Morgunblaðið - 17.09.2009, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009
4 Fréttir
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
ERFIÐLEIKARNIR sem hófust á
bandarískum íbúðamarkaði á síðasta
ári hafa að minnsta kosti að einu leyti
haft jákvæð áhrif í för með sér. Iðn-
aðarmenn byggja ekki eins margar
íbúðir og áður en þeir gera það betur
nú. Gæðin hafa því aukist. Þetta er
niðurstaða könnunar á vegum rann-
sóknarfyrirtækisins J. D. and Asso-
ciates.
Niðurstöður rannsóknarfyrirtæk-
isins, sem sagt er frá á heimasíðu þess
á netinu, gefa til kynna að ánægja
íbúðakaupenda með vinnu iðnarðar-
manna hafi aukist töluvert eftir að
fjármálakreppan skall á af fullum
þungu fyrir um ári. Kvörtunum vegna
byggingargalla hefur einnig fækkað,
en mæling þar á tekur með í reikning-
inn hve mikið hefur dregið úr um-
fanginu á byggingamarkaðinum.
Í frétt á fréttavef CNN-fréttastof-
unnar er haft eftir talsmanni rann-
sóknarfyrirtækisins J. D. Power, að
hörð samkeppni á byggingamarkaði
að undanförnu hafi stuðlað að því að
bestu fyrirtækin lifi af. Verð hafi einn-
ig lækkað vegna hinnar auknu sam-
keppni. Þetta séu góðar fréttir fyrir
þá sem séu að festa kaup á húsnæði
eða þurfi á vinnu iðnaðarmanna að
halda vegna endurbóta eða lagfær-
inga ýmiss konar.
Þegar uppgangurinn í efnahagslíf-
inu var sem mestur allt fram á síðasta
ár, bar nokkuð á því að kvartað væri
undan óvönduðum vinnubrögðum á
byggingamarkaði vestanhafs, sam-
kvæmt frétt CNN. Þetta átti einnig
við víða annars staðar. Til að mynda
var fyrir nokkru sagt frá því á danska
fréttavefnum arbejderen.dk., að rífa
hefði þurft heilt hótel í Danmörku,
sem byggt var á mesta uppgangstím-
anum. Reyndar var í fréttinni skuld-
inni skellt á þá sem voru á vinnu-
staðnum. Hins vegar má spyrja hvar
eftirlitið hafi verið á meðan á fram-
kvæmdum stóð.
Gæði nýrra húsbygg-
inga aukast í kreppunni
Íbúðakaupendur í Bandaríkjunum eru ánægðari nú en áður með iðnaðarmenn
Gæðasmíði Aukin ánægja íbúðakaupenda kemur meðal annars fram í því
að minna er kvartað undan byggingagöllum nú en áður.
Í HNOTSKURN
» Bandaríska rannsóknar-fyrirtækið J. D. and
Associates hefur frá árinu
1968 framkvæmt kannanir á
gæðum á ýmsum sviðum
framleiðslu og á viðhorfi og
venjum almennings.
» Könnunrannsóknarfyrirtæksins
byggist á svörum liðlega 26
þúsund heimila sem höfðu
keypt nýjar íbúðir og búið í
þeim í fjóra til átján mánuði
að jafnaði.
MAGNÚS Sædal,
byggingafulltrúi
í Reykjavík, seg-
ist vona að gæði
á byggingamark-
aði hér á landi
muni aukast frá
því sem verið
hefur. Það sé
nauðsynlegt, því
minni gæði leiði
til aukins við-
haldskostnaðar síðar.
„Þegar hægir á, eins og gerst
hefur að undanförnu, má búast við
því að gæðin fari upp á við,“ segir
Magnús. „En hvort það er til lang-
frama eða ekki er erfitt að segja til
um. Menn eru alltaf fljótir að
gleyma.“
Að sögn Magnúsar átti það sama
við hér á landi og víða annars stað-
ar, að vinnubrögð á bygg-
ingamarkaði versnuðu þegar
spennan á markaðinum var sem
mest. „Þegar allir eru að flýta sér
leiðir það til þess að það er verið
ýta á eftir hönnuðum og iðn-
aðarmönnum, og það á reyndar
einnig við um okkur sem sjáum um
úttektir. Við slíkar aðstæður er
alltaf hætta á því að hlutirnir fari
úrskeiðis.“
Þörfin er
fyrir hendi
Magnús Sædal
Svavarsson
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
HÆTTA er á því að hátt atvinnuleysisstig verði
varanlegt að minnsta kosti á næstu árum, nema
stjórnvöld grípi til enn ákveðnari aðgerða en hing-
að til í þeim tilgangi að draga úr því. Þetta er mat
sérfræðinga Efnahags- og framfarastofnunar-
innar í París, OECD.
Atvinnuleysi í OECD-ríkjunum er komið í 8,5%,
en frá árslokum 2007 hafa um 15 milljónir manna
bæst á atvinnuleysisskrár í þessum ríkjum. Segir
í nýrri skýrslu stofnunarinnar um horfur í at-
vinnumálum, að hugsanlegt sé að atvinnuleysið
muni halda áfram að aukast og verði komið yfir
10% á næsta ári. Það myndi þýða að um 57 millj-
ónir manna yrðu án atvinnu í þeim 30 ríkjum sem
aðild eiga að OECD, en það eru helstu iðnríki
heims. Atvinnuleysið á árinu 2007, áður en fjár-
málakreppan skall á, var að jafnaði 5,7%.
