Nýtt kvennablað - 01.05.1959, Blaðsíða 5

Nýtt kvennablað - 01.05.1959, Blaðsíða 5
hamingjusamt hjónaband og gert tvær manneskjur ó- gæfusamar. í tilkynningunni er einnig tekið fram, að drottningin hafi fallizt ó að taka ákvörðun konungsins með still- ingu, þrátt fyrir persónulegar. tilfinningar og gagn- kvæma ást þeirra, sem tengi þau livort öðru. Að lok- um var sagt, að hjónaskilnaðurinn væri í þágu ríkis- ins. Ég sagði konunginum, að það væri einmitt þetta, sem hefði verið lýst yfir opinberlega, en síðan hefði verið mikið rætt og ritað um málið, og ýmislegt væri í mótsögn hvað við annað. „Ég bið yðar hátign að segja mér frá hinni raun- verulegu ástæðu fyrir hjónaskilnaðinum,” sagði ég. Konungurinn svaraði mér óðara á ensku: „Ég myndi einskis óska fremur en giftast Saroyu drottningu aftur, ef ég gæti það. Ég elska hana enn og þrái hana stöðugt. En yður hlýtur að vera ljóst, hr. Sand, að kringumstæðurnar, sem knúðu mig ti! að stíga þessi þungu spor, hafa ekki breytzt. Ég verð að sjá þjóðinni fyrir ríkiserfingja og það sem fyrst. Ég átti um tvo kosti að velja, skylduna og ástina. Ég valdi skylduna og hún hýður mér að giftast aftur.“ „Og er þegar húið að. velja hina nýju drottningu Persíu? (Þetta var í byrjun janúar þetta ár). „Nei,“ svaraði konungurinn afdráttarlaust. Ég minnti konunginn á þann orðróm, sem upphaf- lega komst á kreik í Kairó, að það gæti greitt fram úr vandræðum hans, ef Shanaz prinsessa hin átján ára dóttir hans af fyrra hjónabandi, eignaðist son. „Til 'þess yrði að gera gagngerar breytingar á stjórn- arskránni. Samkvæmt henni kemitr ekki til greina við ríkiserfðir nema afkomandi konungsins í beinan karl- legg. Samt er ekki óhugsandi, að hægt hefði verið að breyta stjórnarskránni, en þar sem Shanaz prinsessa eignaðist dóttur fyrir skömmu, hefur ekki verið hægt að fara fram á slíka breytingu. Því er ekki að neita, að ég óskaði, að dóttir mín hefði eignast son.“ Viðtalinu var lokið. Fyrir utan beið löng, svört, glæsileg bifreið, sem ók konunginum til tannlæknis. Síðasla daginn, sem konungurinn dvaldi í Evrópu, ráðfærði hann sig við læknana, sem rannsökuðu hann fyrir tveimur eða þremur árum, til þess að ganga úr skugga um, hvort það væri ef til vill hann, sem ætti sök á, að hjónaband hans og Saroyu var barnlaust. Læknarnir lýstu yfir, að þeir fyndu ekkert, sem væri því til fyrirstöðu, að konungurinn gæti orðið faðir. Frá þeirri stundu vissi hann, að skilnaður var óbjákvæmilegur. Þó hikaði hann við að færa slíka förn, þangað til hann gat ekki lengur haldið óþolin- mæði ráðgjafa sinna í skefjum. Fyrir utan Persakonung, Saroyu drottningu og NÝTT KVENNABLAÐ nokkra fremstu kvensjúkdómafræðinga heimsins, sem hún hefur leitað til, er ég ef til vill sá eini utan hirðar- innar, sem veit, að Saroya hefði ef til vill getað eign- ast ríkiserfingja og verið áfram drottning Persíu, ef það hefði ekki verið vegna hræðslu af hennar hálfu. Hin fagra, unga kona hefur vitjað lækna um allan heim, í Sviss, New York, Moskvu, London og víðar. Það var samt ekki fyrr en nokkru eftir skilnað kon- ungshjónanna í fyrra, að mér varð þetta ljóst. Ástæð- an til þess, að ég skrifaði ekki um það strax, var sú, að ég vonaði enn, að hjónin tækju saman aftur. Ég'get gefið þær upplýsingar, að tveir hinna fremstu kvensjúkdómasérfræðinga í heimi — annar þeirra er Ernst Held prófessor í Ziirich — eru sammála um, að drottningin hefði getað eignast barn, ef hún hefði geng- ið undir smáuppskurð. Konungurinn þrábað drottn- ingu sína að leggjast á spítala í þessu skyni og lofaði að vaka yfir henni dag og nótt. Læknarnir sögðu, að skurðaðgerðin væri hættulaus, og Saroya gæti farið heim af sjúkrahúsinu eftir viku. „Ég hef leitað til margra sérfræðinga,“ sagði drottn- ingin við mig, „og þeir eru ekki sammála. Enginn þeirra hefur sagt, að ég gæti ekki eignazt börn. Það er þessi óvissa, sem kvelur mig. Ég get ekki fengið að vita neitt ákveðið. Það er eins og að vera grafinn lif- andi.“ Konungshjónin töluðu við lækni Eisenhowers í Bandaríkjunum, og að áeggjan lians flugu þau til Lausanne og ráðfærðu sig við Rodolphe Rochat pró- fessor og síðan Ernst Held prófessor í Zúrich, sem hafði rannsakað drottninguna árið áður. Hann sagði, að hinir bandarísku læknar hefðu staðíest úrskurð hans. „Smávegis skurðaðgerð mundi leysa vandann við- víkjandi rikiserfðunum í Persíu,“ sagði hann. Saroya féllst á það að láta skera sig upp, en þegar þau hjónin komu á hótelið, sem þau hjuggu á í Zúrich, breytti hún ákvörðun sinni og viðurkenndi fyrir manni sínum, að hún væri mjög hrædd við uppskurðinn. Hún sárbað hann um leyfi til að fresta aðgerðinni þar til síðar. Konungurinn lét uhdan, en drottningin herti aldrei upp hugann, þó að völd konungsættarinnar væru í veði. þar til hún hefði alið son. Það er aðeins einn maður, sem getur forðað Persíu frá því að sogast inn í þá byltingaröld, sem ár eftir ár hefur skollið yfir Mið-Asíu, og þessi maður er konungurinn. Byltingar hafa orðið í nágrannaríkjun- um, en Persíu hefur verið borgið undir stjórn konungs- ins. Þar hefur verið hæg framþróun. Eigi að síður er ástandið slæmt og spilling bæði í embættismanna- og yfirséttinni, sem hirðir það, sem ráðsmenn hennar og

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.