Morgunblaðið - 28.07.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.07.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 2009 ÁHUGI er fyrir hendi hjá nokkr- um aðilum á hlut Norðurorku í orkufyrirtækinu Þeistareykjum, sem hefur borað eftir jarðvarma á Þeistareykja- svæðinu í Þing- eyjarsýslu. Allar upplýsingar um þessa aðila eru trúnaðarmál, að sögn Franz Árnasonar, forstjóra Norðurorku, en framkvæmd sölunnar er í hönd- um Saga Capital fjárfestingabanka á Akureyri. Franz segir söluferlið vera á byrjunarstigi en fram hefur komið í Morgunblaðinu að fyr- irtækin HS Orka, Alcoa og Geysir Green útiloka ekki þátttöku í Þeistareykjum þótt engar ákvarð- anir um það hafi verið teknar. Nokkrir aðilar sýna Þeista- reykjum áhuga RANNSÓKN lögreglu á niðurrifi einbýlishússins við Hólmatún á Álftanesi hinn 17. júní sl. er enn á frumstigi, samkvæmt upplýsingum frá fjármunabrotadeild lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Hafa yfirheyrslur ekki enn hafist yfir fyrrum eiganda hússins, sem mætti með stóra beltagröfu og reif það niður að stærstum hluta. Að sögn lögreglu blandast inn í rannsóknina önnur mál er tengjast sama húseiganda. Vildi lögregla hvorki játa því né neita að búið hafi verið að tæma húsið að innan af öll- um innréttingum og tækjum þegar það var rifið seinni part þjóðhátíð- ardagsins. Niðurrifið á Álfta- nesi enn til rann- sóknar lögreglu Rústir Húsið sem var rifið á Álfta- nesi var kanadískt einingahús. BLÓÐBANKINN ætlar að birgja sig upp af blóði fyrir verslunar- mannahelgina og hefur því sent út áskorun til viðskiptavina sinna að gefa blóð í vikunni. Móttaka í Blóðbankanum er opin mánudaga og fimmtudaga frá klukkan 8 til 19, þriðjudaga og mið- vikudaga frá klukkan 8 til 15 og föstudaga frá klukkan 8 til 12. Vonast er eftir sem flestum. Blóðbankinn vill innlagnir Eftir Andra Karl andri@mbl.is FARI svo að fjölskipaður Héraðs- dómur Reykjavíkur fallist á mála- tilbúnað sakborninga í Papeyjarmál- inu svonefnda er ljóst að meintir höfuðpaurar þrír voru í skemmtisigl- ingu á seglskútu undan ströndum Ís- lands og Færeyja í aprílmánuði. Þeir höfðu með sér tölvutösku fulla af aukahlutum fyrir fartölvu en enga slíka og einn farsíma. Meintir vitorðs- menn þrír og skipverjar á slöngu- bátnum, sem notaður var til að sækja fíkniefni í skútu austur af landinu 15- 20 sjómílur suður af Papey, verða hins vegar sakfelldir fyrir að smygla rúmum 100 kg af fíkniefnum til lands- ins af gáleysi. Gáleysi þar sem þeir héldu sig vera taka á móti sterum. Aðalmeðferð í Papeyjarmálinu var keyrð áfram af mikilli hörku og festu í gærdag. Hún hófst upp úr níu í gær- morgun og var lokið um tíu tímum síðar. Og þó svo að upptökutækin í dómssal 101 hafi bilað þegar vitna- leiðslum var að ljúka ákvað dóms- formaðurinn Guðjón St. Marteinsson að halda ótrauður áfram, og notast við lítið upptökutæki með spólu á meðan saksóknari og verjendur fluttu ræður sínar. „Matlock-flétta“ verjenda Lykilvitni í málinu er sakborning- urinn Halldór Hlíðar Bergmundsson. Sá var fenginn til að taka á móti fíkni- efnunum af og með Jónasi Árna Lúð- víkssyni, en undir því yfirskini að um stera væri að ræða. Halldór er sá eini, af sakborningum, sem hefur tengt tvo meinta höfuðpaura, Peter Rabe og Árna Hrafn Ásbjörnsson, við fíkni- efnainnflutninginn. Halldór hélt því fram að hann hefði séð þá tvo um borð í skútunni Sirtaki 18. apríl sl. þegar efnin voru afhent, og benti hann á þá í myndflettingu hjá lög- reglu. Verjendur meintra höfuðpaura beittu hins vegar svonefndri Matlock- fléttu þegar þeir gáfu útskýringu á framburði Halldórs; fyrir