Morgunblaðið - 29.07.2009, Side 4

Morgunblaðið - 29.07.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009 „NÚ er deiliskipulagstillagan í ákveðnu lögbundnu kynn- ingarferli og kemur síðan aftur til umfjöllunar skipulags- ráðs. Það er því of snemmt að segja til um hver niðurstaða málsins verður. Hins vegar leikur enginn vafi á að tillagan er í fullu samræmi við gildandi aðalskipulag,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi og formaður skipulags- ráðs Reykjavíkur, um gagnrýni íbúa á deiliskipulags- breytingu á Spítalastíg og Bergstaðastræti. Tillagan, sem er nú í kynningu, gerir ráð fyrir að heimilt verði að starf- rækja um 40 hótelíbúðir í húsunum þar. Deiliskipulagi breytt til að notkun sé skýr Júlíus Vífill segir umdeilanlegt hvort yfirleitt hefði þurft breytingu á deiliskipulagi í þessu tilfelli. Áformin samrýmist aðalskipulagi Reykjavíkur þar sem á íbúð- arsvæðum sé reiknað með þjónustu. Önnur gistiheimili og hótelrekstur á svæðinu sé t.d. í samræmi við aðalskipulag. „Deiliskipulagi er breytt vegna þess að reiturinn er lítill og mikilvægt að breyting á notkun og starfsemi komi skýrt fram. Þannig verða íbúar og aðrir hagsmunaaðilar best upplýstir um hvaða uppbygging muni eiga sér stað og með hvaða hætti.“ Júlíus Vífill segir skipulagsráð fara vandlega yfir inn- sendar athugasemdir. Hann segir kynningarfundi yfirleitt haldna í stærri skipulagsmálum en það sé met- ið hverju sinni hvort ástæða sé til að funda. Aðalatriðið sé að öll sjónarmið komi fram. Varðandi það að tillagan sé auglýst um sumartímann segir hann að málið hafi einfaldlega verið á þess- um stað í ferlinu og ekki hafi þótt ástæða til að bíða með það fram á haust. Hins vegar séu frestir iðulega framlengdir komi fram óskir um það. Júlíus Vífill segir það eðlilegt og gott að fólk láti sig nærumhverfi sitt varða og að ljóst hafi verið að starfsemi hótelíbúða í þessum þremur húsum kallaði á viðbrögð. „Skipulagsráð ákveður ekki hvenær framboði af gistirými hefur verið fullnægt. Það gerist með öðrum hætti. Ljóst er þó að það er mjög til hagsbóta fyrir götumyndina og yf- irbragð hverfisins að þessi umdeildi reitur byggist upp. Of víða hafa framkvæmdir því miður stöðvast í borginni og því að vonum áhugi fyrir því hjá skipulagsráði að vinna með uppbyggingarhugmyndir sem berast.“ svanbjörg@mbl.is Hótelíbúðir í miðbæ eru í samræmi við aðalskipulag Gott fyrir götumyndina og hverfið að reiturinn byggist upp Júlíus Vífill Ingvarsson 346 millj- óna kröfur í þrotabú SKIPTUM er lokið í þrotabúi Skinnaiðnaðar hf. á Akureyri, en fyrirtækið var tekið til gjald- þrotaskipta í september 2001. Í tilkynningu skiptastjórans, Örlygs Hnefils Jónssonar hrl., kemur fram að alls bárust í búið kröfur að upphæð 346,8 milljónir króna. Talsverðar eignir reyndust vera í þrotabúinu, því alls greidd- ust á annað hundrað milljónir króna upp í kröfurnar. Upp í kröfur utan skuldaraðar greiddust rúmar 98 milljónir króna og upp í for- gangskröfur rúmar 16 milljónir, eða 45% krafna. Upp í almennar kröfur greiddist ekkert. Í kjölfar gjaldþrots Skinnaiðn- aðar hf. tók nýtt félag á vegum Landsbankans við rekstrinum. Það félag lagði upp laupana í árslok 2005, þar sem markaður fyrir vör- una hafði verið í lægð í langan tíma, m.a. vegna gengisþróunar og sam- keppni við gerviefni og svínarú- skinn frá Kína. Þar með lauk átta áratuga sögu skinnaiðnaðar í höf- uðstað Norðurlands. sisi@mbl.is Talsverðar eignir Skinnaiðnaðar hf. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÞEIR sjómenn sem stundað hafa strandveiðar í sumar, en eiga jafnframt kvóta eða krókaafla- mark á sínum bátum, hafa getað leigt frá sér óveiddan kvóta og stundað strandveiðar um leið. Þeir hafa hins vegar ekki mátt leigja til sín kvóta, samkvæmt túlkun Fiskistofu og sjávarútvegs- ráðuneytisins á reglugerð sem ráðherra setti um strandveiðarnar fyrr í sumar. Að sögn Björns Jónssonar hjá kvótamiðlun LÍÚ, hefur verið talsvert um að krókabátar hafi leigt frá sér kvóta á meðan þeir eru á strandveið- um. Ekki sé þó um neina smugu að ræða á fyrir- komulagi strandveiða, þær eigi ekki