Norðurland - 26.11.1976, Qupperneq 2

Norðurland - 26.11.1976, Qupperneq 2
Magnús Kjartansson: 99Þú mátt aldrei selja það úr hendi þér“ Mér var að berast í hendur lsta tölublað af Norðurlandi og sé ástæðu til þess að óska norðlenskum sósíalistum til hamingju með mikil og góð umskipti í blaðaútgáfumál- um. Ég sé einnig ástæðu til þess að óska norðlendingum til hamingju með að hafa feng ið Vilborgu Harðardóttur til ritstjórastarfa; við höfum ver ið samverkamenn í blaða- mennsku mjög lengi, og hún á bæði til þann dugnað og þá dómgreind sem er aðal góðs blaðamanns. Það var aðeins eitt sem vakti undrun mína í þessu nýja og myndarlega blaði, for ustugrein sem Böðvar Guð- mundsson skrifaði undir fyrir sögninni „Alþingismenn í kaldastríðsleik“. Greinin fjall aði um það hvað ég væri ómerkilegur og lélegur þing- maður, þótt nafn mitt væri að vísu ekki fest á blaðið. Þar er sem betur fer um að ræða veilu í starfsemi Alþýðubanda lagsins sem fljótlegt og auð- velt er að bæta úr, og skal ég með ánægju stuðla að því. En það var tilefnið sem vakti undrun mína. Ég flutti tillögu um það 1 þingbyrjun að ís- lensk stjórnarvöld tækju upp sömu reglur um heimsóknir Bandaríkjamanna til íslands og vist þeirra hér og íslend- ingar eru látnir sæta í Banda- ríkjunum. Þetta er mál sem ég hef oft fjallað um, vegna þess að ég tel það eitt skýrasta dæmið um lágkúru íslenskra stjórn- valda í samskiptum við banda rísk. Þegar Bandaríkin her- námu ísland öðru sinni 151 hófst hér á landi ömurlegasta tímabil sem ég hef lifað. Þús- undum íslendinga var smal- að til hernámsframkvæmda á Miðnesheiði, og hernámsflokk arnir þrír, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur og Al- þýðuflokkur, gerðu fastráðna starfsmenn sína að njósnurum hernámsliðsins, afhentu her- námsliðinu gögn um alla þá sem um atvinnu sóttu, stjórn- LeikféJag Akureyrar Karlinn föstudag. Sabína sunnudag. Sabína miðvikudag. Karlinn fimmtudag. Miðasalan er opin frá 5 — 7 s. d. daginn fyrir sýningardag og 5 — 8.30 sýningardaginn. Sími 1-10-73. L. A. málaskoðanir þeirra, foreldra þeirra, vini og kunningja. Einnig réðu Bandaríkin í þjón ustu sína hóp manna sem vann að njósnum um íslend- inga, þannig að smátt og smátt urðu þegnar þessa lands „mannlíf á spjaldskrá“ í bandaríska sendiráðinu. Þá kröfðust Bandaríkin þess að íslendingar afléttu þeirri reglu að Bandaríkjamenn þyrftu vegabréfsáritun til ís- lands, þótt herraþjóðin beitti íslendinga harðasta pólitísku eftirliti ef þeir óskuðu af ein- hverjum ástæðum að ferðast vestur um haf. Á þetta var fallist af íslenskum stjórnar- völdum, og var þá komin upp sú skipan sem tíðkast í sam- búð nýlenduherra og ný- lendna. Þessi skipan helst enn, og fékk ritstjóri Norðurlands m. a. fróðlega reynslu um það. Mér finnst þessi niðurlæging íslenska ríkisins stórmál, en Böðvar Guðmundsson segir að þessi skipan sé „selffölgelig- heð“ sem „enginn getur breytt, vafasamt hvort nokkur vill breyta“. Böðvar Guðmundsson segir að þessi tillaga mín sé „leik- ur“, settur á svið til þess að „breiða yfir þann skelfilega sannleik að stóru málin ráð- ast án almennrar þátttöku