagi, framkomu, fatnaði, matargerð og matargeymslu, viðhaldi muna, þvotti, hreinsun o. s. frv. Tafla er yfir ráð til að ná úr öllum blettum, mun mörgum koma hún vel. Þá lítur Heimilishandbókin heilbrigðum augum á fjár- hagshliðina, sem annað. Elínborg Lárusdóttir hefur getið hennar á þess leið: „Fyrst Jónína hefur samið hana, mun bókin koma að þeim notum, sem til er ætlast og verða konunni hjálp við matargerð og heimilisverk.“ Bókin er eigu- leg og gagnleg, og meguin við vera Jónínu S. Líndal mjög þakklátar fyrir allt það mikla starf og þekkingu, er hún hefur í hana lagt. Guðrún Stejánsdóttir. Valdi ég lífsins vistina í von og trú á mönnum. — En nú hef ég lært þá listina að lifa á dagsins önnum. G. S. Hverri fornkonunni vildir þú helzt líkjast? Nýtt kvennablaS kostar 10 kr. árgangurinn. Átta blöS á ári. Kemur ckki út sumarmánuSina. AjgrciSsla: Fjölnisvcgi 7 í Reykjavík. — Sími: 2740. Ritstj. og ábyrgSarm.: GuSrún Stefánsdóttir, Fjölnisvegi 7. BORCARPRENT 12 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.