Morgunblaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009 ✝ Sigurveig Hjalte-sted fæddist á Öxnalæk í Ölfusi 10.6. 1923. Hún and- aðist á Borgarspít- alanum 20.7. 2009. Sigurveig var dóttir Lárusar Hjaltested, bónda á Vatnsenda við El- liðavatn, f. 22.2. 1892, d. 8.6. 1956, og Sigríðar Guðnýjar Jónsdóttur hús- freyju, f. 6.1. 1896, d. 12.2 1980. Systkini Sigurveigar voru Sigurður, bóndi á Vatnsenda, f. 11.6. 1916, d. 13.11.1966, Pétur, málarameist- ari og kaupmaður, f. 11.4. 1918, d. 27.9. 1996, Katrín ljósmóðir, f. 21.5. 1920, d. 22.11. 2008, Jón vélfræðingur, f. 27.08. 1925, d. 22.4. 2002, Anna sjúkraliði, f. 23.5. 1932, og Ingveldur óp- erusöngkona, f. 22.5. 1934. Sigurveig flutti fjögurra ára gömul að Vatnsenda við Elliða- vatn þar sem hún ólst upp við ástríki foreldra sinna og systk- ina. Hinn 7.4. 1945 giftist Sig- urveig Ólafi Beinteinssyni, tón- listar- og verslunarmanni. Foreldrar hans voru Beinteinn Thorlacius Bjarnason söðla- smiður, f. 26.2. 1884, d. 7.12. ingi í Þjóðleikhúsinu 1951-1966 og var meðal frumherja íslenskra óperusöngvara. Söngferill henn- ar var mjög farsæll því auk starfa við Þjóðleikhúsið söng hún með Sinfóníuhljómsveit Íslands og einsöng með hinum ýmsu kór- um. Þá hélt Sigurveig margsinnis einsöngstónleika og söng bæði í Ríkisútvarpi og sjónvarpi. Síðar sneri hún sér að tónlistarkennslu. Hún var kennari við Söngskólann í Reykjavík og æfði kóra hjá þjóðkirkjunni og víðar. Síðustu starfsárin kenndi hún við Tónlist- arskóla Árnessýslu og þjálfaði og stjórnaði Hörpukórnum á Sel- fossi. Sigurveig Hjaltested hlaut margskonar viðurkenningar fyrir tónlistarstörf sín, m.a. fálkaorð- una árið 2007. Hún kom miklu í verk á lífsleiðinni enda var hún óvenjulega vel skipulögð mann- eskja og svo heppin að tengda- móðir hennar, Ingibjörg, var á heimilinu og hennar hjálparhella, fyrst í Fagranesi og eins eftir að þau Ólafur fluttust til Reykjavík- ur árið 1959. Sigurveig var alla tíð félagslynd, var í Oddfellow- reglunni og meðlimur í félagi ís- lenskra einsöngvara og leikara. Frá nóvember 2007 bjó Sigurveig Hjaltested á Droplaugarstöðum og eru starfsfólki þar færðar þakkir fyrir góða umönnun. Útför Sigurveigar fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 29. júlí nk. kl. 15. Meira: mbl.is/minningar 1917, og Ingibjörg Ólafsdóttir, f. 5.11. 1884, d. 28.11. 1974. Sigurveig og Ólafur bjuggu fyrstu árin í Fagranesi við Elliða- vatn. Börn þeirra eru: 1) Lárus, f. 7.9. 1945, maki Kristín Jónsdóttir, f. 1958. 2) Ólafur Beinteinn, f. 23.9. 1946, maki Dagný Elíasdóttir, f. 1949. 3) Emilía, f. 5.10. 1948, maki Bjarni Bjarnason, f. 1948. 4.) Ingibjörg, f. 24.5. 1952, var gift Hrafni Þórðarsyni, f. 1953. Barnabörn Sigurveigar og Ólafs eru 13 og barnabarnabörn- in 18. Sigurveig var heimavinnandi húsmóðir en frá unga aldri hneigðist hugur hennar til tón- listar, sem var ríkur þáttur í upp- eldi þeirra Vatnsendasystkina. Það var því mikið gæfuspor að leiðir þeirra Ólafs lágu saman en hann hvatti konu sína til dáða þegar hún hóf söngnám. Er óvíst hvort sönghæfileikar hennar hefðu þróast eins vel og raun bar vitni án stuðnings hans en hún naut líka leiðsagnar frábærra kennara hérlendis og erlendis. Sigurveig tók þátt í óperuflutn- Kæra móðir. Að leiðarlokum vilj- um við þakka þér samverustundirn- ar á langri og góðri ævi. Þú barst velferð okkar fyrir brjósti og hvatt- ir okkur til dáða með það sem við tókum okkur fyrir hendur. Hinn kærleiksríki andi sem fylgdi ykkur pabba, hvort heldur sem var á bernskudögunum í Fagranesi eða eftir að við uxum úr grasi og stofn- uðum heimili, hefur reynst okkur drjúgt veganesti. Við erum líka verulega stolt yfir því sem þú komst í verk sem listakona og höfum þá trú, að þú hafir átt góða heimkomu á himnum. Þar