Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 7

Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009 MIKIÐ bar á hraðakstri á höf- uðborgarsvæðinu um helgina. Öku- fantarnir voru gripnir víðs vegar í umdæminu og í alvarlegustu tilvik- unum óku menn á 40-50 km hraða umfram leyfilegan hámarkshraða. Jafnan áttu ungir ökumenn í hlut eða piltar undir tvítugu. Í einhverjum tilvikum var um að ræða ökumenn sem óku með tengi- vagna við bifreiðar sínar. Einn slík- ur var tekinn við borgarmörkin á um 110 km hraða. Margir óku of hratt í borginni Hollvinasamtök Grensásdeildar og Edda Heiðrún Backman leikkona tóku í gær á móti fénu sem safnaðist við hlaup Gunnlaugs Júlíussonar frá Reykjavík til Akureyrar á dögunum. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, for- maður UMFÍ, afhenti söfnunarféð, 1.356 þúsund krónur. UMFÍ skipulagði hlaupið ásamt Gunnlaugi. Með hlaupinu vildi hann vekja athygli á fjársöfnuninni „Á rás fyrir Grensás,“ sem Edda Heiðrún Söfnunarfé úr hlaupi Gunnlaugs afhent Náði 1,3 milljónum fyrir Grensásdeild ýtti úr vör í sumar. Gunnlaugur var þar með fyrsti maðurinn til að taka á rás fyrir Grensás, en fleiri munu bætast í hópinn þegar líður á sum- arið, að því er fram kemur á vef UMFÍ. Gunnlaugur hljóp vegalengdina á sex dögum. Hann lagði af stað frá út- varpshúsinu við Efstaleiti kl. 9 að morgni sunnudagsins 5. júlí, og lauk hlaupinu á mótssetningu Lands- mótsins föstudagskvöldið 10. júlí. BJARNI Ár- mannsson, fyrr- verandi forstjóri Glitnis banka hf., segir ekkert óeðlilegt eða tor- tryggilegt við millifærslur sínar á fé úr landi skömmu fyrir bankahrunið í fyrrahaust. Í yfirlýsingu sem Bjarni Ár- mannsson sendi frá sér í gær segir að skömmu fyrir hrun íslensku bankanna hafi hann millifært af reikningum sínum 243 milljónir króna úr landi og rúmar 85 milljónir inn í landið. Allt hafi þetta verið hluti af eðlilegri fjárstýringu og nefnir hann það sérstaklega að hann hafi flutt meira af peningum til Íslands seinni hluta september 2008 en fyrri hluta þess mánaðar, þ.e. þegar nær hafði dregið bankahruninu. Bjarni segir það dylgjur að hann hafi búið yfir innherjaupplýsingum þegar Glitnir var tekinn yfir af rík- inu. Bjarni segist fagna því að þessi mál séu skoðuð ofan í kjölinn og tek- ið á þeim með tilhlýðilegum hætti. Þá segir hann að umræða um hrun bankakerfisins sé bæði skiljanleg og nauðsynleg, en hún verði að vera málefnaleg og á grundvelli stað- reynda. Yfirlýsing Bjarna Ármannsonar er birt í heild sinni á fréttavef Morg- unblaðsins, mbl.is Millifærði bæði til og frá Íslandi Bjarni Ármannsson Hluti af eðlilegri fjár- stýringu, segir Bjarni SELATALNING fór fram í Húna- þingi vestra á sunnudaginn og voru taldir 1.019 selir að þessu sinni. Að þessu sinni voru sjálf- boðaliðar um 45 talsins á öllum aldri, bæði inn- lendir og erlend- ir. Þeir sem lengst voru komnir var fjög- urra manna fjöl- skylda frá Bras- ilíu sem hafði skipulagt ferð sína um Ísland til að geta tekið þátt í talning- unni. Samtals má ætla að sjálfboðaliðar hafi gengið ríflega 100 km við taln- inguna en talningarsvæðið sjálft var stækkað nokkuð frá fyrra. Nokkuð sterkur vindur var á sum- um svæðunum sem dró úr líkum á því að selir lægju uppi. Í fyrra voru taldir 1.124 selir, en þá fór talningin fram á mesta blíðviðrisdegi ársins. Komu frá Brasilíu til að telja seli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.