Morgunblaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009
Anna
Jónsdóttir
✝ Anna Jónsdóttirfæddist á Ísafirði 5.
júní 1925. Hún lést á
Kumbaravogi sunnudag-
inn 19. júli síðastliðinn.
Jarðsett var frá
Kotstrandarkirkju þriðju-
daginn 28. júlí sl.
Meira: mbl.is/minningar
Sigurður M.
Jakobsson
✝ Sigurður M. Jak-obsson var fæddur
á Skarði á Snæfjalla-
strönd 18. mars 1929.
Hann lést mánudaginn
6. júlí 2009 á bráðamót-
töku Landspítalans við
Hringbraut.
Útför Sigurðar fór fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
✝ Axel Birgissonfæddist í Reykja-
vík 4. janúar 1952.
Hann lést á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja
miðvikudaginn 22. júlí
sl.
Foreldrar hans voru
Guðrún Guðnadóttir,
f. 7. september 1932,
d. 2. apríl 1982, og
Birgir Axelsson, f. 21.
ágúst 1932, d. 14. des-
ember 2001. Axel var
elstur fjögurra systk-
ina, hin eru: 1) Guðni,
f. 16. ágúst 1956, giftur Elsu Skúla-
dóttur og eiga þau 3 börn og 2
barnabörn. 2) Sesselja, f. 24. janúar
1962 og á hún 3 dætur. 3) Ólafur, f.
5. nóvember 1963, giftur Ragnhildi
Ingólfsdóttur og eiga þau 3 drengi.
1975 giftist Axel Herborgu Þor-
geirsdóttur, f. 14. júlí 1954. Þau
eiga Birgi, f. 17.maí 1978. Þau
skildu.
Hinn 19. febrúar
1983 kvæntist Axel
eftirlifandi eig-
inkonu sinni Sig-
urfríð Rögnvalds-
dóttur (Fríðu)
myndlistakonu. For-
eldrar hennar voru
Rögnvaldur Sig-
urjónsson vélstjóri
frá Seyðisfirði, f. 10.
desember 1913, d. 31.
júlí 1978, og Júlíana
Jónsdóttir, 19. nóv-
ember 1918, d. 1.
febrúar 2005.
Axel hóf fyrst störf hjá Loftleið-
um aðeins 17 ára gamall. Hann lauk
námi í flugvirkjun frá Tulsa Okla-
homa 1979 og vann eftir það sem
flugvirki hjá Flugleiðum allt til
dauðadags.
Útför Axels fer fram frá Y-Njarð-
víkurkirkju í dag, miðvikudaginn
29. júlí, og hefst athöfnin kl. 13.
Meira: mbl.is/minningar
Nú leiðir skilja lífs á braut,
og lokið allri sjúkdómsþraut,
En minning lifir mæt og góð,
þitt merki stendur hreint hjá þjóð.
Hér eiginkonan kveður þig,
og kæra samfylgd lífs um stig.
Af heitu hjarta þakkar þér,
en þar á engan skugga ber.
Og ástvinirnir allir þér,
nú árin liðnu þakka hér.
Þín bjarta minning býr þeim hjá,
sem blessun ávallt streymir frá.
(I.S.)
Ástin mín, nú er dagurinn runnin
upp. Kveðjustundin sem við vissum
bæði að væri óumflýjanleg.
Við áttum rúma 13 mánuði saman
eftir að þú greindist með þinn illvíga
sjúkdóm.
Við áttum yndislegan tíma, þú svo
sterkur, ákveðinn að taka bara einn
dag í einu og njóta hans. Ég svo
heppin að geta verið með þér hverja
mínútu, fórum saman í sund á
hverjum morgni, hittum sund-
félagana og starfsfólkið í sundlaug-
inni okkar, sem umvafði okkur
bæði, þökk sé þeim. Fórum saman
á myndlistasýningar, í leikhús, út að
borða og fengum vini í mat, og horfð-
um á sólina setjast úti á Garðskaga.
Stundirnar okkar saman á vinnu-
stofunni minni, sem þú kallaðir sum-
arbústaðinn okkar. Að heyra andar-
drátt þinn þegar þú sofnaðir í
sófanum eftir hádegismatinn þar,
heyra álit þitt á því sem ég var að
gera. Þú varst góður gagnrýnandi
og
hreinskilinn. Fyrir allt þetta
þakka ég.