sem fegurstu hljómarnir hljóma yfir himneskum guðsdýrðarsal. Þar sem bláliljur standa í blóma, sé ég fyrir mér brosmildan hal. Hann býður þig velkomna mamma mín, makinn ljúfi er beðið hefur þín. Þegar ástvininn kæra þú hefur hitt, hversu létt verður hugarþelið þitt. (Ól. B. Ól.) Guð varðveiti þig elsku mamma mín. Lárus, Ólafur, Emilía og Ingibjörg. Það voru þungbærar fréttir sem mér bárust snemma á mánudags- morgni, að amma mín væri dáin. Frá því að ég man eftir mér hefur líf mitt verið umvafið ást og hlýju ömmu minnar. Ég ólst upp á heimili ömmu og afa fyrstu æviárin og þar átti ég alla tíð öruggt athvarf. Þangað sótti ég alltaf ef eitthvað bjátaði á, því ég vissi að amma átti alltaf hughreystandi orð og hlýtt faðmlag. Hún hvatti mig áfram og var alltaf tilbúin til að hlusta á það sem mér lá á hjarta. Það eru svo margar minningar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til ömmu minnar. Ég lygni aftur augunum og er komin á Kjart- ansgötuna. Húsið er fullt af gestum og þeim fylgir mikil gleði og að sjálfsögðu mikill söngur. Afi tekur upp gítarinn og spilar undir söng ömmu og síðan taka fleiri þátt í söngnum. Ömmu þótti aldrei leið- inlegt að fá gesti í heimsókn og stjanaði þá jafnan við þá. Það var varla að hún gæfi sér tíma til að setjast niður. Alltaf þurfti að huga að kaffinu og meðlætinu. Það var því ósjaldan sem þurfti að segja henni að setjast niður. Fjölskyldan var henni mjög mikilvæg og hún var ánægðust þegar við vorum öll í kringum hana. Hún fylgdist með öllum skaranum, sem fór stækkandi með hverju árinu. Amma var stolt af afkomendum sínum og átti ást og umhyggju handa þeim öllum. Amma var mikil hannyrðakona og var alltaf með eitthvað á prjón- unum. Þannig sá hún öllum afkom- endum fyrir hosum og jafnvel vett- lingum og peysum. Það voru reyndar ekki bara afkomendurnir sem nutu góðs af prjónaskap henn- ar. Þannig fengu flestar æskuvin- konur mínar á Kjartansgötunni for- láta ponsjú sem hún heklaði og sendi mig með sem afmælisgjafir. Söngur skipaði stóran sess í lífi ömmu. Mínar fyrstu minningar tengdar söng ömmu eru frá þeim tíma þegar amma var að syngja við kirkjulegar athafnir. Mér fannst alltaf gaman að fara með þegar var verið að skíra eða gifta, en stundum gat verið erfitt að sitja kyrr og hafa hljótt. Amma tók þátt í starfi Söng- skólans frá upphafi og þau voru ófá skiptin sem ég fór með henni þang- að til að taka þátt í leik og starfi. En dýrmætustu minningarnar eru samt þær einföldustu. Sunnu- dagskaffi heima hjá ömmu og afa, þar sem húsið fylltist jafnan af kvenfólki á öllum aldri. Þá var mik- ið skrafað og mikið hlegið. Vænst þykir mér þó um þær stundir sem við amma sátum saman og spjöll- uðum saman um lífið og tilveruna. Þessar stundir verða nú geymdar í fjársjóðskistli minninganna og hugsað til þeirra með hlýju. Í dag kveð ég ömmu mína hinstu kveðju. Ég ætla að kveðja hana með þeim orðum sem komu fyrst í huga mér þegar ég frétti af andláti henn- ar: Bless elsku besta amma mín. Ég á eftir að sakna þín endalaust. Sigurveig Hjaltested. Elsku amma mín. Það er skrýtið að þurfa að kveðja þig svona, með nokkrum línum, og að hafa ekki fengið að hitta þig einu sinni enn í hinsta sinn. Ég veit að þér hefði þótt svo vænt um að fá að hitta litla prinsinn minn sem ég eignaðist einungis fyrir þremur vikum, en það náðist því miður ekki. Ég held að þar sé á ferðinni lítill efnilegur tenór, því að tónarnir eru skærir og bjartir. Ég á margar góðar minningar um þig og afa sem ég mun ávallt geyma í hjarta mínu. Söngurinn tengdi okkur sterkum böndum, þar vorum ég og þú algjörlega á heima- velli, alveg í okkar heimi sem eng- inn annar í kringum okkur skildi. Við gleymdum okkur oft í enda- lausum umræðum um raddtækni og raddbeitingu, þvældumst