það fyrsta var Halldór einn þriggja sem tekinn var með öll fíkniefnin. Hann hafi því leitað allra leiða til að lágmarka skaða sinn. Verjendurnir spurðu sakborninga mikið út í aðbúnaðinn á Litla-Hrauni þegar þeir sættu einangrun, skömmu eftir handtöku. Upp úr krafsinu kom að Halldór, Árni, Peter Rabe og Jón- as Lúðvíksson voru allir á sama gangi á Litla-Hrauni. Og þrátt fyrir að vera í einangrun gátu þeir séð út um klefa sinn og þannig hina sakborninga. Halldór þekkti ekki Árna né Peter en hann og Jónas voru æskufélagar. Þriðji meinti höfuðpaurinn, Rúnar Þór Róbertsson, var hins vegar á öðr- um gangi. Að mati verjenda sá Halldór Árna og Peter á ganginum áður en honum bauðst að benda á þá sem hann sá í skútunni. Og það skýrir hvers vegna hann greindi aðeins frá tveimur mönnum um borð, ekki Rúnari Þór. Vilhjálmur Hans Pétursson, verj- andi Árna, benti á að fyrir myndflett- ingu hafi Halldór í skýrslutöku sagst ekki þekkja Árna, og það þrátt fyrir að hann hafi séð hann alloft og komið heim til hans á þeim tíma sem hann bjó með Jónasi Lúðvíki. Nafnleysi af ótta við hefnd Fyrir utan framburð Halldórs byggir ákæruvaldið á því að menn- irnir hafi ekki stöðvað skútuna eða haldið til Íslands þegar Landhelg- isgæsla Íslands fór fram á það. Þeir hafi ekki spurt hvers vegna verið væri að stoppa þá og reynt að komast undan. Verjendur skipverja sögðu það hafa verið vegna slæmra veð- urskilyrða og að þeir hafi boðist til að stoppa í Færeyjum þar sem Gæslan gat skoðað skútuna. Skipverji hjá Gæslunni staðfesti tilboðið. Þá var framburður Jónasar einnig mjög mikilvægur því hann bar til um alla atburðarásina en vildi ekki nefna nein nöfn, af ótta við hefnd. Hann sagði mann hafa komið að máli við sig og fengið hann til að sækja stera í skútuna. Hann vildi ekki nefna skút- una, menn um borð í skútunni eða neitt annað sem tengdist málinu, ann- að en að hann hefði sótt poka út í skútu á þessum tiltekna stað og tíma en talið það vera stera. Fyrir það átti hann að fá nokkur þúsund evrur. Hann játaði einnig að hafa hringt í gervihnattarsíma um borð í skútunni. Þess ber að geta að á minniskubb sem fannst á hillu í skútunni, af þeim sem sigldu Sirtaki aftur til Belgíu, eftir að lögregla hafði leitað í henni rækilega og samþykkt að skila henni, fundust myndir sem taldar eru vera úr síma Rúnars Þórs. Á þeim sáust meintir höfuðpaurar, og gervihnatt- arsími, um borð. Verjendur bentu hins vegar á að svokallaður gervihnattarsími hefði getað verið hvað sem er. Og ákæru- valdið hafði ekki fyrir því að finna eins síma til samanburðar, svo dóm- arar gætu alla vega áttað sig á að um slíkan síma væri að ræða. Einnig þótti ákæruvaldinu grun- samlegt að þrjár konur, Lindsay, Telma og Hrafnhildur, væru skráðar á leigusamning skútunnar. Á honum voru að vísu full nöfn en þau voru ekki birt í dómssal. Lögregla reyndi að hafa uppi á konunum en án árang- urs. Skipverjar héldu því fram að um væri að ræða gleðikonur sem þeir ætluðu að sækja í höfn einni í Hol- landi en hættu við á síðustu stundu. Véfengdu smurolíuráðgjafa Verjendur voru allir mjög gagn- rýnir á rannsókn málsins og mál- flutning ákæruvaldsins fyrir dómi. Meðal annars gagnrýndu þeir að ákæruvaldið hefði kallað sem vitni ís- lenskan smurolíuráðgjafa til að skýra út niðurstöður rannsóknar sem fram- kvæmd var í Bretlandi. Rannsóknin beindist að olíusýnum sem tekin voru úr vél skútunnar Sirtaki og olíu sem Jónas Árni keypti á Djúpavogi og tal- ið er að hafi ferjað yfir í skútuna. Niðurstaða rannsóknarinnar leiddi í ljós að um sömu tegund olíu var að ræða en þar sem rannsakendur