Haft er eftir Angel Gurria, framkvæmdastjóra
OECD, í frétt AFP-fréttastofunnar, að aukið at-
vinnuleysi sé meginmálið í tengslum við yfir-
standandi fjármálakreppu. Gríðarlega mikilvægt
sé að stjórnvöld einbeiti sér að því að auka at-
vinnutækifærin og efla þau öryggisnet sem ætlað
er að koma í vef fyrir að þeir sem missa vinnuna
lendi í fátækragildu.
Hætta á að atvinnuleysið aukist enn
Reuters
Leita Ungar konur í Bretlandi leita atvinnutæki-
færa en atvinnuleysi þar er 7,9%.
FJÁRFESTAR á hlutabréfamörk-
uðum í Asíu og Evrópu voru al-
mennt bjartsýnir í gær og hækkuðu
helstu hlutabréfavísitölur nokkuð. Í
erlendum vefmiðlum sagði að upp-
lýsingar frá Bandaríkjunum hefðu
haft þessi jákvæðu áhrif. Þar á
meðal voru upplýsingar um aukna
einkaneyslu vestanhafs og yfirlýs-
ing Bens Bernanke, seðlabanka-
stjóra Bandaríkjanna, frá því í
fyrradag, um að samdrættinum
væri líklega lokið og hægfara bati
væntanlega framundan. Hlutabréf
hækkuðu einnig við opnun mark-
aða í Bandaríkjunum í gær.
gretar@mbl.is
Hlutabréf
hækkuðu al-
mennt í gær
DANSKA dómskerfið tekur of vægt
á þeim sem braska á ólöglegan hátt
með hlutabréf til að hafa áhrif á
verð þeirra í von um eigin gróða.
Þetta er niðurstaða Nis Jul Clau-
sens prófessors og lögmannsins
Davids Moalems hjá endurskoð-
unarfyrirtækinu Deloitte, en þeir
hafa skoðað dóma sem kveðnir hafa
verið í Danmörku vegna fjár-
málamisferlis. Niðurstaða þeirra er
að hæstiréttur dragi frekar úr
þyngd dómanna. gretar@mbl.is
Of vægir dóm-
ar fyrir hluta-
bréfabrask
BANDARÍSKI
fjárfestirinn
Warren Buffett
hrósar ríkis-
stjórn Barcks
Obama fyrir
hvernig hún hef-
ur tekið á fjár-
málakreppunni, í
samtali við tíma-
ritið Fortune.
Hann gerir þó
ráð fyrir að batinn í efnahagslífinu
verði hægur, sérstaklega þar sem
nokkur tími muni líða þar til einka-
neysla almennings tekur almenni-
lega við sér á nýjan leik.
Buffett segir að litlu hefði mátt
muna að verulega illa færi síðast-
liðið haust. Aðgerðir stjórnvalda á
hinum ýmsu sviðum hafi dugað til
að afstýra því. gretar@mbl.is
Buffett ánægð-
ur með aðgerð-
ir stjórnarinnar
Warren Buffett
RÍKI Evrópu-
sambandsins
munu leggja því
lið, á fundi leið-
toga G20-
ríkjanna í Pits-
burgh í Banda-
ríkjunum í næstu
viku, að áfram
verði stutt með
beinum fjár-
framlögum við
efnahagslífið í heiminum. Þetta
kemur fram í drögum að afstöðu
ESB-ríkjanna á fundinum, að því er
fram kemur í frétt á fréttavef Reu-
ters-fréttastofunnar.
Fyrirhugað er að ræða á G20-
fundinum um hvernig og hvenær
stjórnvöld eigi að taka sig saman um
að draga úr fjárhagslegum stuðningi
við efnahagslífið. Þá er einnig ætl-
unin að ræða um ýmsar nýjar reglur
í tengslum við fjármálamarkaðinn.
Þar á meðal er við því að búast að
bónusar bankastjórnenda verði of-
arlega á lista. gretar@mbl.is
Áfram verði
stutt við efna-
hagslífið
Lagarde Frá
Frakklandi.
AnnarhfRekstrarverkfræðistofan
Suðurlandsbr. 46 • Sími 568 1020 • Annar.is
a ÁrsreikningarBókhald
Skattframtöl
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafskutlur
-frelsi og nýir
möguleikar
Einfaldar í notkun
og hagkvæmar
í rekstri
dögun capitaldc
Dögun Capital er ráðgjafafyrirtæki
sem sérhæfir sig í raunhæfum lausnum
• Fjárhagsleg endurskipulagning
• Sala og samruni fyrirtækja
• Rekstrarlegar úttektir, fyrir kröfuhafa
og fjármálastofnanir.
Dögun Capital hefur lausnina fyrir þig.
Hafðu samband, það kostar ekkert.
FYRIRTÆKJA
EIGENDUR
Dögun Capital
Smiðjuvegur 10
200 Kópavogur
Sími 414 8440
- fyrirtækjaráðgjöf
www.doguncapital.is
Yfir 33.000
heimsóknir á viku