Morgunblaðið - 26.10.2009, Side 2

Morgunblaðið - 26.10.2009, Side 2
„VIÐ vorum svolítið lengi í gang. Þetta snérist bara um þolinmæði hjá okkur, því við vissum að þær myndu hanga svolítið á boltanum til þess að gera okkur óþolinmóðar. Þegar á leið þá var þetta bara spurning um hvenær við myndum stinga þær af,“ sagði Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, fyrirliði og marka- hæsti leikmaður Vals, eftir stór- sigur á ungu og efnilegu liðið HK, 36:18, í úrvalsdeild kvenna í hand- knattleik í Digranesi í gær. HK-liðið, sem hafði í gær á að skipa sjö leikmönnum sem jafn- framt leika með unglingaflokki, hélt í við Val fyrstu 20 mínútur leiksins í gær. Á lokakafla fyrri hálfleik skellti hið sterka lið Vals í lás og skoraði sjö síðustu mörk hálf- leiksins. Staðan var 16:8, að honum loknum og úrslitin svo gott sem ráðin. Engu breytti þótt Valur skipti helstu leikmönnum sínum út af þegar á síðari hálfleikinn leið. Hrafnhildir lauk lofsorði á hið unga lið HK sem á svo sannarlega fram- tíðina fyrir sér. Valur hefur þar með hlotið sex stig úr þremur leikj- um en HK er um miðja deild með tvö stig að loknum þremur við- ureignum. Valur mætir Haukum í deildinni á miðvikudaginn en Haukar eru taplausir í öðru sæti með fjögur stig eftir tvo leiki. Einu taplausu lið deildarinnar mætast á miðvikudag- inn á heimavelli Hauka. „Það er mjög mikilvægur leikur fyrir bæði lið, ekki síst okkur vegna þess að okkur gekk illa gegn Hauk- unum á síðasta keppnistímabili. Við munum því leggja allt í sölurnar á miðvikudaginn, það er afar mikil- vægt, ekki bara fyrir stöðuna í deildinni heldur einnig fyrir haus- inn á okkur,“ sagði Hrafnhildur Skúladóttir. iben@mbl.is Fastar fyrir Heiðrún B. Helgadóttir fékk óblíðar viðtökur hjá Hrafnhildi Skúladóttur og Önnu Guðmundsd. Stórsigur hjá Val sem er taplaus á toppnum 2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2009 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. SUNNA Jóns- dóttir fór fyrir lið Fylkis í leik liðs- ins gegn KA/Þór í N1-deild kvenna á laugardaginn. Sunna skoraði 7 mörk fyrir Ár- bæjarliðið í 27:15 sigri á Akureyri. Það var ljóst í fyrri hálfleik að yfirburðir Fylkis væru miklir en 6 mörk skildu liðin að í hálfleik, 14:8 fyrir Fylki. KA/Þór er án stiga eftir þrjá leiki en KA/Þór stóð í liðum Fram og FH í fyrstu tveimur leikj- unum þar sem sóknarleikurinn var mun betri en í leiknum á laugardag. Emma Havin Sardardóttir skor- aði 5 mörk fyrir KA/Þór en aðeins 6 leikmenn skoruðu fyrir Akureyr- inga í leiknum. Fylkir tapaði naumlega fyrir Ís- landsmeistaraliði Hauka í fyrstu um- ferð 25:23 á heimavelli og var þetta fyrsti sigurleikur Fylkis á tíma- bilinu. Sunna María Einarsdóttir lét að sér kveða í sókninni ásamt nöfnu sinni Jónsdóttur. Sunna María skor- aði 6 mörk. seth@mbl.is „Sunnurnar“ úr Fylki sáu um KA/Þór Sunna María Einarsdóttir GUÐMUNDUR Karlsson þjálfari kvennaliðs FH í handboltanum verður eflaust með áherslur á úthald og þrek á næstu vikum ef marka má leik liðsins á laug- ardaginn gegn Ís- landsmeistaraliði Stjörnunnar. Aðeins þrjú mörk skildu liðin að í hálfleik, 17:14, en þegar leiknum var lokið hafði lið Atla Hilmarssonar landað 15 marka sigri, 40:25. Stjarnan er með 4 stig eftir þrjár umferðir en liðið tapaði 18:17 í fyrstu umferð gegn Val. FH er með 2 stig eftir 2 leiki en Fimleikafélagið lagði KA/Þór í fyrstu umferð. Elísabet Gunnarsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna og stórskyttan Alina Daniela Tamasan skoraði 7 en Tamasan var áður með eftirnafnið Petrache. Kristín Clausen skoraði 6 mörk fyrir meistaraliðið. Ragnheiður Rósa Guðmunds- dóttir skoraði 9 mörk fyrir FH og var langatkvæðamest. Sigrún