Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 36

Morgunblaðið - 29.07.2009, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 210. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Bagalegt ef lánið tefst  Íslendingar hafa náð að uppfylla öll skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins til að fá næstu lánafyrirgreiðslu að sögn Steingríms J. Sigfússonar. Hann segir málið vera í mjög við- kvæmri stöðu. Ísland og endur- skoðun efnahagsáætlunar hér verð- ur tekin fyrir á fundi yfirstjórnar AGS á mánudag. Steingrímur segir bagalegt ef fyrirgreiðslan tefst. »2 Kaupir lyfjafyrirtæki  Alþjóðlegur fjárfestingarsjóður í umsjón Róberts Wessman hefur keypt ráðandi hlut í bandaríska lyfjafyrirtækinu Alvogen. Róbert verður stjórnarformaður. »6 Kvóti og strandveiðar  Þeir sjómenn sem stundað hafa strandveiðar í sumar en eiga jafn- framt kvóta eða krókaaflamark á sínum bátum hafa getað leigt frá sér óveiddan kvóta og stundað strand- veiðar um leið. »4 Milljarðar ofgreiddir  Lífeyrisþegar fengu um þrjá millj- arða króna greidda frá Trygg- ingastofnun árið 2008 umfram rétt og verða þeir krafðir um endur- greiðslu. Fyrst og fremst stafar of- greiðslan af misræmi í framtöldum fjármagnstekjum. Um 9.000 lífeyr- isþegar eiga inni bætur. »2 SKOÐANIR» Staksteinar: Vinstri grænu gleraugun Forystugrein: Rammi efnahagslífsins Pistill: Lygasaga úr Fossvoginum Ljósvaki: Kylfingar mikilvægari … UMRÆÐAN» Laskað lýðræði Viljum við meira siðrof með þjóðinni? Þola milljón ferðamenn okkur? Icesave-samningurinn til bjargar …                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-.+ +/0-*0 **1-2/ +.-/21 +/-231 *1-322 **0-,1 *-2+2, *3,-1. *04-30 5 675 +4# 89: +//3 *+,-0+ +/0-10 **1-1. +.-*/1 +/-.,1 *1-342 **0-43 *-2+0. *31-++ *03-.0 +2+-/2+3 &  ;< *+1-/+ +/4-*0 **1-34 +.-*01 +/-,*1 *0-/22 **4-++ *-22*2 *31-4/ *03-30 Heitast 16°C | Kaldast 8°C  Úrkomulítið. Byrjar að rigna austanlands uppúr hádegi og skúr- ir suðvestan til. Hlýjast sunnan til. »10 Verslunarmanna- helgin verður með öðru sniði en annars staðar í Skálholti. Dagskrá með sí- gildri tónlist. »27 LISTIR» Sígild helgi í Skálholti FÓLK» Eldheit stemning hjá Kima í Húnaþingi. »29 Jóhann Bjarni Kol- beinsson var ekki eins hrifinn af Mönnum sem hata konur og flestir aðr- ir. »32 KVIKMYNDIR» Ekki sérlega merkileg FÓLK» Amy stelur kærasta Mischu Barton. »34 TÓNLIST» Heimildarmynd um Hjálma. »28 Menning VEÐUR» 1. Heimsbyggðin öll í hættu 2. Lögreglan lýsir eftir stúlku 3. Hulda í ársleyfi 4. Ora innkallar kjötbollur …  Íslenska krónan veiktist um 1,7% »MEST LESIÐ Á mbl.is „ÞETTA gekk með ólíkindum vel. Við vorum í sól og blíðu í 28 daga af þrjátíu,“ segir Róbert Þór Haraldsson fjallaleiðsögumaður. Í gær luku hann og sjö göngumenn frá Bandaríkjunum, Kanada, Belgíu, Danmörku og Noregi við göngu „frá strönd til strandar,“ úr Ásbyrgi um Vonar- skarð, meðfram Langasjó og svo í Vík í Mýrdal, svo löng saga sé gerð afar stutt. Á þessari 450 kílómetra leið voru fjórir hvíldardagar. Göngu- fólkið er því komið í toppform, að sögn Róberts, en sigrast þurfti á ýmsum hindrunum og vaða stórar ár á