Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009
Endirinn kom á engan
hátt á óvart og
það var engin sérstök
afhjúpun … 32
»
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
NÓBELSSKÁLDIÐ Halldór Kiljan Laxness
komst að því, eftir að hafa látið frá sér þýðingu
á Parísar-bók Ernests Hemingway, A Move-
able Feast, að hann hefði að öllum líkindum
þýtt titil bókarinnar með röngum hætti, en
bókin hét Veisla í farangrinum í þýðingu Lax-
ness. Halldór komst að því að hugtakið „mo-
veable feast“ í hinum enskumælandi heimi
væri komið úr kristni og ætti við færanlega há-
tíð, þ.e. páskahátíðina og þá hátíðisdaga sem
henni tengjast þar sem páskana ber upp á
ólíka mánaðardaga frá ári til árs (kristnir
menn minnast upprisu Krists á páskadegi sem
ávallt er sunnudagur og er hátíðin miðuð við
fyrsta sunnudag eftir fyrsta fullt tungl eftir
jafndægur á vori).
Þetta sagði bandaríski þýðandinn Sarah
Brownsberger blaðamanni í gær en hún heim-
sótti skáldið og eiginkonu hans á Gljúfrasteini
árið 1981. Hún býr og starfar á Íslandi. Hall-
dór sagði Brownsberger frá þessari þýðing-
arvillu og að hann hafi margreynt að fá titli
bókarinnar breytt án árangurs. Bókin hafi
verið komin í prent og útgefandanum þótt of
dýrt að endurprenta hana. „Ég þekki þetta
hugtak, ég veit að þetta er vitlaus þýðing og
Halldór vissi það líka og sá eftir henni,“ segir
Brownsberger.
A Moveable Feast fjallar að miklu leyti um
árin 1920-30 þegar Hemingway dvaldist sem
mest í París eftir að hann hætti blaðamennsku.
Titill bókarinnar mun vera kominn frá vini
Hemingways, A.E. Hotchner, sem ritaði bók-
ina Papa Hemingway, úr samtali þeirra um
París. „Ef þú svo heppinn að hafa búið í París
sem ungur maður þá mun hún fylgja þér hvert
sem þú ferð um ævina, því París er færanleg
hátíð (a moveable feast),“ mun Hotchner hafa
sagt við Hemingway. Þess má að lokum geta
að fjallað hefur verið áður um þessi mistök
Laxness í tímariti þýðenda, Jóni á Bægisá.
Ósáttur við titilinn
Laxness reyndi að breyta titli Veislu í farangrinum
Morgunblaðið/Einar Falur
Halldór Laxness Á Gljúfrasteini árið 1981.
DÓMSTÓLL í
Flórída hefur
kveðið upp þann
úrskurð að erfða-
skrá Gabrielle
Kerouac, móður
rithöfundarins
Jacks Kerouac,
sé fölsuð. Þykir
sannað að Gabr-
ielle hafi ekki
getað undirritað
erfðaskrána sem þýðir að fyrrver-
andi eiginkona Kerouacs, Stella
Sampas, erfði Gabrielle með ólögleg-
um hætti. Stella lést 1990 og arf-
leiddi bræður sína tvo að verðmætu
skjalasafni Jacks. Stella hefði aðeins
erft um þriðjung þess hefði ekki ver-
ið fyrir erfðaskrána og því átti
einkadóttir Jacks, Jan, í raun að erfa
ömmu sína. Jan lést árið 1996 en
reyndi tveim árum fyrr að fá erfða-
skrá ömmu sinnar ógilta.
Fölsuð
erfðaskrá
Jan Kerouac fær
uppreisn æru
Bítskáldið Jack
Kerouac.
TÍMARITIÐ
Forbes birti í
síðustu viku lista
yfir verðmætustu
listaverkasöfn
heims og trónir
þar á toppnum
safn Philips Ni-
archos, sem sæti
á í stjórn Mu-
seum of Modern
Art í New York
en hann er sonur skipajöfursins
Stavros Niarchos.
Listaverkasafn Niarchos geymir
m.a. verk eftir Vincent Van Gogh,
Picasso og Jean-Michel Basquiat
og er metið á um tvo milljarða doll-
ara, um 252 milljarða íslenskra
króna miðað við gengi gærdagsins.
