Morgunblaðið - 29.07.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009
SKATTSTJÓRI mun birta lands-
mönnum álagningarseðla á netinu í
dag. Frá kl. 16 verður hægt að
nálgast seðlana á vefnum skatt-
ur.is, með því að slá inn kennitölu
sína og veflykil. Á morgun verða
seðlar bornir út til þeirra sem af-
þökkuðu þá ekki á pappír.
Hafi skattgreiðendur glatað vef-
lykli sínum geta þeir óskað eftir
nýjum á skattur.is og fengið sendan
í heimabanka eða í hefðbundnum
pósti. Með örfáum undantekningum
verða inneignir lagðar inn á banka-
reikninga á föstudaginn eða
greiddar út með ávísunum. Einnig
má nálgast upplýsingar á rsk.is.
Skattstjóri
birtir álagning-
arseðla í dag
ÁLAGNING tekjuskatta og útvars
á tekjur síðasta árs nemur alls
221,3 milljörðum króna og hækkar
um 3,6% á milli ára, samkvæmt
upplýsingum sem fjármálaráðu-
neytið sendi frá sér í gær. Heild-
arfjöldi framteljenda við álagningu
árið 2009 er 267.494. Það er fjölgun
milli ára um 1%, sem er mun minni
fjölgun en verið hefur undanfarin
ár. Almennan tekjuskatt greiða
nærri 180 þúsund manns, alls 98,6
milljarða króna. Skattgreiðsla á
hvern gjaldanda hefur hækkað að
meðaltali um 6,7% á milli ára.
Skatthlutfallið nam 22,75% og var
óbreytt frá í fyrra, en persónu-
afsláttur hækkaði um 5,9% frá fyrri
ári, segir í tilkynningu frá fjár-
málaráðuneytinu.
Útsvar til sveitarfélaganna nem-
ur 108,7 milljörðum króna og
hækkar um 6,7%. Greiðendur út-
svars eru um 257 þúsund, álíka
margir og árið áður. Hækkaði út-
svar á hvern greiðanda um 6,2%
milli ára.
Fjármagnstekjuskattur ein-
staklinga lækkaði um 20% á milli
ára og nam 20,2 milljörðum króna.
Helsta skýringin er bankahrunið en
hagnaður af sölu hlutabréfa er nú
aðeins 12% af fjármagnstekju-
skatti, samanborið við 58% í fyrra.
Á móti hefur hlutfall skattsins af
bankainnistæðum aukist til muna.
Tekjuskattur
og útsvar nema
221 milljarði
Morgunblaðið/Golli
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
ALÞJÓÐLEGUR fjárfesting-
arsjóður í umsjón Róberts Wessm-
an hefur keypt ráðandi hlut í
bandaríska lyfjafyrirtækinu Alvo-
gen. Fyrirtækið er ein af afkasta-
meiri lyfjaverksmiðjum í Banda-
ríkjunum og var áður í eigu
lyfjafyrirtækisins Procter og
Gamble.
Róbert verður stjórnarformaður
Alvogen, en Árni Harðarson, for-
stjóri Salt Investments, og Svafa
Grönfeldt, rektor Háskólans í
Reykjavík og fyrrverandi aðstoð-
arforstjóri Actavis, verða stjórn-
armenn í fyrirtækinu.
Róbert hefur á undanförnum
misserum unnið að því að setja á
laggirnar alþjóðlegan fjárfest-
ingasjóð, sem mun fjárfesta í sam-
heitalyfjafyrirtækjum. Kaupin á
Alvogen eru fyrsta skrefið í þá átt.
Uppbygging sjóðsins hefur verið
unnin í samstarfi við breska fjár-
festingasjóðinn Kalan Capital LLP
og svissneska bankann Credit
Suisse. „Við höfum skrifað undir
samning um eignarhald sjóðsins í
Alvogen og sjóðurinn eignast strax
30% í fyrirtækinu, með heimild til
að hækka eignarhlutdeildina í
40%,“ segir Róbert Wessman, en
skrifað var undir í gær. „Við mun-
um fara með ráðandi atkvæðahluta
í stjórn félagsins, hvað varðar allan
daglegan rekstur.“
Frekari uppbygging á
alþjóðlegum lyfjamarkaði
Í samstarfi við fyrrverandi
stjórnarformann Alvogen og
bandaríska fjárfestingafélagið AFI
Partners verður unnið að frekari
uppbyggingu félagsins á alþjóð-
legum lyfjamarkaði undir stjórn
Róberts.
