Morgunblaðið - 29.07.2009, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 29.07.2009, Qupperneq 19
Minningar 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009 ✝ Karl Gíslasonfæddist í Reykja- vík 20. júní 1950. Hann lést á líkn- ardeild Landspítalans í Kópavogi 20. júlí sl. Hann var sonur hjónanna Gísla Krist- jáns Líndals Karls- sonar, f. 3. apríl 1929, d. 7. september 2002, og Guðmundu Sigríð- ar Eiríksdóttur, f. 3. september 1929. Karl var elstur fjögurra systkina. Hin eru Ei- ríkur, f. 9. júlí 1954, d. 2. júlí 1956, Sigríður, f. 16. apríl 1957, hún var gift Stefáni Erni Magnússyni og eiga þau tvo syni, Súsanna, f. 12. ágúst 1962, gift Einari Gunnarssyni og eiga þau tvær dætur. Karl kvæntist 7. október 1972 eftirlif- andi eiginkonu sinni, Sigurbjörgu Sigurbjörnsdóttur, f. 26. júlí 1951. Dætur þeirra eru: 1) Sigríður Lín- dal, f. 17. apríl 1973, gift Veturliða Þór Stefánssyni, f. 27. maí 1971, og eiga þau tvo syni, Hinrik Þór, f. 22. maí 1998, og Snorra Karl, f. 31.ágúst 2008, fyrir átti Sigríður dótturina Söndru Sif, f. 10. október 1991, með Frey Há- konarsyni. 2) Heiðrún Líndal, f. 18. janúar 1975, gift Jóni Arnari Jónssyni, f. 24. júní 1973, börn þeirra eru Daníel Heiðar, f. 3. júní 2001, og Agnes Eir, f. 16. janúar 2004. 3) Unnur Lín- dal, f. 18. júní 1980. Karl lauk fram- leiðslunámi frá Hótel- og veitingaskóla Ís- lands 1972. Hann starfaði sem þjónn bæði á Ms. Gullfossi og Hótel Sögu frá árinu 1968 þar til hann hóf störf hjá Lögreglunni í Reykjavík 1. apríl 1975. Hann var skipaður aðstoðar- varðstjóri í júlí 1986, þá í vega- lögreglu. Karl hóf störf hjá forsæt- isráðuneytinu, sem staðarhaldari á Bessastöðum, 1. ágúst 1996, og gegndi því starfi til æviloka. Karl var virkur félagi í Frímúr- arareglunni í Reykjavík. Útför Karls fer fram frá Vída- línskirkju í Garðabæ í dag, mið- vikudaginn 29. júlí, og hefst athöfn- in kl. 13. Meira: mbl.is/minningar Ástin mín. Ég sit hér fyrir framan myndina af þér, búin að kveikja á kertum og minningarnar flæða í gegnum hug- ann. Þær eru svo ótalmargar allar yndislegu stundirnar sem við höfum átt saman á þessari stuttu göngu okk- ar, allar ferðirnar sem við höfum farið saman innanlands og utan. Þú varst svo yndislegur ferðafélagi í gegnum lífið. Ég sakna þess svo mikið að geta ekki faðmað þig og knúsað á hverjum degi eins og við gerðum alltaf, lesið orð Guðs hvort fyrir annað fyrir svefninn og beðið góðan Guð um að gefa okkur góða nótt eins og við gerð- um á hverju kvöldi. Eftir að þú varst fluttur á líknar- deildina í Kópavogi, sem átti nú bara að vera hvíldarinnlögn, kom í ljós að tíminn okkar saman yrði styttri en við gerðum okkur í hugarlund og sannast þar að vegir Drottins eru órannsak- anlegir. Þú sýndir svo mikið æðruleysi í lokabaráttunni, aldrei orðinu hærra. Betri eiginmann, föður og afa var ekki hægt að hugsa sér. Það á svo vel við það sem ég las í Morgunblaðinu daginn áður en þú kvaddir að „ást er ekkja með góðar minningar“ og þá hugsaði ég já svo sannarlega myndi ég eiga þær og munu þessar góðu minningar gefa mér styrk í þessari miklu sorg. Elsku Kalli minn, ég veit að það hefur verið tekið vel á móti þér og kveð þig með vísu Vatnsenda-Rósu: Augun mín og augun þín, ó, þá