að hafa mikil áhrif á aðrar heimildir, enda séu smábátasjómenn yfirleitt fljótir að veiða upp í þær heimildir sem strandveiðar gefa, eða 800 kíló í hverri ferð. Er strandveiðikvóti júlímánaðar víðast hvar veiddur á landshlutunum fjórum en í ágúst er heimilt að stunda mun minni veiðar en í júlí. Á svæðinu úti fyrir Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi og norður að Skagabyggð mátti veiða 263 tonn í júní, 724 tonn í júlí og 329 tonn í ágúst. Frá Skagafirði að Grýtubakkahreppi eru heimildirnar 187 tonn í júní, 515 tonn í júlí og 234 tonn í ágúst. Frá Þingeyjasveit að Djúpavogs- hreppi er kvótinn 203 tonn í júní, 557 tonn í júlí og 253 tonn í ágúst. Úti fyrir Hornafirði, suður með ströndinni og vestur að Borgarbyggð má veiða 138 tonn í júní, 380 tonn í júlí og 172 tonn í ágúst. Spurður hvort strandveiðarnar geti haft áhrif á veiðar sömu báta í kvótakerfinu telur Björn ekki svo vera, enda hafi margir verið langt komnir með kvótann, auk þess sem hægt er að færa um þriðj- ung heimilda þessa árs yfir á það næsta ef í ein- hverjum tilvikum hefur verið afgangur af heimild- unum. Næsta fiskveiðiár hefst 1. september nk. Ekkert framboð Um framboð á leigukvóta almennt segir Björn það vera mjög takmarkað nú um stundir á stærri fiskiskipum. Vegna skertra heimilda í mörgum fisktegundum hafa útgerðir haldið að sér höndum. „Það er ekkert til, við höfum orðið að hringja út og suður til að redda einhverjum kílóum. Fyrst staðan er svona núna reikna ég ekki með að hún lagist í byrjun næsta fiskveiðiárs, ekki síst eftir að kvótinn var skertur enn meira í mörgum teg- undum,“ segir Björn. Leigja kvóta en stunda strandveiðar  Smábátasjómenn með krókaaflamark geta leigt frá sér kvótann á meðan þeir stunda strandveiðar  Mjög takmarkaður leigukvóti í dag fyrir stærri fiskiskip Morgunblaðið/Heiddi Strandveiðar Handfærabátur á leið til hafnar á Arnarstapa. VERÐ á rafmagni til heimila hækk- ar um mánaðamót, mismunandi mikið eftir sölufyrirtækjum. Þann- ig hækkar rafmagnsreikningurinn hjá heimili í Reykjavík um rúm 3%, miðað við algenga rafmagns- notkun, en tvöfalt meira hjá heimili á landsbyggðinni. Landsvirkjun hækkaði heildsölu- gjaldskrá sína um 7,5% um síðustu mánaðamót og Landsnet hefur til- kynnt 8% hækkun gjaldskrár vegna flutnings raforku um komandi mánaðamót. Þetta hefur í för með sér hækkanir hjá dreifiveitunum. Gjaldskrá fyrir flutning og dreif- ingu til heimila hækkar um 2% hjá Orkuveitu Reykjavíkur, 5% hjá HS veitum og RARIK og 8% hjá Norð- urorku. Sala á orku til heimila hækkar um 4% hjá Orkusölunni, 5% hjá OR og Fallorku og 8% hjá HS orku. Rafmagns- verð hækkar Eftir Andrés Skúlason Djúpivogur | Þessi föngulegi ungi himbrimi dansaði af mik- illi list á vatni við svokallaðan Breiðavog skammt frá þétt- býlinu á Djúpavogi á dögunum. Himbriminn hefur haldið sig í nokkra daga á vatninu og hefur vakið mikla athygli fuglaskoðara er leið hafa átt um svæðið. Himbriminn er vinsæll fugl hér á landi og þá sér- staklega meðal evrópskra fuglaskoðara. Himbrimar eru norður-amerískir fuglar og teljast fremur sjaldgæfir en Ísland er eina land Evrópu þar sem fuglinn verpir. Himbrimar eru staðfuglar sem halda sig mest heið- arvötnum en einnig á vötnum á láglendi. Himbrimar eru þó líklega hvað þekktastir af þeim hljóðum sem þeir gefa frá sér en það er mjög sérstakt væl eða gól sem heyrist langar leiðir. Morgunblaðið/Andrés Skúlason DANSAR FYRIR FUGLASKOÐARA TVEIR karlmenn voru handteknir í tengslum við rannsókn á umfangs- miklu fjársvikamáli í gær. RÚV greindi frá. Mennirnir voru hand- teknir við komu til landsins, en tveir menn sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Talið er að svikin nemi tugum milljóna króna og tengist Íbúðalánasjóði. Ekki náðist í Helga Magnús Gunnarsson, yf- irmann efnahagsbrotadeildar rík- islögreglustjóra, í gærkvöldi. Handteknir í fjársvikamáli Tempur – 15 ár á Íslandi Frábær afmælistilboð í júlí Te m pu r 15 ár á Ísland i Te m pur 15 ár á Ísl an d i Aðeins 3 dagar ef tir - ekki miss a af þessu frábæra tæ kifæri!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.