Alvogen er samheitalyfjafyr-
irtæki með yfir 100 ára rekstr-
arsögu og sérhæfir sig í þróun og
framleiðslu samheitalyfja. Árleg
sala þeirra frumlyfja sem eru í
þróun hjá Alvogen er um 17 millj-
arðar bandaríkjadala þegar einka-
leyfi þeirra lyfja renna út. Þannig
að eftir miklu er eftir að slægjast.
Núna starfa um 400 manns hjá fyr-
irtækinu í Bandaríkjunum og
væntanlegar tekjur á árinu 2009
eru um 5 milljarðar króna.
AFI Partners er hluthafi í Alvo-
gen ásamt fjárfestum frá Mið-
Austurlöndum. „Félagið hefur
tryggt sér hlutafé til að láta fyr-
irtækið vaxa,“ segir Róbert. „Fyrst
og fremst verður þeim peningum
varið í að þróa ný lyf og við sjáum
fram á að setja 40-50 ný lyf á
markað á næstu þremur fjórum ár-
um. Miðað við að það gangi eftir
erum við að horfa á umtalsverðan
vöxt á þessu félagi í Bandaríkj-
unum.“
Næsta skref er að skoða aðra
markaði og ætlunin er að fara inn
á austur-evrópska markaði og í
Mið-Austurlöndum, Asíu og Suður-
Ameríku síðar meir.
Núverandi forstjóri Alvogen er
Doug Drysdale, en hann var um
árabil yfirmaður fyrirtækjakaupa
hjá Actavis. Hann verður áfram
forstjóri.
Sá góð tækifæri í félaginu
Róbert segir ástæðuna fyrir því
að Alvogen varð fyrir valinu til
þessara fyrstu kaupa fjárfest-
ingasjóðsins að hann hafi séð góð
tækifæri í félaginu. „Alvogen hefur
getið sér gott orð fyrir hágæða-
framleiðslu og hraða skráningu
lyfja á markað. Með auknu hlutafé
eru mikil tækifæri í því að efla
þróunarstarf félagsins til muna,“
segir Róbert.
Alþjóðlegi fjárfestingarsjóðurinn
er þannig uppbyggður að Róbert
stýrir honum en hluthafar leggja
til eigið fé. Hann er þannig í eigu
þeirra sem koma með hlutafé.
Rothschild-bankinn er umsýsluaðili
fjármuna sjóðsins og sjóðurinn
verður undir fjármálaeftirliti í Lúx-
emborg.
Róbert segir fjármálaumhverfi
heimsins þannig nú um stundir að
ekki sé auðvelt að fá fjárfesta í lið
með sér. Hann nýtur þess þó nú að
hann gat sér gott orð sem forstjóri
Actavis um níu ára skeið. „Mörg
önnur lönd eru í svipuðum vand-
ræðum og Ísland. Það var þess
vegna mjög gleðilegt að þetta gekk
vel og að við höfum náð að klára
þennan fyrsta áfanga. Bandaríkja-
markaður er mjög spennandi, 50%
af allri heimssölu og neyslu á lyfj-
um eru þar,“ segir hann.
Ákveðnar stoðeiningar Alvogens
verða mögulega á Íslandi í framtíð-
inni, að sögn Róberts. Slík starf-
semi krefst vel menntaðra starfs-
manna og er gjaldeyrisskapandi.
„Það væri því mjög ánægjulegt að
setja upp hluta af starfseminni hér
þegar Alvogen færir út kvíarnar
frá Bandaríkjunum inn í Evrópu,“
segir Róbert.
Kaupa ráðandi hlut í
lyfjafyrirtækinu Alvogen
Morgunblaðið/Ómar
Framtíðin Róbert Wessman hyggur á ný á landvinninga í lyfjaheiminum.
