Morgunblaðið - 29.07.2009, Side 20

Morgunblaðið - 29.07.2009, Side 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009 ✝ Jón Baldurssonfæddist í Reykja- vík 24. febrúar 1955. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 22. júlí sl. Foreldrar hans eru Baldur Erling Sigurðsson, stýri- maður, f. 23.3. 1931, d. 19.10. 1964, og Gréta Jónsdóttir, húsmóðir, f. 19.3. 1936. Stjúpfaðir hans er Vöggur Jónsson, f. 29.4. 1932. Systkini hans eru Sigurður Erling Baldursson, f. 21.11. 1957, Þuríður Ellisif Baldursdóttir, f. 16.4. 1963, og Ingi Þór Vöggsson, f. 28.12. 1976. Jón kvæntist Stefaníu Flosa- dóttur árið 1977. Þau skildu. Sambýliskona Jóns var Áslaug Kristinsdóttir. Þau slitu sam- vistir. Börn Jóns og Áslaugar eru: Baldur, f. 7.7. 1988, og Freyr, f. 18.4. 1991. Fósturdóttir hans og dóttir Ás- laugar er Hrund Guðmundsdóttir, f. 20.12. 1979, maki Börkur Eiríksson, f. 16.6. 1979, og dóttir þeirra er Fura, f. 4.12. 2005. Jón ólst upp í Reykjavík. Að loknu gagnfræðaprófi vann hann við akstur í nokkur ár áður en hann hóf nám í Tollskólanum og starfaði að námi loknu sem toll- vörður hjá Tollstjóranum í Reykjavík allan sinn starfsaldur. Jón var í Frímúrarareglunni og starfaði innan reglunnar með miklum áhuga. Útför Jóns fer fram frá Bú- staðakirkju í Reykjavík í dag, 29. júlí, og hefst athöfnin kl. 13. Elsku Nonni okkar. Þú fórst allt of fljótt frá okkur og sárt er að hugsa til þess að við gátum ekki kvatt þig enda gerðist þetta svo snöggt að við erum ennþá að átta okkur á því að þú sért í raun og veru farinn. Margar minningar fljúga í gegn- um hugann, m.a. þar sem þú varst úti í fjósi hjá okkur að grúska í alls konar vélum og tækjum. Ógleyman- legur fnykurinn af trefjaplastinu sem þú mótaðir svo listilega var í loftinu og sundurtekin hásing af gömlum ’74 Bronco fyrir utan dyrn- ar sem átti að fara í 8 sílendra bens- ínhákinn þinn. Hrossin hlupu í hringi í haganum fyrir neðan þegar þú svo loks settir bílinn í gang og brunaðir upp og niður brekkuna heima, því- líkur hávaði. Í minningunni standa eldingar aftur úr tryllitækinu. Þú varst hjálplegur heima hjá okkur mömmu og pabba þar sem þú tókst til í bílskúrnum og geymslunni og flokkaðir verkfærin og tækin þannig að loks var hægt að finna eitt- hvað í öllu dótinu. Þér var margt til lista lagt, það nýjasta var pípulagnir. Þú ætlaðir jafnvel að skella þér í Iðn- skólann og læra pípulagningar en hafðir þig aldrei í það. En það var ekki það eina, þú varst snillingur þegar kom að rafmagni og komst okkur á óvart með því að taka mót- orhjólið í gegn og skipta um rafkerfi í því upp á eigin spýtur. Þú varst meira að segja búinn að setja upp ljós í bakgarðinum hjá okkur með skynjara þannig að það lýsti okkur leiðina í myrkrinu á veturna. Já, Jón minn, þú hugsaðir ávallt vel um okkur og við reyndum að gera það sama fyrir þig þótt við höfum ekki verið jafnhandlagin eða jafn- dugleg við það og þú. Segja má að þú hefðir átt að hugsa meira um sjálfan þig því nú stöndum við eftir með tómarúm hjá okkur sem ekki verður hægt að fylla í nema þá helst með minningum um þig. Þú eignaðist tvo yndislega drengi og talaðir um hvað þér þætti vænt um þá. Þú barst ávallt hag drengj- anna þinna fyrir brjósti. Einnig varst þú svo gæfulegur að eignast fósturdóttur og barnabarn sem þér þótti afar vænt um. Við vitum að þú hefðir viljað meiri tíma með þeim og fjölskyldu þinni og þá jafnvel koma til okkar í heimsókn upp á Flúðir ásamt drengjunum þínum og njóta þess að vera í sveitinni í nokkra daga. Síðasta ár var erfitt hjá þér, við vitum það. Þú hafðir hundinn þinn hjá þér og talaðir mikið um hvað hann stytti þér stundirnar eins og við þekkjum svo vel með þessi skemmtilegu dýr. Vinur þinn var hjá þér þegar þú kvaddir og lá þegjandi við hlið þér, sem hann var ekki þekktur fyrir að gera mikið af fyrr en nú. Það lýsir best þeirri sorg sem erfitt er að lýsa með mannaorðum. Þakka þér fyrir margar ánægju- legar samverustundir og takk fyrir að vera svona duglegur að hringja í okkur og halda sambandi við okkur. