Norðurland - 26.11.1976, Page 3

Norðurland - 26.11.1976, Page 3
Helgi Guðmundsson: SAIUFÉLAGI IMÚTÍIVIAISIS I. grein Helgi Gu'ðmundsson. Um þær mundir sem Alþýðu- samband íslands er að halda þing sitt, og heldur jafnframt upp á 60 ára afmæli sitt er ekki úr vegi að taka til um- fjöllunar stöðu verkalýðshreyf ingarinnar, svo menn gerðu sér betur grein fyrir þeim vandamálum og úrlausnarefn- um sem við er að glíma á hverjum tíma. Með þessu er ekki átt einasta við kjaramál í þrengstu merkingu. Miklu fremur um langtímamarkmið. í því efni þarf þá að svara þeirri spurningu hvort vel hafi unnist á liðnum árum og að hverju eigi að einbeita kröft- unum í framtíðinni. FÉLAGSLEG VANDAMÁL Eins og alkunna er hefur íslenska þjóðfélagið tekið firna miklum stakkaskiptum á því árabili sem liðið er síð- an verkalýðshreyfingunni óx svo fiskur um hrygg að hún fór að hafa áhrif á þróun þess. Sú hungurveröld, félagslegt öryggisleysi og menntunar- skortur sem þá var hlutskipti alþýðu, heyrir nú fortíðinni til og er væntanlega engum eftirsjá að því. Orsakirnar fyrir því að tekist hefur að afnema margvíslegt ranglæti úr þjóðfélaginu eru vafalítið af ýmsum toga, en áhrifarík- ast er þó án vafa afl og vilji verkalýðshreyfingarinnar gegn um árin. Naumast verð- ur á stundum greint á milli hinnar faglegu og pólitísku baráttu, því hvor þátturinn um sig hefur skilað stórum hluta af árangrinum. Hér verður ekki rakin saga stéttabaráttunnar að neinu verulegu leyti en minna má á að á stríðsárunum skapaðist óvenjulegt ástand sem verka- lýðshreyfingunni tókst að hag nýta sér og hefja þá lífskjara byltingu sem æ síðan setur mark sitt á íslenskt þjóðfélag. Sú barátta sem gerði þessa lífskjarabyltingu mögulega var þá í raun búin að standa um langt árabil. Beindist hún að því í fyrsta lagi að vinna verkalýðsfélögunum sess inn- an samfélagsins, fá þau viður- kennd sem raunveruleg hags- munasamtök alþýðunnar og í öðru lagi að því að vekja al- þýðuna sjálfa til skilnings á möguleikum til að afnema ríkjandi ranglæti, með sam- takamætti sínum. Það tókst að vekja stéttar- vitund verkalýðsstéttarinnar og árangurinn lét ekki á sér standa þegar hvort tveggja fór saman heppilegt ástand í þjóðfélaginu og miklir forystu hæfileikar hjá forystumönn- um verkalýðs til að leiða bar- áttuna við ríkjandi aðstæður. Enginn þarf þó að ímynda sér að ekki hafi verið skiptar ákoðanir um baráttuleiðina á hverjum tíma og vafalítið hef ur einatt verið hart deilt á forystuna. Gera má sér í hugarlund að ekki hafi þurft að leita langt eftir röksemdafærslu til að sýna verkafólkinu fram á nauðsyn samstöðu. Félagslegt ranglæti blasti við um allt. Atvinnuleysi var næstum eins og lögmál, óumflýjanlegt, nokkuð sem varð að reikna með þegar öll lífsafkoman var skoðuð. Mismunur auðs og fá- Til félagsmanna KEA Félagsmenn vorir eru vinsamlegast beðnir að skila hið fyrsta arðmiðum, sem þeir kunna að eiga fyrir yfirstandandi ár. Arðmiðunum ber að skila í lokuðu umslagi, er greinilega sé merkt nafni, heimilisfangi og félags- númeri viðkomandi félagsmanns og má skila um- slögunum í aðalskrifstofu vora eða í næsta versl- unarútibú. Tekið skal fram, að vegna vinnutilhögunar á skrifstofu vorri er æskilegt að arðmiðum sé skilað eigi sjaldnar en þrisvar til fjórum sinnum á ári. Kaupfélag Eyfirðinga tæktar himinhrópandi aug- ]jós. Við þessar aðstæður varð til forystulið sem sannarlega hertist í eldi baráttunnar og meðal verkamannanna mýnd- aðist harðskeytt og dugmikið baráttulið er reyndist fært um að leiða hin erfiðustu stétta- átök til sigurs. RÓMANTÍK EÐA RAUN- SÆTT MAT? Róttækir menn í verkalýðs- hreyfingunni hafa alla tíð síð- an litið til umrædds tímabils Er barátta andstæðra stétta úr sögunni, hin liðna tíð ein- ungis til í rómantískum hyll- ingum? Eða má ef til vill hag- nýta sér reynslu fyrri ára til að finna raunsæja baráttuleið við ríkjandi aðstæður? PÓLITÍSKT OG FÉLAGS- LEGT AFL Eins og nú er komið málum er íslenskt launafólk miklu verr