Norðlingur - 03.07.1928, Qupperneq 3
NORÐLINGUR
3
Að sunnan.
Reykjavík í gærkvöldi.
Kappreiðar.
Kappreiðar Hestamannafjelagsins,
aðrar á þessu sumri, fóru hjer fram
á sunnudaginn. Vann stökkið sami
hestur og á fyrri kappreiðunum; er
eigandi hans Hermann Thorsteins-
son frá Þingvöllum. Nýtt met var
sett á skeiði, 24,2 sek.
Uppsögn Mentaskólans.
Mentaskólanum var sagt upp á
laugardaginn. Útskrifuðust 39 stúd-
entar. Inntökupróf í 1. bekk fór
fram síðustu viku, og gengu 60
nem. undir það, og stóðust prófið
42, Dómsmáiaráðherra heldur enn
fast við miðaldástefnu sína og ger-
ræði í því efni, að bægja nýsvein-
um frá skóianum, og fá því ekki
nema 25 af 42 að ganga inn í skól-
ann, þó að þeir hafi einkunnarrjett
til. Er þung og mikil óánægja í
fólki á Suðurlandi yfir þessari harð-
stjórn og órjettmæta ofbeldi ráð-
herrans.
Læknafjelag íslands
hjelt fund sinn hjer á laugardaginn
og framhaldsfund í dag, og verður
honum slitið seint í kvöld. Enn
hefir ekkert af honum frjest, það er
tíðindum þykir sæta.
>SúIan«.
Flugvjelin fór í dag til Hólma-
víkur með farþega. Ætlaði norður
til Akureyrar, en gat ekki tekið
þangað nema 1 farþega vegna
Hólmavíkur-farþeganna, og hætti
því við förina. Er búist við, að
hún fari norður á morgun. Hún
hefir verið í ágætu Iagi síðan skift
var um vjel í henni.
Skemtiför »GuIIfoss«.
Ákveðið er, að GuIIfoss fari
vestur og norður um land til Ak-
ureyrar 11. þ. m. með skemtiferða-
fólk á sama hátt og í fyrra. Og
komið hefir til tals, og mun full-
ráðið, að hann fari til Grímseyjar í
þeirri för, ef veður Ieyfir.
Jarðarför
frú Hrefnu Tulinius, sem beið
bana af bílslysinu um daginn, fór
fram hjer í dag að viðstöddu afar-
miklu fjölmenni og við almenna
hluttekningu bæjarbúa. Hallgrími
Tulinius og börnum hans líður nú
sæmilega eftir slysfarirnar.
Rannsókn á jarðhita.
Undarfarið hefir farið fram hjá
Laugunum hjer borun eftir jarð-
hita, og hefir hún þótt bera góðan
árangur. Er hitinn nú kominn upp
í 80 gr. á Celsius. Enn er ekki
hægt að segja með vissu um úr-
slit eða árangur þessara rannsókna,
en menn gera sjer góðar vonir um,
að fá megi mikil not jarðhitans
þarna, ef hann reynist nægilegur,
og er rannsóknunum haldið áfram.
Á annað hundrað fuiltrúa kemur
með »Esju« hingað á fimtudaginn.
í gær lagði »Esja« af stað úr Rvík
áleiðis með fulltrúa á stórstúkuþing,
sem háð verður að þessu sinni hjer i
bæ, og hefst með guðþjónustu kl. 1
á fimtudaginn. Prjedikar síra Árni
Sigurðsson frfkirkjuprestur.
Um 80 sunnlenskra fulltrúa munu
hafa farið með skipinu frá Reykjavík.
Pá tekur það fulltrúa á Sandi, í Pat-
reksfirði, á ísafirði og Siglufirði, og
er búist við, að koma muni með því
nokkuð á annað hundrað á stórstúku-
þingið. Að austan koma fulltrúar með
Lagarfossi á fimtudaginn, og hingað
eru komnir og koma þessa dagana
margir fulltrúanna, bæði með Goða-
fossi og á annan hátt. Sigurður Jóns-
son stórtemplar kom raeð »Dronning
Alexandrine* siðast.
