Morgunblaðið - 29.07.2009, Side 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
3 1 4 8
8 2
2 3
7 5 6 2
5 8
3 8 7
6 7
9
9 5 1 3
5 9
8 2
7 4 2 5
7
3 7 1
2 4 6
6 1 8
1 4 6 3
2
3
1 5
7 5 2 9 4
4 8 5 6
9 7 4
4
3 8 5 7
6
4 3 1 8
4 6 2 7 3 8 1 5 9
5 9 7 6 1 2 8 3 4
3 8 1 9 4 5 2 6 7
7 3 4 1 2 6 9 8 5
6 1 9 5 8 3 7 4 2
8 2 5 4 7 9 3 1 6
2 5 6 3 9 1 4 7 8
1 7 8 2 6 4 5 9 3
9 4 3 8 5 7 6 2 1
9 8 1 7 6 2 5 3 4
3 4 7 8 5 9 1 2 6
2 5 6 1 3 4 9 8 7
6 3 2 4 8 1 7 9 5
8 7 5 2 9 6 3 4 1
1 9 4 5 7 3 8 6 2
7 6 8 3 4 5 2 1 9
5 1 9 6 2 8 4 7 3
4 2 3 9 1 7 6 5 8
3 7 6 5 2 9 4 1 8
5 8 9 1 3 4 7 2 6
4 1 2 7 6 8 3 9 5
9 3 7 2 8 6 5 4 1
6 4 5 3 1 7 9 8 2
1 2 8 9 4 5 6 3 7
7 9 1 4 5 2 8 6 3
2 6 4 8 7 3 1 5 9
8 5 3 6 9 1 2 7 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 29. júlí,
210. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Er Ísbóset sonur Sáls
frétti, að Abner væri dauður í Hebron,
féllust honum hendur, og allur Ísrael
varð óttasleginn. (II Sam. 4, 1.-2.)
Sumarið hefur verið með ólík-indum gott á Íslandi og muna
elstu menn ekki eftir öðrum eins
hlýindum. Reglan hefur verið sú að
sunnan lands njóti aðeins sólar í
norðanátt og því hafa sólardagarnir
verið frekar naprir, en sú regla virð-
ist hafa verið afnumin og á sá sem
það gerði þakkir skildar. Hlýindin
hafa greinilega áhrif á lundarfar og
eiga þátt í að auðvelda fólki að láta
allan fréttaflutninginn af Icesave og
öðrum hremmingum ekki leggjast á
sálina í sér.
x x x
Nú á að setja í lög reglur, semtakmarka svo leyfilegt hámark
áfengismagns í blóði ökumanna að
það varði nánast ökuleyfissviptingu
að fá sér einn sopa. Akstur og áfengi
eiga enga samleið og hefur ölvunar-
akstur valdið ómældum skaða. Því
er best að taka af öll tvímæli um það
hvað má í þessum efnum. Þá er um-
ræðan um það hvort óhætt sé að fá
sér eitt vín- eða bjórglas úr sögunni.
Sá, sem ætlar að keyra, lætur áfeng-
ið einfaldlega vera. Það er allra hag-
ur og þessi ráðstöfun er löngu tíma-
bær.
x x x
Nú líður að þeirri helgi, sem þjóð-in er vön að sleppa fram af sér
beislinu. Þá þurfa ökumenn að hafa
sérstakan vara á vegna þess að
áfengið situr í blóðinu daginn eftir.
Best er að sofa út og bíða þar til öll
áhrif drykkju eru horfin. Ef einhver
óvissa er fyrir hendi er hægt að leita
til lögreglu og biðja einfaldlega um
að fá að láta mæla hvort óhætt sé að
aka af stað. Sá sem keyrir drukkinn
stefnir ekki aðeins sjálfum sér í
hættu, heldur einnig samferðamönn-
um sínum og öðrum vegfarendum.
Suma sénsa er engin ástæða til að
taka, afleiðingarnar geta verið
skelfilegar og óafturkræfar.
x x x
Tryggasta leiðin til að koma í vegfyrir slys er að láta áfengið eiga
sig. Það á við um verslunarmanna-
helgina eins og reyndar alla aðra
daga. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 ný, 4 vinna, 7
þýða, 8 minnugur mis-
gerða, 9 snæfok, 11
bragð, 13 næði, 14 óham-
ingja, 15 rakt, 17 sterk,
20 mjög æsta, 22 ein-
skærar, 23 sárs, 24 tröll,
25 tekur.
Lóðrétt | 1 snauð, 2
geng, 3 útungun, 4 við-
lag, 5 árás, 6 einföld, 10
órói, 12 andspænis, 13
skip, 15 horskur, 16
mannsnafn, 18 verum,
19 lofar, 20 hugar-
burður, 21 eyðimörk.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bakhjarls, 8 umtal, 9 díkið, 10 jór, 11 sakka, 13
áfram, 15 björg, 18 saggi, 21 rík, 22 rudda, 23 raupa, 24
framvinda.
Lóðrétt: 2 aftek, 3 helja, 4 andrá, 5 líkar, 6 gums, 7 óð-
um, 12 kór, 14 fáa, 15 bert, 16 öldur, 17 gramm, 18
skrái, 19 grund, 20 iðan.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem
lauk fyrir skömmu í Donostia á Spáni.
Stórmeistarinn Ruslan Ponomarjov
(2727) frá Úkraínu hafði svart gegn
kollega sínum Sergei Movsesjan (2716)
frá Slóvakíu. 40… Ba3+! 41. Kxa3
Dc1+ 42. Kb4 Dxd2+ 43. c3 a5+! 44.
Kxa5 Dxc3+ 45. Ka6 Ha8+ 46. Kb6
Dd4+ 47. Kc7 Dd8+ 48. Kxc6 Ha6+
49. Kc5 Hxe6 50. Hxe6 Da5 51. He7
Dxa2 og hvítur gafst upp. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1.-2. Hikaru Na-
kamura (2710) og Ruslan Ponomarjov
(2727) 6½ vinning af 9 mögulegum. 3.
Peter Svidler (2739) 5½ v. 4.-5. Rustam
Kasimdzhanov (2672) og Francisco
Vallejo (2693) 5 v. 6.-7. Sergei Movsesj-
an (2716) og Maxime Vachier-Lagrave
(2703) 4½ v. 8. Granda Zuniga (2647)
3½ v. 9. Pablo San Segundo (2570) 2½
v. 10. Anatoly Karpov (2644) 1½ v.
Svartur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Skyldusiðfræði.
Norður
♠D872
♥64
♦1096
♣KD86
Vestur Austur
♠KG65 ♠Á
♥ÁD98 ♥G10753
♦G5 ♦8432
♣G43 ♣1092
Suður
♠10943
♥K2
♦ÁKD7
♣Á75
Suður spilar 1G.
Sagt er að það sé skylda hins sterka
að vernda þann veika. Spilarar túlka
þennan siðaboðskap sem svo að þeim
beri að vernda makker frá sjálfum sér
– enda fátt meira veikburða en veikur
makker. Oft kemur þessi verndar-
hyggja fram í því að spilarar yfirtaka
samninginn með svínslegum sögnum,
en stundum er um sanna umhyggju að
ræða – eins og hér. Suður vekur á
grandi og allir passa. Vestur kemur út
með spaða upp á ás austurs, sem skipt-
ir yfir í ♥G – kóngur og ás. Hvað gerir
nú umhyggjusamur spilari í sporum
vesturs?
Hann spilar ♥9. Leggur svo niður
♥Á, tekur ♠K og spilar ♥8. Jafnvel
mjög veikur makker ræður við að yf-
irdrepa í þeirri stöðu. Ekki má taka á
♥D fyrst, því þá væri makker vís með
að yfirdrepa níuna næst og stífla litinn.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það kemst enginn hjá því að
mæta örlögum sínum þegar þau berja að
dyrum. Finndu þér tíma og komdu með
skemmtilega uppástungu. Máli skiptir
að verja tíma með systkini.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Taktu ævintýraandann með þér
inn í framtíðina og þú munt umfaðma
flest sem á leið þinni verður. Drífðu í
þessu.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ást er dularfull og þú getur
aldrei skilið hana til fullnustu. Þú ert
spennt/ur og í sífelldri leit. Blandaðu þér
ekki í vandamál annarra.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þótt þú takir magn fram yfir
gæði í vinnunni nærðu samt sem áður
hvoru tveggja. Láttu það ekki koma þér
úr jafnvægi því annað tækifæri gefst áð-
ur en þú veist af.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert heiðarleg/ur og athugul/l og
vilt kanna heiminn í kring um þig.
