Morgunblaðið - 29.07.2009, Side 28

Morgunblaðið - 29.07.2009, Side 28
28 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009 Jóhann G. sendir frá sér nýtt lag Fólk TÓNLISTARMAÐURINN Benni Hemm Hemm er staddur hér á landi um þessar mundir en hann elti konuna sína til Edinborgar á síðasta ári þar sem hún stundar nám. Í kvöld gefst aðdáendum piltsins færi á að sjá hann á tónleikum þegar hann stígur á svið á undan bandarísku sveitinni The Foghorns frá Seattle er skartar Bart Came- ron, fyrrverandi ritstjóra Reykjavík Grapevine, í lykilhlutverki. Þetta verða fyrstu tónleikar Benna á Íslandi á þessu ári en hann kemur svo einnig fram á Innipúkanum um verslunarmanna- helgina áður en hann snýr aftur til Skotlands. „Ég ætla að spila með þeim úr hljómsveitinni minni hérna heima sem komast,“ segir Benni sem hefur einnig komið sér upp undirleikssveit í Edinborg. „Þetta verður mjög opið og frjálslegt. Ég var á æfingu í gær með tveimur trommuleik- urum, afsagaðri básúnu, tveimur trompetum og kornetleikara. Eitthvað af þeim verður í kvöld og aðrir ekki. Þetta er allt í rugli, ég hlakka bara til þess að sjá hvað gerist. Svo verður allt annað fólk með mér á Innipúkanum.“ Benni segist nýta tímann sinn vel í Skotlandi, hann sé að undirbúa verk fyrir Blásarasveit Reykjavíkur auk þess sem hann sé að leggja drög að tveimur nýjum plötum. „Ég náði að koma tveimur nýjum lögum inn á dagskránna í gær. Ef ég myndi byrja að stressa mig á þessu myndi ég hætta við. Þannig að ég er að reyna vera kærulaus með þetta.“ Kærulaust hjá Benna Hemm Hemm Morgunblaðið/G.Rúnar Benni Hemm Hemm Ekkert stress.  Hljómsveitin Hjaltalín hefur nú lokið Englandstúr sínum en auk þess að koma fram á nokkrum minni tónleikahátíðum spilaði sveit- in á vel völdum knæpum og tón- leikastöðum þar í landi – svo sem á Manchester Deaf Institute þar sem sveitin tróð upp á miðvikudaginn í síðustu viku. Tónleikarnir væru svo sem ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir lofsamlega umfjöllun clashmusic.com sem segir Hjaltalín bestu hljómsveit sem hægt er að sjá í dag eða réttara sagt: bestu hljóm- sveit sem enginn sér í dag því ein- ungis 25 tónleikagestir sáu sér fært að mæta á tónleikana í Manchester, clashmusic til mikillar gremju. Besta óþekkta hljómsveitin í dag  Dragkeppni Íslands fer fram hinn 5. ágúst nk. í Íslensku óper- unni líkt og undanfarin ár. Forsala miða hefst í dag á Kofa Tómasar frænda og er miðaverð litlar 1.800 krónur en 2.400 á keppnisdaginn. Fimm karlmenn og fjórar konur munu í ár keppa um titilinn drag- kóngur og -drottning Íslands 2009. Styttist óðum í Dragkeppni Íslands Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „VIÐ fundum fyrir miklum áhuga, enda þáttur sem hafði töluvert áhorf og fylgi. Enda fundum við það þegar hann var lagður niður að sú krafa reis upp að þáttur af þessum toga yrði áfram í sjónvarpi,“ segir Kristinn Hrafnsson, einn aðstandenda frétta- skýringaþáttarins Kompáss. Kristinn og hinir aðstandendur þáttarins, þeir Jóhannes Kr. Kristjánsson og Ingi R. Ingason, hafa undanfarna mánuði reynt að finna þættinum farveg í ís- lensku sjónvarpi, en þátturinn var tekinn af dagskrá Stöðvar 2 í byrjun þessa árs. Leitin hefur hins vegar engan árangur borið, og allt útlit er því fyrir að dagar Kompáss séu tald- ir. „Eftir að okkur var sagt upp á Stöð 2 settum við okkur í samband við Þórhall Gunnarsson hjá Sjónvarpinu og buðum honum að koma með þátt af svipuðum toga og Kompás. Það mál var að velkjast um í nokkra mán- uði og það var ekki fyrr en í júní sem við fengum algjört afsvar frá Þór- halli, sem taldi sig ekki hafa svigrúm til þess að setja þáttinn á dagskrá,“ segir Kristinn og bætir því við að málið hafi strandað á peningum. „Við fengum þau svör að það væru ekki burðir innan stofnunarinnar til þess að bæta þættinum á dagskrá. Það voru mikil vonbrigði, að öflugasti sjónvarpsmiðillinn hafði ekki tök á að setja hann á dagskrá.