Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 21.12.1943, Side 5

Skólablaðið - 21.12.1943, Side 5
S ðJARG&TElNN ífT^ G RJ'ÖTHA riA RSSöN Eftirfarandi endurminningu skrif- aði nemandi hér í skólanum síðastl. vet- ur, þegar skrifa skyldi um sjálfvalið efni: Flestir munu hafa veitt því eftirtekt, að eigi þarf nema smávægilegt atvik, til þess að endurminningar frá liðnum árum rifjast allt í einu upp í hugum manna. Frá einu slíku atviki ætla ég að skýra hér. Af tilviljun átti Ig leið um allfjölfarna götu höf uðborgarinnar. Ég kom auga á tötralega klæddan mann, sem sl’angraði ölvímu eftir götunni. Að vísu er slíkt ekki évanaleg sjon, en mér varð það brátt ljést, að ég kannaðist við svip mannsins, Hann var enginn annar en æskuvinur minn, árni ágúst Hillaríusson. Útlit hans var að visu mjög breytt frá því, sem það var, er við þekktumst. Við sjén árna ágústar, þétt hann væri í þessu slæma ástandi, rifjuðust upp fyrir mér minningar frá æskuárum okkar. við élumst upp saman í sjávarþorpi einu norðanlands. Við áttum mikið saman að sælda, þo að hann væri nokkrum árum eld.ri Ég minntist, um leið og ég sá hann, hinna mörgu og skemmtilegu samverustunda okkar frá liðnum árum. Ég mundi vel eftir ýmsum strákapörum okkar, t.d. þegar við stálum réfunum úr kálgarði prestsins eða þegar við skutum hattinn af gamla hrepp- stjéranum með snjébolta, árni ágúst þétti einhver hinn gervilegasti unglingur þorpsins. Hann var fríður sýnurni, beinvaxinn með mikið, lið- að, ljést hár. Framtoman var ákveðin og frjálsmannleg. En nú vorú allir þessir eiginleikar hans horfnir, Hann var orðinn lotinn í herðum og hrukkéttur í andliti, þétt'hann hefði ekki fyllt þriðja tug æviáranna, Örlagadísirnar höfðu sýnilega rist sínar sorglegu rúnir í útlit hans. Mig undraði stérkostlega að sjá árna ágúst Hillaríusson í þessu dapra astandi. Mig undraði að sjá manninn, sem hafði sagt mér hina fögru æsku- drauma sína, slan^ra eftir götum höfuðborgarinnar, ogreiddan og illa til reika x alla staði. Ég, æsku- vinur hans, vissi, að um annað en þetta hafði hann dreymt dagdrauma. Hann, sem var gæddur svo miklum skilningi, viljaþreki og atorku, ætlaðist annað og meira fyrir en þetta. Við höfðum oft rætt um líf- ið og tilgang þess, og var hann þá vanur að segja, að æviárin sjálf mundu bezt leysa þá spurningu. já, árin leystu lífsgátu árna ágúst- ar Hillaríussonar. Hvað olli þeirri stefnubreytingu í lífi hans, sem raunin bar vitni um, er mér allsendis okunnugt. Hann fér ungur úr föð- xirhúsum og lagði leið sína út í hina hörðu baráttu lífsins. Síðan hafði ég ekkert heyrt um hann, fyrr en ég sá hann þarna á götunni0 En útlit hans %ar með sér, hvaða hlutskipti hann hafði hlotið. Þar þurfti ekki vitnanna við, Ég sá, að þarna var maður, sem hafði .verið leikinn mjög hart af örlaganornunum. Fegurstu draumaborgir sínar hafði hann orðið að sjá hrynja til grunna. Æsku- draumar hans, sem stefndu í sélarátt, urðu hinu dimma myrkri vonbrigðanna að bráð. Fyrir nokkrum dögum heyrði ég lát árna ágústar Hillaríussonar. Mér kom það elckert évart. Ég vissi, að hann var áður horfinn af hinni raunverulegu braut lífs- ins . Ég minnist árna Igústar sem eins af beztu vinum mínum. Ég minnist hans og sem éhamingjusamasta skipbrotsmanns, ég hef þekkt. sem o-o-o-o-o-o-o-o-o-o-o

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.