Nýtt kvennablað - 01.01.1949, Side 4

Nýtt kvennablað - 01.01.1949, Side 4
Hafið Hlð séd lorDgrfpasafnifl? Það er geyint á loftinu í Lanclsbókasafnshús- inu á Hverfisgötunni. Fyrst þegar inn fyrir dyrnar kemur er svo nefnd kirkja. Margt er þar að sjá af fornum lielgidómum, er áður fyrr voru i kirkjum lands- ins, flesta eða alla frá katólska tímabilinu. Helgi- myndir af Kristi, móður hans o. fl. konum, sem tilbeðnar voru. 3 altarisbríkur eru þarna, Iiver upp af annarri, frá Hólum, Reynistað og Hítar- dal, úr alabastri. Öndvert á móti þeim eru ýms- ar biskupamyndir. í skápum eru ýmsir kirkju- munir: kaleikar, patínur, ljósberar o. fl. í skrúð- húsi, svo nefndu, eru messuklæði, þ. á m. kant- arakápa, er Jón Aranson átti og var notuð af biskupum við prestsvígslur unz Jón Helgason fékk sér aðra nýja. Þar er hökull, saumaður af Guðrúnu Skúladóttur, Magnússonar landfógeta, kirkjuklukkur og skriftastóll. Þá er þarna eftir- 1 íkinsr kirkjuhurðarinnar frá Valþjófsstað. Und- ir gleri má sjá Guðbrandarbibh'u. Þá eru hinar veraldlegu deildir safnsins. í Stofunni eru feiknin öll af öskjum, tingögnum, borðbúnaði, búsáhöldum, skrautgripum, rúm- fja'ir og rúmstokkar, stólar og kistur, skrifborð og skápar, trafakefli, ábreiður, reflar, sessur, dúkar, og gamli vefstólinn; sá hefur nú ekki ver- ið þægilegur í vöfum. Þó hafði liann tíðkazt hér á Jandi fram á síðustu öld. Þarna má siá drvkkj- arhorn, skeiðar og SDæni, ritföng, bókbandsá- hö'd, kvarða, úr og klukkur, gamalt langspil o. fl. í Skemmunni eru reiðtýgi, kvenna og karla. Kvensiiðlar með drifnum bogum og bríkum, þar á meðal söðull með helgimvndum, er Guð- rún Skúladóttir í Viðev átti. Annar, er átt hefur Rao-nheiður Viefúsdóttir Srheving, kona Stefáns amtmajins Þórarinssonar, með mvndum af dýra- veiðum. Kvenbúningar margir og skartgripir, peningasafn o . fl. Frá elztu tímum: steinker og blótbollar. Ýmsir grinir úr fornum haugum, spíót, axir o. fl. Þá fannst mér gaman að rauð- krítarmvndunum eftir Sæmund gamla Holm, er hafa gevmt svipi þeirra, sem farnir eru, með list -sinni. Hef ég jafnan verið hrifin af öllu jaess- háttar. E'n nú skil ég ekkert í sumum af verkum samtíðar listamannanna. Þessar abstrakt mynd- ir, sem sagðar eru vera af hinu og þessu, en svo finnst ekki eftirlíking af neinu, sem maður hefur hugsað eða séð. Líklega er það eitthvað, sem listamennirnir sjá hið innra með sjálfum sér, en ófagurt er það. í sérstökum klefa er Vídalínssafnið, er Jón Vidalín konsúll og Helga kona lians gáfu 4. júní 1907, merkasta safnið úr eins manns eigu, t. d. kaleikur með patínu úr Grundarkirkju í Eyja- firði, merktur 1489. Oblátudósir frá Bessastöð- um, altarisstjakar úr Bræðratungukirkju. Tvær Maríumyndir, önnur skorin úr tré, en hin úr rostungstönn, lítil. Kristsmynd og postulamynd- ir úr Þingeyrarkirkju. Hætti ég upp að telja. Það verður margfallt meira gagn fyrir fólk að sjá með eigin augum, og enn frekar þegar safnið er komið í hæfileg húsakynni. Verið er að byggja því mikið og veg- legt hús, á háskólalóðinni, sem verður fullgert eftir tvö ár. En strax á þessu ári mun byrjað að ílytja. Er sú bygging gjöf frá allri þjóðinni í tilefni endurheimts fulls rfelsis 1944. Hvernig mér leið, þegar ég fór út af safninu? Ég var orðin sameining margra kynslóða, niarg- ar konur. Ég flýtti mér heim, vildi lifa nokkur augnablik á þeim tímum, er ég hafði kynnzt þarna. Ég fleygði mér niður á legubekk lét augun aftur, og fyrir annarri sjón fóru aldir og tímar á fljúgandi ferð, eins og kvikmyndir á tjaldi. Ég sá kynslóðirnar fara og koma, hverja eftir aðra, aftur á bak, fyrst þær næstu — mæð- ur og ömmur — síðast þær fjærstu. Sá menn fara með konum sínum og fylgdarliði um sveitir lands og fjallvegu. Sá helgiathafnir, að nýjum og fornum sið. Strit daglega lífsins, skemmtanir, úti og inni, herferðir og bardaga. Hver mvndin tók við af annarri. Ég var jafnvel komin aftur í steinaldartíma, er ég allt í einu hrökk við, það var raunveruleikinn, sem ýtti við mér: Ofninn kaldur og ég svöng. Lýsbet. Þó safnið fái brátt veglegan sama stað, og allra leiðir liggi til Reykjavíkur, eiga byggðasöfn að rísa á legg. Öruggara er að geyma dýrmæta muni, og gamla, ekki alla á sama stað. Byggðasöfnin auka gildi héraða, eru menningarverðmæti, sem aðrir vilja sjá samhliða byggðinni. Nú þegar ferðalög út um sveitir eru orðin almenn má afla fjár hjá ferðafólkinu til framkvæmda. NÝTT KVENNABLAÐ 2

x

Nýtt kvennablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.