“ Grautfúlt Þeir Kompáss-menn neituðu hins vegar að gefast upp og ákváðu að róa á önnur mið. „Í ljósi þess að við fundum mikinn meðbyr og vissum að fólk væri tilbúið til að styrkja okkur með beinum framlögum, gerðum við Skjá einum tilboð um mitt sumar. Það hljóðaði upp á að við myndum gera vikulegan þátt sem Skjár einn myndi greiða fasta upphæð fyrir, upphæð sem væri Dagar Kompáss taldir  Hvorki Ríkissjónvarpið né Skjár einn sáu sér fært að setja þáttinn á dagskrá  Aðstandendur hans buðust þó til að taka mikla fjárhagslega áhættu Morgunblaðið/Árni Sæberg Kompáss-menn Jóhannes Kr. starfar í dag sem málari en Kristinn hefur ráðið sig sem afleysingafréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu. HEIMILDARMYND um reggí- sveitina Hjálma mun fylgja með fjórðu plötu sveitarinnar sem kemur út 20. ágúst næstkomandi. Það er Bjarni Grímsson, kvikmyndagerð- armaður og ljósmyndari, sem hefur unnið myndina og fylgdi hann Hjálmum eftir við upptökur á Jam- aíka en væntanleg plata er tekin upp þar og á Íslandi. „Myndin er öll tek- in upp á Jamaíka og ég myndi segja að hún gæfi góða innsýn inn í hvern- ig íslensk reggísveit plumar sig á höfuðeyju reggísins,“ segir Bjarni sem nýtur aðstoðar Frosta Runólfs- sonar við gerð myndarinnar. Mynd- skeiðin voru m.a. tekin upp í hinu fornfræga hljóðveri Bob Marley, Tuff Gong, og Harry J. Studio. Opnuðu sig á Jamaíka Aðspurður segir Bjarni hljóm- sveitina hafa verið áhugavert mynd- efni. „Þeir eru mjög skemmtilegir og maður fékk aðra sýn á þá þarna úti, þar opnuðu þeir sig í réttu umhverfi. Hjálmar komu mér mikið á óvart, þetta er flott hljómsveit og ég hef mikla trú á væntanlegri plötu,“ segir Bjarni sem hafði ekki hlustað mikið á þá áður en að gerð myndarinnar kom. Heimildarmyndin verður 40 mín- útur að lengd og kemur aðeins út í sérstakri útgáfu. Hún verður frum- sýnd á útgáfutónleikum nýrrar plötu í lok ágúst. Bjarni er ekki ókunnugur slíkri vinnu en hann gerði mynd sem fylgdi með sérstakri útgáfu af plöt- um Bubba Morthens, Ást og Í sex skrefa fjarlægð frá Paradís sem komu út 2005. Hann vinnur nú að því samhliða Hjálma-myndinni að klára myndina How to Win a Lost Game sem hann hefur unnið í samstarfi við Einar Má rithöfund um fótboltalið SÁÁ. ingveldur@mbl.is Heimildarmynd um ferða- lag Hjálma til Jamaíka Ljósmynd/Bjarni Grímsson Sól og blíða Meðlimir Hjálma voru í góðum fíling á Jamaíka. Bjarni Grímsson fylgdi sveitinni eftir til höfuðeyju reggísins Kompás var á dagskrá Stöðvar 2 frá árinu 2005 til 2008. Á því tímabili voru um 100 þættir framleiddir og á meðal þeirra mála sem tekin voru fyrir má nefna efnahagsmál, auðlinda- mál og trúmál, þótt Byrgismálið og málefni barnaníðinga hafi ef- laust vakið hvað mesta athygli. Þátturinn hlaut tvenn Eddu- verðlaun auk tvennra verðlauna Blaðamannafélags Íslands. Stór mál aðeins hluti af heildar framleiðslu- kostnaði. Við ætluðum hins vegar að taka þá áhættu að leita eftir frjálsum framlögum frá fólki, meðal annars í ljósi þess að um 5.000 manns lýstu því yfir á Facebook að þeir væru tilbúnir til að greiða einhverja smá-upphæð til þess að hægt væri að halda þætt- inum úti,“ segir Kristinn. Þrátt fyrir gott tilboð sáu forsvars- menn Skjás eins sér ekki fært að setja Kompás á dagskrá. „Það kom okkur á óvart því það var ljóst að Skjár einn þurfti ekki að taka mikla fjárhagslega áhættu, sam- anborið við þá áhættu sem við þrír hefðum tekið – að reyna að sækja laun okkar út til almennings.“ Hvað aðra raunhæfa möguleika í stöðunni varðar segir Kristinn þá fáa. „Kompás í þeirri mynd sem hann var er því allur, það er alveg ljóst. Það er ofsalega bagalegt, enda þjónaði þessi þáttur ákveðnum föstum tilgangi og sannaði gildi sitt,“ segir Kristinn sem hefur tekið að sér starf afleysinga- fréttamanns hjá RÚV á meðan Jó- hannes vinnur við að mála hús. Framtíð þeirra félaga er því alls óráðin. „En manni finnst grautfúlt að þátt- urinn skuli vera allur, sérstaklega núna á þessum tíma þegar mest þörf er fyrir hann.“  Einn ástsælasti lagasmiður þjóð- arinnar Jóhann G. Jóhannsson hefur sent frá sér nýtt lag sem verður á sólóplötu tónlistarmanns- ins sem væntanleg er með haustinu. Lagið heitir „Taktu þér tíma“ og er eftir bróður Jóhanns, Guðmund Reynisson, en textinn er eftir Jó- hann sjálfan. Hægt er hlusta á lagið á www.johanng.is.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.