fögru steina. Mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina. (Rósa Guðmundsdóttir) Ástarkveðja. Þín Sigurbjörg (Didda). Elsku besti pabbi minn. Ég trúi því nú ekki enn að þú sért farinn frá okkur, eftir erfið en stutt veikindi, þegar þú greindist í lok sept- ember 2008 þá vorum við öll svo bjartsýn að þú myndir sigrast á mein- inu, en annað kom á daginn. Þú kvaddir þennan heim á mánu- degi á slaginu kl. 15:00 (þú varst nátt- úrlega alltaf svo akkúrat maður). En yndislegri föður og afa var ekki hægt að hugsa sér. Þú varst nú ekk- ert að flíka tilfinningum þínum neitt mikið á torgum, enda sagðir þú alltaf þegar ég hringdi frá Sviss og spurði þig hvernig þú hefðir það: „Ég er bara alveg þokkalegur“ eða „Ég hef það bara fínt,“ þó að ég væri nýbúin að tala við mömmu og vissi að þetta hefði verið erfiður dagur hjá þér. Pabbi minn var hæglátur, góður, myndarlegur, ljúfur, handlaginn og gat stundum verið stríðinn mjög, enda húmorinn aldrei langt undan, meira að segja þegar þú áttir þína slæmu daga þá gastu alltaf fundið eitthvað til að grínast með eins og þegar Heiða systir var að tala um hvað hún fór hringinn í golfi einn dag- inn þá svaraðir þú: Já ég er með 130 á móti 80 og varst þá að vitna í nýjustu blóðþrýstingsmælinguna þína þann daginn. Ég heyrði þig aldrei tala illa um nokkurn mann, og leyndarmál voru vel geymd hjá þér. Þú varst líka svo mikill herramaður, enda varstu flott- astur þegar þú fórst á frímúrarafund- ina í flottu kjólfötunum þínum. En minningarnar um þig geymum við og höldum á lofti sérstaklega fyrir hann litla Snorra Karl sem náði að- eins að kynnast þér í næstum 11 mán- uði, hann vinkar þér á myndinni í stofunni á Bessastöðum og svo var hann náttúrlega nýfarinn að segja „afa“ þér til mikillar ánægju. Og það var svo sérstakt að tveimur dögum áður en þú kvaddir þá kom hann í heimsókn til þín og ætlaði aldrei að hætta að knúsa þig áður en hann fór og vinkaði svo með báðum höndum þar að auki. En ég er svo þakklát Guði fyrir það að þú treystir þér út til okkar núna 20. júní og varst hjá okkur í viku með mömmu, Agnesi og Daníel, þessi tími var ómetanlegur; síðan er ég svo feg- in að hafa ákveðið að hafa drifið mig með ykkur til baka, því þessar þrjár vikur sem ég er búin að hafa hérna á Íslandi með þér bætast í minninga- bankann og fleyta okkur áfram í þeirri miklu sorg sem við upplifum núna. Við höldum minningunni um besta pabba, afa og eiginmann hátt á lofti. Við pössum öll vel upp á hvert annað og þá sérstaklega mömmu og barnabörnin sem skilja ekkert í þessu óréttlæti að Kalli afi sé farinn frá okk- ur. En ég veit að þér líður vel núna og ert í góðum höndum núna hjá Gísla afa og fleiri sem hafa tekið þér opnum örmum því þú hafðir víst einhverju góðu og æðra verkefni að gegna. Elsku pabbi, hvíl í friði, sakna þín óstjórnlega mikið. Ástarkveðja. Þín dóttir, Sigríður (Sirrý.) Elsku fallegi pabbi minn. Það er svo óraunverulegt að þú sért farinn frá okkur. Þú háðir stutta en hetju- lega baráttu við þennan hræðilega sjúkdóm sem krabbameinið er. Þú verður alltaf hetjan mín! Alveg fram á síðasta dag heyrði ég þig aldrei kvarta, hversu kvalinn sem þú varst, en ég veit að þú varst að hlífa okkur. Þú varst einstakur