borð við Tungnaá og Sveðju. Átta manns luku mánaðarlangri göngu úr Ásbyrgi í Vík í Mýrdal Göngugarpar lögðu 450 kílómetra að baki Morgunblaðið/Jónas Erlendsson AGANEFND KSÍ úrskurðaði tvo leikmenn 3. deild- arliðs Afríku í fót- bolta í eins árs keppnisbann í gær. Joao Ramos Rocha og Afrim Haxholli, réðust m.a. á dómara í leik liðsins á mánudagskvöld gegn Ými og var lögregla kölluð á svæðið í kjölfarið. Að því er best er vitað hefur aga- nefnd KSÍ aðeins einu sinni áður úrskurðað leikmann í 12 mánaða keppnisbann. | Íþróttir Tveir í eins árs keppnisbann ALLT útlit er fyrir að fréttaskýr- ingaþátturinn Kompás hafi runnið sitt skeið á enda. Þátturinn var tek- inn af dagskrá Stöðvar 2 í byrjun þessa árs, og síðan þá hafa aðstand- endur hans reynt að finna honum farveg. Hvorki RÚV né SkjárEinn sjá sér hins vegar fært að setja þátt- inn á dagskrá. Að sögn Kristins Hrafnssonar, eins af aðstandendum Kompáss, er þetta grautfúlt. | 28 RÚV og SkjárEinn höfnuðu Kompási Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is „ÞETTA var guðdómlegt og verður ógleymanlegt,“ segir Kristín Björns- dóttir Daniel um ferð til Íslands sem fjölskyldan gaf henni í tilefni áttræð- isafmælisins í síðustu viku. Kristín, sem flutti frá Íslandi árið 1936, hefur sjaldan komið hingað síðan en talar þó lýtalausa íslensku. Kristín og eiginmaður hennar, Ian Daniel, eignuðust tvo syni. Anthony er einhleypur en Christian, sem lést aðeins fertugur, eignaðist tvö börn með konu sinni, Lucy. Hún og börn- in, Katie (sem er tvítug) og Jonathan (23) , voru með í Íslandsförinni, sem og Anthony. Kristín og fjölskylda hennar hafa lengstum búið í London, en einnig í Nígeríu og Mexíkó vegna starfa eig- inmannsins. „Ég talaði alltaf íslensku við for- eldra mína og systur. Þau eru öll dá- in fyrir löngu síðan en pabbi minn var mjög stoltur af því að vera Ís- lendingur og lagði áherslu á að töluð væri góð íslenska á heimilinu,“ sagði Kristín í samtali við Morgunblaðið. Haraldur Sturlaugsson á Akra- nesi og Kristín eru skyld; Ingunn Jónsdóttir á Búðum var langa- langamma þeirra. Svo skemmtilega vill til að Haraldur og Kristín eiga sama afmælisdag en tuttugu ára ald- ursmunur er á þeim. Á föstudaginn varð Haraldur því sextugur. Hann hugðist halda upp á afmælið sitt í kyrrþey en þegar frænkan hringdi og tilkynnti um komu sína og fjöl- skyldunnar til landsins varð sú hug- mynd að engu. | 15 Guðdómleg Íslandsferð  Kristín Björnsdóttir flutti frá Íslandi 1936  Pabbi lagði alltaf áherslu á að töluð væri góð íslenska á heimilinu Til hamingju Haraldur Sturlaugs- son ávarpar hitt afmælisbarnið, Kristínu Björnsdóttur Daniel. Í HNOTSKURN »Foreldrar Kristínar voruBjörn Björnsson, stofnandi Björnsbakarís og einn eigenda Hressingarskálans, og Hulda Karlsdóttir Bjarnesen. »Barnabörn Kristínar ogtengdadóttur hefur lengi dreymt um að fara með henni til Íslands en ekkert orðið úr. Sonardóttirin Katie stakk þess vegna upp á því að gefa ömm- unni ferðina í afmælisgjöf. »Ein fárra óska Kristínarvar að lagið Sofðu unga ástin mín yrði sungið fyrir hana í afmælinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.