saman á tónleika, og stúderuðum hina og þessa söngvara. Þetta voru góðir tímar. Það er svo gaman að hafa átt þessar yndislegu stundir með þér, og ég lærði líka mikið af þér varð- andi sönginn. Þú gafst mér mörg góð ráð og hafðir mikinn vilja og auðvitað þekkingu til að sýna mér og kenna mér. Þú varst mikill kar- akter, stórkostleg söngkona með einstaklega fagra söngrödd, og ekki síðri leikkona. Þú áttir margar góð- ar hliðar sem ég var svo heppin að fá að njóta, og þú reyndist mér ein- staklega vel þegar söngurinn var annars vegar. Þið afi studduð ávallt við bakið á mér og hvöttuð mig áfram til að sinna sönglistinni, og er það alveg ómetanlegt. Það var líka mjög gaman þegar ég var í náminu hér heima, og við tróðum stundum upp saman á hinum ýmsu skemmt- unum. Við vorum nú meiri dívurnar þá! Já þetta voru nú góðar stundir. Ég veit að þú varst alltaf mjög stolt af því að eiga litla söngkonu í ætt- inni, sem héldi sönghefðinni áfram uppi, og það gladdi mig mjög. Ég mun halda áfram að syngja, og þú verður ætíð hjá mér í huganum, elsku amma mín. Ég veit að þú ert núna komin á góðan stað, komin í fang afa alsæl og glöð. Það óma fallegir og bjartir tónar á himnum núna, knúsaðu afa frá mér amma mín, við sjáumst síðar. Þín Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir. Á sólríkum morgni kvaddi ynd- islega amma mín þennan heim og er nú með afa. Ég veit að amma er aft- ur orðin glöð, enda saknaði hún afa mikið. Amma og afi tóku okkur krökk- unum opnum örmum og hjá þeim vorum við öll í uppáhaldi. Við krakkarnir slógumst um að fá að sofa á flatsæng í stofunni hjá ömmu og afa, sem endaði með því að allir fengu að sofa því ekki gerðu þau upp á milli okkar krakkanna. Amma sparaði ekki faðmlögin og hlýjar vangastrokur, sem ég á eftir að sakna mikið. Amma yljaði öllum um hjartarætur með mikilli væntum- þykju og munu vettlingar og hosur hennar ylja okkur öllum um ókomna tíð. Heimili ömmu og afa í Hvassaleiti var hjarta fjölskyldunn- ar. Alltaf var gaman að koma þang- að í heimsókn. Það skipti ekki máli hvenær komið var, það voru alltaf kræsingar á borðum, klattar með sykri, pönnukökur með rjóma eða hinar víðfrægu ömmu skonsur. Amma var mjög nýtin á alla hluti og allt var geymt. Aldrei mun ég gleyma samtölum okkar og lít ég til baka með bros á vör yfir sumu sem amma sagði, enda lá hún ekki á skoðunum sín- um. Oft leiddu samtöl okkar að þeim ferðalögum sem amma og afi fóru í gegnum ævina enda hafði amma mikla unun af þeim. Við amma minntumst einnig oft á þær ferðir sem við fórum saman í með afa og foreldrum mínum og hlógum kátt yfir þeim atburðum sem áttu sér stað í þessum yndislegu ferða- lögum okkar. Auk þess nefndi amma oft seinustu ferð þeirra afa með Oddfellow til Búdapest og tal- aði þá sérstaklega um óperusýn- inguna sem Nonni bróðir hennar gaf þeim hjónum. Ég mun alltaf geyma þær stundir sem ég átti með ömmu í hjarta mínu og stundin sem ég átti með ömmu kvöldið fyrir andlát hennar er ómetanleg. Ég kveð ömmu með söknuði, Guðrún Randalín Lárusdóttir. Ljúft er mér og sárt í senn að setja orð á „þetta“ blað. „Ljúft“ – vegna þeirra góðu kynna og vinfengis, sem ég átti við hana Sigurveigu, þessa gagnmerku og kostaríku tónlistarkonu. Með fögrum og listrænum söng sínum var hún þjóð okkar jafnan til sóma, hvar sem hún steig á svið. Þegar ég leitaði til hennar, var hún ávallt fús til að hjálpa og veita af list sinni, vinföst og göfug. „Sárt“ – vegna tregans, að við fengum ekki að njóta návistar hennar lengur. Hér er skarð fyrir skildi. En sá tóngeisli ómar yfir því skarði, sem mun fylla það „veglega“ þegar til kemur – „tónn af hennar eigin rót- um runninn“. Kæru, góðu vinir, Ólafur, Ingi- björg og aðrir ástvinir. Við sendum ykkur hugnæma samúð ásamt Sigurveig