Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 13

Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 13
Fréttir 13VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009 @=A @=A      B B @=A      B B 2'C7' D.E      B B 380 2FA        B B @=A" @=A      B B FRÉTTASKÝRING Eftir Þorbjörn Þórðarson og Þórð Snæ Júlíusson TILFÆRSLUR á nokkrum eignum Baugs til tengdra aðila hafa verið í at- hugun hjá skiptastjóra þrotabús Baugs í nokkra mánuði. Meðal annars er um að ræða stóran skíðaskála í Co- urchevel í Frakklandi sem færður var undir fjárfestingafélagið Gaum síðast- liðið haust. Þrotabú Baugs á annan smærri skála á sama stað sem er sem sendur í sölumeðferð. Laust fé fyrir JAJ og ISP Í tölvupósti sem Morgunblaðið hef- ur undir höndum, sem Jón Ásgeir Jó- hannesson sendi lögmanni sínum, Ein- ari Þór Sverrissyni, hinn 18 nóvember 2008, er fjallað um skálann en þar er Jón Ásgeir að kynna „game planið varðandi skála“ fyrir lögmanninum. Í tölvupóstinum lýsir Jón Ásgeir því hvernig hann ætli, í tveimur skref- um, að endurfjármagna skálann og selja hann. Síðan tiltekur hann að við þennan gjörning muni hann losa um 17,6 milljónir evra, sem á þessum tíma voru rúmir þrír milljarðar króna, í laust fé sem eigi að renna til „JAJ/ ISP,“ en það eru skammstafanir fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingi- björgu Stefaníu Pálmadóttur, eig- inkonu hans. Í fyrsta skrefi „game plans“ Jóns Ásgeirs átti að endurfjármagna skíða- skálann með nýju láni frá belgíska bankanum Fortis upp á 21 milljón evra, eða um 3.638 milljónir króna á þávirði. Þetta lán átti að nota til að greiða lán frá Glitni upp á tvo millj- arða króna og eftirstöðvar af kaup- verði skálans upp á 632 milljónir króna. Greiðslurnar sem Fortis-lánið átti að standa straum af námu því um 2,6 milljörðum króna, eða um milljarði króna minna en láns- upphæðin frá Fortis. Í tölvupósti Jóns Ásgeirs til Einars Þórs segir að við þetta verði „laust fé við endur- fjármögnun til JAJ/ISP“ 1.000.685.000 krónur. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins féll þessi fjármögnun nið- ur. Í skrefi 2 átti síðan að „selja“ skál- ann aftur á 36 milljónir evra, eða 6.228 milljónir króna. Eignarhalds- félagið sem heldur utan um skálann var selt til fjárfestingafélagsins Gaums síðastliðið haust, en það er í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans. Samkvæmt skrefi 2 átti að nota 21 milljón evra, 3.638 milljónir króna, til að greiða til baka Fortis- lánið. Þá áttu að sitja eftir 2.595 milljónir króna í „laust fé við sölu.“ Kostnaður við „sölu og annað“ átti að nema 3,2 milljónum evra, 554 millj- ónum króna og myndi dragast frá eftirstöðvunum. Samkvæmt „game planinu“ áttu þessir snúningar að skilja eftir „samtals laust fé úr skrefi 1 og 2“ upp á 3.042 milljónir króna. Skoða riftun á samningi „Ég kannast ekki við þessar tölur. […] Við erum að skoða hvort hægt sé að rifta sölusamningi [vegna skál- ans]. Það má finna að því, hann var ekki rétt verðlagður,“ segir Erlend- ur Gíslason, skiptastjóri þrotabús Baugs, en salan á skálanum frá Baugi til Gaums var hluti af „alls- herjar uppgjöri“ milli Gaums og Baugs að sögn Erlends. Þegar Morgunblaðið náði tali af Jón Ásgeiri Jóhannessyni í gær- kvöldi vildi hann ekki tjá sig um mál- ið. Skíðaskálinn átti að skila milljörðum  Þrotabú Baugs kannar forsendur fyrir riftun á sölusamningi á stórum skíðaskála í Courchevel í Frakklandi  Til stóð að endurfjármagna skálann með stóru láni frá Fortis-bankanum Skiptastjóri þrotabús Baugs hef- ur til skoðunar riftun á sölu á skíðaskála í eigu Baugs til Gaums. Kaupin á skálanum voru fjármögnuð með láni frá Glitni, en skuldir Baugs við bankann námu 42 milljörðum króna þegar félagið fór í þrot. ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar lækkaði um 0,32% í viðskiptum gærdagsins og var loka- gildi hennar 742,7 stig. Gengi bréfa Bakkavarar lækkaði um 2,74%, Össurar um 1,75% og Marels um 0,39%. Þrátt fyrir 41 milljónar króna við- skipti með bréf Alfesca breyttist gengi bréfa fé- lagsins ekki. Velta á skuldabréfamarkaði var með minna móti og nam 10,8 milljörðum króna. bjarni@mbl.is Lækkun í Kauphöllinni ÞETTA HELST ... MAGNÚS Þor- steinsson hefur falið lögmanni sínum að und- irbúa stefnu á hendur frétta- stofu Stöðvar tvö biðjist fréttastof- an ekki afsök- unar á frétt sinni sem birtist á mánudagskvöld. Flutti fréttastofan frétt af því að Magnús hefði, ásamt Björgólfi Thor Björgólfssyni og fleirum, flutt fjár- muni frá Íslandi til erlendra skatta- skjóla í gegnum Straum-Burðarás fjárfestingarbanka. Segist Magnús aldrei hafa átt fjármuni inni á reikn- ingum í bankanum. Í tilkynningu frá Straumi segir að bankinn hafi falið lögmönnum sínum að leggja mat á réttarstöðu bankans. Björgólfur Thor sagðist einnig í viðtali við DV vera að íhuga dóms- mál á hendur fréttastofunni. bjarni@mbl.is Íhuga dóms- mál vegna fréttar Magnús Þorsteinsson Eftir Helga Vífil Júlíusson helgivifill@mbl.is JÓN Sigurðsson, forstjóri Össurar, sagði að uppgjörið fyrir annan fjórð- ung væri varnarsigur, en alþjóða- hagkerfið hefur dregist saman og viðskiptavinir minnkað birgðahald. Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri fyrirtækisins, sagðist stoltur af því að Össuri skilaði hagnaði, þótt fyr- irtækið hefði ekki vaxið á tímabilinu. Þetta kom fram á kynningu í gær. Hagnaður fyrirtækisins var 3,5 milljónir dollara á öðrum fjórðungi, sem er 11% minna en á sama tíma fyrir ári; Jón sagði þann fjórðung hafa verið góðan. Eiginfjárhlutfallið er 44%. Salan nam 81 milljón dollara á öðrum ársfjórðungi, dróst saman um 3% mælt í staðbundinni mynt, en 12% í dollurum. Innri vöxtur var nei- kvæður um 3%. Stjórnendur sögðu söluna „stöðuga“. Sölu á vörulínu var hætt í Frakklandi og söludagar á tímabilinu voru tveimur færri í Evr- ópu og einum færri í Bandaríkj- unum. Hjörleifur sagði að langtíma fjár- mögnun fyrirtækisins væri á ágæt- um kjörum og langt frá því að upp- fylla ekki lánaskilmála.„Fyrirtækið er vel fjármagnað til framtíðar,“ sagði hann. Jón spáir sameiningum á markaðinum þegar kreppunni lýk- ur. Uppgjör Össurar „varnarsigur“ Morgunblaðið/Heiddi Hagnast Jón Sigurðsson forstjóri. Eiginfjárhlutfall er 44%. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is Í SAMRÆMI við litlar breytingar á gengi krónunnar þá er flökt hennar núna í lágmarki, að því er segir í Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa. Mánaðarlegt flökt á gengi krón- unnar hefur ekki verið minna frá því í október 2007. Flöktið í júní var 7,9%, en hefur verið að með- altali um 11,4% frá ársbyrjun 1999. Því er ljóst að gengissveiflur eru nú í lágmarki. Gengisflöktið var mest í október 2008, mánuðinn sem bankarnir hrundu, og var þá um 140%. Lítil breyting hefur orðið á gengi krónunnar undanfarið. Í síð- ustu viku styrktist hún um 0,2%, en það sem af er þessari viku hef- ur hún veikst aftur sem nemur 0,2%. Í Markaðsfréttunum segir að frá miðjum júní hafi í raun sáralitlar breytingar verið á geng- isvísitölunni. Því megi segja að nú sé kominn nokkur stöðugleiki – sem sé líklega tímabundinn – á ís- lenskum gjaldeyrismarkaði. Lík- legt sé að sá stöðugleiki vari áfram næstu vikur. Gengi krónunnar stöðugra en áður Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is GENGI bréfa Deutsche Bank féll um 11,4% í viðskiptum gærdagsins vegna ótta fjárfesta við að bankinn sé enn berskjaldaður fyrir áhrifum kreppunnar. Þá hefur sú ákvörðun stjórnenda bankans að tvöfalda framlag í afskriftarsjóð skotið fjár- festum skelk í bringu. Hagnaður bankans á öðrum árs- fjórðungi nam einum milljarði evra, eða um 180 milljörðum króna, en var samt undir vænt- ingum. Þá hækkaði eiginfjárhlutfall bankans í 11%, en markmið stjórnenda hafði verið 8-9%. Staða evrópskra banka er mörg- um áhyggjuefni, en þeir eru ekki taldir hafa afskrifað nægilega mik- ið af útlánum sínum. Er þá einkum átt við lán til nýmarkaðsríkja og Austur-Evrópu. Vandinn, sem evrópska banka- kerfið standi frammi fyrir, sé sá að ólíkt Bandaríkjunum sé enginn seðlabanki sem geti komið bönk- unum til bjargar. Eignir bankanna séu í mörgum tilvikum margfaldar á við verga landsframleiðslu við- komandi ríkja og sumir þeirra séu einfaldlega of stórir til að bjarga. Bankakerfi Írlands, Spánar, Austurríkis og Ítalíu séu af þessari stærðargráðu og evrópski seðla- bankinn hafi ekki burði til að koma þeim til bjargar. Þá fylgi því alls konar pólitískir erfiðleikar að beita fjármunum Evrópusambandsins til að styðja við bankakerfi einstakra ríkja. Bankarnir berskjaldaðir Síðastliðið haust voru tvær fasteignir í Lundúnum og ein í Kaupmannahöfn færðar frá Baugi til Gaums, eignarhalds- félags Jóns Ásgeirs og fjöl- skyldu. Jón Ásgeir hefur alltaf haldið því fram að viðskipti með þessar fasteignir væru eðlileg. Erlendur Gíslason, skiptastjóri þrotabús Baugs, hefur haft við- skipti með fasteignirnar til at- hugunar og gengu kaupin á fasteignunum í Lundúnum til baka til þrotabúsins í mars síð- astliðnum á grundvelli samn- ingsbundinnar riftunar. Erlend- ur vildi ekki tjá sig í gær um hvort þrotabúið hefði gripið til ráðstafana vegna íbúðarinnar í Kaupmannahöfn. Íbúðir til þrotabús ● ICELANDAIR og rússneski flugrekandinn I Fly hafa undirritað samning um heildartækniþjónustu vegna fjögurra Boeing 757-farþegaþotna. Í fréttatilkynningu segir að tækniþjónusta Icelandair muni annast alla viðhalds- og varahlutaþjón- ustu fyrir flota I Fly ásamt svokölluðu línuviðhaldi í Moskvu. I Fly er nýstofnað flugfélag í eigu rússnesku ferðaskrifstofunnar Tez. Samningurinn er til þriggja ára og er áætluð velta verkefnisins um þrír milljarðar króna á samningstímanum. Starfsstöð tækniþjónustunnar er sögð munu eflast að mun við þetta verkefni. bjarni@mbl.is Icelandair semur við rússneskt flugfélag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.