Morgunblaðið - 26.10.2009, Page 1
MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2009
íþróttir
Sæt hefnd Fernando Torres og David N’Gog tryggðu Liverpool 2:0 sigur í stórleiknum gegn
meistaraliði Man United. Þungu fargi létt af Rafael Benítez. Arsenal tapaði tveimur stigum 7
Íþróttir
mbl.is
ÓSKAÐ hefur
verið eftir því
að Guðjón Val-
ur Sigurðsson
og Ólafur Stef-
ánsson gefi
kost á sér í
heimsúrvalið í
handknattleik
sem mætir
landsliði Kró-
atíu miðviku-
daginn 2. desember í sýning-
arleik í tilefni 60 ára afmælis
Handknattleikssambands Króatíu.
Þetta er gert í framhaldi af til-
kynningu um sama efni frá því í
sumar en þá voru Snorri Steinn
Guðjónsson og Sigfús Sigurðsson
einnig valdir í heimsliðið. Þeir
eru hins vegar ekki á lista þeim
sem settur var inn á heimsíðu
Handknattleikssambands Króatíu
um helgina. Hvernig á því stend-
ur að Snorri og Sigfús hafa fallið
út af listanum hefur ekki fengist
skýring á.
Landsliðsþjálfari heims- og ól-
ympíumeistara Frakka, Claudio
Onesta, á að stýra heimsúrvalinu
í fyrrgreindum afmælisleik sem
fer fram í Zagreb. iben@mbl.is
Guðjón og
Ólafur í
heimsliðið
Ólafur
Stefánsson
ÓLÖF Edda Eðvarðsdóttir, Íþrótta-
bandalagi Reykjanesbæjar, héldur
áfram að slá aldursflokkametin í
meyjaflokki í sundi. Hún setti
glæsilegt met meyja í 100 metra
bringusundi á sundmóti Sundfélags
Hafnarfjarðar í Hafnarfjarðarlaug
í gær þegar hún synti á 1.17.95 mín-
útur. Gamla metið átti Lára Hrund
Bjargardóttir, Ægi, 1.18,58 og var
það sett fyrir 16 árum.
Þetta er annað metið sem Ólöf
Edda setur á skömmum tíma.
Ólöf Edda á ekki langt að sækja
sundhæfileikana en faðir hennar er
Eðvarð Þór Eðvarðsson einn
fremsti sundmaður sem þjóðin hef-
ur átt og Íþróttmaður ársins árið
1986. iben@mbl.is
Sjaldan fellur
eplið langt
frá eikinni
Góð Ólöf Edda Eðvarðsdóttir.
Morgunblaðið/RAX
Barist Eyþór Magnússon, Ragnar Hjaltested og Atli Ævar Ingólfsson berjast hart um knöttinn í viðureign HK og Stjörnunnar í Digranesi síðdegis í gær.
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
MARGRÉT Lára Viðarsdóttir,
markahæsti leikmaður kvennalands-
liðs Íslands í knattspyrnu frá upp-
hafi, varð að fara meidd af velli eftir
hálftíma leik gegn Frakklandi í und-
ankeppni HM á laugardag þar sem
Frakkar höfðu betur, 2:0. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu fyrir
helgi á Margrét við meiðsli í lærum
að stríða sem lýsa sér þannig að
himnan utan um lærvöðva er of
þröng og hún getur því ekki beitt sér
sem skyldi.
„Það kom okkur í opna skjöldu að
hún þyrfti að fara út af svona
snemma. Hún finnur alltaf fyrir
þessum meiðslum en suma daga get-
ur hún æft og spilað án þess að það
skipti máli. Aðra daga er hún hins
vegar viðþolslaus af sársauka og það
var þannig í þessum leik,“ sagði Sig-
urður Ragnar Eyjólfsson landsliðs-
þjálfari í samtali við Morgunblaðið.
Það er því óvíst hvort Margrét
getur tekið þátt í leiknum við Norð-
ur-Írland í Belfast á miðvikudag.
„Þetta kemur líklega ekki í ljós
fyrr en í upphitun á leikdegi. Við
reynum eins og við getum að hafa
hana klára í slaginn á miðvikudaginn
en það er ekki víst að meðferð hjá
sjúkraþjálfara hjálpi neitt við það.
Þetta eru mjög sjaldgæf meiðsli sem
virðast vera að hrjá hana en þau
valda því að hún finnur oft mikið til
þegar hún tekur spretti og slíkt.
Hún er búin að æfa lítið undanfarið
út af þessu og stefnir bara á að klára
tímabilið með liði sínu, Kristianstad,
áður en reynt verður að laga þetta.
Það kom okkur samt sem áður á
óvart hve slæm þessi meiðsli eru og
við reiknuðum með að hún gæti spil-
að þennan leik gegn Frökkum.“
Sigurður Ragnar gæti einnig
þurft að vera án Söru Bjarkar Gunn-
arsdóttur sem missti af Frakka-
leiknum vegna veikinda en hún fór
með hópnum til Belfast.
„Sara er hægt og bítandi að jafna
sig og vonandi verður hún búin að ná
sér á miðvikudaginn. Við settum
hana bara í einangrun ef svo má
segja, enda er þetta bráðsmitandi
flensa, þannig að hún borðar ekki
með hópnum og sefur ein í herbergi
og slíkt,“ sagði Sigurður Ragnar.
Margrét og Sara ekki með?
Meiðsli hrjá Margréti Láru sem gæti misst af leiknum við N-Íra á miðvikudag
Fór sárþjáð af velli í leiknum gegn Frökkum Sara í kapphlaupi við tímann
Margrét Lára
Viðarsdóttir
Sara Björk
Gunnarsdóttir