Framkvæmdanefnd stórstúkunnar
gekst fyrir því, að »Esja« færi þessa
för með fulltrúana. Er svo til ætlast,
að þeir, sem með henni koma, búi
og borði í henni meðan á þinginu
stendur. Pví sýnt þótti, að allur
þessi mannfjöldi fengi ekki gistingu í
landi auk allra þeirra aðkomumanna,
kennara og annara, sem hjer verða
gestkomandi um þessar mundir. Verð-
ur »Esja« þvi »fljótandi hótel* þessa
dagana — en sjálfsagt af betra taginu,
þar sem svo siðavandir menn eiga í
hlut og templarar. En mjög verður
mannkvæmt í bænum meðan þingið
stendur yfir, því að hingað kemur, að
sögn, margt manna víðsvegar úr hjer-
aðinu þeirra erinda, að hitta vini og
kunningja f hópi fulltrúa. —
Fyrir stórstúkuþinginu liggja nú
ýms mikilsverð mál, er Regluna snerta.
Má þar einkum tilnefna:
Hvort Reglan eigi að taka þátt í
hátíðahaldinu á Þingvöllum 1930 sem
sjálfstæður aðilji;
hvort Reglan hjer á landi eigi að
bjóða heim bindindisþingi Norðurlanda
1930;
hvort stúkurnar í Færeyjum skuli
standa undir yfirstjórn íslensku Regl-
unnar eða hlíta stjórn stórstúkunnar
dönsku, en færeysku stúkurnar eru
stofnaðar hjeðan að heiman;
útgáfa Templars — breyting á
einhverja lund;
fulltrúarjettur, skattar undirstúknao.fl.
Gert er ráð fyrir því, að störfum
stórstúkuþingsins verði hagað þannig,
að fulltrúar fái ráðrúm til, áður en
þingi lýkur, að bregða sjer eitthvað
burt úr bænum, þeir, sem það kjósa,
til þess að skoða umhverfið og þá
staði, sem markverðastir þykja. Er
sennilegast, að farið verði eitthvað hjer
fram í fjörðinn.
Vestur að Hólum, á biskupsvígsl-
una og prestastefnuna, lögðu á stað
hjeðan í dag sjera Friðrik Rafnar, sjera
Ásmundur á Hálsi, sjera Þorsteinn
Briem, sjera Sigurður Stefánsson og
líklega sjera Þorvarður Þormar. Búist
var við að fara mutidu allir prestar
hjeðan úr prófastsdæminu, að undan-
teknum sjera Bjarna á Siglufirði.
Norðlíngur kemur út fyrst um sinn,
að minsta kosti, eins og tekið er fram
á öðrum stað f blaðinu, annan hvorn
virkan dag, kl. 1—2 síðdegis. Verður
hann borinn út um bæinn fyrst um
sinn í flest hús til þess að gefa bæj-
arbúum kost á að kynnast honum. Að
þeim tíma liðnum eru þeir, sem ger-
ast vilja áskrifendur að honum, beðnir
að láta vita um það á afgreiðslu hans,
Hafnarstræti 103, eða síma blaðsins
226. Áskiftargjald er 1 kr. á mánuði.
Áuglýsingum, sem eiga að koma í blað-
inu, þarf að koma á afgreiðsluna eða
í prentsmiðju Björns jónssonar ekki
síðar en kl. 9 árdegis þann dag, sem
blaðið kemur út,
»Súlan< Sagt var hjer í bænum í
morgun, að flugvjelin væri væntanleg
hingað í dag. En eftir því sem flug-
ferða-afgreiðslan hjer segir, veit hún
ekkert til þess, að hún komi. Þó mun
það ekki vera útilokað.