Norðlingur - 28.08.1928, Side 1
NORÐLINGUR
25. blað.
Víosla Hríseviarkírkju^
Sjö prestar viðstaddir
vígsluna og um 400 manns
gestkomandi í Hrísey
á sunnudaginn.
Pað er sjálfsagt langur tími síðan,
að jafn mannkvæmt hefir verið í
Hrísey og á sunnudnginn var. Og
það er sennilegt, að nokkuð iíði
þangað til að þar sjáist jafn marg-
ir menn á ferli. Alstaðar að
streymdi fólkið til þess að vera
viðstatt vígslu hinnar nýju, snotru
kirkju, sem Hríseyirigar hafa komið
upp með miklum dugnaði og mann-
dósvi; X'ttrðskiþíd Óðinn íór hjeð-
an af Akureyri með á fjórða hundr-
að manns, og af Austurlandi, Ár-
skógsströnd, Dalvík og úr Ólafs-
firði komu allmiklir flokkar, svo að
óhætt er að gera ráð fyrir, að full
400 manns hafi verið gestkomandi
í eyjunni.
Vitaskuld komst ekki allur sá
fjöldi í kirkjuna. Stóð mikill flokk-
ur úti fyrir meðan vígsluathöfnin
fór fram. Og hefði engum dulist,
sem fram hjá eyjunni fór á sunnu-
daginn, að meikisatburður væri að
gerast þar — mikill flokkur manna
umhverfis hið nýja guðshús, fánar
á hverri stöng á húsum og hverju
skipi og vjelbát á höfninni, og
klukknahringing og sálmasöngur
ómandi út yfir hina fögru og hlý-
legu eyju.
Vígsluathöfnin.
Hún hófst með því, að Stefán
prófastur Kristinsson og aðkomu-
prestarnir 6 gengu í skrúðgöngu
hempuklæddir til kirkjunnar undir
samhringingu og báru helga dóma
kirkjunnar. Þegar komið var í
kirkjudyr hætti samhringingin, en
Akureyri 28. ágúst 1928.
við tók orgelspil meðan flokkur
klerkanna gekk inn kirkjuna og til
kórs. Pá fór prófastur, sem vígsl-
una framdi, fyrir altari og tók við
áhöldum kirkjunnar af prestunum
og setti á altari, en þeir settust í
kór.
Síðan fór vígslan fram með venju-
legum hætti. Prófastur flutti inni-
iega og fagra vígsluræðu, síra Ing-
ólfur Porvaldsson þjónaði fyrir alt-
ari, síra Friðrik Rafnar prjedikaði og
flutti ágæta ræðu, síra öunnar
Benediktsson las í kórdyrum. En
lesarar voru síra Sigurður Stefáns-
son á Möðruvöllum, síra Pormar í
Laufási, síra Pormóður Sigurðsson
og Páll Bergsson formaður sókn-
arnefndarinnar. Söngflokkur af Ak-
ureyri annaðist sönginn.
Kirkjan er bygð úr steini. Er
aðalkirkjan 10,7x7,25 m., kórinn
4x3,75 m. og forkirkjan 3x3,25 m.
að stærð. Blá hvelfing er í kirkj-
unni, skorin sundur með gullnum
listum í reiti, jafnt aðalkirkja og
kór. Ekkert loft er í kirkjunni. Er
söngflokk ætlaður staður niðri að
norðanverðu, næst kór. Yfir kór-
dyrunum er letrað gullnum stöfum:
>Dýrð sje Guði í upphæðum.« En
yfir dyrym aðalkirkju að innanverðu:
»Friður á jörðu.« Turn í hærra
lagi gefur kirkjunni svip og tign
guðshússins og sjest hún langan
veg þess vegna og sker sig úr öðr-
um húsum, þó að lægra standi en
sum önnur. Ber kirkjan, þar sem
hún gnæfir með turn sinn, vottum
manndóm og framtaksemi Hrísey-
inga, að hafa nú endurreist þar
kirkju eftir 5 alda auðn í þeim
efnum.
Síldarsöltunin. í gær var búið
að salta á öllu landinu 78,626 tunnur
og krydda 22,373. Par af hafa verið
saltaðar og kryddaðar á Siglufirði
74,426 tunnur.
I. ár.
B
SS AKUREYRAR BIO B
Miðvikudagskv. kl. 81/?:
Demantar.
Stórkostleg rnynd, þar sem
MILTON SILLS
leikur aðalhlutverkið.
I
Súlan.
Hún flýgur með póst
kringum land eftir
nokkra daga.
Súlan kom hjer í gær Iaust eftir
hádegi. Með henni var, auk flug-
mannanna, dr. Álexander Jóhannesson.
Var hún að enda út samninginn við
stjórnarráðið um síldarleitina, og fór
þeirra erinda út aftur í gær. Hingað
kom hún svo aftar í gærkvöldi og
fór í morgun í síldarleit út og fram
fyrir Grímsey og kemur um hádegið.
Fer svo tii Reykjavíkur seinna í dag,
ef veður leyfir.
Eftir nokkra daga ætlar hún í póst-
flug kringum land, nokkurskonar
reynsluför til þess að vita, hvernig
það gefst að koma pósti á sem flesta
staði sama daginn. Fer hún þvi úr
Reykjavík um morguninn, þaðan til
Stykkishólms, Siglufjarðar, Akureyrar,
Húsavíkur, Raufarhafnar og um Aust-
firðina, og síðan suður aftur, annað-
hvort norðan um eða suðurleiðina.
Verður þetta í fyrsta slcifti, sem póst-
ur úr Reykjavík kemst samdægurs til
allra eða flestra þessara staða.
Ókunnugt er blaðinu um, hvað
póststjórnin borgar fyrir þessa för
Súlunnar.