al- þingismanna" og á þá við að efnahagsmál og kjaramál séu stóru málin. Þótt ég sé léleg- ur þingmaður hugsa ég einnig um kjaramál og efnahagsmál. En á því sviði eru áhyggjur mínar takmarkaðar. Ég veit að verkalýðshreyfingin og Al- þýðubandalagið munu hrinda þeirri láglaunastefnu sem nú er verið að reyna að festa 1 sessi; sú barátta verður vafa- laust hörð, en ég er í engum vafa um málalokin. Áhyggjur mínar eru bundnar við her- námið. Það hefur nú staðið rúman aldarfjórðung, og meirihluti landsmanna þekkir ekki annað ástand. ískyggi- lega stór hluti þjóðarinnar hefur bognað andlega eins og áskrifendasöfnun „Varins lands“ sannaði, og furðu marg ir sem ekki aðhyllast þann hóp virðast telja að hernámið sé ástand sem „enginn getur breytt“. Þessi þróun hefur oft vakið mér áhyggjur, en ég hef átt því láni að fagna að eignast góða vini sem ekki vildu gefast upp. Einn þeirra var Guðmundur Böðvarsson skáld á Kirkjubóli. Eitt sinn sendi hann mér til birtingar í Þjóðviljanum kvæði sem hann kallaði Fylgd. Hann ræðir þar við „litla ljúf, labba, pabba stúf“ og biður hann að koma með sér út í daginn. Þar ræðir hann við drenginn sinn um landið og fólkið sem í land inu hefur búið með því tæra og tilgerðarlausa málfari sem honum var gefið flestum skáldum fremur. Næst síðasta vísan er svona: Ef að illar vættir inn um myrkragættir bjóða svika sættir, svö sem löngum ber við í lieimi hér, þá er ei þörf að velja: Þú mátt aldrei selja það úr hendi þér. Það voru tilfinningar af þessu tagi sem ollu því að ég fór í öndverðu að skipta mér af stjórnmálum; þær eru enn efst í vitund minni og verða það vonandi meðan öndin blaktir í brjósti mér. Með þökk fyrir birtinguna, Magnús Kjartansson. PI8TILL VIKLNNAR SPARTACIJS Mörgum stigum hinnar sósíalísku verkalýðsbaráttu hafa verið gerð nokkur sldl, hér í blaðinu að undanförnu og einnig í fyrirrennara þess, Alþýðubandalagsblaðinu, að ógleymdum Þjóðviijanum. I því sambandi hefur verið minnst á alls konar „isma“, eða stefnur svo sem eins og kommúnisma, sósíalisma og sósíaldemokratisma og það hefur eflaust ruglað marga í ríminu, þegar þeir ætla svo að reyna að heimfæra þessar stefnur upp á íslenskt þjóð- félag, að það kemur ekki heim og saman við þær útlist- anir sem borgaraflokkarnir, það eru hinir svokölluðu „lýðræðisflokkar“, sem eru Alþýðuflokkur, Sjálfstæðis- flokkur, Framsóknarflokkur og Samtökin sálugu, hafa gert á þessum stefnum. Ekki er hægt að skilgreina hverja stefnu út af fyrir sig í svona stuttum pistli, en til glöggvunar má setja upp dæmisögur um heildarþróun vissra þátta mannkynssög- unnar og þess vegna væri það ekki úr vegi að setja upp dæmisögu um eðlis- og stigsbreytingu baráttu verka- mannsins, á þessari jarðsöguöld. Tökum til dæmls bardagaþrælinn Spartacus, sem allir sögufróðir menn ættu að þekkja, en hann var talinn leið- togi þeirra bardagaþræla er gerðu uppreisn gegn kúgur- um sínum og með sameinuðu átaki tókst þeim það, því þeir áttu aðeins til eins að vinna: Lífsins! En þrátt fyrir þessa „Iaunahækkun“ var enginn eðlismunur á stéttar- stöðu þeirra í þjóðfélaginu. Þeir þurftu ekki að láta líf sitt á leiksviði