Morgunblaðið - 29.07.2009, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009
Á kápu The Devils’ Star er Jo Nesbø auglýstur sem höfundur
Rauðbrystings, bókarinnar sem er mjög sennilega hans besta,
allavega sú frægasta. The Devil’s Star stenst alls ekki samanburð
við Rauðbrysting, en þá er þess að gæta að sú
bók er alveg einstaklega góð og það er ekki
sanngjarnt að miða aðrar bækur Nesbø við
hana. Og The Devil’s Star er hreint prýðileg
glæpasaga, þótt hún teljist varla framúrskar-
andi.
Í sakamálasögum Jos Nesbø er lög-
reglumaðurinn Harry Hole í aðalhlutverki,
stórgallaður og erfiður eins og nútíma spæj-
arar eru iðulega í slíkum bókum.
Í The Devil’s Star er Harry búinn að koma
sér í klandur vegna áfengisdrykkju og er um
það bil að missa vinnuna, auk þess sem einkalíf hans er í uppnámi.
Ung kona er myrt og fingur hefur verið skorinn af henni. Fleiri
morð fylgja í kjölfarið. Harry leggur frá sér flöskuna og snýr sér
að því að finna morðingjann. Það er engan veginn létt verk.
Jo Nesbø er einn af bestu sakamálahöfundum Norðurlanda.
Hann er á fínu flugi í þessari bók sem er spennandi og við-
burðarík. Lausnin kemur á óvart, kann að vísu að vera nokkuð
langsótt en þá verður um leið að hafa í huga að hugarheimar
morðingja starfa á einkennilegan hátt og þeir leggja oft á sig
mikla fyrirhöfn til að ná markmiði sínu og villa um fyrir réttvís-
inni.
Þetta er sakamálasaga sem er vel yfir meðallag. Hún er eins og
allflestar spennusögur samtímans löng, rúmar 500 síður, og hefði
mátt vera styttri. En það breytir ekki því að hér er spennandi
sumarlesning fyrir aðdáendur góðra sakamálasagna.
Spenna og skemmtun
The Devil’s Star eftir Jo Nesbø. 522 bls. Vintage Books gefur út. Kilja.
KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
SPÆJARAR í glæpasögum verða sí-
fellt framandlegri og sérkennilegri eft-
ir því sem samkeppnin á markaðnum
verður meiri; sumir höfundar velja sér
matarþema, aðrir hátækni eða lág-
tækni, yfirnáttúrlegar verur eða dul-
spekilegar pælingar. Seint munu menn
þó ná að toppa framandleika söguhetj-
unnar í bókaröð Colins Cotterills um
réttarmeinafræðinginn Siri Paiboun.
Skikkaður í starf
réttarmeinafræðings
Bókaröðin um Siri Paiboun eftir Col-
in Cotterill fékk fyrir skemmstu eins-
konar lesendaverðlaun alþjóða-
sambands glæpsagnahöfunda, en þau
eru veitt fyrir þær bækur sem bók-
safnsgestir hafa mesta ánægju af þá
stundina. Bækurnar gerast í Laos und-
ir lok áttunda áratugarins, stuttu eftir
að kommúnistar komast til valda í
landinu. Siri Paiboun, sem er menntað-
ur læknir, var meðal liðsmanna Pathet
Lao-hreyfingarinnar sem lagði landið
undir sig 1975, en settist í helgan stein
er sigur vannst. Hann fékk þó ekki að
vera lengi í friði því hann var skikk-
aður í starf réttarmeinafræðings,
reyndar réttarmeinafræðings ríkisins,
því hann er sá eini sem vinnur við slíkt
í landinu, þó hann sé kominn fast að
áttræðu.
Bækurnar um Siri Paiboun eru orðn-
ar fimm og sú sjötta kemur út í næsta
mánuði. Frásögin af ævintýrum hans
eru ekki síst merkilegar fyrir heiminn
sem þær lýsa; líf í landi þar sem þorri
landsmanna lifir nánast á steinöld, en
hin nýja yfirstétt, frammámenn í
kommúnistaflokknum, hafa það öllu
betra. Siri býr þannig við heldur fá-
brotnar aðstæður og vanbúinn tækjum
til að glíma við flókna glæpi og verður
því að reyna á hyggjuvitið, en af því á
hann nóg sem betur fer.
