Morgunblaðið - 17.09.2009, Side 6

Morgunblaðið - 17.09.2009, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009 6 Fréttir Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is V on er á niðurstöðum nefndar þriggja ráð- herra um frekari að- stoð við heimilin í landinu en nú þegar er boðið upp á um næstu mánaðamót. Þó niðurstaða liggi ekki fyrir bendir flest til þess að útkoman verði sambland af aðlögun á greiðslubyrði heimila að greiðslu- getu þeirra annars vegar, og ein- hvers konar niðurfærsla á skuldum að hluta hins vegar. Hjá fyrirtækinu Creditinfo eru til upplýsingar sem hægt er að nota til að tryggja samræmdar að- gerðir til aðstoðar heimilunum. Hákon Stefánsson, starfandi stjórnarformaður Creditinfo á Ís- landi, segir að þetta sé mikilvægt, því þegar stjórnvöld hafi tekið ákvörðun um aðgerðir til að að- stoða vegna skuldavanda heim- ilanna, þá verði gríðarlega mik- ilvægt að tryggja samræmingu. Í slíkum tilvikum séu upplýsing- arnar um lántakendur lykilatriði svo fremi að þær séu nýttar á rétt- an hátt til að spá um greiðslugetu í framtíðinni. „Fólk verður að hafa vissu fyrir því að allir sitji við sama borð,“ segir Hákon. „Það næst ekki fram ef lánastofnanir afgreiða erindin hver á sinn hátt. Ég held hins veg- ar að það sé heppilegast að erindin verði afgreidd hjá lánastofn- ununum þar sem skuldir fólks eru, en stjórnvöld marki úrræðunum tiltekinn ramma. Niðurstöður lána- stofnana væri hægt að keyra sam- an við áhættumat Creditinfo, eða einhverja sambærilega mælistiku sem í öllum tilvikum myndi byggja á sömu gögnum. Þannig er hægt að ganga úr skugga um að inn- byrðis samræmi verði á milli ákvarðana lánastofnana.“ Hákon bendir jafnframt á að gagnlaust sé að taka út skulda- stöðu einstaklinga á tilteknum tímapunkti, líkt og Seðlabankinn gerði, og ætla að nota það við ákvörðun afskrifta. „Þegar til stendur að færa niður skuldir fólks þá lýtur slíkt að greiðslugetu þeirra í framtíðinni. Þó ein- staklingur hafi getað staðið í skil- um í febrúar síðastliðnum þá segir slíkt ekkert um það hvort sá hinn sami geti gert það eftir eitt ár. Af því leiðir að einhvers konar áhættumat, er segir fyrir um greiðslugetu í framtíðinni, þarf að vera grundvöllur afskrifta skulda en ekki punktstaða í fortíðinni. Slíkt mat þarf að byggjast á yf- irgripsmiklum fjárhagsupplýs- ingum, sérstaklega sögulegum gögnum, sem og upplýsingum um t.d. atvinnumissi fólks.“ Greiðsluviljinn má ekki hverfa Hákon segist telja að vænt- anlegar aðgerðir hljóti að verða í megindráttum tvíþættar. „Ég tel reyndar að ekkert annað komi til greina en að hvort tveggja komi til, þ.e. aðlögun greiðslubyrðar að greiðslugetu annars vegar, og nið- urfærsla skulda að hluta hins veg- ar. Hvor leið um sig dugar ekki til. Ástæðan er einfaldlega sú að ef skuldir eru afskrifaðar hjá öllum, þar með talið þeim sem staðið geta undir skuldunum, þá minnkar svig- rúmið til afskrifta hjá þeim sem í raun standa ekki undir sínum skuldum. Um leið þarf að gæta þess að þeir sem hafa greiðslugetu standi við skuldbindingar sínar en hafi um leið möguleika á að semja um lengri greiðslutíma og/eða betri kjör. Ef rétt er staðið að málum þá yrði raunin sú að bankarnir fengju líklegast meira greitt ef skuldir yrðu niðurfærðar í samræmi við greiðslugetu þar sem slíkt eykur Morgunblaðið/Árni Sæberg Creditinfo Hákon Stefánsson, stjórnarformaður Creditinfo á Íslandi, og Rakel Sveinsdóttir framkvæmdastjóri. Gagnslaust að horfa á tiltekinn tímapunkt   /"  #  "# 0 "  1 !  