Á hæla Niarchos kemur franski
milljarðamæringurinn François Pi-
nault, eigandi uppboðshússins
Christie’s, en hans safn er metið á
1,4 milljarða dollara, um 176 millj-
arða króna. Pinault á m.a. verk eft-
ir Picasso, Jeff Koons og Piet
Mondrian. Þriðji á lista er Eli
Broad, stofnandi Broad Art Fo-
undation sem lánar söfnum víða um
heim listaverk.
Niarchos
á toppnum
Yo, Picasso (1901)
er í eigu Niarchos.
Í DAG kl. 15.30 mun
Anna Þorbjörg Þor-
grímsdóttir safnstjóri
ganga með gestum um
Nesstofu á Seltjarn-
arnesi, segja frá húsinu
og fyrirhugaðri upp-
byggingu safnasvæðis
Seltirninga í Nesi.
Nesstofa var byggð á
árunum 1761-1767 og þá sem embættisbústaður
landlæknis og er eitt af elstu húsum landsins.
Nesstofa var hlaðin úr tilhöggnu grjóti eftir teikn-
ingu danska hirðarkitektsins Jacob Fortling. Í
henni hófst opinber lyfsala árið 1772 og þar starf-
aði einnig ljósmóðir. Nesstofa er opin alla daga í
sumar á milli klukkan 13 og 17 .
Sagnfræði
Leiðsögn um
Nesstofu
Nesstofa á Seltjarnarnesi.
Í TILEFNI af því að 200 ár
eru liðin frá því Jörundur
hundadagakonungur réð ríkj-
um á Íslandi hefur fimm
manna ónefndur leikhópur sett
saman dagskrá um hann sem
verður flutt í Hressógarðinum
annað kvöld kl. 20.30. Leik-
stjóri er Ágústa Skúladóttir og
handritshöfundar Ármann
Guðmundsson og Þorgeir
Tryggvason sem flytja einnig
tónlist auk Eggerts Hilmarssonar.
Áður en dagskráin hefst mun Sigurlaugur Ing-
ólfsson sagnfræðingur leiða sögugöngu um
miðbæinn og fjalla um valdatíð Jörundar. Gangan
hefst kl. 19.30 á Lækjartorgi.
Leiklist
Jörundur í
Hressógarðinum
Þorgeir
Tryggvason
GESA Niendorf, starfsmaður
Waldorf-skóla í Þýskalandi, er
stödd hér á landi ásamt fríðu
föruneyti dansara. Þessi dans-
hópur mun koma fram í Nor-
ræna húsinu á morgun kl. 16
og 20 og sýna dansverkið
„Dans frumefnanna“ við undir-
leik rússnesks píanóleikara.
Í verkinu leitast dansararnir
við að „sýna hvernig mann-
skepnan mótar og umgengst
frumefnin og verða einnig sýndar nýjar leiðir í
umgengni við náttúruna og jörðina“, að því er
fram kemur í tilkynningu. Danstæknin sem beitt
er kallast eurythmy og er mikið notuð í kennslu
og þá sérstaklega í Waldorf-skólum.
Dans
Eurythmy-dans
frumefnanna
Einn af dönsurum
Gesu Niendorf.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
JÁ, þetta er svolítið öðruvísi
verslunarmannahelgarstemning
sem margir taka fegins hendi,“ segir
Sigurður Halldórsson, sellóleikari
og listrænn stjórnandi Sumar-
tónleikaraðar í Skálholtskirkju, um
það sem verður í boði í Skálholti um
verslunarmannahelgina og þykir
ólíklegt að ölvun og óspektir muni
raska ró tónleikagesta eins og oft vill
verða á öðrum hátíðum þá helgi. Sig-
urður er einn hljóðfæraleikara í
Bachsveitinni en hún mun halda tón-
leika um helgina undir stjórn sló-
vaska konsertmeistarans og fiðlu-
leikarans Peters Spissky, sem stýrði
sveitinni einnig í Skálholti í fyrra.
Spissky er konsertmeistari barokk-
sveitanna Concerto Copenhagen í
Kaupmannahöfn og Malmö Barock
Orkester í Malmö í Svíþjóð. Auk
þess leikur hann með fjölda barokk-
hópa í Evrópu.
