Skólablaðið - 01.04.1943, Side 8
Skúu Norðdahl
rz J “I -
JL I 1 — V
NÚ er liðið um það bil eitt ár síð-
an að við kvöddum heimkynni okkar í hús-
um Haskólans, með þsr "björtu vonir í
brjósti að komast í skólans eigin hús-
næði að afliðnu sumri. Okkur varð a.ð ósk
okkar, og fyrir hragðið má fullyrða, að
félagslíf skólans hafi aukizt svo og
dafnað, að einstakt er,
Enn þá einu sinni kveðjum við skól-
ann, sum um stundar sakir,en önnur fyrir
fullt og allt. Þau, sem eiga afturkvomt
að hausti, hverfa að sumarstörfunum með
þeim vonum, að skilyrði til fjölbreytts
og skemmtilegs fólagslífs hafi aukizt að
mun, er þau koma aftur.
Það er vegna þessa, að mig langar
til að rifja upp ýmislegt, sem mér og
sjálfsagt fleirum liggur þungt á hjarta
og gæti verið gott umhugsunarefni yfir
sumarið fyrir nemendur og skólastjórn.
Snemma á þessu skólaári kom út mik-
il og skilmerkileg bókaskrá lestrarfé-
lagsins íþöku , samin af jóhannesi For-
dal og Ólafi Helgasyni. Eiga báðir pess-
ir piltar þakkir skildar fyrir £að verk,
íjví að skráin gefur glöggar heimildir um
bókaeign nemenda og auðveldar þeim að
velja sér góðar bækur til lestrar í frí-
stundunum. Þetta starf JÓhannesar og Ól-
afs gefur okkur tilefni til að virða fyr-
ir okkur aðbúnað safnsins og þá til að
álykta, að slíkur bókakostur er meira
virði en svo, að við höfum
efni á að láta hann eyði-
leggjast vegna vondra og
illa meðfarinna húsakynna.
Það er því ástæða fyrir nem-
endur og skólastjórn'að
hjálpast að því að bsta um
meðferð og aðbúnað safnsins.
Enn fremur gefur það tilefni
til að minnast á það, að
ánægjulegt yrði að koma í skólann að
vetri, ef Skólabókasafnið yrði þá einnig
skráð og lestrarsalurinn kominn í það
lag, að nemendur mættu koma þangað og
lesa annaðhvort námsbækur sínar, fræði-
bælcur safnsins eða sögubækur þess.
k undanförnum árum hefur íþrótta-
áhugi nemenda verið ákaflega lítill mið-
að við það sem áður var, eins og glöggt
sést á því, að núverandi nemendum skól-
ans er alls kostar ókunnugt um allan
bann fjölda af innanskólamótum, sem fram
fóru í ýmsum íþróttagreinum. Ef til vill
iaá kenna deyfðina því, að þeir nemendur,
sem skyldu halda á málunum, hafa brugð-
izt skyldu sinni, en þó staðhæfi ég, að
hér megi kenna um húsnæðisleysinu og svo
því, hvað værukærir nemendur eru orðnir
og latir við að leggja nokkuð á sig.
Nemendur. SÚ var tíðin,að Menntaskólinn
átti beztu sveitina í kappmótum við aðra
slcóla, en nú standa margir okkur framar.
Látum næsta vetur sanna, að við getum
staðið öðrum skólum fyllilega á sporði.
Þo verðum við að ætlast til þass af skól-
anum, að hann veiti okkur þann aðbúnað,
að okkur verði kleift að halda á loft
áunnum heiðri hans.
Þa er að minnast á selið og notkun
bess. í haust er leið var kosin sels-
nefnd svo kölluð,og átti hún að úthluta
selsferðunum á meðal bekkjanna þannig,
að réttlátast yrði skipt. Um starf nefnd-
arinnar er ákaflega lítið að segja, að
öðru leyti en því, að valds
hennar hefur lítið gætt og
ójöfnuður varð enn um sels-
ferðafjölda bekkjanna. Er
vonandi,að þetta lagist næsta
vetur. Síðan að "Gráni" gamli
hvarf úr eigum nemenda hefur
eitt stærsta vandamálið í sam-
bandi við selsferðirnar verið
fararkosturinn. í fyrra og