Morgunblaðið - 17.09.2009, Síða 8
• Hagstæðar afborganir
• Söluaðilar geta valið um lán með breytilegum vöxtum eða vaxtalaus
• Söluaðilar greiða ekkert þjónustagjald af Kortalánum
• VALITOR greiðir út til söluaðila annan virkan dag eftir að sala fer fram
FYRIRTÆKJALAUSNIR VALITOR • Laugavegi 77 • 101 Reykjavík • fyrirt@valitor.is • www.valitor.is
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Æ
tli það megi ekki segja að ég sé í svona
120% vinnu eins og svo margir Íslend-
ingar sem eru í tveimur störfum,“
segir Erna Bjarnadóttir, stjórn-
arformaður Nýja Kaupþings og hag-
fræðingur hjá Bændasamtökunum, um álagið sem fylgir
því að dreifa kröftunum.
„Það má segja að stjórnarformennskan hjá Nýja
Kaupþingi feli í sér tvær megináherslur. Annars vegar
þarf að stýra bankanum þangað til frestur fyrir kröfu-
hafa til að ákveða hvort þeir kaupi bankann rennur út 31.
október og hins vegar eru það skuldaúrvinnslumálin í
margvíslegri mynd. Við kynntum í byrjun vikunnar upp-
færðar verklagsreglur vegna skuldaúrvinnslu fyrir-
tækja, svo eitthvað sé nefnt. Hjá Bændasamtökunum er
ég aftur á móti aðallega að fást við verkefni sem tengjast
aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.“
– Hvernig tóku samtökin stjórnarformennskunni?
„Minn vinnuveitandi tók því mjög liðlega þegar til mín
var leitað að gegna stjórnarformennskunni tímabundið.
Ég verð á móti í sumarfríi eða í launalausu leyfi því að
það er ekki hægt að vinna Kaupþingsverkefnið að öllu
leyti utan venjulegs vinnutíma.“
– Og hvernig gengur að sinna starfinu hjá samtök-
unum á meðan?
„Ég myndi segja að ég sé í svona 80% vinnu þar og að
hitt sé svona 30-40% vinna. Hjá Kaupþingi erum við oft
með fundi seinnipart dags.“
Leiðin lá til Wales
Erna lagði stund á viðskiptanám í Samvinnuskólanum
á Bifröst, þar sem hún lauk stúdentsprófi, og hélt þaðan í
Bændaskólann á Hólum. Erna lauk svo BS-námi í búvís-
indum frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og hélt
svo áfram á sömu braut er hún hóf nám við University
College of Wales þaðan sem hún hefur MSc-gráðu í land-
búnaðarhagfræði.
Hún hefur starfað hjá Hagþjónustu landbúnaðarins,
þar sem hún var síðast forstöðumaður til ársloka 1996,
ásamt því að hafa sinnt kennslu í bókhaldi og hagfræði á
Hvanneyri og ráðgjöf fyrir bændur.
Á unglingsárunum sinnti Erna bústörfum hjá for-
eldrum sínum á Stakkhamri á Snæfellsnesi á milli náms-
vetra en fyrsta starfið þar fyrir utan var afgreiðsla í
verslun á Vegamótum. Starf í sláturhúsi kemur einnig
upp í hugann hjá henni.
Erna er mikil hestakona og grípur hvert tækifæri um
vetur sem sumar til að fara í útreiðartúra með dætrum
sínum, Selmu, sem er 14 ára, og Lindu, sem er fjórum ár-
um eldri, en saman búa þær þrjár á Seltjarnarnesinu.
Selma æfir handknattleik og reynir Erna að vera dug-
leg að fylgjast með kappleikjum hennar. Erna hefur
gaman af því fylgjast með íþróttum og eru knattspyrna
og frjálsar íþróttir þar efst á blaði. Sjálf hjólar hún og
syndir í frístundum. Erna segir stelpurnar sáttar við fyr-
irkomulagið tímabundna, enda séu þær stálpaðar.
„Ég held að þær séu bara stoltar af mömmu sinni.“
– Hvað um athyglina sem hún fær?