Gils- dóttir skoraði 5. seth@mbl.is Þrekæfingar á dagskrá hjá FH-ingum? Elísabet Gunnarsdóttir VÍKINGUR er með lið í efstu deild kvenna í handbolta í fyrsta sinn í mörg ár og er ljóst að liðið þarf að fá tíma til að sanna sig. Á laug- ardaginn tapaði Víkingur stórt gegn Fram, 44:13. Staðan í hálfleik var 24:6. Víkingsliðið er ungt og í markinu stóð 15 ára stúlka, Díana Ágústsdóttir. Það er óhætt að segja að Díana hafi haft nóg að gera í sín- um fyrsta meistaraflokksleik. Guð- ríður Ósk Jónsdóttir skoraði 5 mörk fyrir Víking sem tapaði 47:13 í 2. umferð gegn Val. Anna María Guðmundsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Fram en 11 leikmenn komust á blað hjá Safa- mýrarliðinu. seth@mbl.is Ungt lið Vík- ings þarf tíma Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is MIKLU munaði fyrir HK að Valdimar Þórsson lék afar vel í síðari hálfleik eftir að hafa ekki verið svipur hjá sjón í þeim fyrri. Valdimar sem lék veikur skoraði níu af fjórtán mörkum liðsins í síð- ari hálfleik og lagði grunninn að nokkrum til viðbótar. Patrekur Jóhannesson var von- svikinn yfir að hafa tapað leiknum og sagði sína menn hafa farið illa að ráði sínu. „Við náðum fjögurra marka forskoti í byrjun síðari hálf- leik en vorum ekki nógu klókir í framhaldinu,“ sagði Patrekur sem einnig var óánægður með fram- göngu dómarana. „Það voru nokkrir hreint óskiljanlegir dómar í lokin sem ég skil ekki. Það er fúllt að þurfa að horfa upp á óskilj- anlega dóma hvað eftir annað sem nánast var hlegið að. Þetta minnti mig svolítið á Þýskaland, erfiður útivöllur, rólegt í húsinu og dóm- gæslan ekki sanngjörn. En þrátt fyrir þessa dómgæslu þá áttum við að vinna leikinn, við fengum tæki- færi til þess,“ sagði Patrekur. „Það var erfið fæðing á þessum sigri okkar. Sverrir Hermannsson meiddist snemma leiks og Valdi- mar veikur auk þess sem við erum með nokkra menn meidda og ekki alveg tilbúna í slaginn þótt ég hafi teflt þeim fram,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari HK sem er ánægður með stöðu liðsins í deild- inni. Morgunblaðið/RAX Snjall Valdimar Fannar Þórsson kemur skoti á mark Stjörnunnar eftir að hafa snúið á Vilhjálm Halldórsson, Sverri Eyjólfsson og Þórólf Nielsen. Valdimar fór á kostum HK situr á toppi N1-deildar karla í handknattleik taplaust eftir þrjár umferðir að loknum sigri á Stjörn- unni, 23:21, í Digranesi í gær. Stjarn- an var yfir í hálfleik, 11:10, og hafði frumkvæðið framan af síðari hálf- leiks þegar leikmenn liðsins fóru illa að ráði sínu hvað eftir annað í leik sem verður vart lengi í minnum hafð- ur fyrir að hafa verið vel leikinn. Digranes, Íslandsmótið í handknatt- leik, úrvalsdeild karla, N1 deildin, sunnudaginn 25. okt 2009. Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 4:1, 6:2, 7:10, 10:11, 10:14, 16.15, 16:18, 20:19, 21:21, 23:21. Mörk HK: Valdimar Fannar Þórsson 9/3, Ragnar Hjaltested 6/2, Atli Ævar Ingólfsson 3, Bjarki Már Gunn- arsson 1, Hákon Bridde 1, Bjarki Már Elísson 1, Ólafur Víðir Ólafsson 1/1, Vilhelm Gauti Bergsveinsson 1. Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 10. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Stjörnunnar: Jón Arnar Jóns- son 4, Kristján S. Kristjánsson 4, Þórólfur Nielsen 4/2, Daníel Ein- arsson 3, Sverrir Eyjólfsson 3, Vil- hjálmur Halldórsson 2/1, Guð- mundur S. Guðmundsson 1. Varin skot: Roland Valur Eradze 22/1 (þar af 7 til mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guðjónsson, vantaði alla línu í dóm- gæslu þeirra. Áhorfendur: 200. HK – Stjarnan 23:21 Morgunblaðið/RAX  Patrekur óhress með dómgæsluna  HK taplaust á toppnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.