Morgunblaðið - 26.10.2009, Page 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 2009
Föstudagur 30. okt. kl. 12.00-13.00 í E-sal Íþr.-miðstöðvar-
innar í Laugardal. Tengsl afmælisdaga og árangurs í íþróttum
– Ingi Þór Einarsson aðjúnkt við HÍ. Aðgangur ókeypis og
öllum heimill. Uppl. í síma 460-1467 og á vidar@isi.is.
Hádegisfundur ÍSÍ
Sjá nánar á www.isi.is
TROY Matteson er ekki þekktasti kylfing-
urinn á PGA-atvinnumótaröðinni í golfi en
hann á nú met sem mun eflaust standast tím-
ans tönn. Matteson hafði aldrei leikið 18 holur
á 61 höggi áður en Frys.com meistaramótið
hófst á fimmtudaginn. Matteson hefur nú gert
það tvívegis en hann lék á 61 höggi á öðrum og
þriðja keppnisdegi.Hann verður þrítugur í
nóvember og hefur einu sinni sigrað á PGA-
móti.
Steve Stricker átti PGA-mótsmetið eftir
þrjá hringi, 123 högg, en það setti hann á Bob
Hope meistaramótinu í janúar.
Það voru fleiri kylfingar sem voru í sviðs-
ljósinu á þriðja keppnisdegi. Nicholas Thomp-
son lék 11. brautina á 2
höggum eða 3 höggum und-
ir pari, en það heitir víst al-
batros. Og Thompson gerði
sér lítið fyrir og fór holu í
höggi á 13. braut sem er par
3. Tveir aðrir kylfingar fóru
holu í höggi á mótinu þriðja
keppnisdegi, báðir á 16.
braut Ted Purdy notaði 5-
járn og vann hann Merce-
des Benz-bifreið. Chad
Campbell kom aðeins síðar á teiginn og setti
boltann ofan í holuna með 6-járni.
seth@mbl.is
Mótsmet, albatros og hola í höggi
Troy
Matteson
ÞAÐ er óhætt að segja að sænski kylfing-
urinn Michael Jonzon hafi gert allt rétt á síð-
ustu stundu á lokadegi Castello meistara-
mótsins í golfi í gær. Jonzon varð að enda í
fyrsta eða öðru sæti á mótinu til þess að vera
öruggur með að halda keppnisrétti sínum á
næsta tímabili en hann hefur átt erfitt upp-
dráttar á Evrópumótaröðinni á þessu tíma-
bili. Jonzon gerði gott betur, því hann tryggði
sér sigur með því að setja niður pútt fyrir
fugli á síðustu holunni og er þetta fyrsti sigur
hans í 12 ár á Evrópumótaröðinni.
Martin Kaymer frá Þýskalandi endaði einu
höggi á eftir Jonzon líkt og Christian Nilsson
frá Svíþjóð. Jonzon, sem er 37 ára, var í 158.
sæti peningalistans fyrir
mótið á Spáni en 115. efstu
halda keppnisrétti sínum á
Evrópumótaröðinni. Hann
virtist vera að missa ein-
beitinguna á loka-
hringnum þegar hann fékk
skramba (+2) á 15. braut
og skolla (+1) á þeirri næst
síðustu. Hann setti hins-
vegar niður um 6 metra
langt pútt fyrir fugli á
lokaholunni og tryggði sér sigur, 60 milljón
kr. í verðlaunafé og tveggja ára keppnisrétt.
seth@mbl.is
Jonzon með stáltaugar á lokaholunni
Michael
Jonzon
HK og KA áttust við í gær í Mi-
kasa-deild karla og er óhætt að
segja að þar hafi liðin boðið upp á
miklar sviptingar. KA vann tvær
fyrstu hrinurnar, 25:6 og 25:20.
Kópavogsliðið náði að halda sér á
floti með því að vinna þriðju hrin-
una 25:22. Það virtist kveikja
neista í gestunum, því HK vann
einnig fjórðu hrinuna sem var
spennandi, 25:23.