kúgaranna! Eftir langvarandi baráttu þræl- anna, í gegn um aldirnar, auðnaðist þeim að fá eignarrétt á nauðþurftum sínum, eins og klæðum og skæðum en enga hlutdeild í þeim afrakstri sem kom út úr þeirra vinnu. Þeir voru ennþá þrælar. Svo kom að lénsskipu- laginu og þá hafði þeirra barátta náð þeirri stigbreytingu í launum, að þeir máttu hafa viðlegupláss utan húsbónda- haganna, en öll sú vinna, sem þeir inntu af hendi var eign lénsherrans. Sem sagt, enginn eðlismunur, aðeins stigs- munur. Það væri hægt að rekja ýmsa smáa þætti, svo sem eins og það, að þegar leiguliði ætlaði að gifta sig, þá heimtaði Iénsherrann að fá að liggja með brúðinni fyrstu nóttina. En þetta er útúrdúr. Þegar svo verkalýður- inn sameinaðist gegn lénsaðlinum og braut konungsdæmið niður þá spratt upp ný stétt, borgarastéttin, sem var arf- taki lénsaðalsins, en tók upp breyttar aðferðir gegn verka- lýðnuin með því að hagnýta framtak verkamannanna (leiguiiðanna) í stærri einingum. Verksmiðjum. Þessar samþjöppuðu einingar urðu til þess að samstaða verka- manna varð betri varðandi kaupgjaldsbaráttuna, en stétt- arstaðan var hin sama. Þrælar, með hærri laun! Þess vegna ætti það að vera hverjum manni Ijóst að staða „nútímaverkamannsins“ í þjóðfélaginu er hin sama og Spartacusar, eðlilega séð, þó svo að kaupgjaldsbaráttan hafi tekið stigbreytingum. Þetta er sú staðreynd sem hinir svokölluðu lýðræðis- flokkar“ hafa reynt að fela. I hvert skipti, sem sósíalistar benda á að eðlisbreyting er jafnóumflýjanleg og stigbreyt- ing, þá rjúka þeir til og byrja að skruma til lýðsins um að þe'r vilji atvinnulýðræði, sem hefur hvorki áhrif á eðlis- né stigbreytinguna, heldur villir um fyrir laun- þegum um áðurnefndar stefnur, og þeir byrja að kalla sig jafnaðarmenn, vinstrimenn og það hefur meira að segja gengið svo langt að sjálfstæðismenn hafa boðið út „róttæka sjálfstæðisstefnu“. I þessum feluleik sínum hafa þeir svo ráðist gegn samfélagshugsjóninni með alls- kyns orðagjálfri og telja ríkið í eðli sínu mesta óvin hvers þjóðfélagsþegns. Það skal engan undra þó að það sé talið til dyggða að svíkja undan skatti, þegar svona lýðskrumarar vaða uppi. Þeir eru meira að segja svo ósvífnir að halda því fram, að sú barátta, sem Spartacus hóf og arftakar hans hafa haldið áfram til þessa dags, sé uppfundinn í tilraunaglösum þeirra Karl Marx og Fried- rich Engels og þess vegna sé þetta gömul lumma, sem ekki á heima í okkar þjóðfélagi og kemur þar af leiðandi ekki að neinuin notum. Þetta eru þeirra ær og kýr. Sem sagt, Spartacus, það þjóðfélagsfyrirkomulag sem við búum nú við er steinaldarfyrirkomulag sem verður að afncma, en það tekst ekki nema að þú fyllir þann flokk sem skilgreinir hina sósíalísku verkalýðsbaráttu rétt og það er Alþýðubandalagið! Á þann hátt og engan annan er hægt að efla baráttuvilja alþýðunnar til þeirrar eðlis- breytingar, sem áður er nefnd, ná algjörum yfirráðum verkalýðsins yfir þeim framleiðslutækjum sem hann sjálf- ur hcfur skapað og hann sjálfur vinnur við, eða með öðrum orðum: Þjóðfélagið!! Þ. S. 2 — NORÐURLAND

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.