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og það á svo sannarlega við um okkur og Nonna. Við vorum heppin að eiga þig að. Hvíldu í friði kæri vinur og frændi og megi guð varðveita þig hvar sem þú ferð. Við sendum sonum þínum, fósturdóttur og barnabarni, móður þinni og fósturföður og systkinum þínum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Unnur, Þórdís og Halldór. Ekki átti ég von á að fá þessar sorgarfréttir í blíðviðrinu, að hann Nonni frændi væri dáinn, minn kæri og góði vinur. Við ólumst upp eins og systkini ásamt Baldvini bróður og systrum mínum á Ránargötunni í húsi foreldra minna. Margt var brallað þegar við vorum yngri sem skilur eftir góðar minningar. Nonni hafði mikinn áhuga á bílum og gátum við oft spjallað um bíla. Þegar hann var aðeins 14 ára fékk hann leyfi hjá afa og ömmu til að gera upp bíl í bíl- skúrnum hjá þeim. Um leið og hann hafði aldur til tók hann meiraprófið og tók hann mig með sér þótt stelpur tækju ekki meirapróf á þeim tíma. En hann nýtti sér þau réttindi vel því hann réði sig til að keyra ferðafólk um landið. Af ferðasögunum sem hann sagði mér mátti glögglega heyra að hann naut þessara ferða og kunni að meta fegurð landsins og ævintýrin sem leyndust á hálendinu. Hann var flinkur við að umgang- ast bíla, hvort sem það var að keyra þá eða að gera við þá, því ósjaldan skipti hann um hina ýmsu hluti í bíl- unum mínum í gegnum tíðina og treysti ég honum manna best til að aðstoða mig við það sem ég þurfti að- stoð við, því vandvirknin var alltaf í fyrirrúmi. Þær eru margar minningarnar sem reika um hugann um þessar mundir, þar á meðal ferðin okkar um Vestfirði áður en búið var að opna veginn. Þegar stórgrýtið hamlaði för okkar vippuðu þeir Baldvin sér bara út úr bílnum og ruddu brautina. Nonni reyndist mér alltaf vel, traustur og hjálpsamur þegar ég leitaði til hans. Hann eignaðist sína eigin fjölskyldu og tvo myndarlega drengi og fósturdóttur. Það voru ljúfar stundir þegar hann kom með drengina sína í heimsókn til ömmu og frænku á Ránó. Ég kveð ljúfan dreng í dag, megi Guð vera með börnunum hans og fjölskyldu. Hulda frænka. Þú kvaddir, vinur, um dýrlegan dag, þá drottning ljóssins hækkar í sæti. Guðs forsjón vildi hækka þinn hag, svo hraðari þroska hann veitt þér gæti. (Þórketill Sigurðsson.) Nú ert þú farinn, æskuvinur minn, kvaddir svo óvænt. Við höfum þekkst frá því að við vorum litlir guttar á Ránargötunni en það eru aðeins rúmar tvær vikur sem skilja okkur að í aldri. Þótt við færum ólík- ar leiðir þá náðist með okkur órjúf- anleg vinátta sem hefur haldist í gegnum lífið. Alla tíð höfum við verið í nágrenni hvor við annan nema þau ár sem ég dvaldi ásamt fjölskyldu minni í Danmörku, en þangað komst þú tvisvar í heimsókn til okkar hjóna og eru það okkur kærar minningar, sérstaklega þar sem þú varst ekki mikið fyrir að ferðast utnalands en lést þig hafa það til að heimsækja okkur. Þegar við svo flytjum til landsins og komum okkur fyrir í Ás- garðinum þá flytur þú úr Vestur- bænum í Austurbæinn, í sömu götu, þar sem við ræktuðum vinskapinn eins og hann var þegar við vorum guttar. Það sem gerir þetta svo sárt að þú skulir vera farinn núna er að mér finnst við vera svo ungir ennþá, en við ráðum ekki örlögunum okkar og hef ég nú misst góðan vin þar sem þú ert farinn. Öllum ástvinum Nonna sendum við, ég og mín fjölskylda, okkar dýpstu samúðarkveðjur. Árni Guðni Einarsson. Í dag miðvikudaginn 29 júlí verður vinur minn Jón Baldursson borinn til grafar. Vegur lífsins er oft grýttur og mönnum gengur misvel að klifra yfir eða komast fram hjá þeim torfærum sem verða á vegi þeirra. Leið Jóns reyndist honum oft erfið. Bestu minningar mínar af Jóni eru frá starfi hans í frímúrarareglunni. Jón hafði mjög næmt auga fyrir því sem þar fór fram og þegar hann sá að eitthvað hafði gleymst eða honum fannst að eitthvað mætti betur fara gekk hann til mín og hvíslaði því að mér eins og til að láta ekki aðra heyra. Þannig var Jón alltaf tilbúinn með góð ráð á sinn hljóðláta hátt. Og það var gott að vita af Jóni þegar mikið var um að vera og gott að geta reitt sig á ráðin hans. Við áttum gott samband og um tíma virtist það hon- um mikils virði að geta hringt í mig og ræða málin. Erfiðastir voru hon- um