Morgunblaðið - 17.09.2009, Síða 7

Morgunblaðið - 17.09.2009, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009 Fréttir 7 TÆPLEGA tuttugu þúsund ein- staklingar eru nú á vanskilaskrá. Samkvæmt spálíkani Creditinfo er líklegt að um 7.500 einstaklingar til viðbótar muni bætast á þessa skrá á næstu tólf mánuðum, að öllu óbreyttu. Á vanskilaskrá fara eingöngu mál sem komin eru í svokallaða löginn- heimtu, þ.e. innheimtu á grundvelli réttarfarslaga. Viðkomandi ein- staklingar hafa því verið í van- skilum í talsverðan tíma áður en þeir lenda á vanskilaskrá. Talsvert fór að bera á auknum vanskilum í byrjun árs 2008, en þau hafa síðan aukist stöðugt frá bankahruninu í október í fyrra. Til- kynningar um löginnheimtu, sem Creditinfo safnar saman, voru um 71% fleiri á fyrstu sjö mánuðum þessa árs en á sama tímabili á síð- asta ári. Stærsti hlutinn 30 til 49 ára Samkvæmt upplýsingum frá Creditinfo eru flestir sem skráðir eru á vanskilaskrá fólk með börn á framfæri. Aldursbilið frá 30 ára og upp í 49 ár vegur þar þyngst. Brottflutningur lítill Um miðjan ágúst síðastliðinn höfðu um fimm þúsund ein- staklingar flutt af landi brott. Þar af voru 2.342 með íslenskt rík- isfang. Þetta er ekki mikil fjölgun miðað við síðustu ár. Creditinfo tel- ur engu að síður að vísbendingar séu um að fólksflótti sé hugsanlega framundan. Hlutfallslega fá gjaldþrot Ekki er algengt að einstaklingar hér á landi séu gerðir gjaldþrota. Hins vegar er algengt að ein- staklingar verði greiðsluþrota, þ.e. viðkomandi eigi ekki eignir umfram skuldir. Árið 2008 voru 198 ein- staklingar gerðir gjaldþrota, sam- kvæmt upplýsingum frá Creditinfo. Hins vegar voru tæplega 5.200 ein- staklingar greiðsluþrota með skrán- ingunni árangurslaust fjárnám. Að sögn Rakelar Sveinsdóttur eru helstu ástæður þess að hlut- fallslega fáir einstaklingar verða gjaldþrota meðal annars þær, að kostnaður kröfuhafa af slíkri að- gerð sé töluverður. Auk þess sé ávinningur af gjaldþrotaskiptum al- mennt lítill, nema þrotamaður hafi komið eignum undan. Hins vegar sé oftast óskað eftir gjald- þrotaskiptum ef krafa er há, ef háttsemi skuldara hefur verið „sviksamleg“ eða grunur er um undanskot eigna. Um 7.500 bætast líklega viðgreiðsluvilja fólks. Þannig er al-gjörlega nauðsynlegt að aðgerð-irnar stuðli að því að koma í veg fyrir að greiðsluviljinn hverfi hjá þeim sem geta borgað hluta sinna skulda. Ef almenningur sér fram á að vera bundinn á skuldaklafa of lengi missir fólk greiðsluvilja. Mik- ilvægt er að horfa til reynslu ann- arra þjóða í þessu sambandi og þá kannski sérstaklega Asíu þar sem stjórnvöld gripu til aðgerða af þessu tagi fyrr á þessum áratug. Svo fremi sem niðurfærsla skulda tekur mið af spá um framtíð- argreiðslugetu þá er ekki hægt að halda því fram að lánveitendur tapi á slíkri niðurfærslu, það er að segja ef spáin byggist á réttum gögnum sem notuð eru með rétt- um hætti.“ Hann telur að meðal þess sem sé jákvætt við væntanlegar að- gerðir sé, að þær geti skapað tæki- færi fyrir ábyrgari vinnubrögð á lánamarkaði hér á landi til fram- tíðar en verið hafi. Þar sé ekki vanþörf á og ástæða til að horfa til reynslu annarra þjóða af slíku. „Það mætti t.d. velta því upp að hér yrði tekið upp það sem kallast óábyrgar lánveitingar eða „irres- ponsible lendings“. Þetta er hvað þekktast í Bretlandi og þýðir að horft er til stöðu lántaka á þeim degi sem hann fékk lán og metið hvort lánveitandi hafi mátt vita að verulegar líkur væru á vanskilum í framtíðinni. Erlendu lánin hér á landi væru líkleg til að falla hér undir, þar sem lánveitendum mátti vera ljóst að lánveitingar í erlendri mynt væru gríðarlega áhættu- samar fyrir lántaka með tekjur í íslenskum krónum. Hinu sama mundi gegna um lánveitingar sem hefðu byggt á hærri greiðslugetu lántakans eða minni skuldsetningu. Í tilvikum sem þessum er litið svo á að það sé sanngjarnt og eðlilegt að lánveitandinn taki hluta af áhættunni sem honum mátti vera kunnugt um í upphafi,“ segir Há- kon. Upplýsingar hjá Creditinfo Rakel Sveinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, tekur undir með Hákoni um mik- ilvægi þess að stuðlað verði að ábyrgari lánveitingum á fjár- málamarkaði. Ekki megi horfa ein- göngu til þeirra sem eru í erf- iðleikum í dag. Þeim gæti fjölgað hratt. Aðgerðir stjórnvalda verði því einnig að ná til þeirra sem lík- lega munu lenda í erfiðleikum í ná- inni framtíð, því hópurinn stækki stöðugt eins og aðstæður eru nú. „Væntanlegar aðgerðir þurfa að vera trúverðugar fyrir almenning en ekki síður fyrir samstarfsaðila eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn,“ segir Rakel. „Við eigum líka að horfa strax til þess hvað aðrar þjóðir hafa gert til að mæla árang- ur úrræðna. Sjálf höfum við sér- staklega horft til Finna í því sam- bandi, en þeir nýttu sér ýmsar leiðir til að sjá hvort úrræði skil- uðu sér í raun til þeirra sem mest þurftu á því að halda. Í þessu sam- hengi má t.d. horfa á þann hóp fólks sem er í vaxandi erfiðleikum í kjölfar atvinnumissis.“ Hjá Creditinfo liggja fyrir upp- lýsingar sem gefa nokkuð góða mynd af skuldastöðu heimila og fyrirtækja. Spálíkan Creditinfo segir fyrir um þróun á skuldastöðu og þar með á hugsanlegum erf- iðleikum heimila og fyrirtækja í framtíðinni. Umrætt líkan var smíðað af fyrirtæki í eigu Credit- info SCHUFA, sem er í eigu þýska félagsins SCHUFA og Creditinfo Group, og byggir það m.a. á reynslu manna frá lánamörkuðum í Bretlandi, Þýskalandi og Asíu. Rakel segir að spálíkanið hafi reynst mjög vel og spágildin séu mjög nálægt raunveruleikanum. Hjá fyrirtækinu séu því umtals- verðar upplýsingar og gögn sem gætu reynst vel í þeirri óhjá- kvæmilegu vinnu sem framundan er við að aðstoða heimilin í land- inu. „Við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að hjálpa til, hvort sem er fyrir stjórnvöld eða aðila eins og Seðlabankann,“ segir Rakel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.