Morgunblaðið - 17.09.2009, Qupperneq 2
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÁGÚST og Lýður Guðmundssynir
létu Exista, sem er að mestu í
óbeinni eigu kröfuhafa í dag, fjár-
magna kaup þeirra sjálfra á 39,62
prósent hlut Exista í Bakkavör með
skuldaviðurkenningu upp á 8,4 millj-
arða króna. Ekki liggur fyrir hvenær
gjalddaginn á láninu er en þetta þýð-
ir að bræðurnir lögðu ekkert eigið fé
fram við kaupin.
Létu hjá líða að afla samþykkis
Í stuttri orðsendingu til lánveitenda
Exista segjast bræðurnir vera til-
búnir að skoða það að láta kaupin
ganga til baka ef endurskipulagning
Exista gengur eftir og þeir fá að
halda 30 prósenta hlut í Exista og yf-
irráðum í félaginu. Bréfið, sem er
undirritað af fjármálastjóra Bakka-
varar, var sent á lánveitendur Exista
fyrir helgi.
Salan á Bakkavör var gerð með
fyrirvara um samþykki lánveitenda
Exista en Ágúst og Lýður létu hjá
líða að afla slíks samþykkis.
Um er að ræða brot á lánasamn-
ingum Exista (e. syndicated loan) og
réttur innlendra fjármálastofnana
eins og skilanefndar Landsbankans
og Nýja Kaupþings, erlendra kröfu-
hafa eins og Barclay’s, og jafnframt
lífeyrissjóða, því fótum troðinn. Mik-
il óánægja er meðal kröfuhafa Exista
með söluna og þeir kröfuhafar sem
rætt var við sögðu að svo virtist sem
verið væri að skjóta undan eignum.
Haukur Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri LSR, sagði við Morg-
unblaðið á þriðjudag að lífeyrissjóð-
urinn væri ósáttur við söluna og að
hún hefði verið gerð án samráðs við
sjóðinn. „Þessu bréfi verður svarað
með viðeigandi hætti,“ segir Finnur
Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja
Kaupþings, en vill ekki tjá sig að
öðru leyti um söluna á Bakkavör úr
Existu.
Voru í tímaþröng
„Það er ekkert í okkar lánasamning-
um sem lagði þær skyldur á herðar
okkar að ræða við íslenska kröfuhafa
Exista um málið. Það er auðvitað
sjálfsagt og gott að halda góðu sam-
bandi við kröfuhafa. Þetta er aðgerð
sem varð að ráðast í fyrir 24. sept-
ember vegna ákvæða í lánasamning-
um Bakkavarar,“ segir Ágúst Guð-
mundsson. Hann segir að allir
kröfuhafar sem kynni sér málið sjái í
hendi sér að verið sé að bjarga verð-
mætum. „Það er alveg klárt að ef
Exista fer í nauðasamning, greiðslu-
stöðvun eða gjaldþrot þá falla lána-
samningar Bakkavarar. Bakkavör
heldur í dag utan um margar af
bestu eignum í matvælaiðnaði í
heiminum í dag,“ segir hann.
Ekki náðist í gær í Lárentsínus
Kristjánsson, formann skilanefndar
Landsbankans.
Seldu sér Bakkavör þvert
á rétt innlendra kröfuhafa
Exista fjármagnaði kaupin á Bakkavör Réttur kröfuhafanna virtur að vettugi
Morgunblaðið/Kristinn
Bræðurnir berjast áfram Innlendir kröfuhafar Exista telja að Lýður og
Ágúst hafi brotið ákvæði í lánasamningum með sölunni á Bakkavör.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009
2 Fréttir
!
"
!#$
%#!
%&
'#
!
()%
" ()%
* #+,-"
.
.
.
.
.
.
* #+,-"
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, net-
fang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björgvin Guðmundsson, frétta-
stjóri, bjorgvin@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími
5691110 Prentun Landsprent ehf.
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÍSLENSKIR lífeyrissjóðir gera
samtals kröfu upp á rúma 4,4 millj-
arða króna í þrotabú Baugs Group,
sem er eitt stærsta gjaldþrot Ís-
landssögunnar, samkvæmt kröfu-
skrá sem Morgunblaðið hefur undir
höndum.
Almenni lífeyrissjóðurinn gerir
samtals kröfu upp á 1,5 milljarða
króna. Einnig er ljóst að ef ekkert
fæst upp í kröfur Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins skerðist hluti
ævisparnaðar ríkisstarfsmanna en
sjóðurinn gerir kröfu upp á rúmlega
1,2 milljarða króna.
Kröfur Lífeyrissjóðs hjúkrunar-
fræðinga og Lífeyrissjóðs verkfræð-
inga hlaupa á hundruðum milljóna
króna. Gunnar Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Almenna lífeyris-
sjóðsins, segist ekki vongóður um að
eitthvað fáist upp í kröfur lífeyris-
sjóðsins. „Ég óttast hreinlega að það
fáist ekki mikið upp í almennar kröf-
ur á eftir forgangskröfum og veð-
kröfum,“ segir hann. „Við töldum
þetta [Baug] ágætan kost á sínum
tíma og höfðum til hliðsjónar árs-
reikninga og upplýsingar um rekst-
urinn sem þá virtist vera í ágætu
lagi,“ segir Gunnar, en sjóðurinn er
með veð fyrir hluta krafna sinna.