maður, greið- vikinn, handlaginn, vandvirkur og tal- aðir aldrei illa um nokkurn mann og það finnst mér góður kostur. Þú varst nokkuð stríðinn og hafðir mikinn húmor, sást alltaf spaugilegu hliðarn- ar á öllu og þú tapaðir húmornum aldrei í veikindunum og komst til dæmis hjúkkunum oft til að hlæja. Þú barst tilfinningar þínar sjaldan á torg en ég átti gott „samtal“ við þig þegar ég bjó erlendis og skrifaði þér bréf, átti reyndar ekkert von á því að fá svar til baka, en það kom og mikið varð ég glöð. Þetta bréf er mér ómet- anlegt, skýrði margt og ég geymi það vel. Ég vil minnast síðasta sumars með ykkur mömmu, það var góður tími og ekki skemmdi hvað veðrið lék við okkur. Þið komuð til okkar á Strand- irnar, við borðuðum signa grásleppu, fórum í göngu og í sund. Svo var ferð- inni heitið í Húsafell og síðan á Ak- ureyri, þið á húsbílnum og við í tjald- inu og eyddum svo kvöldunum í bílnum hjá ykkur í gott spjall og eða spiluðum. Þú hafðir endalaust gaman af að ferðast bæði innanlands og ekki síst utanlands. Það var ekki svo sjald- an sem þú hringdir í mömmu í vinn- una þar sem þú varst búinn að finna einhverja góða ferð á netinu og sagðir svo: „Eigum við ekki bara að skella okkur?“ Og það er ótrúlegt að rifja upp að það er ekki nema mánuður síð- an þið fóruð ykkar síðustu utanlands- ferð til Genfar að heimsækja Sirrý og voruð svo sæt að bjóða Daníel og Agnesi með ykkur og ég veit að þau eiga eftir að minnast þessarar ferðar lengi. Elsku pabbi minn, ég vil þakka þér fyrir allt og vil ég að þú vitir að við munum hlúa að mömmu á þessum erfiðu tímum. Þín dóttir, Heiðrún. Vegir Drottins eru órannsakanleg- ir. Þegar þú greindist með ólæknandi sjúkdóm síðasta haust, þá varstu tilbúinn að berjast frá fyrstu mínútu. Með hvílíku æðruleysi sem þú hafð- ir og dugnaði þá veitirðu mér óskilj- anlegan styrk. Þegar ég lít til baka þessi ár sem við áttum saman þá fer margt í gegnum hugann, en mig lang- ar að fá að minnast þín hér í fáum orð- um. Ég var svo stolt að eiga pabba í löggunni og aðalsportið sem krakki var að fá að sitja aftan á hjólinu út götuna heima. Ég var nú ekki alveg viss þegar aðrir krakkar í götunni vildu prófa líka. Við vorum að grínast með það um daginn eftir að ég hafði lánað þér mótorhjólið mitt og þú fórst hring með vini þínum, að þú þyrftir að fá þér Gold Wing-hjól svo vel færi um „þurrskreytinguna“ sem kæmi til með að vera þar. Þú varst mikill áhugamaður um allt sem tengdist flugi og það var svo skemmtilegt að þegar ég sat inni hjá þér um daginn niðri í Kópavogi og þú varst steinsofandi, þegar flugvél kom inn til lendingar, þá vaknaðir þú og leist út um gluggann en hélst svo áfram að sofa. En í staðinn fyrir að fara í flugið á sínum tíma þá fórstu í þjóninn og síð- ar í lögregluþjóninn og kom það sér vel í því starfi sem þú varst í til dán- ardags. Deep Purple-tónleikarnir sem við fórum saman á og Food and fun-há- tíðin eru mér ógleymanlegar minn- ingar og það er endalaust hægt að telja enda var sko mikið brallað hjá okkur. Þú varst einstakt snyrtimenni og aldrei man ég til þess að þú hafir talað illa um nokkurn mann og skapfesta þín var einstök. Þó að það verði ekkert „níræðis“ afmæli hjá okkur á næsta ári, þá ætla ég nú samt að