hinir myrku mánuðir vetrarins og þá virtist þunglyndið ná yfirhönd- inni. Við ræddum saman í síma næst- um daglega og á svipuðum tíma á kvöldin. Þetta var orðinn fastur liður í lífi mínu. Við ræddum um daginn og veginn og hann sagði mér hvað hann hafði verið að stússast þann daginn. Einmanaleikinn hafði tekið völdin. Samtöl okkar voru oftast innihalds- rík og þótt hann væri ekki alltaf sátt- ur yfir hlutskipti sínu í lífinu þá sner- ist umræðan yfirleitt um hin daglegu mál sem brunnu á allra vörum þann daginn. Ég á eftir að sakna Jóns og þessara hringinga. Jón var mjög laghentur og hjálp- aði mér í ýmsum verkum sem ég þurfti að láta vinna. Hann var lítil- látur og flaggaði ekki eigin afrekum. Ég er ekki viss um að margir hafi séð hve djúphugsandi hann gat verið. Það kom mér á óvart þegar ég sá hugleiðingar sem hann hafði sett á blað. Sumir fara leynt með sitt þó meira hafi en þeir sem flagga hátt þótt lítið eigi. Það er missir að mönn- um eins og Jóni. Vertu blessaður, vinur. Megi kær- leikur hins hæsta umvefja þig og gefa þér frið. Aðstandendum votta ég samúð mína. Gunnar Vilhelmsson. Í dag kveðjum við vinnufélaga til margra ára, Jón Baldursson. Hann starfaði sem tollvörður frá 1977 til ársins 2009. Jón sinnti störfum sín- um af nákvæmni og vandvirkni. Samstarfsmenn gátu reitt sig á hann í einu og öllu og var hann ætíð innan handar þegar aðstoðar var þörf. Hann vann ýmis störf fyrir Toll- varðafélagið og kom meðal annars að undirbúningi tollminjasýningar í til- efni af 70 ára afmæli félagsins í des- ember 2005. Við minnumst Jóns með hlýhug og söknuði en í gegnum árin eignaðist Jón góða vini meðal félagsmanna. Fyrir hönd Tollvarðafélags Íslands sendi ég aðstandendum Jóns dýpstu samúðarkveðjur en minning um traustan og góðan vinnufélaga lifir. Ársæll Ársælsson, formaður TFÍ. Jón Baldursson  Fleiri minningargreinar um Jón Baldursson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Okkar ástkæri HAUKUR JÚLÍUSSON, Klapparhlíð 1, Mosfellsbæ, lést á krabbameinsdeild Landspítalans sunnu- daginn 26. júlí. Útförin verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 31. júlí kl. 13.00. Lára I. Ágústsdóttir, Ingibjörg Hauksdóttir, Sverrir Ólafsson, Þór Hauksson, Guðný María Jónsdóttir, Ásgerður Hauksdóttir, Þorsteinn Bjarnason og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, stjúpmóðir og amma, ANNA HALLDÓRSDÓTTIR ZOBLER FERRIS, sem lést 28. apríl sl. á Palm Beach, Flórída, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 31. júlí kl. 11.00. Neil Halldór Zobler, Ana Zobler, Christopher, Nicholas og Alexander Zobler, Jon Alan Zobler, Lori Zobler, Lily Rose og Jessica Zobler, Erik Sanford Zobler, Derek og Sven Zobler, Alan Ferris, Madeleine Ferris, Greg og Katy Ferris. ✝ Elskuleg móðir, tengdamóðir og amma, ALDA ÞÓRÐARDÓTTIR, áður til heimilis að Reynilundi 15, Garðabæ, lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi sunnudaginn 26. júlí. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ miðvikudaginn 5. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Líknardeildina í Kópavogi. Helen Ingibjörg Agnarsdóttir, Magnús Haukur Norðdahl, Sigurlaug Hrönn Agnarsdóttir, Magnús Magnússon, Þórður Bragason, Ragnhildur Sophusdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og vinkona, SIGURLAUG VIGFÚSDÓTTIR, Hrafnistu, Víðinesi, lést á hjartadeild Landspítalans sunnudaginn 26. júlí. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 31. júlí kl. 11.00 María Hreinsdóttir, Birgir Georgsson, Soffía Hreinsdóttir, Óskar Þorsteinsson, Signý Jóna Hreinsdóttir, Heiðar Örn Gunnlaugsson, Bjarni Georgsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HEKLA GESTSDÓTTIR, Garðabraut 45, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 26. júlí. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju fimmtu- daginn 30. júlí kl. 15.00. Hörður Júlíusson, Sigurlaug Jensey Skúladóttir, Guðmundur Sigurdórsson, Sigurbjörg Helga Skúladóttir, Kjartan Aðalsteinsson, Skúli Kristinn Skúlason, Dagbjört Hannesdóttir, Ásgrímur Harðarson, Trausti Harðarson, Elva Hrund Þórisdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.