Norðlingur - 24.12.1929, Síða 6
6
NORÐLINGUR
Hefl skrifstofn Kosningaskrifstofa
fyrst' um sinn ’;>■ í* Hafnarstræti 98
niðri. — Skrifstofutími kl. 4—6 e. h.
Giiðm. Pjetursson.
hríð og munu skipsmenn ekki hafa
sjeð til lands fyr en niðti tók.
Þá strax, eða litlu síðar, komust
6 menn í land úr skipinu. En er
fara átti fram aftur, til þess að reyna
að sækja þá, sem eftir voru, en
þeir voru 14, hvolfdi bátnum í
brimgarðinum. Manntjón varð þó
ekkert við það. En ekki þótti við-
lit að reyna aðra björgunartilraun,
þó að viðbúið þætti, að líf þeirra,
sem í skipinu voru, væri í veði.
Pegar skipið var strandað, sendi
það neyðarmerki og tilkýnningu
um strandið. En síðan tók fyrir
ait samband við það. Á sunnu-
daginn var þó sú vitneskja fengin
um strandið, að hægt var að kveðja
skip til hjálpar »Þór«. Fór togar-
inn »Hannes ráðherra* þegar á
vettvang, aðallega tii þess að reyna
að bjarga mönnunum, sem enn
höfðust við í skipinu, Sömuleiðis
kom varðskipið »Ægir« til strand-
staðarins í gærmorgun.
Og þá tókst að ná öllum mönn-
unum úr skipinu, og er ekki um
annað getið, en að þeir hafi verið
heilir á húfi, þó að þeir hljóti að
hafa verið orðnir væstir og þrek-
aðir. —
Nánari frjettir eru ekki komnar af
þessum atburði enn, því að síma-
bilanir eru mikiar þar vestra og
ekki unt að ná í Skagaströnd eða
Blönduós.
Að sjálfsögðu hefur »Pór« verið
vátrygður. En ilt er að missa hann
nú á þessum tíma frá landhelgis-
gæslu, og mun ómetanlegt það
tjón, sem ríkið kann að bíða við
þetta. Er það dapurlegast tilhugs-
unar, að þetta slys skyldi henda
einmitt f einni af þessum snatíferð-
um stjórnarinnar, sem varðskipin
eru nú svo að segja daglega not-
uð í.
Ekki hefur frjest neitt um það,
hvað mikið »Pór« muni vera brot-
inn, en sjálfsagt er það mikið, því
brim var gífurlegt.
Messur um hátíðina. Aðfanga-
dagskvöld: Akureyri kl. 6. jóladag:
Akureyri kl. 11 f. h., Lögtnannshlíð
kl. 2 e. h. og Akui eyri kl. 5. 2. jóla-
dag: Messað á spítalanum og í
Kristneshæli. Sunnudaginn milli
jóla og nýárs: Gierárþprpi kl. 12
á hádegi.
borgaraflokksins verður fyrst um sinn í
verslunarmannafjelagshúsinu; opin frá 8—
10 e. h. hvern virkan dag.
Kosninganefndin.
B. S. A.
Sími 9.
2 línur.
B. S. A.
Lokum aðfanga- og gamlársdag þegar búið er að keyra
að kirkju og alveg á JÓLA- og NÝJÁRSDAG, svo bílstjórar
geti notið hátíðanna eins og aðrir menn. — Gleðileg jól! Gott
ár! Þökkum viðskiftin!
Bífre/ðastöð Akureyrar.
Kr. Kristjánssoh.
t
Árni Eiríksson,
bankagjaldkeri.
Hann varð bráðkvaddur á heimili
sínu seinni partinn í gær. Bana-
meinið var hjaríaslag. Hans verð-
ur nánar minst síðar hjer í blaðinu.
Tjon
af norðangarðinum.
Frá Dalvík.
Mikið og margskonar Ijón varð
bæði til lands og sjávar af vonsku-
veðrinu síðastliðinn laugardag. Mun
þó ekki enn algerlega tilspurt um
það, því að símslit eru víða og
því örðugt að leita sannra frjetta.
Á Dalvík rak einn vjelbát á land,
eins og sagt var frá í síðasta blaði.
En, hann náðist jafn skjótt úr brim:
rótinu-, lítið brotinn, en sjálfsagt
nokkuð reyndur.
Pá tók þar 5 bryggjur, sumar
alveg og aðrar að mestu leyti.
Voru það bryggjur þeirra Porleifs
Porleifssonar á Hóli, Fripieifs og
Jóhanns Jóhannssona, Höepfners-
ve'slunar, Kaupfjelagsins og S gurð-
ar Jónssonar.
Sagt er, að ekki hafi komið á
Dalvík annað eins brim í þrjátíu
ár. Gekk brimið yfir háan malar-
kamb og suður á milii húsanna.
Frá Siglufirði.
Þar varð gífurlegt tjón í bryggju-
skemdum og á húsum líka. Telst
fróðum mönnum svo til, að það
tjón nemi á annað hundrað þúsund
krónur. 1
Brimið geiði ’nreint fyrjr sínum
dyrum og byrjaði á ystu bryggj-
unni, bæjarbrvggjunni; þó braut
það hana ekki, heldur víxlaði hana
í miðjunni og brr'ut ýmislegt úr
henni, Pá tóku við bryggjur Dr.
Poul, fóru þær að mestu leyti. Pá
fóru allar bryggjurnar, sem ríkis-
verksmiðjan var búin að kaupa, og
platningarnar með. Bryggjur Hall-
dórs Guðmundssonar fóru og al-
gerlega, platningar og undan einu
húsi. Pá þvoði cg undan platning-
um Ásgeirs Pjeturssonar og »BaId-
urs«. Sagði tíðindamaður Norðl. í
gær, að heiía mætti að ekkert væri
óskemt og flest farið tii fulls alla
leið inn að Gránu-eigninni,
Flóðbylgju afskaplega gerði á
Siglufirði, svo að þar var Iíkara að
húsin stæðu í stöðuvatni en á
landi. Gekk flóðbylgjan suður á
milli »Haugasunds« og Bíósins, og
var eins og foss suður af eyrinni.
Var hverju mannsbarni ófæri neðst
og yst á eyrinni meðan háflæði
var.
Nærri má geta, að mikil skemd
er á húsum vegna þessa vatns-
gangs.