Norðlingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Norðlingur - 24.12.1929, Qupperneq 5

Norðlingur - 24.12.1929, Qupperneq 5
AUKABLAÐ 24. des. 1929. NORÐLINOUR ;5 Qíediíeg jóJ og farsœít nýtt ár með þökk fyrir viðskiftin. (Ejíediteg jó(! Qíediíegt nýjári Þakka fyrir viðskiftin á liðna árinu. Elektro Co. Guðbjörn Björnsson. Óska öllum viðskiftavinum mínum gleðilegra jóla og góðs nýjárs. QfecfUeg jóí og gott og farsœít árÍ Þakkir fyrir viðskiftin á liðna árinu. Jóh. Ragúels. fJersíun Giríds JRristjánssonar. Hljómleikaskrá suniiud. milli jdla og nýárs kl. 3-5 s.d. á Hótel Gullfoss: Mozart: Arie úr oper.^»Zauberflöte« (í dag er glatt). Beethoven: Egmont, Ouverture, Schubert: Madchens Klage, — Ave Marie, Haydn: Serenade, Oluck: Andante, Tabani: Hearts and Flowers, Oavotte Wallace: Marthana, Ouverture. Handel: Violin-Sonate 3. (Adagio— .Allegro) — Violins-Sonate 4. (Larghetto) — Bourré. Schubert: Schafers Klagelied Brahms: Wiegendlied, Raff: Cavatine. Framh. af 3. siðu.. ÍPegar Mangi hafði lokið við að klæða sig, kom mamma hans inn. Hún var náföl og studdi sig við rúmgaflinn og meðfram borðinu. — Hvað er þetta, mamma? spurði Mangi. — Mjer varð snögglega ilt, góði minn, En jeg held, að það sje nú ekkert alvarlegt. Samt ætla jeg að leggja mig út af, og vita hvort það líður ekki frá. Sigríður fór í rúmið, en sjúkleik- inn þvarr ekki. Hún hafði svima og ógleði. Maggi varð að taka við eldhúsverkunum, sem eftir voru. Hví var hann vanur. Hau voru ekki margbrotin nje vandasöm — enginn krjTddaður matur að búa til. En samt var hann með alvarlegra bragði en venjulega. Það var leið- inlegt, að mamma hans skyldiverða lasin einmitt núna. Það var yfir höfuð skarð í jólagleðina, að hún skjidi ekki geta verið á fótum. En henni batnaði ekki til fulls, hún treysti sjer ekki á fætur. Maggi sagði henni, að hún skjidi bara liggja, hann gæti gert alt. Svo bar hann henni vatn, og þvoði henni og greiddi, bar til hennar hrein næríöt, og setti svo kertaljós á hylluna yfir rúminu hennar. Hað gerði ekkert til þó að þau ej-ddust, úr því að þau loguðu jTfir mömmu. Hegar orðið var heilagt, bjó Maggi til kaffi og bar mömmu sinni. Meðan þau voru að drekka það, bjóst hann við, að nú kæmi jólagjöf- in. f’að gat nú ekki dregist mikið lengur úr þessu. Eftir ofurlitla stund sagði líka mamma hans: — Maggi minn — þetta verða heldur leiðinleg jól fyrir þig. Jeg get ekki .einu sinni gefið þjer neitt lítilræði í jólagjöf eins og jeg hefi þó verið vön. Mangi fann til ofurlítils stings einhverstaðar í brjóstinu um leið og mam,ma hans sagði þetta, og honum fanst einhver kökkur eða þrengsli koma í hálsinn eins og oft er undanfari gráts. En hahn herti sig upp og Ijet ekki á neinu bera. Hann sagði meira að segja eins og ekkert hefði í skorist: — Það gerir ekkert, mamma mín. Jeg vildi bara, að þjer batnaði. Mamma hans klappaði á vanga hans, og hann sá ekki betur, en að tár stæðu í augúnum á henni. Þá jókst kökkurinn í hálsinum, og au’g- un urðu full af tárum. En mamma hans mátti ekki sjá það. Hann stóð upp, gerði sjer eitthvað til erindis fram í eldhús og jafnaði sig þar. Svo leið jólanóttin í litla kotinu við lítil föng en mikla nægjusemi. Mangi ljet loga á þremur kertunum sínum. Öðru hvoru var hann að hjúkra mömmu sinni, rjetta henni j'mislegt, spyrja hana, hvort hún þyrfti einskis. Jólagjöfin kom öðrU hvoru í hugann. En hann bægði henni jafnskjótt á burt. Og nokkrú áður en hann háttaði, settist hann á rúmstokkinn hjá mömmu sinni og las fyrir hana nokkra jólasálma. Þetta var nú jólanæturgleðin hans. Kolbeinn ungi. Yarðskipið ,Þór‘ strandar. Sex menn komust strax í land, en fjórtán var bjargaö í morgun. Á laugardaginn var, .í hinum bráða ofsa-hríðargarði, j sem þá gerði, var varðskipið >t»órc á ferð um Húnaflóa. Mun hafa verið að koma að sunnan, og var förin far- in með, að því, er sagt er, einn vildarvin og nefndarmann Jónasar dómsmálaráðherra, Jón Ouðnason prest. í þessari för strandaði skipið, um það bil miðja vegu milli Skaga- strandar og Blönduóss, undan Höskuldsstöðum. Var svafta:stór-

x

Norðlingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðlingur
https://timarit.is/publication/783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.