Hjaltested SJÁ SÍÐU 24 komi þar fram í hugann. Þegar við skruppum þangað núna í byrjun júlí og tókum Axel og Fríðu með í smá- rekaviðarstuld, voru skemmtisögur og hlátur Axels á sínum stað þó að líkaminn væri þá farinn að íþyngja honum. Okkur grunaði þá að ferðir okkar saman yrðu vart mikið fleiri, enda varð sú raunin, en vonum að hann hafi haft af henni nokkurt gam- an. Hvað okkur varðar fer þessi ferð í stóran sjóð góðra minninga. Þessi vegferð okkar frá Summit til Sandvíkur hefur verið ein samfelld skemmtiganga, og fyrir hana þökk- um við af heilum hug. Elsku Fríða, Birgir og fjölskylda, hugur okkar er hjá ykkur. Dröfn og Árni. Þegar góður vinur og félagi hefur nú kvatt eftir harða baráttu við ill- vígan sjúkdóm þá reikar hugurinn til baka. Fyrstu kynnin þegar þú komst á tannlæknastofuna þar sem við Fríða unnum, nýkomin úr flugvirkjanámi frá Ameríku, klæddur smekkgalla- buxum og kúrekastígvélum, tág- grannur og vaktir óskipta athygli okkar. Golfferðirnar á Ventura, þar sem þú tókst að þér að grilla steikurnar á réttan hátt. Þeir sem komu í grill- partýin okkar tala ennþá um steik- urnar og fá vatn í munninn við til- hugsunina. Þitt mottó var: Fiskur er fiskur en kjöt er matur. Ekki má gleyma þegar þú tókst að þér að sjá um morgunmatinn, Am- erican style bacon, egg, skonsur að ógleymdu sýrópinu. Í þessum ferðum okkar var skylda að fara í Harley Davidson-verslun, þú hafðir fastar skoðanir á því að engin mótorhjól kæmust í hálfkvisti við þau. Takk fyrir Harley-gjöfina sem þú gafst mér nokkrum dögum áður en þú kvaddir. Þú hafðir mikinn áhuga á golfi og knattspyrnu, þinn maður í golfi John Daley og Man. Utd. þitt lið í enska boltanum. Þrátt fyrir þennan brenn- andi áhuga, þá hafðir þú tekið þá ákvörðun að gerast ekki áskrifandi að sportstöðvunum, og því varð ekki breytt. Hún Fríða mín getur gert það þegar ég er farinn, þrjóskur varstu. Það verður tómlegt að hafa þig ekki í matarboðum segjandi sögur með þinni sterku rödd og hlátri. Þökkum allar sameiginlegar gleði- stundir. Elsku Fríða, Birgir og aðrir að- standendur, okkar dýpstu samúðar- kveðjur til ykkar allra. Farinn er góður drengur. Megir þú hvíla í friði, þín verður sárt sakn- að. Þínir vinir, Sigurbjörg (Bagga) og Jón Ólafur. Við erum tvær í félagi, við Fríða. Hittumst óreglulega í hádeginu á vinnustofunni eða þá heima. Borðum súpu og ræðum hugðarefni okkar. Axel er heiðursfélagi. Þarna sitjum við þrjú, ræðum myndlist, innblást- ur, myndbyggingu, litameðferð og svo málarastíflu. Axel hlær hvellum hlátri. Hann grípur inn í umræðuna með miklum handasveiflum. Hallar sér fram og setur fram greiningu á stöðunni og undirstrikar með sterkri röddinni. Við hlustum – enda annað ófært og stríðnisglapinn blikar í augunum. Hann er vel inni í málum og þekkir sína konu. Axel hefur staðið með Fríðu sinni í námi og á vinnustofunni. Betri en enginn við skipulag sýninga og stolt- ur á opnunum. Oft er farið víðan völlinn, ósam- mála um margt, en sammála um það sem skiptir mestu máli – vináttuna. Nú yljum við okkur við ljúfar og skemmtilegar minningar um góðan dreng. Megi góður vinur hvíla í friði. Dreymi þig ljósið, sofðu rótt. Margrét Soffía Björnsdóttir. (Sossa.)  Fleiri minningargreinar um Axel Birgisson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN FINNBOGADÓTTIR, lést mánudaginn 27. júlí að Hrafnistu, Hafnarfirði. Útförin verður auglýst síðar. Helgi Elíasson, Finnbogi Helgason, Elísabeth Snorradóttir, Guðbjörg Helgadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær föðursystir okkar, EMILÍA GUÐMUNDSDÓTTIR, áður Snorrabraut 73, lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 27. júlí. Fyrir hönd ættingja, Sólveig Árnadóttir, Aðalheiður Jóhannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.