„Við erum að halda upp á 250 ára
ártíð Händels. Við erum með eitt
prógramm með Händel-konsertum,
bæði orgelkonsertum, sem Guðný
Einarsdóttir leikur einleik í, og síðan
concerto grosso, barokk-hljómsveit-
arkonsert, þar sem einleikurinn
skiptist á fleiri hljóðfæraleikara,“
segir Sigurður um dagskrána. Þá sé
einnig boðið upp á dagskrá helgaða
Vivaldi þar sem eiginkona Peters,
blokkflautuleikarinn Pernille Ebert
Spissky, leikur einleik.
Tékkneskur tónlistarhópur
með frumflutning
Ekki má gleyma hinum mikils-
virta, tékkneska kammerhópi Mu-
sica ad Gaudium sem sérhæfir sig
annars vegar í flutningi nútíma-
tónlistar en hins vegar í flutningi
tónlistar frá endurreisnar- og bar-
okktímabilinu og hefur hlotið fjölda
viðurkenninga fyrir, að því er segir á
vefsíðu hátíðarinnar. Þá hefur hóp-
urinn margoft gert upptökur fyrir
tékkneska útvarpið og haldið tón-
leika í Tékklandi og nágrannalönd-
um þess. Á laugardagskvöld kl. 21
flytur hópurinn ný íslensk verk og
tékkneska tónlist, frumflytur m.a.
verkið „Norræn ljóð án orða“ eftir
Jiøí Bezdìk og „5 fugla“ eftir Hildi-
gunni Rúnarsdóttur.
„Þau koma fyrir tilstilli Eydísar
Franzdóttur óbóleikara sem spilar
jafnframt með þeim á tónleikunum,“
segir Sigurður. Eydís hefur starfað
með hópnum, með hléum, í ein 17 ár
og hefur oft leikið með honum á tón-
leikum í Tékklandi, Þýskalandi og á
Íslandi. Þá hefur Eydís skipulagt
komu hópsins hingað til lands tvisv-
ar sinnum og fyrir þremur árum
kom út geisladiskur með leik þeirra,
Musica ad Gaudium, sem er virtur á
þessu sviði og verðlaunaður.
Hvernig hefur aðsóknin verið að
sumartónleikaröðinni?
„Hún hefur verið nokkuð góð yf-
irleitt, stöku tónleikar hafa verið illa
sóttir. Á laugardaginn var, kl. 15,
var frekar fátt. Þá var verið að end-
urtaka dagskrá frá fimmtudags-
kvöldinu áður sem sennilega margir
mættu á,“ svarar Sigurður. Næstsíð-
ustu helgi hafi hins vegar verið troð-
fullt, enda Skálholtshátíð á sunnu-
deginum og Þorláksmessa á sumar.
Öðruvísi helgarstemning
Pernille E. Spissky Leikur einleik í verkum eftir Vivaldi.
Annað kvöld kl. 20 leikur Bach-
sveitin dagskrá tileinkaða Vi-
valdi og Händel undir stjórn
Peter Spissky en einleikari í
blokkflautukonsert er Pernille
Ebert Spissky. 1.ágúst heldur
Lárus Jóhannesson erindi í
Skálholtsskóla um ítalska tíma-
bilið hjá Händel og Bachsveitin
flytur efnisskrá tileinkaða tón-
skáldinu. Kl. 17 flytur Bach-
sveitin verk Vivaldis og um
kvöldið leikur Musica ad Gaudi-
um verk eftir íslensk og tékk-
nesk tónskáld.
2.ágúst endurtekur Bach-
sveitin tónleika sína frá laug-
ardeginum og Musica ad Gaudi-
um sér um tónlistarflutning í
guðsþjónustu í Skálholtskirkju.
3. ágúst flytur svo Musica ad
Gaudium tónlist frá 17. og
18.öld. og endurtekur efnisskrá
sína frá deginum áður. Ítarleg
dagskrá á sumartonleikar.is.
Dagskráin
Röng dagsetning
ÞAU leiðu mistök voru gerð í gær að
ranglega var farið með dagsetningu
tónleika raddbandsins VoxFox.
Hið rétt er að VoxFox heldur árlega
sumartónleika sína í kvöld, 29. júlí, í
húsi Óháða safnaðarins að Háteigs-
vegi 56, klukkan 20.30.
Verslunarmannahelgin verður lögð undir sígilda tónlist í Skálholtskirkju
Händel, Vivaldi og frumflutningur á íslenskum og tékkneskum verkum