Dýralíf - 01.09.1925, Síða 5

Dýralíf - 01.09.1925, Síða 5
DÝRALÍF 5 með lafandi eyru. í Austur-Afríku eru kettir, sem eru með stífum hárum, sem standa beint út. Er sagt að varla sé hægt að hugsa sér ólikari skepnur, svo náskyldar, sem þcssa ketti, og hina lang- hærðu silkimjúku Angóraketti. í Síam eru til bláeygðir ketlir, sem einnig eru frábrugðnir flestum öðrum köttum að því leyti, að auðvelt er að venja þá á að elta húsbónda sinn, eins og hund- ar gera. Pað er álitið, að það haíi verið Forn-Egyptar sem fyrstir hafi tamið ketti. Myndin sýnir hvernig farfuglar eru merktir til þess að hægt verði að komast eftir ferðalagi þeirra, ef þeir skyldu nást aftur. Merkið er alúminiumræma með einkennisstöfum og númeri. Ræman er beygð í hring um annan fót fuglsins, eins og sést á myndinni sem er af araerískum fugli, sem ekki er hér á landi. (Sjá greinina: Velrarvist farfuglanna.) FísUar í Kóugóiljóti. Nýlega er lokið rannsókn á fiskasafni úr Kongófljóti'og þver- ám þess, alls um 6000 íiskum, er Afríkuleiðangur náttúrugripa- safnsins í New York hafði veitt á árunum 1909 — 15. Reyndust legundirnar ekki færri en 234 og 29 þeirra voru óþektar áður. Hér á landi eru aðeins flmm flskategundir í ósöltu vatni: hornsíli, álar, lax og tvær silungstegundir (menn eru nú horfnir frá þvi að murtan í Þingvallavatni sé sérstök tegund). Kemur þessi mikli fjöldi tegunda í Kongó vel saman við þá almennu reglu, að dýralegundunum fækkar, þvl lengra sem dregur frá miðjarð- arlinu, en cinstaklingar liverrar tegundar verða tiltölulega fleiri.

x

Dýralíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýralíf
https://timarit.is/publication/772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.