Róbert Wessman verður stjórnarformaður og stýrir daglegum rekstri
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
BOÐAÐ hefur verið til fundar hjá Lífeyrissjóði
starfsmanna Kópavogs (LSK) hinn 7. ágúst næst-
komandi. Þar stendur til að skipa nýja stjórn
sjóðsins og mun umsjónarmaður hans leggja
fimm tillögur um breytingar á samþykktum sjóðs-
ins fyrir fundinn. Helst ber þar að nefna breyt-
ingar á skipun stjórnarinnar.
Stjórnin verður áfram skipuð fimm mönnum.
Tveir þeirra skulu kosnir af sjóðfélögum á árs-
fundi og skulu ekki koma úr röðum kjörinna bæj-
arfulltrúa. Tvo kýs bæjarstjórn Kópavogs en
fimmti fulltrúinn, formaður stjórnarinnar, skal til-
nefndur af stjórn sjóðsins og skal hann vera óháð-
ur bæði sjóðfélögum og bæjarstjórn Kópavogs-
bæjar. Nú kveða samþykktir sjóðsins á um að
bæjarstjóri sé formaður stjórnar.
„Þetta kemur til vegna þess að það þurfti að
skipa sjóðnum umsjónaraðila og víkja frá stjórn
og framkvæmdastjóra,“ segir Elín Jónsdóttir,
umsjónarmaður LSK. „Við töldum rétt að skoða
hvernig best væri að skipa stjórnina til að tryggja
hagsmuni sjóðfélaga og til að draga úr hættu á
hagsmunaárekstrum. Tillögurnar fylgja straum-
um og stefnum dagsins, að auka hlut óháðra
stjórnarmanna í fyrirtækjum sem eru talin varða
almannahagsmuni eins og lífeyrissjóðir gera.“
Fjórir af fimm voru kjörnir fulltrúar
Elín bendir á að hlutur launagreiðenda hafi ver-
ið orðinn ráðandi í stjórninni. Í stjórninni sem vék
19. júní voru fjórir af fimm stjórnarmönnum
kjörnir fulltrúar. Elín segir breytingarnar al-
mennt taldar æskilegar, að formaður stjórnar sé
óháður og stjórnarmenn valdir með faglegum
sjónarmiðum. Tillögunum hafi verið vel tekið.
Einnig er lagt til að iðgjald til sjóðsins sé 12% í
stað 10%. Sú breyting er að sögn Elínar þegar
komin í framkvæmd í samræmi við lög um lífeyr-
issparnað. Í raun sé því aðeins um uppfærslu á
samþykktunum að ræða. Sama má segja um fjár-
festingarstefnu sjóðsins, en ákvæði samþykkt-
anna um hana verða einfölduð til muna.
Elín er skipuð umsjónarmaður sjóðsins til 19.
ágúst. Hún vonast til að málefni sjóðsins verði
komin í höfn fyrir þann tíma, en m.a. er unnið að
ráðningu nýs framkvæmdastjóra.
Fjárfestingar sjóðsins eru nú til rannsóknar hjá
efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra.
Meira vægi óháðra fulltrúa í sjóðnum
Morgunblaðið/Ómar
Kópavogur Breytingar eru í vænd-
um hjá lífeyrissjóði starfsmanna.
Lagt er til að skipan í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar verði
breytt Bæjarstjóri verði ekki formaður og að hámarki tveir kjörnir fulltrúar
» Alvogen sérhæfir sig í þróun og framleiðslu sam-
heitalyfja, sem eru flókin í þróun og framleiðslu.
» Alvogen starfrækir fullkomna lyfjaverksmiðju í
New York-ríki og getur hún framleitt um átta
milljarða taflna á ári og hefur getið sér gott orð
fyrir hágæða framleiðslu.
» Alvogen hefur tryggt sér fjármögnun á 9 millj-
örðum króna til að styðja við fyrirhugaðan vöxt
félagsins í Bandaríkjunum og fjármögnun félags-
ins á alþjóðlegum mörkuðum er á lokastigum.