Ég er þakklát fyrir að lokaslag-
urinn þinn var stuttur, ein vika á
sjúkrahúsinu okkar í Keflavík, þar
sem læknar og hjúkrunarlið gerðu
allt til að þér
liði sem best og umvöfðu mig með
kærleika. Við erum rík hér á Suð-
urnesjum að eiga sjúkrahús með
öðru eins starfsfólki og þar er.
Í dag kveð ég þig með hjartað
þungt af sorg, en líka fullt af þakk-
læti fyrir þau 26 ár sem við áttum
saman.
Far þú í friði, ástin mín,
og hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín
Sigfríð.
Elsku pabbi minn.
Við erum eins að því leyti að við
áttum báðir erfitt með að tjá okkur í
orðum, augun okkar sögðu allt sem
segja þurfti. Þó að það sé ofboðslega
sárt að þurfa að kveðja þig á besta
aldri, sérstaklega þegar okkar sam-
band var orðið svo gott aftur, þá vil
ég að sama skapi óska þér til ham-
ingju með að vera kominn á betri
stað og í faðm pabba þíns sem ég
veit að þú elskaðir eins og ég elska
þig.
Ég þakka guði fyrir þann tíma
sem við áttum saman eftir að ég
flutti til Keflavíkur og að hafa getað
staðið með þér í veikindum þínum
rétt eins og þú hafðir alltaf trú á mér
og stóðst með mér þegar á þurfti að
halda.
Ég vil að þú vitir að ég hef alltaf
verið stoltur af því að eiga þig sem
pabba, sérstaklega þegar ég var
unglingur og sá hvað allir strákarnir
sem voru með mér í golfinu litu upp
til þín og öfunduðu mig af því að eiga
svona svalan pabba, rúntandi um á
pallbílnum með rapptónlist og
þungarokk í botni. Þetta voru æð-
islegir tímar.
Ég man líka hvað var gaman að
koma alltaf til ykkar Fríðu í mat, það
var alltaf mikið spjallað og þú varst
alltaf brosandi og hlæjandi. Ég man
að þegar þú sast á laugardags-
morgnum með krossgátuna og það
lá sérstaklega vel á þér þá raulað-
irðu eitthvert lag og hlóst svo inn á
milli. Þá vissi ég að þér leið vel og
það smitaði út frá sér á heimilinu.
Þú varst með eindæmum vinnu-
samur og skilaðir ávallt starfi þínu
með sóma. Af þér lærði ég gildi
stundvísi og vinnusemi sem eru
þættir sem ég hef ávallt haft að leið-
arljósi á mínum starfsferli.
Ég vil að þú vitir að ég mun
standa þétt við bakið á Fríðu og öðr-
um fjölskyldumeðlimum og að ég
mun ávallt gera mitt besta til þess að
þú getir áfram verið stoltur af mér
og því sem ég tek mér fyrir hendur.
Skilaðu kveðju frá mér til afa. Ég
elska þig.
Þinn sonur,
Birgir.
Þá er hann Axel bróðir farinn yfir
móðuna miklu langt fyrir aldur
fram. Það var fyrir rúmu ári sem
hann greindist með sjúkdóm þann
sem nú hefur lagt hann að velli. Á
þessum tíma var hann búinn að
gangast undir erfiðar lyfja- og
geislameðferðir og standa sig eins
og hetja. Það dró af honum smátt og
smátt þennan tíma en aldrei heyrði
ég hann kvarta yfir hlutskipti sínu
og veikindunum tók hann af miklu
æðruleysi. Fríða stóð eins og klettur
við hlið hans allan tímann. Yndislegt
var að sjá hvað þau stóðu vel saman,
hvað sem á dundi. Birgir sonur Ax-
els stóð einnig vel við hlið föður síns
og veit ég að Axel var mjög þakk-
látur og ánægður með góðan stuðn-
ing hans. Axel starfaði allan sinn
starfsferil í kringum flugið. Hann
byrjaði ungur hjá Loftleiðum í ýms-
um störfum og var síðan í nokkur ár
í farþegaafgreiðslunni eða þar til
hann fór í nám í flugvirkjun til Tulsa
í Bandaríkjunum. Við flugvirkjunina
starfaði hann í tæp þrjátíu ár hjá
Flugleiðum og hafði hann unun af
því starfi. Hann fór mjög víða á veg-
um Flugleiða í sínu starfi og bjuggu
þau Fríða m.a. í Belgíu um tveggja
ára skeið fyrir nokkrum árum. Axel
og Fríða hafa í fjölda ára stundað
golfíþróttina af miklum áhuga og
hafði bróðir minn mikla ánægju af.