Hann segir að draga megi lærdóm af
tapi sjóðsins á fjárfestingum.
„Það er rétt að benda á að lífeyris-
sjóðirnir hafa skipað sérstakan
starfshóp á vettvangi Landssamtaka
lífeyrissjóða til að læra af reynslunni
og gera tillögur um viðmiðanir um
skilmála við fjárfestingu á skulda-
bréfum og verðbréfum fyrirtækja í
framtíðinni,“ segir Gunnar.
Lífeyrissjóðir krefjast
4,4 milljarða úr Baugsbúi
Morgunbalðið/RAX
Kröfuhafar Baugs Lífeyrissjóðirnir
ætla að læra af fenginni reynslu.
ÍSLENDINGUR og Svíi eru grun-
aðir um að hafa staðið að víðtækum
fjársvikum í Svíþjóð á umliðnum ár-
um. Segir í frétt á fréttavef sænska
dagblaðisns Dagens Indursti (DI) að
Íslendingurinn sé talinn vera höf-
uðpaurinn í þessum fjársvikum, sem
eru sögð hafa numið milljónum
sænskra króna.
Fram kemur í frétt DI að um hafi
verið að ræða gjaldeyrisþjónustu í
gegnum netið undir heitinu Zierr-
a.net. Þúsundir manna hafi lagt
fram peninga sem fyrirtæki tví-
menninganna hafi ætlað að fjárfesta
fyrir, og því haldið fram að gróða-
vonin væri töluverð. Síðar hafi kom-
ið í ljós að ekkert hafi fengist til
baka af þeim peningum sem hinir
grunlausu viðskiptavinir lögðu til.
Segir í fréttinni að Íslendingurinn
hafi hafið þessa starfsemi á árinu
2004 og verið með skrifstofu í Sví-
þjóð til ársins 2007. Hann sé nú hins
vegar búsettur á Kýpur.
gretar@mbl.is
Frá Stokkhólmi Fjársvikin eru
sögð hafa hafist í Svíþjóð árið 2004.
Íslendingur
höfuðpaur
í fjársvikum
KRÖFUHAFAR Milestone telja
koma til greina að skoða lögmæti
þess að Karl og Steingrímur Wern-
erssynir fengu pening frá Milestone
til að kaupa systur sína, Ingunni
Wernersdóttur, út úr félaginu.
Tveir lögfræðingar, sem ekki
tengjast málinu, segja ekki ljóst
hvort þessi gjörningur sé rift-
anlegur samkvæmt gjald-
þrotalögum. Svo virðist sem þetta
sé í andstöðu við 104. grein hluta-
félagalaga sem segir að hlutafélag
„má ekki veita lán til að fjármagna
kaup á hlutum í félaginu eða móð-
urfélagi þess …“.
Sé þessi ákvörðun riftanleg getur
Milestone átt kröfu um endur-
greiðslu á Milestone ltd., sem er fé-
lag bræðranna sem skuldin skrif-
aðist á í bókum Milestone.
Einnig sé sá möguleiki fyrir
hendi að um refsivert brot sé að
ræða. Þá geti Milestone, eða
þrotabúið, sett fram skaðabóta-
kröfu á hendur stjórnendum félags-
ins. Hins vegar þurfi þá að sanna
hvert tjónið sé. bjorgvin@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fór út Bræðurnir keyptu Ingunni
Wernersdóttur út árið 2007.
Krafan mun
ekki beinast
að Ingunni
ÚRVALSVÍSITALAN í Kaup-
höllinni á Íslandi hækkaði um 0,5% í
gær og var lokagildi hennar 799
stig. Af úrvalsvísitölufélögunum
varð mest hækkun á gengi hluta-
bréfa Bakkavarar, en þau hækkuðu
um 6,7% í gær. Hlutabréf færeyska
flugfélagsins Atlantic Airways, sem
eru ekki í úrvalsvísitölunni, hækk-
uðu hins vegar enn meira eða um
11,4%.
Mest viðskipti voru í gær með
hlutabréf Bakkavarar, eða fyrir um
136 milljónir króna, en heildar-
viðskipti með hlutabréf í Kauphöll-
inni námu um 150 milljónum króna.
Viðskipti með skuldabréf námu
hins vegar um 10,4 milljörðum
króna. gretar@mbl.is
Hækkun í
Kauphöllinni
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Margviðurkenndur stóll
Swopper vinnustóllinn
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
SENN líður að útgáfu Frozen Assets, bókar Ármanns
Þorvaldssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupthing Singer
& Friedlander, um árin í Kaupþingi banka, en Ármann
hefur náð samningi við fjórða stærsta útgáfufyrirtæki
Bandaríkjanna, John Wiley & Sons, um útgáfu bók-
arinnar þar í landi. Stefnt er að því að bókin komi út í ís-
lenskri útgáfu í byrjun október. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins er um að ræða einlæga frásögn
Ármanns af árunum í Kaupþingi, en hann hóf þar störf
nýskriðinn úr háskóla árið 1994 þegar aðeins 25 manns
unnu hjá bankanum. thorbjorn@mbl.is
Útrásarsaga Ármanns í
íslenskri og enskri útgáfu
Ármann
Þorvaldsson