Þjóðólfur - 01.12.1940, Side 3

Þjóðólfur - 01.12.1940, Side 3
Þ JOÐOIFUR 3 fyrir Dani að tryggja danska hags- muni hér á Iandi, sem mest mætti vera. Danir einir viðurkenndu hlut- leysi og fullveldi okkar, þar til að Englendingar gerðu það fyrir nokkru. Fyrst viðurkenndu þeir okkur sem frjálsa þjóð, en svo rændu þeir okkur frelsi og fullveldi og óvíst er hvenær við fáum aftur það frelsi, sem Englendingar hafa rænt okkur. Það er ekki til of mikils mælzt að hver sannur íslendingur, sem ekki vill að land og þjóð sé gefið erlendu ríki, með ívilnunum og réttindaverzlun, geri sér ljóst, hvað af ákvæðum sambandslaganna get- ur hlotizt. Það sem þarf að gera í sam- bandsmálinu er að næsta Alþingi lýsi því yfir, að sambandslögin séu úr gildi fallin, þar sem Danir fullnægi ekki sambandslagasamn- ingnum. Þá um leið verður Al- þingi að hefjast handa um undir- búning lýðveldis. II. í dag, 1. desember, þegar við minnumst 22 ára fullveldis íslands, þá eru mjög breyttar aðstæður frá því sem áður var. Þaðríkirmikiló- vissa og meiri óvissa en nokkru sinni fyrr, hvað um ísland verður í framtíðinni. Hvað verður um fullveldi vort? Þeir atburðir sem gerðust hér á landi 10. maí s. 1. og sem alþjóð eru kunnugir, marka tímamót í æfi þjóðarinnar. Þeir atburðir geta haft hinar ægilegustu afleiðingar fyrir land vort og þjóð, þar sem landið kar.n að eiga eftir að verða vígvöllur manndrápa og eyði- legginga. Hver veit nema að af þessum atburðum hljótizt sömu örlög og biðu hinnar .norsku þjóðar. Sú hætta sem yfir íslandi er í dag, hefir orðið til vegna þeirra atburða, sem skeðu hér á landi 10. maí s.l. Ef ráðist verður á ísland, er þeim árásum beint gegn hinu brezka setuliði, en ekki gegn ís- lendingum. Þó að árásunum verði ekki beint gegn okkur, þá verður íslenzka þjóðin samt ver. út leíkin en hinn brezki her. Enda virðist það vera gullvæg regla hjá Bretum að heyja styrjöld þannig, að banda- menn þeirra beri hita og þunga styrjaldarinna. ísland, eitt minnsta ríki álfunnar, hefir verið steypt út í styrjöld án nokkurra sérstakra ástæðna eða hafa nokkuð unnið til þess. Svo mun megá' ætla að hin brezki floti geti varnað þýzkum skipum að sigla til íslands og þar sem það er viðurkennt af Bretum sjálfum, að það sé lítt hugsandi að Þjóðverjar komi hingað fljúg- andi frá Noregi með eitthvert burðarmagn, en til þess að Þjóð- verjar geti haldið lanftinu stund- inni lengur, þá þurfa þeir að hafa með sér þung hernaðartæki. Enda búast ekki Bretar við Þjóð- verjum hingað, það sýna bezt hernaðaraðgerðir þeirra hér á landi, því þær líkjast meir hugsunarhætti hjá »hysterisku« fólki, en almennri skynsemi. En burt séð frá þessu og hinni heimskulegu framkomu brezku hernaðaryfirvaldanna, þá verðum við að gæta þess að vernda þjóð- erni vort fyrir hverskonar. ásælni og áreitni hins erlenda setuliðs, því þjóðernið er sverð og skjöldur fámennra þjóða, í sókn þeirra og vörn fyrir lífinu, fyrir frelsinu og fyrir hamingjunni. Það hefir komið í ljós, að nokk- ur hópur hérlendra manna hefir fengið sig til að hafa samneyti við hinn erlenda her á ýmsan hátt, án þess að gera sér ljóst, hvað af slíku getur hlotizt og án þess að slíkt sé æskilegt og nauðsynlegt, enda er það ríkt í fari þessara manna, að gleypa við öllu, sem erlent er, án tillits til hvort það sé gott eða illt eða hvort það hentar íslendingum. Það hefir borið mikið á því, að ungt fólk og aðallega sá hluti unga fölksins, sem sækir kaffihús- in, gefi sig eitthvað að þessu er- lenda setuliði. Hvað ætlu hinar ungu stúlkur hefðu sagt, ef einhver óþekktur maður ofan úr sveit hefði komið inn á kaffihús og verið í vaðmáls- fötum, með hátt upp reimaða vatnsleðurskó á fótum sér og ekki kunnað að dansa, bara þjösnast einhvernveginn áfram, án þess að geta stígið eitt einasta dansspor. Dætur betri borgara Rvíkur hefðu ekki sótzt eftir að ná kunnings- skap við hann. Þær hefðú neitað að dansa við hann og jafnvel forð- ast hann. Það hefði ekki þýtt fyrir hann að fara inn á Hótel Borg. Þessu fólki finnst: »bara ef lúsin útlend er, er þér bitið sómi«. Lahdið morar af erlendum her. Það verður að einangra íslenzkt þjóðlíf sem mest frá áhrifum frá hinum erlenda her. Vér verðum að gæta sóma lands og þjóðar. Það á ekki að eiga sér stað nein óþörf umgengni við hið brezka setulið. Sæmd íslendinga er mis- boðið, þegar íslendingar sækja skemmtanalíf með brezkum her- mönnum. í skemmtanalifinu geta ekki leiðir íslendinga og hins er- lenda setuliðs legið saman. Það er mjög óviðeigandi og ástæðulaust, að íslendingar sitji veizlur og dansboð með setuliðinu eða að bjóða brezkum hermönnum heim til sín. Slík heimili verða að teljast mjög óþjóðleg. III.. Það verður að glæða ást æsk- unnar á landi voru og þjóð og vernda tungu vora frá hverskonar áhrifum. Það verður að efla sóma- tilfinninguna.ábyrgðartilfinninguna, skylduræknina og skilning á því, áð hver sem vill verða góður ís- lendingur, verður að gera meiri kröfur fyrir hönd þjóðar sinnar, en sjálfs síns. Vér verðum að styrkja þjóðræknina, gera hana að öflugu varnarvirki gegn hverskon- asælni erlendis frá og sem sér- staklega er þörf nú og að sá metn- aður sé í þjóðlífinu, sem lækni þær veilur og meinsemdir sem nú þrífast. Að þjóðræknin verði lyftistöng til að vernda þjóðernið frá tortímingu. Úlfar. r I stórum dráttum. Síðan hertakan fór fram i vor, hafa hugsandi menn haft allmiklar áhyggjur og það ekki af ástæðu- lausu, út af siðferðismálum þjóðar- innar og sambúðinni við Eng- lendinga. Það bar strax töluvert á því, en er nú að verða óþolandi áberandi, að ungar stúlkur sækist eftir að vera með hermönnunum í setuliðinu brezka. Siglfirzkar stúlkur reyndust engir eftirbátar kynsystra sinna annarsstaðar á landinu í þessu efni. Það lítur helzt út fyrir,

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/781

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.