halda upp á það fyrir okkur bæði, þó að þú sért ekki lengur á meðal okkar. Ég veit að þér líður betur núna, elsku pabbi, takk fyrir árin sem okk- ur auðnaðist að fá, þú verður alltaf of- arlega í huga mér. Þín Unnur. Mágur minn og kær vinur okkar lést á líknardeild eftir stutta en harða baráttu við krabbamein. Við vorum öll svo bjartsýn á bata og það var ekki síst vegna hans sem var alltaf með áætlanir um hvað hann ætlaði að gera og uppgjöf kom ekki til greina í hans huga, æðrulaus fram á síðasta dag. Allir sem kynntust Diddu og Kalla nefndu þau nánast í einu orði, svo samhent voru þau alla tíð. Þau höfðu mikla ánægju af ferðalögum innan- lands og utan og nýttu hvert tækifæri til þess, með góðum félögum og tvö saman. Barnabörnin nutu góðs af þessu áhugamáli og þeirra líf og yndi var að umgangast fjölskyldu sína, börn og barnabörn. Greiðvikni Kalla var einkennandi fyrir hann og nutum við og fleiri þess ríkulega. Ekki þurfti að biðja hann aðstoðar, hann mætti alltaf ef hann taldi sig geta liðsinnt, sem var ærið oft, því Kalli var lagtæk- ur og velvirkur að hverju sem hann gekk. Mörg handtök hafa hann og Didda gert fyrir okkur og ætíð fund- um við að allt var það unnið af heilum hug. Elsku hjartans Didda, Sirrý, Heiða, Unnur og fjölskyldur ykkar, við vottum ykkur okkar dýpstu sam- úð. Við vitum að söknuðurinn er sár og hugur okkar er hjá ykkur öllum. Eftir lifir kær minning um góðan mann. Erla, Eysteinn og fjölskylda. Elsku besti afi okkar. Takk fyrir allar góðu og ljúfu stundirnar með þér. Þú varst besti afinn í öllum heim- inum. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesú, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesú, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu, halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesú, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið. (Ásmundur Eiríksson.) Ástarkveðja. Þín barnabörn, Hinrik Þór, Daníel Heiðar, Agnes Eir og Snorri Karl. Elsku besti afi. Takk fyrir allar góðu og skemmtilegu stundirnar okk- ar saman. Þín verður sárt saknað. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Ástarkveðja, Sandra Sif. Glímunni við miskunnarlausan sjúkdóm, hin erfiðu veikindi, er lokið en allt til hinstu stundar sýndi Karl kjark og hetjulund, mætti örlögum sínum af reisn. Hann hafði ætíð verið heilsu- hraustur og gengið til daglegra starfa á Bessastöðum af einurð og öryggi. Því kom áfallið á liðnu hausti honum og okkur öllum í opna skjöldu. Lengi vel lifði þó vonin um bata í brjósti okkar og ánægjulegt var að fylgjast með gleðistundum, stuttum ferðum, samveru með fjölskyldunni sem Karl naut milli þess sem átökin við veik- indin heimtuðu krafta hans óskipta. Í hinni fámennu sveit sem sinnir forsetaembættinu var Karl Gíslason á annan áratug mikilvægur hlekkur, tók þátt í margvíslegum verkum hér á staðnum þótt gæsla búnaðar og húsa- kosts væri hans helsta ábyrgð. Hann dró fánann að húni á hverjum morgni, opnaði kirkjuna og hugaði að um- hverfinu auk þess að sinna oft þeim mikla fjölda sem átti erindi til Bessa- staða. Í öllu þessu nutu sín vel hæfileikar hans og mannkostir en ekki síður sú þjálfun og agi sem hann hafði áður hlotið sem lögreglumaður; jafnaðar- geð hans og