„Ég held að þær taki henni bara vel,“ segir Erna sem
reiknar með að ljúka störfum hjá bankanum í októberlok
Erna Bjarnadótt-
ir, stjórnarfor-
maður Nýja Kaupþings og hagfræð-
ingur hjá Bændasamtökunum, hefur
í nógu að snúast þessa dagana. Dæt-
ur hennar kvarta þó ekki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hagfræðingur Erna Bjarnadóttir tók við stjórnarfor-
mennsku í Nýja Kaupþingi um síðustu mánaðamót.
Bregður sér á bak
við hvert tækifæri
SVIPMYND»
VÍSINDAMENN við háskólann í
Warwick í Bretlandi stóðu frammi
fyrir töluverðum vanda þegar þeir
vildu smíða þrívíddar tölvumódel af
því hvernig rafstraumur ferðast um
hjarta. Vildu þeir m.a. komast að
því hvernig rafstraumurinn fer
framhjá skemmdum hjartafrumum.
Til að vinna þessa vinnu töldu
þeir sig þurfa að bóka tíma hjá of-
urtölvu eða eyða tugum þúsunda
punda í tölvuvélbúnað sjálfir.
Forstöðumaður rannsóknarinnar
þekkti hins vegar til leikjatölv-
unnar Xbox 360, einkum graf-
íkkubbsins í vélinni. Með því að
kaupa eina leikjatölvu og rífa graf-
íkkubbinn úr henni spöruðu vís-
indamennirnir stórfé. Ritgerð um
rannsóknina og eiginleika graf-
íkkubbs Xbox 360 birtist nýlega í
tímaritinu Computational Biology
and Chemistry. bjarni@mbl.is
Xbox í stað ofurtölvu
Í KAUPHÖLLINNI í Chicago (CME) er verslað með
ótrúlegustu afleiður og vafninga, en þeir undarleg-
ustu gætu verið veðurafleiður. Í afar einföldu máli
veðja fjárfestar um hvernig veður verði í tilteknum
heimshlutum eftir ákveðinn tíma. Byggjast afleið-
urnar á því að framleiðsla á ákveðnum matarteg-
undum er í mörgum tilvikum bæði staðbundin og
háð verði.
Slæmt veður í Flórída eða þurrkur í Kaliforníu getur haft gríðarleg
áhrif á verð á appelsínusafa. Þá getur hitastig haft mikil áhrif á orku-
neyslu. Raforkufyrirtæki í Bretlandi hafa t.d. sagt að einnar gráðu munur
á meðalhita geti valdið sveiflum á neyslu á jarðgasi um 5%. Hið alræmda
orkufyrirtæki Enron var fyrst til að selja veðurafleiður, en sá markaður
hrundi eftir fall fyrirtækisins. Nú er hann hins vegar kominn á skrið aftur.
bjarni@mbl.is
Fjárfesta í veðravafningum
Íþróttafélög, ekki síður en stjórn-
málaflokkar, biðla til fyrirtækja um
alls konar styrki. Og sumir vilja frekar
vera í liði með íþróttafélögum en að
hengja sig á klafa pólitískra flokka.
Ekkert nema gott um það að segja
að eigendur fyrirtækja vilji byggja upp
öflug íþróttafélög.
Í þeim hópi eru til dæmis bræð-
urnir Karl og Steingrímur Werners-
synir. Í úttekt Ernst & Young á samn-
ingum og viðskiptum félagsins er
hægt að lesa í hvaða liði eða liðum
þeir eru.
Breiðablik fékk í fyrra samtals sjö
milljónir króna í styrk frá Milestone.
Karl mun vera dyggur stuðnings-
maður liðsins og styður við bakið á
sínu fólki. Því fékk Blikaklúbburinn
einnig styrk árið 2008 upp á 7,2
milljónir. Samtals því 14,2 milljónir
króna til Blikanna.
En hvað um Steingrím? Hann varð
auðvitað líka að styðja við bakið á
sínum mönnum. Það var því úr að
Handknattleiksfélag Kópavogs, HK,
fékk sjö milljónir, eins og Breiðablik,
í styrk frá Milestone í fyrra.
Kópavogsfélögin eru þeim bræðr-
um því ofarlega í huga.
En ekki bara Kópavogsfélög því
Valur fékk að fljóta með og fékk af-
hentan styrk upp á 2,5 milljónir
króna.
Allir verða að fá að halda með
sínu liði – ekki síst íþróttaliði
ÚTHERJI