Þau ferðuðust mikið og fóru m.a.
margar ferðir til Flórída til þessa að
leika golf. Axel hafði mikinn áhuga á
fótbolta og fórum við bræðurnir á
marga leiki saman þegar ég var
heima í fríi frá sjómennskunni, til að
sjá okkar menn í Keflavík spila. Í
enska boltanum var hann harður
stuðningsmaður Man.Utd. en þar
áttum við ekki alveg samleið. Við
systkinin höfum alla tíð verið mjög
náin og góðir vinir. Við eigum eftir
að sakna þín sárt, Axel minn, en við
vitum að mamma og pabbi taka vel á
móti þér. Elsku Fríða mín og Birgir,
megi góður Guð styrkja ykkur og
efla í sorginni. Þinn bróðir,
Ólafur.
Elsku bróðir. Komið er að kveðju-
stund í bili. Samverustundirnar
verða ekki fleiri að sinni, stundir
sem verða okkur mæðgum ógleym-
anlegar og fylgja okkur og leiðbeina
um ókomin ár. Við systkinin höfum
alla tíð verið tengd órjúfanlegum
böndum, ekki bara sem systkin,
heldur líka bestu vinir. Stórt skarð
er nú komið í keðjuna okkar þegar
sterkasti hlekkurinn hverfur til
nýrra og mikilvægari starfa í nýjum
heimkynnum. Það er huggun harmi
gegn að eiga allar góðu minningarn-
ar sem varðveittar eru hjá okkur.
Mamma og pabbi taka á móti þér og
bera þig á höndum sér eins og þú
gerðir við mig alla tíð. Elsku Fríðu
þinnar og Birgis skal ég gæta fyrir
þig eftir bestu getu.
Kæri vinur, ég sakna þín,
ég vildi að þú kæmist aftur til mín.
En þú ert umvafinn ljósi þar,
eins og þú varst reyndar allstaðar.
Sárt er að horfa á eftir þér,
en ég veit að þú munt muna eftir mér.
Því þitt hreina hjarta og bjarta sál
munu þerra okkar tregatár.
(Höf.ók.)
Takk fyrir samfylgdina.
Þín systir
Sesselja.
Fallinn er frá okkar besti fjöl-
skylduvinur. Ljúfur drengur og
mannvinur sem skipaði stóran sess í
lífi okkar fjölskyldu alla tíð. Axel
skilur eftir sig skarð sem seint verð-
ur fyllt. Þær eru ófáar minningarnar
sem brjótast um í huga okkar nú á
þessari sorgarstundu, minningar
sem svo auðveldlega gætu fyllt heila
bók. Það yljar okkur um hjartaræt-
urnar að rifja upp matarboðin sem
haldin voru til skiptis á Norðurvöll-
unum og Heiðargarðinum. Nýárs-
boðin sem haldin voru allt frá fyrstu
árum níunda áratugarins voru til-
hlökkunarefni allt árið um kring,
ásamt öllum þeim góðu samveru-
stundum sem við áttum saman.
Axel var einstakur sögumaður.
Frásagnarhæfileikar hans og tilfinn-
ing fyrir réttri sögu á réttum tíma
gæddu samverustundir okkar svo
miklu lífi. Alltaf var hlegið dátt og
aldrei bar skugga á vináttuna.
Móttökur þeirra hjóna er þau
bjuggu í Belgíu voru einstakar og al-
veg í anda Axels. Hlýjar, vinalegar
og traustar. Þau hjónin dekruðu við
gesti sína, maturinn var einstakur
og alltaf var jafn gaman að fylgjast
með þeim elda saman. Það fór ekki
framhjá okkur hvað þau hjón voru
samrýnd og hve góð vinátta var á
milli þeirra.
Axel rækti hlutverk sitt svo vel
sem samferðamaður okkar Brynjars
og Lovísu. Hvort sem þeir félagarnir
voru að horfa á fótbolta saman eða
þegar eitthvað bjátaði á, alltaf var
Axel til staðar. Á sama tíma var
hann einstakur vinur sonanna Ein-
ars Friðriks og Georgs. Áhugi hans
á öllu því sem þeir tóku sér fyrir
hendur skipti þá miklu máli.
