Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2009
HHHH
„BETRI EN BORAT
COHEN ER SCHNILLINGUR!“
– T.V. KVIKMYNDIR.IS
„HYSTERICAL!
SANDRA BULLOCK AND
RYAN REYNOLDS
ARE A MATCH MADE IN
COMEDY HEAVEN!“
- S.M. ACCESS HOLLYWOOD
HHH
- LIFE & STYLE WEEKLY
ANDREW ÞOLIR EKKI YFIRMANN SINN
EN TIL AÐ FÁ STÖÐUHÆKKUN ÞARF HANN
AÐ TAKA BÓNORÐI HENNAR
BÓNORÐIÐHHHH
– IN TOUCH
24.000 MANNS
FRÁ FRUMSÝNINGU
HHHH
„...CRAZIER AND FUNNIER,
THAN BORAT“
- ENTERTAINMENT WEEKLY
HHH
„...YFIRGENGILEGA
DÚLLULEGT VIÐUNDUR“
– S.V. MORGUNBLAÐINU
„RIOTOUSLY FUNNY!
THE PROPOSAL IS WITHOUT
QUESTION THE YEAR‘S BEST
COMEDY“
– P.H. HOLLYWOOD.COM
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í U
SA
ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 15:15 Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI
/ ÁLFABAKKA
THE PROPOSAL kl. 3:15D - 5:30D - 8D - 10:30D L DIGTAL BRÜNO kl. 8 - 10:30 14
THE PROPOSAL kl. 3:15 - 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS VIP HANGOVER kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:30 12
HARRY POTTER AND THE
HALF BLOOD PRINCE kl. 4 - 5 - 7 - 8 - 10:10 10
TRANSFORMERS kl. 5 10
/ KRINGLUNNI
THE PROPOSAL kl. 3:20D - 5:40D - 8D - 10:20D L DIGITAL
HARRY POTTER AND THE
HALF BLOOD PRINCE kl. 5:30D - 8:30D 10
DIGITAL
BRÜNO kl. 8 - 10:10 14
THE HANGOVER kl. 4 - 6 12
Hann var troðfullur, salur 1 í Há-skólabíói á mánudagskvöldið þegarég skellti mér á sænsku spennu-
myndina Karlar sem hata konur. Komst ég
þar með í hóp þeirra rúmlega 10.000 Íslend-
inga sem séð hafa myndina á aðeins nokkr-
um dögum. En um leið komst ég að því að
hér er á ferðinni ys og þys út af litlu, enda
myndin ekki sérlega merkileg.
Hugsanlegt er að væntingar mínar tilmyndarinnar hafi verið of miklar, enda
hefur hún víðast hvar hlotið mjög góða
dóma. Þá hefur bókin sem myndin er gerð
eftir notið gríðarlegra vinsælda og selst í
skipsförmum. Mér er hins vegar hulin ráð-
gáta hvernig á því stendur.
Að vísu fer myndin mjög vel af stað og ergríðarlega spennandi fyrsta klukkutím-
ann. Eftir það dettur botninn hins vegar úr
sögunni og plottið og niðurstaðan minnir á
eitthvað sem maður hefur margoft séð í sjón-
varpsþáttum- og myndum á borð við Taggart
eða Derrick. Endirinn kom á engan hátt á
óvart og það var engin sérstök afhjúpun, líkt
og til dæmis í hinni mögnuðu Seven sem
myndinni sænsku hefur verið líkt við.
Verst er þó að myndin öll er undir af-skaplega sterkum áhrifum frá banda-
rískri kvikmyndagerð og ef ekki væri fyrir
tungumálið mætti halda að hér væri á ferð-
inni Hollywood-endurgerð. Þannig eru eng-
ar listrænar áherslur í til dæmis kvikmynda-
töku, klippingu eða tónlist, líkt og vænta
mætti af sænskri kvikmynd. Annað var uppi
á teningnum í síðustu sænsku kvikmynd sem
sló í gegn, hinni frábæru Låt den rätte
komma in.
Þá koma engin sérsænsk atriði fyrir í
myndinni – hún gæti gerst hvar sem er í
heiminum. Í hinni íslensku Mýri, sem á eitt
og annað sameiginlegt með Körlum sem hata
konur, komu ýmis séríslensk atriði fyrir – til
lega ógeðfelldum „umsjónarmanni“ hennar.
Aðalsöguhetjan Mikael Blomkvist er hins
vegar furðu flatur og óspennandi í túlkun
Michael Nyqvist.
Ég hef ekki lesið bókina Karlar sem hatakonur en miðað við vinsældir hennar
getur varla annað verið að hún sé betri en
myndin sem er ekkert annað en glæpamynd í
rúmu meðallagi. Það kemur þó varla á óvart
enda er það nú oftast svo að bókin er betri
en myndin. jbk@mbl.is
» Verst er þó að myndin öll erundir afskaplega sterkum
áhrifum frá bandarískri kvik-
myndagerð og ef ekki væri fyr-
ir tungumálið mætti halda að
hér væri á ferðinni Hollywood-
endurgerð.
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
AF LISTUM
Upp með hendur! Nyqvist í hlutverki blaðamannsins Blomkvists í Karlar sem hata konur.
að mynda er ógleymanlegt þegar Ingvar E.
reif í sig sviðakjamma, íklæddur íslenskri
lopapeysu.
Karlar sem hata konur er þó alls ekki lé-leg mynd. Til dæmis fer leikkonan
Noomi Rapace á kostum í hlutverki lang-
samlega áhugaverðustu persónu mynd-
arinnar, pönkarans Lisbet Salander sem gef-
ur orðatiltækinu „að kalla ekki allt ömmu
sína“ nýja merkingu. Þannig er besti kafli
myndarinnar lítil hliðarsaga af henni og sér-
Ys og þys út af litlu