rólyndi áttu iðulega ríkan þátt í því að greiða fyrir lausn vanda- mála. Þau hjónin bjuggu sér hlýlegt heimili í svonefndu Norðurhúsi og sambúðin við okkur hin sem búum á staðnum var náin og góð. Það var því öllum mikið áfall þegar Karl greindist með hinn skæða sjúkdóm. Hetjuleg glíma hans hefur í sumar og vetur markað mannlífið hér á Bessastöðum. Nú er glímunni lokið og í huga okk- ar lifir minningin um góðan dreng. Við Dorrit, dætur mínar og fjölskyld- ur þeirra vottum Sigurbjörgu og fjöl- skyldunni allri einlæga samúð okkar. Ólafur Ragnar Grímsson. Elsku Kalli. Hvað lífið getur stund- um verið ósanngjarnt. Við áttum ekki von á því að þú færir svona fljótt frá okkur og héldum að við fengjum að hafa þig aðeins lengur hjá okkur. Það koma upp svo margar minningar þeg- ar maður er með hugann við þig. Ég man eftir einni þegar ég var svona 8–9 ára og þú varst að kynnast Diddu. Þú komst með hana heim eitt kvöldið og foreldra hennar líka. Ég var af- brýðisöm út í hana að taka þig frá mér, en svo kynntist ég Diddu og hefði ekki getað fengið betri mág- konu. Þið voruð svo samrýnd og gerð- uð svo margt saman, fóruð svo oft ein eitthvað í ferðalag sem var ykkur stórt áhugamál. Ég hugsaði oft hvað þið voruð dugleg við að drífa ykkur af stað og hvað þú varst duglegur að fara eftir að þú veiktist. Ég ætla ekki að fara að rifja upp allar minningar sem koma upp í huga minn því þær eru svo margar, heldur vil ég þakka þér fyrir að vera mér svo yndislegur bróðir. Ég á eftir að sakna þín sárt, en ég hugga mig við minningar sem ég á um þig og þakka fyrir að þú skyldir ekki hafa þurft að þjást mikið. Elsku Kalli, takk fyrir allt, pabbi tekur nú á móti þér. Sjáumst síðar. Þín systir, Súsanna (Sússý). Í dag kveðjum við góðan vin, Karl Gíslason, sem lést um aldur fram. Karl, eða Kalli eins og hann var ávallt kallaður, var tengdafaðir sonar okkar og erum við þakklát fyrir að hafa kynnst honum og hans góðu konu, Sigurbjörgu (Diddu). Viljum við kveðja hann með þessum orðum. Dag í senn, eitt andartak í einu, eilíf náð þín, faðir gefur mér. Mun ég þurfa þá að kvíða neinu, þegar Guð minn fyrir öllu sér? Hann sem miðlar mér af gæsku sinni minna daga skammt af sæld og þraut, sér til þess að færa leið ég finni fyrir skrefið hvert á lífs míns braut. Hann, sem er mér allar stundir nærri, á við hverjum vanda svar og ráð, máttur hans er allri hugsun hærri, heilög elska, viska, föðurnáð. Morgundagsins þörf ég þekki eigi, það er nóg, að Drottinn segir mér; Náðin mín skal nægja hverjum degi, nú í dag ég styð og hjálpa þér. Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum frið og styrk, sem ekkert buga má. Auk mér trú og haltu huga mínum helgum lífsins vegi þínum á, svo að ég af hjartaþeli hreinu, hvað sem mætir, geti átt með þér daginn hvern, eitt andartak í einu, uns til þín í ljóssins heim ég fer. (Sigurbjörn Einarsson.),# Elsku Didda og fjölskylda, missir ykkar er mikill og biðjum við Guð og engla að umvefja og vaka yfir ykkur öllum. Jón, Arnhildur og fjölskylda. Karl Gíslason  Fleiri minningargreinar um Karl Gíslason bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga.                                       

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.