Morgunblaðið - 19.08.2009, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2009
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK STIEG LARSSON
Harðsvíraðir glæpamenn nota
sér neyð fólks og örvæntingu
til að komast yfir landamærin
til Bandaríkjanna.
35.000 manns í aðsókn!
HHH
„...Tilfinningum hlaðin,
hreinskilin mynd um misjöfn
örlög mannanna...”
- S.V., MBL
HHHH
- Heimir og Gulli
/ Bítið á Bylgjunni
MARGRÉT LÁRA
VIÐARSDÓTTIR
SARA BJÖRK
GUNNARSDÓTTIR
EDDA
GARÐARSDÓTTIR
GRÉTA MJÖLL
SAMÚELSDÓTTIR
HÓLMFRÍÐUR
MAGNÚSDÓTTIR
KATRÍN
JÓNSDÓTTIR
„Mögnuð heimildarmynd um
íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu eins og þú hefur
aldrei séð það áður!
Missið ekki af þessari áhrifaríku
og skemmtilegu mynd!
Áfram Ísland!“
HHHH
„Fróð leg og skemmt i leg
he imi ldarmynd”
- S.V. , MBL
„Þjóðargersemi”
- S .V. , MBL
HHHH
- S.V., MBL
HHHH
- V.J.V., FBL
HHHH
-Þ.Þ., DV
HHHH
- Ó.H.T., Rás 2
HHHH
- H.G., Rás 2
Frá Tony Scott, leikstjóra Deja Vu og Man
on Fire kemur magnaður spennutryllir.
Denzel Washington upplifir sína verstu
martröð þegar hann þarf að takast á við
John Travolta höfuðpaur glæpamannanna.
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBOGANU
M 750kr.
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
SÝND Í REGNBOGANUM
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA
SÝND Í SMÁRABÍÓ, OG REGNBOGANUM
SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ, BORGARBÍÓ OG REGNBOGANUM
The Taking of Pelham 123 kl. 8 - 10 B.i.16 ára
G.I. Joe: The Rise of Cobra kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.i.12 ára
Karlar sem hata konur kl. 5:20 B.i.16 ára
Stelpurnar okkar kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
G.I. Joe: The Rise of Cobra kl. 6:30 - 9 B.i.12 ára
Funny Games kl. 8 - 10:20 B.i.18 ára
Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 B.i.16 ára
Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 5:50 LEYFÐ
Taking of Pelham 123 kl. 5:30 - 8 - 10:30 750kr. B.i.16 ára Crossing Over kl. 8 - 10:30 750kr. B.i.16 ára
Karlar sem hata konur kl. 7 - 10 750kr. B.i.16 ára Ice Age 3 (enskt tal) kl. 5:50 750kr. LEYFÐ
My Sister‘s Keeper kl. 5:30 - 8 - 10:20 750kr. B.i.12 ára
THE End of Mr Y segir
frá bók sem er svo ótta-
leg að allir þeir sem lesa
hana hverfa snimm-
hendis úr heimi lifenda;
ýmist látast þeir voveif-
lega eða þeir gufa upp.
Getur nærri að þetta ger-
ir bókina eftirsókn-
arverða, en illt er að
komast í hana í ljósi þess að aðeins er til eitt
eintak sem varðveitt er í þýsku bankahólfi.
Sögupersónu The End of Mr Y, Ariel
Manto, bregður því eðlilega í brún þegar hún
rekst á bókina í kassa með öðrum skræðum í
fornbókaverslun. Varla þarf að taka það fram
að hún eyðir síðustu aurunum í að kaupa sér
bókina og flýtir sér heim til að lesa hana,
nema hvað. Það hefði hún þó betur látið ógert.
Ekki vil ég rekja söguþráðinn um of í þess-
ari ágætu bók, en hann er einskonar samsuða
úr gamaldags reyfara með dulrænu ívafi og
vísindaskáldsögulegri spennusögu. Sú blanda
gengur þokkalega upp, en heldur þykir mér
bersöglisögur af afbrigðilegu kynlífi sögu-
hetjunnar trufla framvinduna. Grunnþáttur
sögunnar, það sem Ariel Manto upplifir eftir
að hafa lesið bókina, er þó býsna vel heppn-
aður.
Bókin banvæna
The End of Mr Y eftir Scarlett Thomas. 453 bls.
Kilja. Canongate gefur út.
Árni Matthíasson
ERLENDAR BÆKUR»
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
GONZALES-fjölskyldan var umtöluð
við konungshirðir Evrópu á 16. öld enda
var þar engin venjuleg fjölskylda á ferð-
inni. Fjölskyldumeðlimir voru svo loðnir
að þeir minntu sumpart á dýr. Saga
þessarar sérstöku fjölskyldu er rakin í
bókinni The Marvellous Hairy Girls eft-
ir Merry Wiesner-Hanks.
Óvæntur gestur við hirðina
Hinn tíu ára gamli Pedro Gonzales
birtist við hirð Hinriks II Frakkakon-
ungs og drottningar hans Catherine de
Medici árið 1547. Hann fæddist á Spáni,
ekkert er vitað um foreldra hans eða
hvernig hann komst til Frakklands en
getgátur eru uppi um að spánskir
þrælasalar hafi fangað hann og talið að
Frakkakonungur hefði áhuga á að líta
hann augum. Pedro hafði einstakt útlit
því andlit hans og líkami voru þakin
hárum. Pedro vakti strax áhuga kon-
ungs sem lét sér merkilega annt um
hann og setti hann til mennta. Hann sat
á skólabekk og lærði latínu og önnur
fræði sem aðalsbörn áttu að tileinka sér,
og meðal samnemenda hans var María
Stúart sem átti eftir að verða drottning
Skota.
Börn þakin hárum
Pedro gekk að eiga konu að nafni
Catherine sem var sögð vera sönn feg-
urðardís. Þau eignuðust sjö börn og öll
nema eitt erfðu sérkenni föður síns og
voru þakin hárum. Börnin vöktu ekki
síður athygli en faðir þeirra. Árið 1590
flutti fjölskyldan til Parma. Pedro og
börn hans vöktu vitaskuld athygli lækna
sem rannsökuðu þau af forvitni. Fjöl-
skyldunni virðist ætíð hafa verið sýnd
full virðing og varð ekki fyrir ofsóknum
eða útskúfun vegna sérkenna sinna.
Myndir af fjölskyldumeðlimum eru enn
til í evrópskum köstulum.
Elsta dóttir Pedros, Maddalena, gekk
í hjónaband með hirðmanni og eignaðist
börn sem voru þakin hárum, eins og
móðir þeirra. Systkini Maddalenu voru
undir verndarvæng ríkra og valdamik-
illa aðalsmanna og -kvenna en höfðu um
leið fullt frelsi til búsetu og athafna og
settust að í litlu þorpi, Capodimonte, ná-
lægt Róm. Sum þeirra giftust og eign-
uðust börn og nokkur þeirra báru ein-
kenni ættarinnar. Þegar kynslóðunum
fjölgaði hurfu einkennin smám saman.
Forvitnilegar bækur: Hin sérstaka Gonzales-ætt
Engin venjuleg fjölskylda
Antoinette Gonzales Dóttir Pedros var loðin eins og
faðir hennar og systkini, eins og sjá má á myndinni.