Morgunblaðið - 29.07.2009, Síða 15

Morgunblaðið - 29.07.2009, Síða 15
Daglegt líf 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009 Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is É g veit hvað við gerum; gefum ömmu ferð til Íslands í afmæl- isgjöf, og förum með!“ Þessari hugmynd tví- tugrar stúlku var vel tekið í London í byrjun ársins. Ferðin varð að veru- leika í síðustu viku og heppnaðist fullkomlega. Hópurinn hlakkaði lengi til Ís- landsferðarinnar en þess var vand- lega gætt að afmælisbarnið fengi ekkert að vita fyrr en fáeinum dög- um fyrir brottför. Gjöfin átti að koma á óvart sem sannarlega varð raunin. Amman, Kristín Björnsdóttir Daniel, hefur búið erlendis í hálfan áttunda áratug, ferðir hennar til landsins eru teljandi á fingrum ann- arrar handar en hún talar íslensku engu að síður lýtalaust. „Ég talaði alltaf íslensku við for- eldra mína og systur. Þau eru öll dá- in fyrir löngu en pabbi minn var mjög stoltur af því að vera Íslend- ingar og lagði áherslu á að töluð væri góð íslenska á heimilinu,“ sagði Kristín í samtali við Morgunblaðið í gær. Hún var þá komin aftur heim til London eftir fjögurra daga dvöl hér- lendis. Barnabörnin tvö og tengdadóttirin voru að koma í fyrsta skipti til lands- ins en örugglega ekki í það síðasta, að sögn ömmunnar. „Við höfum oft rætt um það að fara saman til Íslands en aldrei orðið af því. Þetta var guðdómlegt og verð- ur ógleymanlegt,“ sagði hún í gær, spurð um ferðina; ekki síst vegna þess að barnabörnin og tengdadótt- irin heilluðust af Íslandi og ættingj- unum þar, sagði hún. Nú segist hún ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að tengslin rofni. „Fólkið mitt ætlaði ekki að trúa því hvað landið er fallegt og ættingjar okkar á Íslandi ynd- islegir. Þau hafa varla talað um ann- að síðan við komum aftur hingað út. Ég er mjög stolt af að hafa getað sýnt krökkunum mínum landið mitt og ánægð með að þetta skyldi allt vera gert fyrir mig.“ Foreldrar Kristínar voru Björn Björnsson, stórkaupmaður í London, og Hulda Karlsdóttir Bjarnesen. Björn var þekktur maður í Reykja- vík, stofnandi Björnsbakarís og einn eigenda Hressingarskálans við Aust- urstræti. Fjölskyldan flutti til Eng- lands 1936. Eiginmaður Kristínar er Ian Daniel. Þau eignuðust tvo syni en annar þeirra, Christopher, lést að- eins fertugur. Meðal þeirra sem komu með fullorðnu hjónunum til landsins var Anthony sonur þeirra, Jonathan og Katie, börn Chri- stophers, Lucy móðir þeirra og Julie Hall, systurdóttir Kristínar. Haraldur Sturlaugsson á Akranesi og Kristín eru skyld; Ingunn Jóns- dóttir á Búðum var langalangamma þeirra. Svo skemmtilega vill til að Haraldur og Kristín eiga sama af- mælisdag en tuttugu ára aldurs- munur er á þeim. Á föstudaginn varð Haraldur því sextugur. Hann hugð- ist halda upp á afmælið sitt í kyrrþey en þegar frænkan hringdi frá Lond- on fyrir skömmu og tilkynnti honum að von væri á hópnum var einsýnt að slá yrði upp veislu. Haraldur, Ingi- björg Pálmadóttir, eiginkona hans, og fjölskylda þeirra tóku á móti Kristínu og hennar fólki og áttu góða daga saman. Ingibjörg segir gestina hafa verið yndislega. „Það var ekki erfitt að uppfylla óskir Kristínar á afmælinu; hún vildi að sungin yrðu þrjú lög: í fyrsta lagi Ríðum, ríðum, í öðru lagi Seltjarnarnesið er lítið og lágt og í þriðja lagi Sofðu unga ástin mín. Hún söng það sjálf fyrir syni sína þegar þeir voru litlir og táraðist þeg- ar hún heyrði lagið sungið í afmæl- inu,“ sagði Ingibjörg í gær. Kristín hringir yfirleitt í Harald frænda sinn, vikulega, á sunnudög- um en einu sinni á ári, á afmælisdag- inn, fer fram keppni þeirra á milli hvort verður fyrra til að slá á þráð- inn! Haraldur var í skóla á Englandi sem unglingur og sótti fjölskyldu Kristínar yfirleitt heim um helgar. „Björn sótti mig alltaf á lest- arstöðina. Hann lagði mikla áherslu á að ég kynntist fjölskyldunni vel þannig að við gætum haldið sam- bandi,“ sagði Haraldur við Morg- unblaðið. Nú þykir honum sýnt að næsta kynslóð tekur upp þráðinn. „Unga fólkið sagði nefnilega, þegar við kvöddumst að við stæðum frammi fyrir töluverðu vandamáli; að þau ætluðu að koma oft til Íslands í framtíðinni og við sætum uppi með þau.“ Guðdómleg gjöf því barnabörnin og tengdadóttirin urðu heilluð Kristín Björnsdóttir flutt- ist frá Íslandi sex ára. Barnabörnin og tengda- dótturina hefur dreymt um að koma til landsins og draumurinn rættist í síðustu viku; Kristín varð áttræð og fékk ferð til landsins að gjöf frá fjöl- skyldunni, sem kom með. Kveðjustund Ættingjar á Akranesi kvaddir áður en fjölskyldan flutti til Englands 1936. Haraldur Böðvarsson, afi Haraldar Sturlaugssonar, með hattinn, við hlið hans Elínborg Bjarnesen, þá Ingunn Sveinsdóttir, Hulda Bjarnesen Björnsson og Matthildur Sveinsdóttir. Kristín stendur fyrir framan Elínborgu. Hamingjusöm Ingibjörg Pálmadóttir, Anthony Daniel, Jonathan Daniel, Katie Daniel, Haraldur Sturlaugsson, Kristín Daniel Björnsson, Ian Daniel, tengdadóttirin Lucy Daniel og Julie Hall, systurdóttir Kristínar. Alsæl amma Kristín Daniel Björnsson á Þingvöllum ásamt barnabörnunum Katie, sem átti hugmyndina að afmælisgjöfinni, og Jonathan. Í HNOTSKURN »Faðir Kristínar var BjörnBjörnsson kaupmaður, sem stofnaði Björnsbakarí og var einn eigenda Hress- ingarskálans við Austur- stræti. »Móðir Kristínar varHulda Karlsdóttir Bjarnesen. Kristín og Har- aldur Sturlaugsson á Akra- nesi áttu sömu langalang- ömmu, Ingunni Jónsdóttur frá Búðum á Snæfellsnesi. »Björn og Hulda fluttu tilEnglands 1936 og bjuggu þar upp frá því. KRISTÍN segist muna margt frá bernsku sinni á Íslandi, þótt hún hafi flutt burt sex ára gömul. Meðal annars eru heimsóknir til ættingj- anna á Akranesi eftirminnilegar. Ýmist var farið landleiðina eða með báti og þótti henni hvor tveggja ferðamátinn slæmur: „Ég kastaði alltaf upp þegar við fórum á bát en stundum var líka slæmt að fara með bíl. Göturnar voru hræðilegar,“ sagði hún í gær. Kristín man eftir ferð fyrir Hval- fjörðinn í bíl þegar hún þurfti skyndilega að kasta upp. Við hlið hennar sat ókunnug frú sem hafði lagt hatt sinn í sætið. „Þetta var nýr og voða fínn hattur. En ég vildi frekar kasta upp í hann en bíl- inn …“ sagði Kristín í gær. Hún fæddist 24. júlí 1929. Daginn áður reið öflugur jarðskjálfti yfir Suðvesturland sem fannst m.a. mjög vel í Reykjavík. Fjölskyldan bjó í Tjarnargötu 16 og skjálftinn varð þess m.a. valdandi að skor- steinn hússins féll niður að hluta. Hulda, móðir Kristínar, varð svo skelkuð að hún ætlaði stystu leið út úr húsinu; fór út á svalir, en ein- hver náði að grípa í konuna áður en hún stökk fram af. Kristín fæddist daginn eftir, á slaginu klukkan sex. Henni var sagt að klukkur Dóm- kirkjunnar hefðu slegið sex högg um leið og barnið kom í heiminn. Fæddist á slaginu sex Systur Kristín, t.v., og Ingunn. Myndin er tekin 1934 í garði Hress- ingarskálans við Austurstræti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.