2 "#  " !"#$ %$% !"&&# &'!% !#(' %$# #)$ "*( &*( !#" ""! !$% !)"" $)* %*) *$) $(+ !'#'+ "$)&+ %)$&+ %!%&+ ")&&+ #%"+    3 & # 4#!# 56789:;:+3<            ! " #                       =  0       0 • Lítil en rótgróin bílaleiga. Auðveld kaup. • Þekkt skyndibitakeðja. • Rótgróin heildverslun með gjafavörur. Auðveld kaup. • Lítil heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 80 mkr. Hentar vel til sameiningar. • Þjónustufyrirtæki sem selur um 600 fyrirtækjum þjónustu sína. Ársvelta 100 mkr. • Vinsælt veitingahús. Ársvelta 230 mkr. • Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að þjónustu- og innflutningsfyrirtæki. Ársvelta áætluð um 200 mkr. Ágætur hagnaður. • Heildverslun með byggingavörur. Ársvelta 170 mkr. Mjög skuldsett. • Meðeigandi óskast að nýju framleiðslufyrirtæki. Reiknað er með 30-35% árlegri ávöxtun eigin fjár næstu árin. • Sérverslun með fatnað á góðum stað. Ársvelta 150 mkr. Góð framlegð. • Iðnfyrirtæki í matvælaframleiðslu með mikinn og vaxandi útflutning. Ársvelta 240 mkr. • Rótgróið iðnfyrirtæki. Ársvelta 450 mkr. • Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 400 mkr. Hagstæðar skuldir. • Rótgróið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 130 mkr. • Þekkt innflutningsfyrirtæki með eigin verslanir. Ársvelta 240 mkr. EBITDA 35 mkr. Hagstæðar skuldir. Hlutabréf í VBS Fjárfestingarbanka hf. 275.000 bréf til sölu á genginu 10 kr. Upplýsingar í síma 893-3393 Á SAMA tíma og íbúðaverð hefur lækkað hefur byggingarkostnaður hækkað, en vísitala byggingarkostn- aðar hefur hækkað um 11,5% á síð- ustu tólf mánuðum. Gengisþróun krónunnar er þar helst um að kenna en hún hefur leitt til mikillar hækk- unar á ýmsu innfluttu bygging- arefni, að því er fram kemur í Morg- unkorni Greiningar Íslandsbanka. Segir í Morgunkorninu að þessi þróun leiði til þess að arðsemi í byggingu íbúða fari minnkandi en hún hafi dregist umtalsvert saman á síðustu misserum. Verulega hafi dregið úr byggingu íbúðarhúsnæðis að undanförnu, sem að miklu leyti eigi rætur að rekja til minnkandi arðsemi og samdráttar í eftirspurn. „Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um 12% að nafnvirði og 32% að raun- virði frá því að hápunktinum var náð á íbúðamark- aði í byrjun síð- asta árs,“ segir í Morgunkorninu. „Opinberar spár um þróun hús- næðisverðs á næstu misserum gera ráð fyrir frekari verðlækkunum á fast- eignamarkaði. Samkvæmt þeim mun íbúðaverð lækka hátt í 50% að raunvirði frá því að hápunktinum var náð áður en yfirstandandi lægð lýkur á fasteignamarkaði árið 2011. Samkvæmt því mati er enn umtals- verð lækkun húsnæðisverðs í píp- unum.“ gretar@mbl.is Arðsemi í íbúðabyggingum dregst umtalsvert saman Byggingar Arð- semin minnkar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.