Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 05.12.1925, Síða 2

Skólablaðið - 05.12.1925, Síða 2
2 að vjer værum oft of andvaralausir um málið, en tími stuttur til undir- búnings. Einar H0 Kvaran gat Þess í fyrirlestri, er hann flutti um Xslend inga vestan hafs, að Þeir væru menn alment áhugasamari en austur hjer, og virðist Þó, sem Þetta liggi oss ekki fjær en Þeim0 En vonandi er, að vjer verðum Þó eigi síðhúnir, Þegar til kemur, Því að 'Þjóðarsæmd liggur við, að hátíðin fari fram Vel og rausnar- samlega, Það er enganvegin ætlun mín; að koma meö tillögur um tilhögun há- tíðarinnar, Því að til Þess er jeg ekki færc Þó ætla jeg að setja fram hugmynd, sem jeg held, að ekki s^e alveg fráleit, fremur Þó að gamni mínu en af Því,'að jeg búist við, að nokkurt tillit verði til hennar tek- iðc Jeg held, að Það gæti verið stór- gagnlegt, að taka hjer kvikmynd af sögu Þjóðarinnar frá öndverðu og svo háttum hennar á vorum dögum, í sam- bandi við hátíðahöldin 1930« Sú kvik- mynd yrði vitanlega mjög löng og í mörgum köflum og mætti ekkert til spara að gera hana sem best úr garði,. Það er sannfæring míh, að hún mundi svara kostnaði, og Því betur, sem sið ur væri til hennar sparað. Þetta væri nú hreint ekki tilgangslaust fyrir- tæki; Því að hjer væri ágætt tæki- færi til að rjúfa að nokkru Þá Þoku vanÞekkingar og misskilnings á landi voru og Þjóð, sem ríkir með flestum Þjóðum0 Árið 19-30 mundi athjtgli alls heimsins beinast sjerstaklega að Is- landi, og mundi Það skapa ágætan jarð veg fýrir slíka mynd„ En'ekkert er eins vel til fallið og kvikmyndir, að birta Það, sem á að ná til alÞjóðar manna, Þár er máttur Þeirra Þúsund- faldur ávið bækur, Þótt góðar sjeuv. Það er kunnugt, hversu lítið Arn- grími lærða, einhverjum hinum ágæt- asta Xslendingi, varð ágengt, Þótt hann verði miklu af æfi sinni tl Þess að auka Þekkingu erlendra Þjóða a Xs- landi, en leiðrjetta misskilning og lygar um land og Þjóðc Og slíkt er ekki einskisvert, Sönnum Xslendingum gotur ekki vorið sama um, hvaðá hug- myndir aðrar Þjóðir gera sjer um Þá0 Þeir geta ekki sætt sig við, að Þær líti niður á Þá sem menningar3nauða Skrælingja, cf Þær Þá vita, að Þeir eru til. Enn ber Þess að gæta, að mtlenzk vísindi og listir eiga miklu -örðugra uppdráttar sakir Þessarar fávisku annara Þjóða. Rjett er að geta x Þessu sambandi um tillögu Bjarnar Þórðarsonar hæstarjettatrit- ara um Þjóðhátíð. Vill hann, að Xs- lendingar taki upp Þann sið, að halda Þjóðhátxð t.d. annað hvort eða Þriðja hvert ár. Yrði hún haldin í júní eða júlí, áður en annir byrjuðu. Hugsar hann sjer, að hátíðin verði ekki ósvipuð AlÞingi hinU forna, og auð- vitaö haldin á Þingvöllum. Þarna yrði á boðstólum alt Það besta er völ væri á, bæði til skemtunar og fróðleiks, og mundu menn sækja hátíð- ina hvaðanæva af landinu. Tilgangur Þjóðhátíðarinnar á að vera sá, að tfegra og glæða Þjóðlíf vort og sam- stilla Þjóðina til starfs og fram- f ara. Auðsætt er, að hugmynd Þessi gæti orðið Þjóðinni til mikillar bless- unar, ef fram næði að ganga. Þjóðhá- tíðin mundi efla Þjóðinni útsýni og ncntun, og líklegt er, að hún mundi -veröa miðstöð íslenzkrar menningar, er tímar liðu, eins og AlÞingi vort var aö fornu. En til Þess að Þetta geti orðið, Þarf Þjóðin að taka hugmyndinni vel. Það stoðar ekki Þótt einhverjir hugsi vel og beri fram tillögur til endur- bóta, ef.Þeim er engin athygli veitt.. H. P. AFTURELDING. Sólin roðar tinda, sundin blika fögur, særinn kveður draumblandin vöggu- 1 j óð. Blærinn hlýji Þylur við bylgjurnar sögur, sem borist hafa niður í tímans sjóð. Dagurinn er risinn úr rekkju eftir blundinn, rósakrónur blika, og alt er dauða- hlj ótt, aldrei gat jeg haldið svo fagran endurfundinn við fyrsta sólargeislann,eftir dimma nótt.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.