Við minnumst Axels okkar með
litlum lagstúf.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að
segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson.)
Við kveðjum okkar besta vin með
þökk fyrir allt og allt. Fríðu, Birgi,
systkinum Axels og fjölskyldum
þeirra vottum við okkar dýpstu sam-
úð. Guð standi með ykkur og gefi
ykkur allan sinn styrk í þessum
mikla missi.
Brynjar Þór, Lovísa, Georg,
Einar Friðrik og Magnea Sif.
Frá Summit til Sandvíkur. Á okk-
ar kynni við Axel ber hvergi skugga.
Allar minningar sem honum tengj-
ast vekja með okkur góðar tilfinn-
ingar, bros og hlátur. Í okkar fyrstu
ferð með Axel og Fríðu lentum við í
hasar við rottur á Summit-hótelinu í
New York, urðum auralaus og háð
Axel um framfæri, þar sem hann
sem starfsmaður flugfélags og
heimsborgari skartaði kreditkorti,
sem í þá daga var ekki á færi almúg-
ans.
Leiðir okkar hafa síðan legið sam-
an innanlands og utan þar sem Axel
var jafnan fundvísasti maðurinn á
úrvalssteikur og eðalvín, enda sann-
ur lífsnautnamaður og gourmet.
Heimsóknir okkar til Axels og
Fríðu í Tongeren hverfa okkur seint
úr minni. Fyrir utan auðvitað gest-
risnina og hlýjar móttökurnar, sem
voru lýsandi fyrir þau hjónin, þá var
mikil skemmtun að fylgja Axel um
bæinn. Þó að Axel og Fríða hafi ekki
búið svo ýkja lengi í Tongeren þá var
ævinlega eins og að þau væru fædd
þar og uppalin. Vertarnir og fasta-
gestirnir á öllum betri veitingahús-
um og börum bæjarins stukku á fæt-
ur eða fram fyrir afgreiðsluborðin til
að fagna Axel með faðmlagi eða
„high five“ og skiptust við hann á
skotum og hlátursrokum eins og
aldavinir. Axel gekk alltaf fram
hreinn og beinn, hispurslaus og án
tepruskapar, og því tóku allir honum
án nokkurra fyrirvara.
Sandvík utan við Hafnir á Reykja-
nesi á sér sess í hugum þeirra sem
ólust upp sem börn, unglingar og
ungmenni á Reykjanesinu, jafnvel
ekki laust við að gömul rómantík
Axel Birgisson
✝
Systir okkar,
KRISTÍN HJALTADÓTTIR
frá Norður-Götum, Mýrdal,
til heimilis í Seilugranda 6,
Reykjavík,
verður jarðsett frá Reyniskirkju í Mýrdal föstu-
daginn 31. júlí kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega bent
á Klausturhóla á Kirkjubæjarklaustri.
Jón Hjaltason,
Sigríður Hjaltadóttir,
Sæmundur Hjaltason
og aðrir vandamenn.
Systir okkar,
KARÍTAS CLEMENS,
lést að morgni mánudagsins 27. júlí á sjúkrahúsi í Hartford.
Helga Jóhannsdóttir,
Matthea Þorleifsdóttir,
Illuga Þorleifsdóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir
og mágur,
MAGNÚS V. FRIÐRIKSSON,
Kjarnalundi, dvalarheimili, Akureyri,
áður til heimilis að
Hólum 15, Patreksfirði,
verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju
fimmtudaginn 30. júlí kl. 14.00.
Friðrik Magnússon, Birna Svanbjörg Ingólfsdóttir,
Helgi Magnússon, Þóra Björg Guðjónsdóttir,
Ingveldur Hera Magnúsdóttir, Agnar Ásbjörn Guðmundsson,
barnabörn, barnabarnabarn, systkini og mágkona.
✝
Ástkær faðir minn, afi og bróðir,
SIGURÐUR ÞORKELL ÞORLÁKSSON,
lést í Kaupmannahöfn hinn 17. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðný Fjóla Sigurðardóttir,
Eydís Marý Jónsdóttir,
Stella Þorláksdóttir.