Oddahrinan endaði 15:12 fyrir
HK sem er nú á toppi deild-
arinnar með 4 stig líkt og KA. HK
hefur unnið fleiri hrinur og er því
í efsta sæti. Stjarnan er í þriðja
sæti með 2 stig og Þróttur R. á
botninum með 0 stig. Stjarnan og
Þróttur mætast í leik á þriðju-
dagskvöld í Kennaraháskólanum
kl. 20.30.
seth@mbl.is
Öruggt hjá HK gegn Fylki
Karlalið HK tyllti sér á toppinn í Mikasa-deild karla með góðum sigri gegn KA
Akureyringar komust í 2:0 en Kópavogsliðið svaraði í næstu þremur hrinum
Morgunblaðið/RAX
Vandræði Fyllkir sá ekki til sólar gegn HK í Mikasadeild kvenna á laugardaginn en þar hafði HK betur, 3:0.
Íslandsmótið í blaki fer vel af stað en
rúmlega 60 lið taka þátt í vetur í
ýmsum deildum. Kvennaliðum fjölg-
aði um þrjú í efstu deild. Á laugardag
áttust við HK og Fylkir í Fagralundi í
Kópavogi í efstu deild kvenna, Mi-
kasadeildinni. HK sigraði nokkuð
örugglega, 3:0, en hrinurnar fóru
25:18, 25:12 og 25:8.
Arnar Jón Agn-arsson
tryggði liði sínu
EHV Aue eitt
stig á útivelli þeg-
ar hann jafnaði
metin, 33:33, rétt
áður en flautað
var til leiksloka í
viðureign liðsins
við SG BBM Bietigheim á útivelli í
suðurhluta þýsku 2. deildarinnar í
handknattleik. Arnar Jón var
markahæstur leikmanna þess að
þessu sinni með átta mörk. EHV
Aue er í 10. sæti deildarinnar með 10
stig að loknum níu leikjum.
Í norðurhluta þýsku 2. deild-arinnar í handknattleik tapaði
Ahlener SG, lið Ólafs Bjarka Ragn-
arssonar fyrrverandi HK-manns,
fyrir Bad Schwartau, 33:29, á úti-
velli. Ólafur Bjarki skoraði þrjú
mörk fyrir Ahlener SG sem situr í
þriðja sæti deildarinnar með 13 stig
að loknum níu viðureignum, er
tveimur stigum á eftir ASV Hamm
og Vfl Potsdam.
Hreiðar Guð-mundsson,
landsliðs-
markvörður í
handknattleik,
stóð í marki TV
Emsdetten síð-
ustu fimm mín-
útur leiksins við
Wilhelms-
havener í norðurhluta þýsku 2.
deildarinnar, og varði fjögur skot.
TV Emsdetten vann auðveldan sigur
á heimavelli, 34:22, er í fjórða sæti
með 12 stig eftir átta leiki.
Jón Þorbjörn Jóhannsson skoraðifjögur mörk og var tvisvar sinn-
um vísað af leikvelli í tvær mínútur
þegar Sönderjyske vann Ikast,
35:24, í næst efstu deild danska
handknattleiksins. Sönderjyske er í
öðru sæti deildarinnar.
Ítalinn Valent-ino Rossi
varði heimsmeist-
aratitilinn í vél-
hjólakappakstri
um helgina, GP.
Þetta er í níunda
sinn sem Rossi
fagnar heims-
meistaratitli í
þessari grein en hann keppir fyrir
Yamaha. Rossi varð fjórði í keppn-
inni sem fram fór í Malasíu en það
dugði til að verja titilinn.
Fólk sport@mbl.is
BARNAHÁTÍÐ fór fram í Laugar-
dalnum þar sem að yngstu iðkend-
urnir kepptu, en þeir eru úr 5. 6. og
7. flokki. Keppnin var að sjálfsögðu í
aðalhlutverki hjá mörgum en einnig
var hluti af ísnum nýttur fyrir þá
sem vildu glíma við ýmsar þrautir á
skautunum. Í Egilshöll skiptu kon-
urnar sér í fjögur lið þar sem að fé-
lagslínurnar voru þverbrotnar og
þótti tilraunin heppnast vel.
Flott tilþrif og fínir taktar á ísnum
Konurnar létu að sér kveða í blönduðum liðum í Egilshöll Yngri keppendur
áttu sviðið í Laugardalnum Áköf keppni í bland við skemmtilegar þrautir
Það var nóg um að vera á ísnum hjá
íshokkíleikmönnum landsins um
helgina. Konurnar létu að sér kveða í
Egilshöll þar sem að keppt var með
nýju fyrirkomulagi og börnin voru í
aðalhlutverki á ísnum í Laugar-
dalnum.
Morgunblaðið/RAX
Góðir Þeir gáfu ekkert eftir í leikjunum ungu strákarnir í Laugardalnum um helgina.