launað en þekkist í ná- grannalöndunum og vinnutími á íslandi er miklu lengri. Allir segjast sammála um að sem óskaástands, sem skapa yrði á nýjan leik. Reynslan hafi sýnt og sannað að með baráttuleið þess tíma hafi af- drifaríkustu sigrarnir verið unnir. En það almenna félagslega ástand í þjóðfélaginu sem þá var ríkjandi, og átti vafalítið sinn þátt í að baráttan varð svo árangursrík er ekki leng- ur fyrir hendi. Lífsgæðamatið er annað, almennar skoðanir í samfélaginu eru aðrar, um- ræðuefnin eru önnur, fram- boð í menningarmálum er öðru vísi, skoðanamyndunin fer öðru vísi fram og þannig mætti lengi telja. Þegar þessa, og margs ann- ars er gætt, er ástæða til að velta því fyrir sér, hvaða að- ferð verkalýðshreyfingin á að beita í baráttu sinni. Eru til einhverjar nýjar leiðir sem koma í stað hinna eldri? Er stéttarvitund og samkennd verkalýðsstéttarinnar nægi- lega mikil til þess að fólk telji eðlilegt að leggja mikið af mörkum í félagslegri baráttu? Er gamli baráttuandinn úr sög unni og ef svo er, hvernig má þá endurvekja hann? þetta sé óæskilegt ástand, og því beri að breyta. Jafnvel at- vinnurekendur og afturhalds- samir pólitíkusar eru til með að samþykkja það. Hins vegar er aldrei að þeirra mati mögu leiki á að breyta ástandinu, ýmist vegna versnandi við- skiptakjara, eða vegna þess að landslýðurinn hefur tekið út forskot á sæluna þegar batnar í ári. En hverju er þá um að kenna að svo er komið og hvað an er úrbóta að vænta? Mestu ræður vafalítið sú undarlega árátta fjölda verka- fólks að velja til pólitískrar forystu í þjóðfélaginu fulltrúa þeirra afla, sem hafa and- stæðra hagsmuna að gæta. Af leiðingin er svo sú að borgara stéttin ræður yfir miklu póli- tísku afli, sem hún hikar ekki við að beita gegn verkalýðs- hreyfingunni hvenær sem henni þykir henta. Við þessu hefur verkalýðshreyfingin ekki átt kröftugt andsvar, öðru fremur vegna þess að starfshættir hennar hafa í allt of ríkum mæli einkennst af karpi um kaupið eitt og baráttuviljann til umtals- verðra þjóðfélagslegra breyt- inga hefur skort. Hvort vænta má breytinga á þessu ræðst vafalítið af því hvort verkalýðshreyfingin muni á næstunni breyta starfs háttum sínum í verulegum at riðum. Á þetta við um hvort tveggja: Baráttuna út á við og starfshættina inn á við. Þegar rætt er um barátt- una út á við er að sjálfsögðu ekki aðeins átt við kaup- gjaldsmál, heldur ekki síður um almenna þátttöku verka- lýðshreyfingarinnar í skoðana myndun í samfélaginu. Takist henni ekki að hafa áhrif í þá veru að vekja félagslega vit- und meðal félagsmanna sinna munu afskipti alþýðusamtak- anna af þjóðfélagsmálum og þar með möguleikarnir á að ráða raunverulegri fram- vindu í lífskjörum alþýðu- stéttanna, áfram vera bundin við þjark um verðlitlar krón- ur og aura einar saman. Um það hvort vænta megi breytinga í þessu efni verður fjallað síðar. Foreldrar settust á skólabekk Sú nýbreytni hefur verið tek- in upp á Dalvík að hafa for- eldraviku í skólunum og var hún lialdin í síðustu viku. Voru þá skólarnir opnaðir og foreldrum boðið að koma og fylgjast með eftir vild. Töluverður fjöldi foreldra kom í heimsókn í skólana og sat í tímum með börnum sín- um, einkum í yngri bekkjun- um, en færra á gagnfræðastig- inu. Þar var þó ekki um kennt áhugaleysi foreldra, en frem- ur hinu, að unglingarnir sjálf- ir munu heldur hafa latt þá fararinnar, — hvernig sem ber nú að túlka það! Það hefur ekki gerst áður að foreldrum væri' gefið slíkt tækifæri til að kynnast starfi skólanna, en einn faðir, sjó- maður, tók það sjálfur upp 1 fyrra að koma og fylgjast með kennslu í skóla barna sinna. Karlakórinn á Dalvík æfir nú af miklum krafti fyrir jóla tónleika. Hann hyggur á Nor- egsferð næsta sumar og hefur haldið tvö hjónaböll til fjár- öflunar. Viðræður eru hafnar um norræna menningarviku á Norðurlandi næsta sumar milli Dalvíkur, Ólafsfjarðar, Blönduóss og Sauðárkróks. — Óttar. NORÐURLAND — 3

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.