Leggðu hart að þér í vikunni því þú
munt uppskera í þeirri næstu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Gættu þess umfram allt að taka
ekki þátt í neikvæðu umtali um náung-
ann. Brjóttu odd af oflæti þínu og farðu
eftir ráðleggingum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú þarft að gefa þig allan í það sem
þú ert að gera því það dugar ekkert hálf-
kák. Reyndu að skapa sjálfum/sjálfri þér
ornbogarými.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Náttúruöflin virðast vera
þér hliðholl og svo andsnúin og svo með
þér á ný. Ef þú gerir þetta með kurteisi
og djörfung muntu hafa þitt fram. Ein-
hver tekur eftir breytingu í þér.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það reynir á þig í samstarfi
við vinnufélagana. Skipstu á um að beita
þínu auðuga ímyndunarafli og hagnýtu
viðhorfi til lífsins.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú verður að finna sköp-
unarþrá þinni farveg og sinna henni sem
mest þú mátt. Vogir og hrútar sýna þér
fádæma ástleitni.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er sjálfsagt að þú standir
á rétti þínum og krefjist þess sem er
þitt. Stundum þarf bara að segja hvers
maður óskar og það rætist.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ást og leikur eru þér efst í huga í
dag. Vertu öðruvísi og byrjaðu að tala
um daginn og veginn. Slakaðu á.
Stjörnuspá
29. júlí 1928
Ekið var á bifreið frá Borg-
arnesi og yfir Kerlingarskarð.
Í Stykkishólmi var ökumanni
og farþegum „tekið með kost-
um og kynjum sem eðlilegt er,
því þangað hefur bíll aldrei
komist áður,“ sagði í Morg-
unblaðinu.
29. júlí 1934
Ríkisstjórn Hermanns Jón-
assonar, sú fyrsta undir for-
sæti hans, tók við völdum. Ey-
steinn Jónsson varð fjármála-
ráðherra, 27 ára að aldri,
yngstur allra sem tekið höfðu
við ráðherraembætti hér á
landi. Stjórnin sat í tæp fimm
ár.
29. júlí 2000
Snorrastofa í Reykholti var
opnuð formlega, að við-
stöddum norsku konungshjón-
unum og forseta Íslands. Kon-
ungur sagði að án Snorra
Sturlusonar hefðu Norðmenn
vitað minna um sögu sína.
29. júlí 2005
Vörubifreiðastjórar mótmæltu
olíugjaldi og óku hægt um göt-
ur Reykjavíkur. Sami hópur
stóð fyrir kröftugum mótmæl-
um tæpum þremur árum síð-
ar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Jóhanna Sig-
urrós Árnadótt-
ir, Rósa í Grund-
arfirði, er sjötug
í dag, 29. júlí. Af
því tilefni tekur
hún á móti ætt-
ingjum og vinum
í Fákaseli laug-
ardaginn 1.
ágúst frá klukkan 18. Hún vonast til
að sjá sem flesta.
70 ára
Þóra Gissurardóttir, bóndi í Eystra Fíflholti,
mun halda stóra veislu laugardagskvöldið 1.
ágúst í tilefni af sextugsafmæli sínu. Veislan
verður í uppgerðum bragga sem eitt sinn var
pakkhús á Hvolsvelli en stendur nú á Fífl-
holti. „Hér mun vera útigrillveisla, það verð-
ur borðað og dansað fram eftir kvöldi,“ segir
afmælisbarnið létt í bragði. „Þetta verður
ágætisveisla, hugsa ég, ætli það komi ekki um
100 ættingjar og vinir,“ segir Þóra sem segist
rík kona, enda eigi hún og maður hennar,
Þorsteinn Ólafur Markússon, samtals átta
börn og yfir tuttugu barnabörn.
Hún hefur alltaf stefnt á að fara á Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum á afmælisdaginn, en það hafi þó ekki gerst
ennþá. „Það hlýtur að fara að líða að því,“ segir Þóra sem heldur upp
á afmælið sitt á tíu ára fresti. „Fyrir tíu árum hélt ég einnig grill-
veislu, þá komu 120 manns, þá hittist það líka á verslunarmanna-
helgi.“
Hún segist hlakka til að endurtaka leikinn og býður alla vini og
vandamenn velkomna um helgina. gudrunhulda@mbl.is
Þóra Gissurardóttir er sextug í dag
Útigrillveislan endurtekin
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Reykjavík Ásdís Anna
fæddist 9. desember kl.
5.15. Hún vó 3.710 g og
var 52 cm löng. Foreldrar
hennar eru Rannveig Ása
Guðmundsdóttir og Ás-
mundur E. Þorkelsson.
Reykjavík Dagný Rós
fæddist 30. apríl kl. 3.35.
Hún vó 3.700 g og var 53
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Aldís Ólöf Júl-
íusdóttir og Óskar Ósk-
arsson.