Morgunblaðið - 17.09.2009, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009
Fréttir 5
„ÞAÐ hefur fallið mér vel á mínum
starfsferli að eiga við uppbyggingar-
verkefni, flókin verkefni sem margir
koma að og útheimta fjölþætta skipu-
lagningu,“ segir Þorsteinn Þor-
steinsson rekstrarhagfræðingur um
langa ferilskrá sína, sem lengdist
óvænt í ársbyrjun þegar honum var fal-
ið að stýra viðræðum við kröfuhafa
gömlu bankanna fyrir hönd stjórn-
valda.
Aðspurður hvaða starf sé eftirminni-
legast segir Þorsteinn að það hafi verið
ákaflega ánægjulegt og gefandi að
koma að uppbyggingu steinullar-
verksmiðjunnar á Sauðárkróki á sínum
tíma.
Hvað alþjóðlega reynslu sína snertir
gagnist hún vitanlega í þeim verk-
efnum sem fyrir liggja.
Þorsteinn er víðförull með afbrigðum
en á dögum sínum hjá Norræna fjár-
festingarbankanum í Helsinki var hann
tíður gestur hjá fjármálafyrirtækjum í
Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum.
baldura@mbl.is
Starfsferill | Þorsteinn Þorsteinsson
Var bæjarstjóri á Sauðárkróki
Morgunblaðið/Heiddi
Reynslumikill Þorsteinn Þorsteinsson er víðförull með afbrigðum.
Menntun
1966 Samvinnuskólapróf.
1970 BS í viðskiptafræði við Viðskiptaháskólann í
Kaupmannahöfn. (CBS)
1972 MS-próf í rekstrarhagfræði við sama skóla.
Starfsferill
1972-1975 Kostnaðareftirlit og markaðsrannsóknir hjá
Minnesota Mining and Manufacturing Co. í Kaup-
mannahöfn.
1975 Ráðgjafi hjá Hagvangi í Reykjavík. Einkum rekstr-
arráðgjöf við iðnfyrirtæki og sveitarfélög.
1978 Ráðinn bæjarstjóri á Sauðárkróki. Starfar í eitt
kjörtímabil til ársins 1982. Hugar jafnframt að upp-
byggingu steinullarverksmiðju.
1982 Fyrsti framkvæmdastjóri steinullarverksmiðj-
unnar. Að hluta til var hún fjármögnuð með láni frá
Norræna fjárfestingarbankanum í Helsinki.
1986 Hefur störf hjá Norræna fjárfestingarbankanum.
Sér fyrst um lánamál fyrir Ísland, Danmörku og Noreg.
Boðin staða í fjármáladeild bankans 1990 og verður
framkvæmdastjóri hennar 1994-1996. Sér meðal ann-
ars um fjármögnun bankans 1990-1996 með útgáfu
skuldabréfa á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
1996 Gerist framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Bún-
aðarbankans í Reykjavík og stjórnar uppbyggingu
þess.
2001 Gerist bankastjóri Búnaðarbankans Int. í Lúx-
emborg sem þá er nýstofnaður, en hættir störfum þar
þegar Landsbankinn kaupir bankann 2003.
2003 Sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Vinnur meðal ann-
ars fyrir stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga og gerir úttekt
á starfsemi sjóðsins.
2005 Ráðinn framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfé-
laga og tekur þátt í breytingum á honum í fjármálafyr-
irtæki undir eftirliti FME og í opinbert hlutafélag í eigu
sveitarfélaga.
2008/2009 Segir starfi sínu hjá lánasjóðnum lausu
frá áramótum og hyggst setjast í helgan stein.
Febrúar 2009 Kallaður til verkefna í fjármálaráðuneyt-
inu þar sem honum er falið að leiða viðræður ríkisins
sem eiganda nýju bankanna við gömlu bankana.
SKIPHOLTI 17 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 588 4699 - FAX: 588 4696 - VEFSÍÐA: OBA.IS - NETFANG: OBA@OBA.IS
Þú þekkir okkur af gæðunum - og lága verðinu!
GÆÐAPRENTARAR Í NÚTÍÐ OG FRAMTÍÐ
Nú fetum við okkur inn á nýjar brautir og hefjum sölu á OKI laserprenturum og
fjölnotatækjum og mörkum 90 ára afmæli fyrirtækisins með þessu þrepi.
Heimsækið okkur og kynnist OKI prentlausnum. Nokkur tæki á kynningarverði.
Loksins...loksins !!!
LITA laser á almennilegu verði !
Nettengjanlegur.
USB / Ethernet tengi.
Prenthraði: 16 síður á mínútu í lit, 20 síður á mínútu í svörtu.
Tvíhliðaprentun (handvirkt duplex) fyrir Windows stýrikerfi.
Upplausn: 1200 x 600 dpi.
Bakki fyrir allt að 250 arkir.
Vinnsluminni 32 Mb., stækkanlegt í 288 Mb.
Notkun:
Meðalnotkun pr mánuð: 500 - 2.000 síður.
Hámarksnotkun pr. mánuð: 35.000 síður.
Arkamatari fyrir 250 arkir.
LITA LASER !
Prentar á báðar hliðar (duplex).
Prenthraði: 28 síður á mínútu.
Upplausn: 1200 x 1200 dpi.
Vinnsluminni: 64 mb., stækkanlegt í 320 Mb.
Með háhraða USB- og parallell tengi.
Notkun: Hámarksnotkun pr. mánuð: 70.000 síður.
Öflugur og ódýr laserprentari !
PRENTARI - LJÓSRITUNARVÉL - SKANNI - FAX
Upplausn: 600 - 2400 dpi.
Allar rekstrarvörurnar ...
Öflug þjónustudeild...
Með OKI MB280 fjölnotatækinu (multifunction) má prenta,
ljósrita, skanna og senda fax, allt með sama tækinu.
Arkabakki fyrir 250 síður.
Vinnsluminni 32 Mb.
Gerð C3450n Verð 58,700.-
Gerð B430d Verð 54.280.-
Gerð MB280
Verð 49,730.-
Prentupplausn: 600 x 1200 dpi.
Prenthraði: 20 síður á mínútu.
Prentun:
Ljósritun:
Ljósritunarhraði: 20 síður á mínútu.
Upplausn: 600 x 600 dpi.
Stækkun: 25% til 400%
Upplausn: 600 x 600 dpi.
Minni: 2 Mb. dugar fyrir 125 síður.
Skönnun:
Fax:
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn