Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 10

Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009 Árni Þór Sigurðsson, formaðurutanríkismálanefndar Alþingis, segist í Fréttablaðinu í gær vilja hætta loftrýmisgæzlu NATO við Ís- land. „Það mat mitt er stutt niður- stöðu nefndar sem vann áhættumat fyrir Ísland,“ segir Árni.     Þessa niðurstöðu fá menn ekki aflestri skýrslu hættumatsnefnd- arinnar svoköll- uðu nema lesa hana með sér- stökum vinstri- grænum gler- augum.     Í hættumats-skýrslunni kom fram að eitt markmið loft- rýmisgæzlunnar væri að styrkja samskipti Íslands við önnur ríki NATO eftir brott- hvarf bandarísks varnarliðs.     Þar var ennfremur fjallað um tvösjónarmið varðandi loftrým- isgæzluna: annars vegar að hún væri nauðsynleg vegna legu lands- ins og nauðsynjar þess að Ísland taki meiri ábyrgð á eigin vörnum og hafi bolmagn til að eiga sam- starf við bandalagsríki í NATO. Hins vegar að nú eigi önnur verk- efni en loftrýmisgæzla að hafa for- gang vegna þess að ekki þurfi að óttast spennu eða hernaðarátök á norðurslóðum í náinni framtíð.     Í skýrslunni var ekki gert upp ámilli þessara sjónarmiða, en vak- in athygli á að það er stefna NATO að hafa eftirlit með flugumferð her- flugvéla með ratsjáreftirliti og flugsveitum ef þurfa þykir, og í samræmi við þá stefnu óskuðu ís- lenzk stjórnvöld eftir því að NATO sinnti slíku eftirliti hér á landi eftir brotthvarf varnarliðsins.     Menn geta verið þeirrar skoð-unar að loftrýmisgæzlan sé óþörf, en hún kemur ekki fram í skýrslu hættumatsnefndar. Árni Þór Sigurðsson Vinstri grænu gleraugun ÍSLENDINGAR voru meðal keppenda á fimm- tugustu ólympíuleikunum í stærðfræði sem haldnir voru í Bremen í Þýskalandi dagana 15. og 16. júlí sl. Alls tóku þátt 565 keppendur frá 104 löndum. Lið Íslands skipuðu Arna Páls- dóttir, Helgi Kristjánsson, Helga Kristín Ólafs- dóttir, Ingólfur Eðvarðsson, Paul Joseph Frigge og Ögmundur Eiríksson. Fararstjóri var Ragna Briem og dómnefndarfulltrúi Auðun Sæ- mundsson. Lögð voru fyrir 6 dæmi, 3 hvorn dag, og var mest hægt að fá 7 stig fyrir hvert dæmi. Eins og oft áður sigraði lið Kínverja en næstir komu Japanir. Einn í íslenska liðinu, Ingólfur Eðvarðsson, hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir fullkomna og fallega lausn á einu dæmanna. Keppnin í ár var óvenju erfið og mjög fáir fengu stig fyrir síðasta dæmið. Einn í kínverska og einn í japanska liðinu voru þó með öll dæmin rétt. Sérstaklega athygli vakti að lið Sameinuðu furstadæmanna var eingöngu skipað stúlkum en stúlkur voru um 10% keppenda. Yngsti þátttak- andinn, sem var frá Perú, var aðeins 11 ára og stóð sig vel. Næsta ár verður keppnin haldin í Kasakstan. Íslenskur keppandi hlaut viðurkenningu Fimmtugustu ólympíuleikarnir í stærðfræði haldnir í Bremen í Þýskalandi Keppendur Íslenska ólympíuliðið í stærðfræði. Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 12 rigning Lúxemborg 21 léttskýjað Algarve 27 heiðskírt Bolungarvík 8 alskýjað Brussel 22 heiðskírt Madríd 34 heiðskírt Akureyri 9 súld Dublin 16 skúrir Barcelona 26 heiðskírt Egilsstaðir 10 alskýjað Glasgow 18 skýjað Mallorca 28 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 11 alskýjað London 20 léttskýjað Róm 31 heiðskírt Nuuk 12 heiðskírt París 25 heiðskírt Aþena 30 heiðskírt Þórshöfn 12 skýjað Amsterdam 21 léttskýjað Winnipeg 17 léttskýjað Ósló 19 léttskýjað Hamborg 21 skýjað Montreal 26 léttskýjað Kaupmannahöfn 22 skýjað Berlín 23 heiðskírt New York 27 heiðskírt Stokkhólmur 19 skýjað Vín 23 skýjað Chicago 26 skýjað Helsinki 20 skýjað Moskva 23 skýjað Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 29. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5.34 1,0 12.00 3,2 18.13 1,2 4:27 22:43 ÍSAFJÖRÐUR 1.20 1,9 7.38 0,7 14.08 1,9 20.24 0,8 4:08 23:12 SIGLUFJÖRÐUR 4.05 1,2 10.05 0,4 16.32 1,2 22.33 0,4 3:50 22:56 DJÚPIVOGUR 2.26 0,6 8.50 2,0 15.17 0,7 21.07 1,6 3:50 22:18 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á fimmtudag Norðan 3-10 m/s, hvassast V- lands. Bjart að mestu SV-til fram eftir degi, en hætt við síð- degisskúrum. Víða rigning ann- ars staðar. Hiti 9 til 17 stig, hlýj- ast á S- og SV-landi. Á föstudag og laugardag Norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og skúrir á víð og dreif, einkum síðdegis. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig. Á sunnudag og mánudag (frídagur verslunarmanna) Útlit fyrir norðlæga átt og vætu með köflum, en úrkomulítið S- og V-lands. Fremur milt í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Úrkomulítið. Byrjar að rigna austanlands uppúr hádegi og skúrir suðvestan til. Hiti 8 til 16 stig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.