stað- festu ekki rannsókn sína er ólíklegt að byggt verði á henni. Einnig þótti þeim vanta öll frum- gögn í málið og að ákæruvaldið byggði á eintómum fullyrðingum lög- reglunnar. Einnig sögðu þeir ljóst að fleiri skútur hefðu verið á ferð á svæðinu og mótmæltu því að lögregla hefði að- eins farið á eftir Sirtaki og hundelt hana. Skemmtisigling á Sirtaki eða stórtæk smyglferð Morgunblaðið/Árni Sæberg Skemmtisigling? Skútunni Sirtaki var siglt frá Belgíu og til Íslands í apríl. Aðalmeðferð í Papeyjarmálinu svonefnda hófst og lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is UNGUR Hafnfirðingur, á aldrinum 25-30 ára, datt í lukkupottinn um helgina er hann hafði allar fimm töl- urnar réttar í Lottóinu og vann sér inn tæpar 47 milljónir króna, skatt- frjálst. Reyndist það hafa gefist vel að fara út á djammið en miðann góða keypti hann hjá N1 í Hafnarfirði að- faranótt laugardagsins, á leið heim eftir næturskemmtun. Maðurinn gaf sig fram í gær á skrifstofu Íslenskrar getspár og vill á þessu stigi ekki láta nafns síns get- ið, að sögn Stefáns Konráðssonar, framkvæmdastjóra Íslenskrar get- spár. Eftir því sem best er vitað er hann laus og liðugur þannig að eft- irsóttur piparsveinn gengur laus í Hafnarfirðinum þessa dagana! Næturgaman gaf af sér 47 milljónir  Ungur piparsveinn í Hafnarfirðinum vann sér inn 47 milljónir í lottóinu  Kom við á N1 á leið heim af djamminu Í HNOTSKURN »Lottópotturinn var sex-faldur um helgina og fór fyrsti vinningur sem sagt bara á einn stað. »Tveir skiptu á milli sínbónusvinningnum, fengu hvor um sig 300 þúsund kall. Morgunblaðið/Eggert Lottóvinningur Það getur borgað sig margfalt að kaupa lottómiða. Á vef Íslenskrar getspár kemur fram að vinningshafinn hafi verið stressaður er hann birtist á skrif- stofunni og varla búinn að jafna sig „eftir að hafa komist að því að það var hann og hann einn sem var með allar fimm tölurnar réttar í Lottó.“ Ungi maðurinn hafði verið að skemmta sér á föstudeginum og ákvað að koma við á N1 við Lækj- argötu á leiðinni heim aðfaranótt laugardags til að freista gæfunnar. „Hann sagðist hafa verið svangur og ákveðið að fá sér í borða. Keypti einn lottómiða í leiðinni og það borg- aði sig svo sannarlega. Hann hefur ekki haft efni á því að fara í nám og hyggst skella sér í skóla í haust. Núna hefur hann efni á því, án þess að taka námslán,“ segir Stefán. Þegar um svo stóra vinninga er að ræða hefur Íslensk getspá þá reglu að vinningshafar leiti sér fjár- málaráðgjafar hjá KPMG, til að tryggja betur stöðu þeirra. Sigríður Elsa Kjartansdóttir sak- sóknari fer fram á að dómarar full- nýti refsirammann þegar kemur að þætti Hollendingsins Peters Rabe. Farið er fram á tólf ára fangelsi yf- ir Rabe sem talinn er hafa séð um skipulagningu innflutningsins. Sigríður sagði ekki til um hversu langan dóm hún vildi sjá yfir öðr- um sakborningum en lét dómnum um að ákvarða það. Verjendur minni spámannanna þriggja litu nokkuð til Pólstjörnu- málsins svonefnda þegar kom að því að fjalla um refsingu. Þar sem þeir játuðu, því sem næst, inn- flutninginn er ljóst að þeim verður gerð refsing. Litu þeir til þess að ekki væri um ásetning að ræða og lítinn sem engan ágóða. Í Pólstjörnumálinu, sem sami dómari dæmdi, fékk einn sakborn- inga eins árs skilorðsbundið fang- lesi. Sá hinn sami sá um að taka fíkniefnin til vörslu og hugðist fela þau á sumarbústaðalóð. Bentu þeir á að sá maður vissi að um fíkniefni væri að ræða og því hefði hugsanlega meiri ásetn- ingur legið þar að baki. Farið fram á að refsiramminn verði fullnýttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.