Oftar en ekki tengist glæpurinn ein-
hverjum valdamanna eða atvikum úr
byltingunni og þá verður vandstaðið í
henni veröld. Það kemur þó ekki svo að
sök því til viðbótar við hefðbundna að-
stoðarmenn, hjúkrunarkonu og vangef-
inn vikapilt, hefur Paiboun yfirnátt-
úrlega aðstoðarmenn, anda sem sækja
á hann er hann glímir við hvert mál,
suma illa og óttalega en aðra vinsam-
lega. Cotterill fléttar nefnilega saman
við sögurnar laoskri anda- og drau-
gatrú á snyrtilegan hátt og ágerist
reyndar eftir því sem líður á bókaröð-
ina – kryddar vísindalega efnishyggju
þjóðerniskommúnismans með ríkuleg-
um skammti af hindurvitnum svo úr
verður þessi líka fína kryddsúpa.
Bækurnar um Siri Paiboun eru orðn-
ar sex. Quercus gefur út.
Forvitnilegar bækur: Hvernig var lífið í Laos?
Þessa lífs og annars
Verðlaunaður Colin Cotterill er hag-
vanur í Austurlöndum fjær og býr nú í
litlu þorpi við Taílandsflóa.
HHH
„Þessi spræka og
fjölskylduvæna
bandaríska teikni-
mynd er sú þriðja í
röðinni og sú besta
þeirra“
- Ó.H.T. , Rás 2
PUNGINN ÚT
„Á ÉG AÐ GÆTA
SYSTUR MINNAR“
abigai l bresl in cameron diaz
FRÁ LEIKSTJÓRA
„THE NOTEBOOK“
Byggð á metsölubók
Jodi Picault sem farið
hefur sigurför um heiminn
HHH
„þessi fallega og átakanlega
kvikmynd hlýjar manni bæði um
hjartaræturnar og rífur í þær”
- Ó. Þ. I., Kvikmyndir.com
Áhrifarík og átakanleg mynd sem
skilur engan eftir ósnortinn.
HHH
„Hágæða mystería
- pottþétt handrit
- frábær mynd“
-D.Ö.J., kvikmyndir.com
HHHH
„Þrælvelheppnuð yfirfærsla viðburðaríkrar
og magnaðrar glæpasögu á hvíta tjaldið.
Varla hægt að gera þetta betur ...
áleitin og ögrandi spennumynd.”
-Þ.Þ., DV
HHH
„...ótrúlega vel unnin,
vel leikin, spennandi ...
brjáluð meðmæli.”
-T.V., kvikmyndir.is
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK
STIEG LARSSON
„Fantagóð, kuldaleg sænsk
glæpahrollvekja... Saga sem rífur
mann í sig. Myndin gefur
bókinni ekkert eftir“
-F.E. Morgunvaktin á Rás 2.
HHHH
„Karlar sem hata konur er
hrein snilld, maður getur varla
beðið eftirframhaldinu.”
- S.V., MBL
HHHH
„Það er ekki að ástæðulausu
að þetta er vinsælasta mynd
ársins á Norðurlöndunum.”
- V.J.V., FBL
HHHH
„Stórfengleg ...Verk sem dúndrar í
höfði manns á eftir, lengi, og vekur
áframhaldandi hugsanakeðjur”
- Ó.H.T., Rás 2
HHHH
„mögnuð mynd, sem stingur mann illa
og strýkur manni blíðlega á víxl,
það er ekki dauður punktur í henni”
- Heimir og Gulli / Bítið á Bylgjunni
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ, BORGARBÍÓ
OG REGNBOGANUM
SÝND Í SMÁRABÍÓ
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ, BORGARBÍÓ OG REGNBOGANUM
SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ, BORGARBÍÓ OG REGNBOGANUM
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBOGANU
M 750kr.
SÝND Í SMÁRABÍÓ
Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 B.i.16 ára
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 6 LEYFÐ
My Sister‘s Keeper kl. 8 B.i.12 ára
Lesbian Vampire Killers kl. 10 B.i.16 ára
Karlar sem hata konur kl. 6 - 7:30 - 9 - 10:30 B.i.16 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 5:50 LEYFÐ
District 13 kl. 8 - 10:10 B.i.14 ára Björk kl. 6 LEYFÐ
My Sister‘s Keeper kl. 8 - 10:20 B.i.12 ára
Karlar sem hata konur kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10 750kr. B.i.16 ára Ice Age 3 (enskt tal) kl. 5:50 - 8 750kr. LEYFÐ
My Sister‘s keeper kl. 5:40 - 8 750kr. B.i.12 ára Angels and Demons kl. 10:10 750kr. B.i.14 ára
The Hurt Locker kl. 10:20 750kr. B.i.16 ára
BÆKUR»